Vísir - 06.06.1929, Side 2

Vísir - 06.06.1929, Side 2
VISIR Nýkomið: Blandað hænsnafóðup, Hálfsigtimjöl, Laukup í pokum, 5Ottí5OíÍ!ÍOtt!55>5SÍÍíSíÍÍ5O»0íSÍSÍinO!ií = FÍLMUR = ný verðlækkun.; Framkðllnn og kopíerlng — ðdýrust. — SportvörDliðs Revkjauikur, (Einar Björnason) Bankastræti 11. — Simi 1053. 50000000005Í5S5S5S5S00000000005 Símskeyti Khöfn, 5. júní. FB. Ramsay MacDonald kvaddur á konungsfund. Frá London er símaö til Rit- zau-fréttastofunnar, aö Ramsay MacDonald hafi verið kvaddur á konungsfund í dag til þess að ræða um myndún nýrrar stjórn- ar. Blaðaummæli um hina nýju stjórn í Bretlandi. Lundúnablaðið „Morning Post“ óttast, að stjórn MacDon- alds, sem gengið er ut frá að mynduð verði, muni afnema tollvernd fyrir iðnaði þá, sem illa eru stæðir, en afleiðingarn- ar af því geti orðið hættulegar fyrir atvinnulíf Bretlands. Blaðið „Daily Mail“ býst við rólegri framþróun á næstu ár- mn, þar sem verkamenn geti aðeins fengið framgengt laga- frumvörpum þeim, sem frjáls- lyndir styðji. Frjálslynd hlöð gera það mjög að umtalsefni nú, að nauðsyn- legt sé að breyta kosningalög- unum. Frá Washington er símað, að það muni leiða af mynduú Mac- Donaldsstjórnarinnar, að sam- komulag í flotamálunum verði auðveldara við Bandaríkin. Vesúvíus farinn að gjósa. Frá Neapel er símað: Vesú- víus byrjaði að gjósa í gær- niorgun. Hraunstraumur veltur j niður austurhlíð fjallsins. Smá- bæir þar eru í hættu staddir. íbúarnir fíýja. Yfirvöldin liafa gert ráðstafanir til þess að hjálpa þeim. Bandaríkjastjórn styður bændur. Frá Washington er símað: Stjórnin ætlar að verja 200 milj. dollara til þess að koma í veg fyrir verðfall á landbúnað- arafurðum. Verð á liveiti Iiæklc- aði þess vegna töluvert í gær. Sven Hedin á heimleið Frá Stokkliólmi er símað: Sven Hedin landkönnuðlir er kominn til Ameríku frá Ivína. Er hann á heimleið. Kveðst hann Jiafa fundið eitt dinosaur- egg í Ivina og beinagrindur nokkurra dinosaura, sennilega 90 milj. ára gamlar. Óheilindi jafnaðarmanna. —o— Jafnaðarmenn láta svo sem þeir séu af alhug fylgjandi sam- bandsslitum við Danmörku. Um það telja þeir yfirleitt eng- an ágreining; þess vegna látast þeir lika skoða stofnun Sjálf- stæðisflokksins bláberan skrípa- leik. Hinsvegar áfeHast þeir sjálfstæðismenn mjög fyrir það, að þeir hafi enga afstöðu tekið til þess, livort konungs- sambandið við Danmörku skuli haldast, því að það sé í raun og veru aðalatriðið! — Af þessu geta menn nú fyrst og fremst séð það, að jafnaðarmenn meta það lítils, þó að önnur þjóð, margfalt f jölmennari en íslend- ingar, liafi sama rétt til allra landsins gæða eins og íslend- ingar sjálfir. Þetta algerða formsatriði, livort hér skuli framvegis verða konungsstjórn, telja þeir miklu meira um vert. Én það er meira sem í þessu felst. Með þessu gera jafnaðar- menn sig bera að liinum háska- legustu óheilindum í sjálfu sjálfstæðismálinu. Með sambandslögunum frá 1918 er ekkert um konungs- sambandið samið. Það er þar látið liggja algerlega inilli hluta. Ef sambandslagasamningun- um er sagt upp, þá leiðir af því, að vér fáum öll mál vor í vorar eigin hendur og jafnrétti Dana við oss liér á landi er úr sögunni, en konungssamband- ið getur að vísu Iialdist eftir sem áður. En til þess að mál- efnasambandinu, sem um er samið með sambandslögunum verði slitið, þarf að fara frain um það alþjóðaratkvæða- greiðsla, með þátttöku að minsta kosti % atkvæðisbærra manna á landinu og að minsta kosti % hlutar þeirra sem at- kvæði greiða, að greiða atkvæði með sambandsslitum. Það þarf Iþvi alleindreginn og samliuga vilja þjóðarinnar til þess að sambandsslitum verði fram gengt. — Nú er það augljóst, að jafnaðarmenn gera ráð fyr- ir því, að ýmsir þeir, sem að vísu vilja segja slitið málefna- sambandinu við Dani, og fá þannig fullan einkarétt yfir landi sínu og landsnytjum, kunni þó að vilja lialda kon- ungssambandinu. Þeim hlýtur þá líka að vera það ljóst, að ef þetta tvent, málefnasambands- slit og konungssambandsslit, er tengt algerlega saman, þá er hætta á því, að atkvæðin gegn sambandsslitum verði fleiri en ella, svo að það geti jafnvel riðið baggamuninn. — Með því að krefjast þess, að nú þegar skuli tekin ákvörðun um það, hvort konungssambandinu skuli slitið um leið og sam- bandslögunum verði sagt upp, eru jafnaðarmenn því berlega að vinna á móti íþví, að sú upp- sögn fari fram. Hins vegar er það augljóst, að þeim er ekki nein alvara um það, að losna við konunginn, þó. að þeir til málamynda sitji í sætum sínum á Alþingi, þegar þingheimur lirópar „liúrra“ konungi til dýrðar! Ef atkvæða- greiðslan um sambandslögin er einnig látin ná til konungssam- bandsins, eins og þeir vilja, þá verður aðstaða konungssinna við það miklum mun sterkari. Það þarf þá ef til vill ekki nema örfáa menn, til viðbótar við þá, sem mótfallnir kunna að verða sambandsslitunum af öðrum ástæðum, til þess að vernda rétt konungsins. Aðeins svo, að tala þeirra, sem greiða atlcvæði á móti sambandsslitum, verði fullur J4 hluti þeirra, sem at- kvæði greiða. Ef hugur fylgir máli lijá jafnaðarmönnum, þá lllytu þeir að sjá, að miklu auðveld- ara yrði að losna úr konungs- sambandinu eftir að málefna- sambandinu væri slitið, og þeir mundu þá að sjálfsögðu vinna að því af alhug, að fá sam- bandslögunum sagt upp, en forðast alt ^sem orðið gæti til að tvístra mönnum í atkvæða- greiðslunni um uppsögn þeirra. Að því búnu þyrfti vitanlega elcki nema stjórnarskrárbreyt- ingu til að losna úr konungs- samliandinu. Það er þannig alveg fullvíst, að þessi krafa jafnaðarmanna, um uppsögn konungssambands- ins, er í þeim einum tilgangi gerð, að vinna á móti uppsögn sambandsins við Dani og til að vernda jafnréttisaðstöðu Dana liér á landi, án þess að það sé berum orðum viðurkent, að það sé þetta, sem þeir vilja „halda í“. Jakob Möller. Fri ttr-ísliip. —o— FB. í júní. Mannalát. Þ. 25. apríl andaðist að heimili sonar síns á Gamli, Manitoba, hús- frú Steinunn Grímsdóttir Stefáns- son. Hún var fædd 8. okt. 1847, á Brettingsstöðum í N.-Þingeyjar- sýslu. Giftist hún Jónasi heitnum Stefánssyni frá Þverá í BlönduhliS sumarið 1866. Fluttust þau vestur um haf 1874, og voru í fyrsta land- nemahópnum í Nýja íslandi 1875, og bjuggu allan sinn húskap á Gimli. Eru fjögur börn þeirra á lífi, öll vestra. Rétt fyrir áramótin andaðist í Fort William, Ontario, konan Ólöf Steinsdóttir Tweedle. Hafði hún búið þar með manni sínum, David Tweedle, um 40 ára skeið. Áttu þau sjö börn, öll uppkomin, og sum gift. — Ólöf sáluga var fædd 1864, í Vík í Héðinsfirði, dóttir Steins Jónssonar þilskipstjóra í Vik. Eftir lát föður sín's fluttist Ólöf vestur um haf meö ínóður sinni 0g systur, Mrs. Tweedle hafði verið atorku- söm og góð lcona. Viðurkenning frá Minnesota. Heimskringla birtir þ. 1. maí bréf forse'ta Alþingis til ríkisstjórans í Minnesota, jiess efnis, að bjóða Minnesota að senda sérstakan full- trúa á Aljúngishátíðina, og þings- ályktunartillögu, í tilefni af boðinu, sem lögð er fyrir báðar deildir þingsins í Minnesota, og heimilar ríkisstjóranum, fyrir hönd ibúa og þings Minnesota, að bera fram ham- ingjuóskir til handa íslendingum og stjórninni á íslandi, á þessari sögu- legu hátíð, á þann hátt, sem hann telur best við eiga. — Að tillögu Mr. Johnson’s var þingsályktunin sámþykt. Kirkjuafmæli. íslensku söfnuðirnir í Argyle, Manitoba, halda hátíðlegt 40 ára afmæli Frelsiskirkju þar i bygð, í þessum mánuöi. Söfnuðirnir í prestakallinu áttu lengi allir sókn að þessari kirkju, og var hún um eitt skeið fjölmennasta sveitakirkja í -Manitoba og miðstöð íslensku bygðarinnar á þessum slóðum. Símskeyti —o— Khöfn 6. júní. FB. Ramsay MacDonald tekur við stjórn. Frá London er símað: Ranv- say MacDonald liefir tekist stjórnarmyndun á hendur. Stjórnin verður sennilega full- skipuð á laugardaginn. Síðustu fregnir af kosningunum í Bretlandi. Úrslit eru nú kunn í öllum kjördæmum, nema fjórum, og liafa verkamenn til þessa feng- ið 288 þingsæti, íhaldsmenn 257, frjálslyndir 58 og utan flokka 8. Eldgos magnast í Vesuvíus. Frá Neapel er símað: Vesuví- us-gosin halda áfram og áger- ast. Miklir hraunstraumar. Smá- hærinn Campitello hefir ger- eyðst, og aðrir smábæir eru í yfirvofandi hættu. Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík 6 st., ísafirði 4, Akureyri 6, Seyðisfirði 5, Vestm,- eyjum 6, Stykkishólmi 7, Blönduósi 7, Raufarhöfn 4, Hólum í Horna- firði 6, Grindavík 6, Fæx-eyjum 6, Julianehaab 5, Angmagsalik 2, Jan Mayen o, Hjaltlandi 6, Tynemouth 9, Kaupmannahöfn 8 st. — Mestur hiti hér í gær 10 st., minstur 4 st. — Úrkoma 6,2 mm. -— Grunn lægð suðvestur af Reykjanesi, en há- jxi-ýstisvæði fyrir norðan land. -— Horfur: Suðvesturland, Faxaflói: í dag breytileg átt. Smáskúrir. í nótt sentiilega norðaustlæg átt og úrkomulaust. Breiðafjörður: I dag og nótt norðaustan kaldi. Léttskýj- að. Vestfirðir, Noi-ðurland: 1 dag og nótt norðaustan kaldi, allhvass úti fyrir. Víðast úrkonxulaust. Norð- austurland, Austfirðir: í dag og nótt norðaustan kaldi, regn eða krapaskúrir. Suðausturland: í dag og nótt vaxandi norðaustan átt, all- hvass úti fyrir. Léttskýjað. Forsætisráðherra var meðal farþega, sem liéðan fóru í gærkveldi á m.s. Dron- ning Alexandrine. Fór hann til jþess að leggja fyrir konung til undirskriftar lög þau, sem sam- þykt voru á síðasta Alþingi. Sænsku flugmennimir hafa ekki lagt af stað í morg- un, svo að kunnugt sé. Flug- veður er ekki allskostar hag- stætt í dag. Eimskipafélag íslands liefir gefið út tvo bæklinga með myndum og ensku lesmáli, til þess að draga athygli ferða- manna að landinu og skipa- ferðum félagsins. Annar bæk- lingurinn lieitir: „Views from Iceland", en hinn: „Some Questions answered, about a Summer Trip to Iceland“. Báð- ir bæklingarnir eru skreyttir úrvalsmyndum víðsvegar af landinu, og veita útlendingum nauðsynlega fræðslu um ferða- lög hér á landi. Leiðréttingar. Þessar prentvillur liafa orðið í grein alþm. Ingibjargar H. Bjarnason í Vísi 4. þ. m.: Öðr- um dálki, 19. línu a. 11.: tóttælc, les róttæk, og sama dálki 4. línu a. n.: heldur eins og sem endur- bætur, les: heldur sem endur- bætur. Trúlofanir. Á laugardaginn opinberuðu trúlofun sina ungfrú Sigrún Helgadóttir og Bjarni Gunnar Sæmundsson, bifreiðarstjóri, bæði hér í Reykjavík. Trúlofun sína opinberuðu á laugardaginn ungfrú Sigríður Hjörleifsdóttir Þórðarsonar frá Hálsi og Ágúst' Guðmundsson, Bræðraborgarstig 3. Dronning Alexandrine fór héðan í gærkveldi áleiðis til Kaupmannahafnar. — Meðal farþega voru læknarnir Konráð Konráðsson og Þórður Edílons- son og frúr þeirra, frú Elín Guð- mundsson, ungfrú Kristin Arn- ar, Axel Andersen klæðskeri og frú, Haraldur Björnsson leikari, Ingolf Madsen, Jul. Jörgensen o. fl. Goðafoss fer héðan í kveld kl. 8, til Hull og Hamborgar. Kristileg samkoma á Njálsgötu 1 kl. 8 í kveld. Allir velkomnir. Nýjar kvöldvökur (3.—6. Iiefti samfest) eru ný- komnar hingað. Ritstjóri er Friðrik Ásmundsson Brelckan, en útgefandi Þorsteinn M. Jóns- son á Akureyri. Efni þessa lieftis er þetta: Gestur, saga eftir Jónas .1. Rafnar, Nú skal eg vaka, kvæði eftir Jón Jóns- son Skagfirðing, Bókmentir, yfirlit, eftir Guðm. Gíslason Hagalín, Galdrarnir eilífu, þýdd saga, La Mafía, þýdd saga, Vor, kvæði eftir Jakoh Ó. Pétursson frá Hranastöðum, Höfuðborg- ir, Þrettán núll, núll, þýdd saga, Héimilistýraninn, þýdd saga, og Smávegis. — Af-

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.