Vísir - 14.01.1930, Síða 2

Vísir - 14.01.1930, Síða 2
V I S I R Salan eykst daglega á þeasu ágnta smjör- líki, það eýnlr að fleiri og flelri heimill eru farln að nota það. Símskeyti —o— London FB, 13. jan. (Mei5t. 14./1.). Forvextir lækka í Þýskalandi. United Press tilkynnir: — Frá Berlín er síma'ö: Forvextir hafa veriö lækka'ðir um hálfa prócentu, niöur í sex og hálfa. Slys við skotæfingar. Frá London er símaö: Opinber- lega tilkynt að tuttugu hafi drukkna'S á sunnudagskveld, er ciráttarbáturinn Saint-Genny, er taldist til Atlantshafsflotans, sökk ca. 32 mílur enskar fyrir norö- vestan Ushant. Slysið vildi til er skotæfingar fóru fram, i allmikl- um stormi. (Ushant er eyja, eigi Jangt undan Brest í Frakklandi). Hungursneyð í Kína. Frá Pekiríg er simaö: Grover Clark, amerískur blaöamaSur, sem nýkominn er úr ferðalagi um Shansi-hérað, hefir lýst því yfir að tvær miljónir manna ltafi orð- ið hungurmorða í Mið-Shansi, síð- astliðið ár. Blaðamaðurinn telur- fullvíst, að annar eins fjöldi muni hrynja niður fyrir lolc júlimánað- ar, þar sem horfur eru þær að upp- skera bregðist enn einu sinni, en ttppskeran í Shansi hefir nú brugðist firnm ár i röð. Verða þá eítir í Shansi að eins tvær miljón- ir manna. Blaðamaðurinn segir, að getu ogskilningsleysihinsopinbera sé einnig um að kenna hvað á- standið sé slæmt. Kröfur hers- höfðingjanna sitji fyrir öllu öðru og ekkert vcrði eftir handa hinum bágstöddu. Blaðamaðurinn segist hafa komið í nær hundrað þorp, þar sem ekki einn einasti íbúi var eftír uppistandandi. — Sumstaðar krupu foreldrar barna, aðfrarn- komnir af hungri, á kné ’fyrir hon- um og vildu gefa honum börn sín, eí hann að eins færi með þau þang- að, sem þau gæti fengið mat. — Ástandið er nú orðið svo slæmt, að jafn vel 300.000 hermenn líða einnig sáran skort, en liingað til hefir verið séð fyrir þeim. Allar samgöngur eru í svo megnu ólagi. aö blaðamaðurinn telur nær óger- legt að bjarga fólkinu, þótt reynt væri. Hnefaleikasamkeppni. Frá New York er símað: Jack Dempsey, lmefaleikakapppinn sem hafði heimsmeistaratitilinn, uns Tdmar kjöttunnsr úr brenni og greni verða kcypt- ar við Loftsport (beint á móti Hamri). Botnar verða að fylgja. Sínrí 17(ib. liann beið lægri hlut fyrir Gene Tunney, hefir skrifað grein í íþróttaritið „The Ring“ urn hnefa- leikskappa ]>á, sem eru að keppa um áð verða fyrir vali til þess að keppa um heimsmeistaratitilinn. Gerir Dempsey sér von um að am- eríski hnefaleikskappinn Sharkey muni bera sigur úr býtum yfir, Schmeling Carnera, Scott og Cam- polo. Iiinsvega segir Dempsey að eí Sharkey takist ekki að ná því inarki, að fá að verja titilinn fyrir Bandaríkin, ]>á kveðst Dempsey munu verja titilinn sjálfur. (Tunn- ey mun hafa tilkynt, að hann sé hættur hnefaleikum). —• Dempsey álítur þjóðverjann Shmeling hættulegasta útlenda keppinautinn og koma næst Sharkey. LJtan af landi. Akureyri, 13. jan. FB. Fannfergi afskaplegt hér í bæn- um og grendinni. Hefir snjóað látlaust í heila viku. Sent dæmi um samgönguerfiðleikana má geta þess, að Mjólkúrsamlagið fær dag- lega um 4000 lítra mjólkur þegar ekkert hindrar, en fékk hríðar- dagana 500—600 lítra, en þarf um 1000 handa bæjarbúum. Snjóflóð féll á Vaðlaheiði vestanverðri og braut símastaura á kílómetra svæði. Esja væntanleg i kvöld. Frá Akureyri. Bæjarstjórnar- kosning fer fram á Akureyri í dag. Kosnir verða ellefu fulltrúar. Bæjarstjórn Akureyrar skipa nú fimm jafnaðarmenn, fjórir Sjálf- stæðismenn og tveir Framsóknar- raenn. Búist er við, að talning at- kvæða verði lokið fyrir miðnætti. Erlingur Friðjónsson alþm. og íngólfur alþm. Bjarnason taka sér far á Esjunni suður. (FB.) Skóhlííar Hlítarstígvéi i afar stóru úrvali. Verðið hvergi lægra. Evasnbergsbræiar. 1 UTSALAN holdup áfnam, mjog mikill afsláttup. V eFsíun M. Thorberg, Bankasfræti 7• 3 ¥etFaFhúfuF d> úr sklnni, margar teg á börn og fulloröna, og VetFapfpaJkkat® allar stærðir nýkomnar í Austurstræti 1. Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. Píslarsagao. Síra Friðrik Hallgrímsson, dóm- kirkjuprestur, hefir nýlega gefið út bók, er nefnist „Pislarsagan, ásamt stuttum skýringum og sjö íöstuhugleiðingum". Bókin er mjög vönduð að öllum írágangi, prentuð á afbragðs jiappír og prýdd sex myndum úr píslarsög- unni. Verður l>est sagt frá efni hennar með því að jxenta upp að mestu formála höfundarins, og er hann á ]>essa leið : ,,í „Handbók fyrir presta á Is- landi“, sem notuð var þangað til „Helgisiðabók íslensku þjóðkirkj- unnar“ kom út 1910, var „Jesú Krists píslarsaga, samantekin eft-' ir hinum fjórum guðspjallamöón- um“. Var píslarsagan þar sögð þannig, að safnað var samarí i eina heild öllu því, er guðspjöllin segja frá um það efni, og sagan sögð með orðum ritning- arinnar sjálfrar. Var þessi píslar- saga notuð á föstudaginn langa og við guðsþjónustur á virkum dögum á föstunni, ]>ar sem þær voru haklnar. Henni var skifti í sjc> ]>arta, tins og vikurnar eru margar í föstunni. Þegar nýja biblíuþýðingin ís- lenska kom iit, skrifaði ég upp eftir henni píslarsöguna, með sama fyrirkomulagi og er í Handljók- inni, að öðru leyti en því, að á stöku stað slepti eg óþörfum og óeðlilegum lendurtekningum. Skiftingunni í sjö parta slepti eg, en hefi í þess stað skift sög- unni í 24 styttri kafla. með sér- stökum fyrirsögnum, og visað við hvern kafla til þeirra Passíusálma, er viö eiga, til hægðarauka fyrir ]>á. er þessa bók lcynnu að nota við heimilisguösþjónustur á föst- tmni; mætti þá í hvert sinn lesa einn eða fleiri kafla, og syngja eða lesa á undan og eftir einhverja af þeim Passiiusálmum ! er við eig'a .... Stuttar skýringar hefi eg sett aftan við Píslarsöguna og vísaö til þeirra í textanum með tölum. Loks eru í bókinni sjö föstu- hugleiðingar — að efninu til föstu- predikanir þær, er eg (þ. e. sr. Fr. H.) hélt síðastliðinn vetur“. Bók þessi verður áreiðanlega kærkomin mörgum. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar hefir kostað útgáfuna og ekkert til sparað, að ltún yrði sem allra r önduðust, en Félagsprentsmiðjan annast prentunina með mikilli 1 rýði. Sven Lange rithöfundur og listdómari andað- ist í Kaupmannahöfn 6. ]>. m. Banamein hans var blóðeitrun. Sv. L. var fæddur 186S. Fyrsta skáld- verk lians kom út 1893 (Engelche og andre Fortællinger). Eftir ]>að skrifaði hann fjölda leikrita, svo sem „En Martyr“, „Iris eller den usaarlige Frue“, „De stille Stuer“, „En Forbryder" (leikið hér á dönsku af Fr. Boesen og' leik- flokki hans), „Kvindeiykke“, „Samson og Dalila“, „Fru Majas Hævn“, „Kærligheden og Döden“, „Leonora Karoly“ o. fl. — Auk þess skrifaði hann nokkurar smá- spgur og skáldsöguna „TTjertets Gerninger“. Sven Lange mun mega teljast með betri rithöfundum Dana á siðustú áratugum. Leikrit hans cru flest allvel skrifuð, en fæst þeirra hafa orðið vinsæl á leik- sviöi. Margir telja „Hjertets Gerninger“ besta vcrk höfundar- ins. Auk skáldverkanna skrifaði Sv. L. mikinn fjölda leikdóma og' ritdóma. Meðal merkra manna, sem skrif- aö hafa um Sven Lange látimp má nefna Gimnar Gunnarsson, skáld. Smeykir viis guðlastið. —o— Eins og kunnugt er, hefir Sovietstjórnin i Rússlandi látið drepa fjölda manna fyrir ]>ær sak- ir einar, að þeir trúðu á guð og annað líf. ITafa þessir rússnesku böðlar gengið að ]>ví með oddi og egg', að uppræta öll trúarbrögð þar í landi. Þar eiga menn að trúa á böðlana sjálfa, en afneita öllum guðdómi. Eru trúarbragðaofsókn- irnar í Rússlandí talandi vottur um menningarástandið þar og einn hinn svartasti blettur, sem faUið hefir á nokkura þjóð. Get- ur vart hryllilegri aðfarir en þær að drepa saklaust fólk sakir þess eins, að ]>að trúi á guðlega for- sjón og ódauðleik sálar sinnar. Jafnaðarmennirnir* hérna í Reykjavík hafa löngum lofsungið allar aðfarir Rússa, manndráp þeirra, guðleysi og annað. Sé and- að á hina rússnesku óhappamenn, reka þeir upp fáránlegustú skræki og láta ölluni: illum látum. Þrá- sinnis hafa þeir farið svívirðing- arorðum um guðdóm Krists og kristindóminn og vafalaust hafa þeir fullan hug á því, að afkristna l.andið. Rússastjórn er þeirra mikla fyrirmynd í öllum efnum, jafnt guðleysi sem öðru, og að sjálf- sögðú mundu þeir fylgja dæmum lærifeðra sinna í öllum efnum, ef ]>eir þyrði. En þeir vita sem er, að öli alþýöa manna fyrirlítur guð- laust og óvirðulegt hjal um krist- iudóminn. Þessvegna bæla þeir kristindóms-hatrið niður, eftir því scm þeir geta. En við og við bloss- ar það þó upp, og nú siðast í ný- árshugvekju blaðsins. Var sá sam- setningur eitt hið andstyggileg- asta guðlast, sem sést hefir á prentí hér á landi um langt skeið, enda blöskraði mörgum alþýðumönn- um, ekki síður en öðrum, er þeir lásu ]>essi ósköp. Getur vrírla hjá ]>ví farið, að flokkurinn verði þess eitthvað var núna við kosningam- ar, að kjósöndum sé ekki alveg sama um háttalag „forsprakk- anna“ i kristindómsmálunum. Það cr og lika haft eftir einum höfuð- paur flokksins, liægfara meinleys- ingja, að það dugi ekki að vera að guðlasta, svona rétt fyrir kosning- ar. Og nú sé um að gera, að tala vel um guð og kristindóminn fram yfir kosningarnar. Og „Alþýðublaðið" er nú farið að breyta samkvæmt þessu boðorði forsprakkans. Það birti smágrein í gær og er að kreista út úr sér hlýleg orö um guð og frelsar- ann, en allir sjá, að það eru bara látalæti. Kristindómshatrið ólgar undir niðri, en liræðlan rekur höf- undinn áfram — hræðlan við lcjós- endurna —• hræðslan við næstu kosningar. Hin rússneska ógnar-stjórn viU afnema jólahátíðina. Bergmál aust- rænu böðlanna hér á landi mundi vilja gera slíkt liið sama, en hug- rekkið brestur. íslensk alþýða er kristilega sinnuð. Hún hlýtur fyrr eða síðar aö rísa öndverð gegn þeim mönnum, sem svívirða Icrist- indóminn, því að hann hefir verið huggun og íithvarf þjóðárinnar kynslóð eftir kynslóð. Það gæti verið fróðlegt, að at- huga „Alþýðublaðið“ á undanföm- um árurn og birta eitthvert lirafí af guðlasti þess núna fyrir lcosn- ingarnar, og væri óskandi, að ein- liver, sem tíma hefir til, vildi leggja það á sig. Gæfi þar sjálfsagt á aö líta, ef slíku góðgæti væri safnað saman og birt í einu lagi. 8. janúar. N. N.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.