Vísir - 03.05.1930, Page 3
V l S 1 R
FRIGIDAIRE kæliskápar eru nauðsynlegir á hverju
keimili. Verja mat skemdum og borga sig á stuttum
tímu.
Rafmagnsmótorinn í FRIGIDAIRE eyðir ekki meiri
straum en meðalstór Ijósapera og passar sig alveg
sjálfur. , . i
Með kælistillingunni í skápunum má tempra kuld-
ann efíir vild, búa til ís, ískrem og margskonar Ijúf-
fenga rétti, fljótt og fyrirbafnarlítið.
Aðalumboð
Jðh. Olafsson & Co„ Reykjavík.
ícaflinn úr söngleiknum. Frúin
'Syngur hlutverk Violettu, en Per
Bíörn hlutverk Germonts, föður
Alfreds, elskhuga Violettu. Fær
Ibann hana til þess að slíta tr>7gð-
lim við Alfréd, til þess að systir
hans geti gifst, en það getur eigi
(orðið, meðan Alfred og Violetta
eru saman; það er Imeyksli, sem
syerður að afmást áður. Göfug-
lyndi Violettu sigrar, en hún
wrður mikið á sig að leggja,
því að hún elskar Alfred. —
Lengra nær þetta ekki að þessu
sinni. Vafalaust hefði margir
'viljað lieyra frúna fara með
hlutverk þetta frá upphafi iil
®nda.
Áheyrendur skemtu sér ágæt-
legft.
h—.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavik 10 st., Isa-
fírði 3, Akureyri 8, Seyðisfirði
3, Vestmannaeyjum 6, Stykk-
Ishóhni 6, Blönduósi 4, Rauf-
arhöfn 1, Hólum í Hornafirði
5, Grindavík 7, Færeyjum 7,
Hjaltlandi 8, Tynemouth 5,.
Kaupmannahöfn 13, Jan Majr-
®n -r- 2, Angmagsalik 5, Juli-
aneliaab 7. Mestur hiti i Rvík
i gær 12 st., minstur 6 st. Úr-
.koma 0,6 mm. Grunn lægð og
nærri kyrstæð fyrir suðaustan
iand, en háþrýstisvæði fyrir
norðaustan. — Hotfur: Suð-
vesturland og Faxaflói: All-
llivass suðaustan og sunnan.
Smáskúrir. Breiðaf j örður, Vest-
firðir, Norðurland: Suðaustan
kaldi, úrkomulaust. Norðaust-
urland: Allhvass suðaustan og
úrkpma í dag, en batnandi veð-
ar í nótt. Austfirðir og suðaust-
arland: Suðaustan kaldi. Þýkt
ioft og dálllil rigning.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11 síra
Bjarni Jónsson, ferming, engin
siðdegis guðsþjónusta.
I fríkirkjunni í Reykjavík kl.
12, síra Árni Sigurðsson, ferm-
ing.
í Landakotskirkju kl. 9 árd.
hámessa, kl. 6 síðd. guðsþjón-
usta með prédikun.
I Spítalakirkjunni í Hafnar-
firði kl. 9 árd. liámessá, kl. 6
síðd. guðsþjónusta með prédik-
un.
Sjómannastofan. Samkoma á
morgun í Varðarhúsinu kl. 0
síðd. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Samkomur
á mörgun. Helgunarsamkoma
kl .11 árd. Sunnudagaskóli kl. 2
siðd. Útisamkoma á Lækjar-
torgi kl. 4. — Iljálpræðissam-
koma kl. 8% síðd. Ensain Gest-
ur J. Árskóg stjórnar. Horna-
flokkurinn og strengjasveitin
aðstoðar. Allir velkomnir.
Heintilasambandið heldur
fund mánudaginn 5. maí kl. 4
siðd. Stud. theol Valgeir Skag-
fjörð talar.
Slys.
Það slys varð á hafnarbakk-
anum í gær, við kolageyinslu
Þórðar Ólafssonar og Sigurðar
Runólfssonar, að bifreið féll
ofan af kolabing, er verið var
að losa hana, og tveir menn
með henni, bifreiðarstjórinn og
verkamaður að nafni Helgi
Jónsson, til lieimilis i Suður-
pól. Bifreiðarstjórann sakaði
ekki, og mun hafa komist úr
bifreiðinni í fallinu, en Helgi
varð u-ndir bifreiðinni og var
dreginn undan henni meðvit-
undarlaus. Var hann borinn
inn í afgreiðsluskúr þar nærri.
Raknaði ltann við fljótlega, en
hafði miklar kvalir í líkaman-
um. Læknis var þegar vitjað og
maðurinn fluttur í sjúkraliús.
Hann reyndist nokkuð marinn
og hruflaður, en ekki brotinn.
Þegar síðast fréttist, leið hon-
um vel eftir atvikum og kemst
væntanlega heim til sín í kvelc
eða á morgun.
Hestur drukknar í höfninni.
I gærdag bar það við, að
vagnhestur með kolavagn i eft-
irdragi féll í höfnina rétt hjá
kolabryggjunni á eystri liafnar-
bakkanum og druknaði þar.
Hafði hesturinn að sögn verið
skilinn eftir mannlaus, en ein-
hver ókyrð eða fælni komið að
honum, og hafði hann hörfað
aftur á bak út af liafnarbakk-
anum og sokkið svo að segja
að vörmu spori.
Samsæti
halda Guðspekifélagar frk. H.
Kjær, á Skjaldbreið í kveld kl.
8%.
60 6ra
er í dng Ármann E. Jóhanns-
son, Bakkastíg 6.
Meistarinn Marteau
hefir haldið hljómleika á Ak-
ureyri fyrir fullu húsi. Hann
cemur aftur með „Drotning-
unni“ á morgun og heldur
kveðjuhljómleika í Iðnó á
þriðjudagskveld.
Frú Therp og herra Biörn
dönsku leikararnir, höfðu
troðfult hús á söngleik sínum í
Iðnó í gær. Þáu endurtaka hann
siðasta sinn á morgun.
Sexlugsafmæli
á í dag Björn Bjömsson, vegg-
fóðrari, Laufásvegi 41.
Brottreksturinn.
Fátt sögulegt mun liafa gerst
Kleppsmálinu i gær. Ólafur
Thorlacius liafði sést í hælinu
■við og við. Þar er nú fullkom-
ið vandræða-ástand, kvíði og
óróleiki meðal sjúklinga og
aðstaða hins nýja læknis öll
hin aumkunarverðasta, sem
von er. Munu tiðindi þau, sem
nú hafa gcrst og eru að gerast
í sambandi við sjúkrahúsið á
Kleppi lengi í minnum höfð
og til þeirra vitnað, jiegar
verstu og hneykslanlegustu
verka er getið.
Síra Árni Sigurðsson
biður þau fermingarbörn sin,
sem eiga að fermast þann 11.
þ. m., að koma í dag til viðtals
í fríkirkjuna kl. 6 síðd.
Síra Bjami Jónsson
biður þau börn, er selja vilja
á morgun merki, að koma til
viðtals í kirkjunni, kl, 7 í kveld.
Heimdallur,
félag ungra Sjálfstæðis-
manna hefir fund í Varðarhús-
inu á morgun kl. iy2 e. h. Dag-
skrá: Borgarnessförin, land-
kjörið o. fl. Áríðandi að fjöl-
menna.
Landkjörið.
Á síðasta bæjarstjómar-
fundi voru kosnir í j'firkjör-
stjórn í Reykjavik við land-
kjörið 15. júní n.k. Einar pró-
fessor Arnórsson og Jón Ás-
hjörnsson hrm., en varam.inn
voru kosnir: Pétur Halldórs-
son og Lárus Fjeldstcd hrm.
Skýrsla
frá dr. Helga Tómassyni, um
aðdraganda að yfirlýsingu hans
um heilsufar dómsmálaráðhcrr-
ans og heimsókn lians til ráð-
herrans, verður birt á morgun
í Vísi og Morgunblaðinu.
Heimilisiðnaðarsýningin
i liúsi Mjólkurfélagsins við
Hafnarstræti er opin í dag kl.
10—7. Aðgangur er ókcypis.
Allir velkomnir.
Elliheimilið nýja
verður til sýnis kl. 2—4 á
morgun, samkvæmt ósk margra
hæjarbúa.
You,Too,Can JExiijoy Tkis Delicacy
\/F waffles are not a
Qy regular feature of
your weekly menu, you
are depriving your family
of a delicious treat. These
crisp, goiden-brown del-
icacies are a food with
which there is nothing to waföes every day.
compare . . . And
they are so easy to
make! Wi th a West-
inghouse Waffle
Iron anyone can
make them perfectly,
even the first time—right
at the table without any
smoke or inconvenience.
Just follo-w the simple di-
rections below—and you
will want Westinghouse
lioeftpes Sift 2 cuf»s flnur, 4 level ieo3£>oooa
bftlunc powder, aad H tcaspoon salc togethef; r-dd
cups milk to yolks of 2 cggs, Knd add to dry
ingredicnts; add 1 tabiespoon melfed shorteniog;
mix ia weli-beaten whites -of 2 eggs. Pouc batter
inco Westingbouse WafSe Iron and bakc to 3
minutcs. When goidcn-bkown, setvc f ipiog not
witli butterand sugar or butter afld sfrup.
Þessi inndæla vöfflojárn fást bjá Elríki
Hjartarsysl, Laugavefl 20. Síml 1690.
Glœný fslensk
- EGG -
16 «111*8.
jiUÍRlíaldí,
Dansleikur K. R.
I kveld kl. 9 heldur K. R. dans-
leik í lþróttahúsinu. Aðgöngu-
miðar verða seldir þar í dag kl.
6—8 siðdegis.
Athygli
skal vakin á auglýsingu um
akstur til Þingvalla í sumar á
yfirbygðum vörubifreiðum.
Ármenningar!
Munið glímuæfinguna í kveld
kl. 8—10 í fimleikasal menta-
skólans.
Af veiðum
komu í gær og í morgun botn-
vörpungarnir Gyllir, Þórólfur,
Bragi, Fróði, Geir, Belgaum,
Skúli fógeti og Hilmir, allir
með mjög góðan afla, sumir
ágætan.
Amund
aukaskip Eimskipafélagsins
kom hingað i gær.
Aðventkirkjan.
sunnud. kl. 8 síðd. Ræðuefni:
„Hvernig er sáttmáli góðrar
samvisku við guð réttilega gerð-
ur?“
O. J. Olsen.
Til Hallgrímskirkju í Rvík
10 kr frá G. Þ.
Til fátæka mannsins,
sem slasaðist, 5 kr. frá N. N.
Áheit á Strandarkirkju
afhent Vísi, 20 kr. frá H. M„
5 kr. frá S. G„ 15 kr. frá G. J„
5 kr. frá I. E., 2 kr. frá N. N„
3 kr. frá M. K.
IEIHSKIPAFIKLAGJ
mm tstAHPS
„Brúarfoss4
fer frá Kaupmannahöfn á* morg<
un um Hull til Austfjarða,
Reykjavíkur og Vestfjarða.
Skipið fer héðan til útlanda
nál. 21. maí.
í HEILDSÖLU:
Lárberjalauf,
Vínberjaedik, )
Edikssýra.
Ómissandi þar sein rauðmag-
inn er kominn á markaðinn.
R. I. Efoaoerð RoHiwfbir.
íslenskur matnr.
Saltkjöt, rullupylsa, súr hval-
ur, kæfa, egg, smjör, tólg og
skyr.
Verslnnin Björnlnn.
\
Lltil hæg jörö
i ölfusi fæst keypt, með áhöfo,
ef með þarf. Ræktunarskilyrðí
góð. Makaskifti á lítilli liúseign
möguleg. — Semjið við
SIGURÐ ÞORSTEINSSON,
Rauðará.