Vísir - 04.12.1930, Blaðsíða 3

Vísir - 04.12.1930, Blaðsíða 3
V I S í R Frú Aðalbjörg Sigurðar- dóttir hefir nýlega gefið út „Bænir tilheyrandi Árin og ei- lífðin I“, eftir Harald sál. Ni- elsson, prófessor. Höfðu margir Jkvartað yfir því, þegar er ræðusafnið (Árin og eilífðin I.) koni út, að engar bænir fylgdu ræðunum, og voru höfundin- um sifelt að berast kvartanir yfir þessu frá lesöndum bókar- Snnar víðsvegar um land. Þeg- ar ekkja liöfundarins gaf út síðara bindi ræðusafnsins, jþótti henni sjálfsagt, að láta bænimar fylgja með þvi. Siðan befir hún fengið bænir þær, er tilheyra fyrra bindinu og gefið þær út, eins og áður. var sagt. s,Nokkrar tækifærisbænir, sein ®g fann um leið“, segir útgef- andinn i formála fyrir kverinu, „læt eg fvlgia með sem sýnis- hom af þeim tegundum bæna. Sömuleiðis notaði eg tækifærið 4il að forða frá gleymsku ímessubænunum, sem maður- ínn minn notaði við upphaf guðsþjónusta sinna siðustu ár- ín. Veit eg að mörgum, sem á hlýddu, eru þær ógleymanlegar í sambandi við hið yndislega orgelspil, sem látið var fylgja þeim.“ Haraldur p'róf. Níélsson var vafalaust einhver allra mesti og snjallasti prédikari, sein usppi hefir verið hér á landi síðustu mannsaldrana, og hafa ræð'isöfn hans orðið vinsæl meðal fjölda manna, jafnvel sumra þeirra, sem fylgdu hon- iim bó ekki að málum í trúar- skoðunum. Má þvi óhætt gera ráð fvrir, að bænasafn það, sem hér er um að ræða, verði kærkomið ölluin þeim, sem ænæíur höfðu á hinum fram- liðna ræðuskörungi og predik- unarstarfsemi hans. Hijímsveifin úg tönlistarskdlinn Viðtal við stjórnanda Hljóm- sveitarinnar. Nýlega fékk eg tækifæri til nokkuð ítarlegs viðtals við dr. Mixa um starfsemi Hljómsveit- arinnar á yfirstandandi vetri. Þar sem Cltvarpsstöðin mun nú bráðum taka til starfa, varð ffyrsta spurningin eðlilega i þvi sambandi: — Hvernig geinð þér ráð fyr- ir að starfi Hljómsveitarinnar við ÍJtvarpsstöðina verði liátt- áð? — Sveitin er ráðin til þess, að hafa útvarjishljóinleika tvis- var í viku. Eg vona, að geta ikomið þar fram með nokkuð störan flokk þriðju hverja viku að jafnaði og þrisvar í mán- uði með nokkru minni flokk (um 12 menn). Þegar þess er gætt, að margir þátttakenda verða að nota talsvert af tíma sínum til náms, er ekki hægt að búast við meira, ef æfingar eiga að vera eins nákvæmar og óhjákvæmilegt er að þær séu. önnur kveld verður svo flutt kammermúsik, þjóðleg músik og Idassisk danslög. — Getið þér gefið nánari upplýsingar um verkefnin? — Til að bvrja með liefi ég undirbúið „Spielmusik“ eftir Kríeger (bvskt tónskáld frá 18. bld) og einnig leiksviðsmúsik eftir Purcell (frægt enskt tón- skáld, er uppi var á 17. öld). Fámennari flokkurinn mun að- allega flytja alþýðlega tónlist (Brot úr söngleikuin, ballettum o. fl.). Hvað kammermúsik snertir, þá verður reynt að gefa sem viðtækast yfirlit yfir þær stefnur, er skanast hafa í þeirri grein tónlistarinnar, allt til vorra daga, að svo miklu leyti sem störf við skólann og Hljóm- sveitina frekast leyfa. — Hvaða námsgreinir eru nú kendar í skólanum? — Slagharpa, fiðla, armfiðla, cello, kontrabassi, óbó, hljóm- fræði (skvldunámsgrein) og kammermúsik. — Starfsemi skólans ætti þannig að vera upphaf að auð- ugra og fjölbreyttara tónlista- lifi? — Já. En samt er það hér, eins og viða þar, sem til slikra fyrirtækja er stofnað, að and- stæð öfl risa upp og reyna að hindra eðlilega framþróun og næði til starfa. Og svo er tekið það ráð, að breiða skykkju heil- agrar, listrænnar vandlætingar yfir beinagrind persónulegrar síngirni og reynt að telja al- menningi trii um, að hér sé einhver voði á ferðum. — Hvað álitið þér nauðsyn- legasta markmið kenslunnar, ef tillit er tekið til aðstæðna hér? — Fyrstu árin er það fyrir mestu, að nemandinn fái sem nákvæmasta verklega leikni. Skjótar framfarir eru villandi og einskis virði, ef grundvöll nákvæmrar þjálfunar vantar. Almenn tónlistarleg mentun fæst með hljómfræðináminu og æfingum i Kammermúsik, eiga nemendur á þann hátt að ná lw'in hroska, að aeta aðgreint góða og lélega tónlist. Með vax- andi þekkingu er grafið undan hnr"nleaum og fúskaralegum tónlistarskilningi. Og jiessi nauðsynlega þekking kemur smám saman, þó hætt sé við, að útbreiðsla hennar kunni að mæta andúð. — Eitt enn — verða fleiri kammermúsik-kveld? Margir munu hafa vonast eftir að svo yrði. — Eflaust munum við halda fleiri slíka hljómleika, en með það eitt fyrir augum, að gefa áhevrendum kost á að heyra áð- ur ókunn verk og víkka þann- ia sióndeildarhring sinn. Þar sem við erum hingað komnir sem kennarar höfum við fyrst og fremst áhuga fyrir allri fræðslustarfsemi. K. M. Veðrið í morgun. Hiti um land alt. 1 Reykja- vik 2 st., ísafirði 2, Akureyri 4, Seyðisfirði 7, Vestmannaeyjum 4, Stykkishólmi 1, Blönduósi 2, Raufarhöfn 3, Hólum i Horna- firði 4, Grindavík 2, Færeyjum 9, Julianeliaab -f- 6, Angmagsa- lik ~ 8 (skeyti vantar frá Jan Mayen), Hjaltlandi 9, Tyne- rnoutli 9, Kaupmannahöfn 2 st. Mestur hiti liér í gær 9 st., minstur 1 st. Úrkoma 10 mm. — Djúp lægð fyrir norðan larid á hreyfingu norðaustur eftir. Köld norðan átt i Grænlandi. Horfur: Suðvesturland, Faxa- flói, Breiðafjörður: Alllivass suðvestan og vestan. Skúra og N æturhugsun Koldimma nótt. Dimt er í djúpinu þinu, dapurt í hugskoti mínu. Koldhnma nótt. Helkalda nótt. Hel er und hjúpinum þinum, helkalt á veginum mínum. Helkalda nótt. Andvöku nótt. Talaðu málinu ininu, mildi er í andvarpi þinu. Andvöku nótt. Þögula nótt. Halla ég höfðinu mínu, hægt upp að brjóstinu þínu. Þögula nótt. Friðsæla nótt. Friðinum fagna ég þinum, fagna þú andvörpum minum. Friðsæla nótt. Eilífa nótt. Vefðu mig vorfaðmi þinum, veittu burt sorgunum mínum. Eilífa nótt. E. Ó. élja veður. Vestfirðir, Norður- land: Vestan stormur fram eft- ir deginum, en minkar með kveldinu. Éljaveður. Norðaust- urland,-Austfirðir: Hvass suð- vestan. Víðast léttskýjað. Suð- austurland: Allhvass og hvass suðvestan. Skúraveður. Verslunarmannafélag Rvíkur heldur fund annað kveld kl. 8% í kaupþingssalnum. Egill Guttormsson form. samb. ísl. verslunarmanna hefur umræð- ur um lánsverslun. Er það mál sem alla stéttina varðar og verður væntanlega fjölment á fundinn. Kristján Kristjánsson söngvari ætlar að syngja í Iðnó annað kveld kl. 9. Emil llioroddsen aðstoðar. K. R. hefur dansleik á laugardag- inn kemur í húsi félagsins. Sjá nánara auglýst hér i blaðinu i dag. Fjórðungsþing fiskifélagsdeilda sunnlend- ingafjórðungs hefst í kaup- þingssalnum kl. 1 á morgun, föstudag. Félag Vestur-Islendinga heldur skemtifund í kveld kl. 8y% í Iðnó, uppi. Basar K. F. U. K. verður haldinn á morgun i lmsi K. F. U. M. — Þar verður jafnframt fjölbreytt skemtun fram á kveld. Sjá augl. Aðalfcjörn Pétursson flytur erindi um Rússland annað kveld i templarasalnum við Brattagötu. Hann hefir set- ið fulltrúaþing í Moskva, ferð- ast víða um landið og kann frá mörgu að segja. Frá Englandi komu i gær Otur og Skúli fógeti, en i morgun Tryggvi gamli og Bragi. Island fór héðan í gærkveldi, áleiðis til útlanda. Dettifoss fór frá Akureyri kl. 12 í dag, áleiðis til Reykjavikur. Rússiand i dag. Fyrirlestur heldur Aðalbjörn Pétursson í Templarasalnum við Bröttugötu annað kveld, föstudag, kl. 8V2 síðdegis. Fyrirlesarinn hefir dvalið í Rússlandi í sumar og fei’ðaðist . viða um landið, þar á meðal til Kákasus, úkraine, sem með- limur í fjöhnennri sendinefnd frá fimm löndum. — Aðgöngu- miðar verða seldir í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar,; Hljóðfæraliúsinu og við innganginn og kosta 1 krónu. Nýjar íraoskar bækur íást í Ysrslnnlimi „París". Skiftafundur i þrotabúi Gísla J. Jolmsen, útgerðarmanns, Túngötu 18, verð- ur haldinn í bæjarþingstofunni i hegningarhúsinu laugardag- inn 6. þ. m. kl. 2 e. li. Verður þar væntanlega tekin ákvörð- un um sölu eða aðrar nauðsynlegar ráðstafanir gerðar á eignum búsins. Beykjavík, 3. desember 1930. Þórðup Eyjólfsson Nýttl Elochrom filman, ljósnæmi: 600 H&D. er fyrsta filman sem hægt er að taka með vetrar- og skammdegis myndir eins og um sumardag væri. Gerið eina tilraun. Sportvöruhús Reykjavíkur. Höfum ávalt fyrirliggjandi bestu tegund „steam“ko!a D. C. A. Hards. Fljót afgreiðsla! Kolaverslun Guðna & Einars skipaður skiftaráðancb. „Brúarfoss" fer héðan á sunnudagskveld kl. 12 á miðnætti vestur og norð- ur um land til Iíaupmanna- hafnar. Vörur afhendist fyrir hádegi á laugardag, og farseðl- ar óskast sóttir. Terslunin Aldan verður opnuð á laugardaginn kemur, 6. þ. m. — Þar verða góðar og ódýrar vörur. Einnig ágætar jólavörur. 200 nllarteppi seljast fyrir kr. 4,90 stykkið. Notið þetta gjafverð strax. IIIIIimilllXIIIIIBIilIllIHKIIIIllIlliIi Höfum b>Tjað ferðir frá Hafn- arfirði til Reykjavíkur kl. 9'/2 árdegis alla daga. Bifpeiðastöd Steindórs. liiiiiiiiimmiiiiiimiiiiimiiiimii Besí aS anglýsa f VÍSI. Dronning Alexandrine fór frá Akureyri kl. 10 í gær- morgun, áleiðis hingað. Botnía fór frá Leitli kl. 11 í gær- kveldi, áleiðis til Reykjavíkur. Áheit á Strandarkirkju, afh. Visi: 10 kr. (gamalt á- heit) frá N. N., 5 kr. (gamalt á- heit) frá Þ. Stúlka óskast í vist nú þegar. Uppl. í sima 1542 til kl. 4% e. h. Sendisvein vantar á Landssimastöðina, Saltfiskar. Þurkaður saltfiskur í stærri og smærri kaupum. Talið við okkur, áður en þér festið kaup annarstaðar. Von,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.