Vísir - 18.04.1931, Side 5
VISIR
Laugardaginn 18. apríl 1931.
Eftirlit raflagna.
Stutt athugasemd.
—o—
í Vísi 4. og 8. þ. m. er grein
eítir Guðmund Þorsteinsson um
eítirlitiö meö raflögunum hér i bæ.
Vig grein þessa vil eg leyfa mér
aö gera þessar athugasemdir:
1. ' Þaö er me'ö öllu tilhæfulaust
aö eg eöa eftirlitsmaöur raflagna
bafi gefiö nokkra yfirlýsingu um
brunaástæðu á þeim 2 stööum er
höf. nefnir, Skóga og húsið nr. 18
viö Laufásveg. Á fyrra staönum
brann húsiö til kaldra kola og á
seinna staönum var svo litiö
brunnitS, aö lögreglan mun ekki
hafa veriö i neinum vafa um
Lrunaorsökina. Um brunann í
Sogamýrinni var lögreglunni
send skýrsla, aö beiðni hennar,
daginn eftir brunann. En skýrslan
of löng til aö birta hana hér, en i
henni er talið ósennilegt aö kvikn-
aö hafi út frá rafmagni og veit eg
ekki til þess, aö lögreglan hafi
haft neitt viö skýrsluna aö athuga.
2. Ef talan um sveina og lær-
linga er vinna viö raflagningar er
öðruvisi hjá löggiltum rafvirkjum
hér i bæ, en hjá sveinafélaginu og
þeim finst rétti sínurn hallaö í því
efni, ætti þeim aö vera innan hand-
ar aö fylgjast meö því sjálfir og
halda fram rétti sínum viö hlutaö-
eigendur.
3. Undanþágur frá lagninga-
reglunum, er höf. nefnir, eru alt
nteira og minna hártoganir. Eitt
mun t. d. vera einangrunarmæling-
in á veitunum. Er hún gerö meö
500 volta spennu frá einangrunar-
mæli og er þaö meiri krafa er
reglurnar heimta. Annaö mun
vera aö i reglunum er sagt
að stofnar og kvislar raflagna
skuli vera þrítauga, ef um þær
fer meiri straumur en 6 amp.
Var þetta ákvæði sett vegna
þess að götutaugakerfi rafmagns-
veitunnar var í upphafi mjög grant
og þótti því nauðsynlegt að geta
jafnað straumnum sem best á alla
3 fasa götutauganna. Kerfið hefir
síðan verið aukið og styrkt að
miklum.mun og þar sem flest hús
eru 1 og 2 hæöa er það orðið ó-
þarfi, að fara með alla 3 fasa upp
á loft í slíkum húsum. Er fyrir
þetta i engu slegið af kröfum um
öryggi eöa góðan frágang lagn-
arinnar. Auk þess er ávalt hægt að
draga i 3. fasann, þegar á þarf að
halda.
Hinar tilvitnanir höf. eru ekki
eins nákvæmlega tilteknar, en að
þvi er eg get séð svipaðar t. d.
síðasta tilvitnunin á bls. 19., neðst:
að lakkað járn skuli fyrst ibronsað.
Þetta ákvæði kom til af þvi, að
þegar reglurnar voru samdar,
voru notaðar pípur með einskonar
asfaltlakki er smitaði gégnum
olíumálningu, þegar hún þornaði.
Málarar töldu sér ekki skylt að
lagfæra þetta eftir á. Varð þvi
nauðsynlegt að heimta, að pípurn-
ai væru bronsaðar undir málningu.
Nú er þetta óþarfi, af því að nú er
ágætt þurt lakk á pípunum. Það
er ómögulegt að kalla þetta und-
anþágu, heldur er þetta orðið
ójrarft ákvæði, af því að efnið er
orðið betra, svona er um margt
fleira í reglunum. Með undanþágu
skilst mér vera átt við ívilnanir
veittar einstökum rafvirlcjum eða
þeim öllum yfirleitt í kröfum þeim
er reglurnar heimta, svo að lagn-
irnar verði rafvirkjunum ódýrari,
en eiganda eða almenningi elcki
trygð eins vönduð lögn. Slikar
undanþágur hafa ekki verið
veittar.
4. Þá kem eg að árás höf. á
eítirlitið • og á eftirlitsmanninn.
Virðist hún vera aðal tilgangur
greinar hans. Höf. ver mörgum
dálkum til þess að sverta og sví-
virða eftirlitsmanninn á ýmsa
lund, án þess þó að geta bent á
eitt einasta ákveðið dæmi um að
hann hafi vanrækt skyldu sina.
Þegar slík árás kemur frá manni
sem orðið hefir fyrir barðinu á
eítirlitsmanni við starf hans, lít
eg svo á að hún sé eftirlitsmanni
til meðinæla og almenningi til'
nokkurrar tryggingar i því að eft-
irlitið sé rækt samviskusamlega.
Eg sé ekki ástæðu til að gera fleiri
athugasemdir urn þetta að svo
stöddu, né ræða málið við greinar-
höfund jrenna.
13. april 1931.
Steingr. Jónsson.
MAtmælin
gegn þingpofinu.
—o—
Norðfirði, 17. apríl. FB.
Fjölmennur borgarafundur i Nes-
kaupstað í gærkveldi samþykti í
einu hljóði- svo hljóðandi fundar-
ályktanir:
„Almennur fundur alþingiskjós-
enda í Neskaupstað lýsir því yfir,
að hann telur þingrof það, sem
Framsóknarstjórnin hefir knúð
fram með konungsvaldi stórvíta-
vert, þar sem með því er gert ský-
laust tilræði til þess að ræna meiri-
lduta aljiingis því valdi, er honum
ber eftir réttum þingræðisiæglum.
Fundurinn skorar á núverandi
ríkisstjórn að leggja nú þegar nið-
ur völd, þar sem hún hefir andvíg-
an sér meirihluta alþingis og al-
þjóðar. Ennfremur skorar fundur-
inn fastlega á meirihlut'a alþing-
is, að halda fast fram þeim kröf-
um að störf þingsins haldi áfram,
svo þau mál nái fram að ganga,
sem nú liggja fyrir þinginu og
meirihluti þess virðist vera sam-
mála um og hnekkja á þann hátt
gerræði því, sem núverandi stjórn
hefir framið i skjóli konungs-
valdsins.
Ennfremur var samþykt í einu
hljóði svo hljóðandi tillaga: Al-
mennur borgarafundur í Neskaup-
stað vítir hlutdræga framkomu út-
varpsstöðvarinnar gagnvart út-
varpsnotendum i landinu urn út-
sendingu innlendra stjórnmála-
frétta, sérstaklega með tilliti til
framsöguræðu fjármálaráðherra
um fjárlögin pg fréttum af stjórn-
mála stórtíðindum þeim, sem nú
eru að gerast, einkum í upphafi
þeirra. Telur fundurinn, að út-
varpsstöðin hafi gengið á settar
reglur um óhlutdræga fréttastarf-
semi með því að undanfella að
skýra frá miklurn hluta þess, sem
gerst hefir í sambandi við þing-
rofið.
Frá Vestmannaeyjum: Al-
mennur borgarafundur í Yest-
mannaeyjum mótmælir ein-
dregið hinni gerræðisfullu á-
rás á vald hins 1000 ára gamla
Alþingis, sem ríkisstjórnin
hefir framið með þingrofinu
nú. Fundurinn skorar á for-
ingj a stjórnarandstöðuflokk-
anna að halda til streitu heil-
ögum réttindum þings og þjóð-
ar gegn ofbeldismönnum þeim,
sem lilotið liafa vantraust Al-
þingis og mikils meiri hluta
þjóðarinnar og láta þeim ekki
á neinn liátt haldast uppi
valdarán það, er þeir reynt
liafa að hafa í frannni. Fund-
urinn lcrefst þvi algerðra
stjórnarskifta og viðurkenn-
ingar á rétti Alþingis.
ímskeyti
Madrid 15. april.
Uniled Press. FB.
Brottför Spánardrotningar.
Járnbrautarlest Spánardrotn-
ingar bilaði rétt áður en kom-
ið var til Avila og varð hún
og börn hennar að ferðast i
þriðja flokks lest þaðan. Öll
gluggatjöld voru niður dregin
á leiðinni, nema i Avila, þar
sem menn söfnuðust saman og
liyltu drotninguna, en liún hef-
ir ávalt átt miklum vinsældum
að fagna á Spáni. — Talið er,
að beitiskipið, sem Alfonso fór
á frá Carthagena, fari til Mar-
seille. — 16./4. Alfonso kom
hingað kl. 5.45 i morgun. Lagði
hann af stað héðan til Parisar
eftir stutta viðdvöl. Drotningin
og börn hennar eru þegar
komin til Parísar.
Madrid, 17. apríl.
United Press. - FB.
Frá Spáni.
Gatalanski stjórnmálamaður-
inn Nicolau Dowler liefir fall-
ist á að verða sparnaðarráð-
herra í lýðveldisstjórninni.
Virðist því svo, að einhver versti
örðugleikinn á vegi lýðveldis-
stjórnarinnar sé frá, þar sem
öfluglega hefir verið að þvi
unnið að gera Cataloníu að sér-
stöku lýðveldi og stofnun lýð-
veldisins Cataloniu verið' til-
kynt. Allmargir ráðlierrar Cata-
loniulýðveldisins komu til Mad-
rid á fimtudag til þess að ráðg-
ast við stjórnina. Ráðgera þeir
að fljúga aftur til Barcelona í
dag. Dómsmála og fræðslu-
málaráðherrann i lýðveldis-
stjórninni og Macia forseti Cata-
loniulýðveldisins lcoma saman á
fund, til þess að ræða um sam-
hræðslu Cataloniulýðveldisins
við alríkislýðveldið. — Lýðveld-
isstjórnin liefir hirt tilkynningu
viðvíkjandi kveðju Alfonso og
kveðst ekki mundu á neinn liátt
reyna að nota ummæli lians í
stjórnmálalegum tilgangi.
Ivveðst stjórnin vera fullviss
um yfirgnæfandi fylgi meðal
landsmanna og óttast engar til-
raunir í þá átt, að koma Alfonso
að völdum aftur. — Fræðslu-
málaráðherrann hefir tilkynt,
að kensla hefjist í öllum deild-
um háskólans á mánudag. ■—
Stjórn annars spánverska lýð-
veldisins er nú fullsldpuð og
hefir fyrsti ráðuneytisfundur-
inn með þátttöku allra ráð-
herranna verið lialdinn.
Barcelona, 16. april.
United Press. - FB.
Aðskilnaður ríkis og’ kirkju
í Cataloniu.
Macia hefir sagt í viðtali við
United Press, að aðskilnaður
rikis og kirkju verði eitt af
grundvallarmálum catalanska
lýðveldisins, en stjórninni sé
ljóst, að það sé viðkvæmt og
flókið mál og of snemt að hugsa
um að koma aðskilnaðinum í
framkvæmd eins og nú standa
sakir.
Frá spánska Marokkó.
Madrid: Jordana hersliöfðingi
hefir verið sviftur landstjóra-
stöðunni í spánverska Marokko.
Hann hefir flúið til Hert.(?)
NRP. 17. apríl, FB.
Vinnudeilurnar í Noregi.
Sáttasemjari hefir í dag nýja
málami'Slunartilraun í pappirsiðn-
a'öinum. Hefir hann í gær haft
fundi meS formanni félags at-
vinnurekanda, Dahl forstjóra, og
formanni landssambands verka-
M Ski*úfiyk:lai» og tengur §
M eru ómissandi við alla vélavinnu. M
« lloilioðsmean: ÞÖBfiUB SVEINSSON & CO. 8
Bið.jið umsvifalaust
um
Siriussúkkulaði.
Vörumerkið er trygg-
ing fyrir gæðum þess.
a
m
Smnrt branB
nesti etc.
sent heim.
Teitingar.
MATSTOFAM, Aðalstræti 9.
Mjólkurbú Flóamanna
Týsgötu 1. -
Vesturg. 17.
Sími 1287.
- Sími 864.
1. flokks mjólkurafurðir. Skjót
afgreiðsla. Allt sent heim.
manna, Halvard Olsen. — Mörg
blö'S ætla, aS þessi nýja tilraun sé
upphaf til þess, aS reynt veröi a'S
nj^ju aS hefja málamiSlun í ö’Srum
greinum. Þannig lítur Tidens
Tegn þeim augum á, aS horfurn-
ar séu nú nokkru betri.
Krýningarafmæli norsku konungs-
hjónanna.
Þ. 22. þ. m. eru 25 ár liSin sí'San
norsku konungshjónin voru krýnd
í Niöaróssdómkirkju. Hátí'Sar-
guSsþjónusta verSur haldin minn-
ingardaginn í NiSaróssdómkirkju
og verSa konungshjónin viSstödd.
Frá Alfonso.
Frá London er símaS til Norsk
Sjöfartstidende, aS Englandskon-
ungur liafi boSi'S Alfonso fyrrv.
Spánarkonungi til Windsor Castle
um stundarsakir. — Eignir Al-
fonso, sem kunnum bankamanni
enskum hefir veriS falin umsjá
meS, rnunu nema tveimur miljón-
um sterlingspunda.
Vornýungar.
Leðurvðrur
stórt úrval til
FERMINGARGJAFA
handa
drengjum og stúlkum.
Leðurvörudeiid
Hljúðfærahússins
Austurstræti og
Laugavegi 38.
Hnefaleikur.
Hnefaleikur fór fram í Chicago í
gær. Edgar Norman bar sigur úr
býtum. Hann kepti viS Harry
Dillon, Kanadamann. Vann Nor-
man í þriSju atrennu, sló Dillon
niSur, sem ekki stóS upp aftur,
fyrr en eftir aS bjöllunni hafSi ver-
iS hringt til merkis um, aS byrja
aftur.
Tilkyiming.
18. apríl. FB.
Norska aðalkonsúlatið iil-
kynnir: Samkvæmt norskum
lögum frá 6. mars 1931, lieitir
borg sú í Noregi, sem nú heit-
ir Nidaros, frá sama degi að
telja Trondheim.
Biskupsdæmið og dómkirkj-
an halda sínum gömlu nöfn-
um, sem sé „Niðaróss biskup-
upsdæmi“ og „Niðaróss dóm-
kirkj a.“
Mæður, alið upp lirausta
þjóð og gefið börnunum ykkar
silfurtært þorskalýsi, fæst altaf
í VO N.
K. F. U. M.
Kl. 10 árd. á morgun. Sunnu-
dagaskóli.
Kl. iy2 siðd. Y-D.-fundur. (Vet-
urinn kvaddur).
Kl. 3 síðd. V.-D. (Drengir 7—10
ára). (Sumarfundur).
Kl. 6 síðd. Ungmeyjadeild K. F.
U. K.
Kl. 8% síðd. U.-D.-fundur. Öll-
um meðlimum ráðlagt að
koma á fundinn. Fermingar-
drengir vorsins velkomnir.
Allir piltar, 14—17 ára, vel-
komnir.
Væringjar.
Haldin verður útiæfing
sunnud. 19. þ. m. Mætum lcl. 2
e. li. við gamla barnaskólann.
ítotið nilcock’s plástra ei tiér tiafiO tirautir
Þa'ð eru hinir dásamlegu brúnu
plástrar, sem færa y'ður hlýju og
fróun. Kraftur þeirra er svo mik-
ill, að þeir minka undir eins þján-
ingarnar, hversu djúpt sem þær
kunna a'ð liggja, og lækna þær að
fullu á skömmum tima. — AL-
COCKS plástrar eru bestir állra
meðala slíkrar legundar, af því
að þeir hjálpa yður allan timann,
sem þér notið þá. — Þursabit
(Lumbago), Iscliias, gigt, bak-
verkur, hósti og kvef geta blátt
áfram ekki staðist áhrif plástr-
anna. Fást hjá öllum lyfsölum.
ALLCHCÉI
POROUS PLASTERS
Aðalumboðsmaður okkar fyrir
ísland er:
Stefán Tliorarensen, Reykjavík.
Alcock Manufacturing Company.
Birkenhead. England.