Vísir - 19.06.1931, Blaðsíða 2
V ISi B
Ávextir niðursoðnir, allar tegundir.
Asparges, 2 /2 lbs.
Lifrarkæfa (Steffensen).
Sardínur í olíu og tomat.
Jarðarberjasultutau og
Blandað sultutau.
Markns Kristjánsson
pianoleikari.
Hann lést hér í bæiium 4. þ. m.
eftir langvarandi heilsuleysi.tæpra
2<j ára aö aldri. Hann var af g'óöú
bergi brotinn í báöar ættir. sonur
Kristjáns Bjarnasonar. skipstjóra.
og konu hans jóhönnu Gestsdótt-
ur. Kristján var bróðir Markúsar
Biarnasonar sjómannaskólastjóra,
jrjóðkuim.s sæmdarmanns. Ung'ur
/misti Mxirkús föður sinn; en seiimi
maður móður hans, Pétur Mikkel
Sigurðsson skipstjóri, hinn mikli
aflamaður, 'gekk honum í föður-
stað. I'rú Jóhanna hefir orðið að
reyna hverflyndi hamingjunnar.
Báða menn sína misti hún i sjóinn
í mannskaöaveðrum og nú stend-
ur hún við dánarbeö þessa sonar
síns, sem búinn var svo miklum
og sjaldgæfiun gáfum.
Markús var fæddur 15. júlí igo2.
Var settur til rnenta og var i þrem
hekkjum Mentaskólans. Jafnframt
lærði hann að leika á piano hjá
Reyni Gíslasyni og þótti þar öðr-
ttm nemöndum snjallari. Tónlistin
tók hann svo föstum tökum, að
hann hætti námi i Mentaskólanum
og lagði éingöngu stund á hana.
Um tvítugt sigldi hann til Kaup-
manuahafnar til að læra pianoleik
hijá ITaraldi Sigurðssyni, og' var
þar eitt ár. Sýnir það best, hve
miklum gáfum Markús var gædd-
ur frá náttúrunnar hendi, aö jafn-
framt pianonáminu lauk hann
stúdentsprófi í Kaupmannahöfn á
einum vetri, og þótti það vel af
sér vikið. enda var hann gæddur
frábærri tungumáiagáfu og vilja-
jireki. Ávalt mintist Markús Har-
alds Sigurðssonar með virðingu og'
jiótti list hans vera fyrirmynd.
Næsta ár var hann hér í Reykja-
vik, lauk prófi í forspjallavísind-
um og vann fyrir sér með piano-
spili. Hafði hann hugsað sér aö
stunda embættisnáin hér við há-
skólann, en brátt sannfærðist hann
um, að músikin átti hami heilan
og óskiftan', og lét hann þá ten-
ingunum vera kastað og sigldi til
Leipzig til fullkomnunar í þeirri
grein. Hugsaði hann sér að ná
fullkoinnun í pianoleik, en jafn-
framt. kynna sér rækilega eðli og
lögmál tónlistarinnar, því aö eng-
inn var Markús yfirborösmaður,
og það gerði haun líka. Kennari
lians var Max Pauer. heimsfrægur
maðtir, og naut Markús hjá hon-
wn ókeypis tilsagnar. og má af
því ntarka, aö kennarinn hafi tal-
ii hann efnilegan. Mikið gagn
hafði hann af dvöl sinni í Leipzig.
Kom hann hingað í sumarleyfi
sínu og hélt þá hljóntleika. sem
tókust vel og spáðu öllu góðu unt
framtíð hans. Næsta vetur var
Markús i Berlín og lærði hjá Breit-
Iiatipt. sem mikið orð fór af. Þar
tók hantt veiki þá, sem smárn sam-
an ágerðist og loks leiddi hann til
dauða taipum þrem árum síðar.
Beyndi hann að halda hér hljóm-
leika, þótt sjúkur væri, en varð að
InetLa við þá. Tók hann sér það
ávalt síðan mjög nærri, hve illa
lókst til með þá, en fáir vissu þá
um ástæðurnar. er til þess lágu.
Frá náttúrunnar hendi var
Markús óvanalegum hæfileikunt
húinn. Flann var gæddtir skörpunt
skilningi, miklu næmi, samfara
miklu viljaþreki. Atti hann það
sameiginlegt öðrum látnum vini
mínum — pianoleikara — að kenn-
arinn jmrtti ekki að hvetja hann
við námið, heldur hið gagnstæöa,
svo aö hann ofreyndi ekki kraft-
ana. Marktis hafði sett sér jiað
mark. að ná s\ro mikilli leikni á
pianoiö. að hinar eríiðustu ..tekn-
isku" jirautir yrðu honttm eins og
barnaleikur. Dáðist hann jiví mik-
ið að Franz I.iszt, pianokonungin-
tim, hinni miklu fyrirmynd allra
pianoleikara. og spreytti sig á hin-
um flóknustu tónsmíðum hans. En
hann haíöi eng'ti síður skiining á
hinni hliðinni, skáldskapnum í
tónsmíðunum. Leiknin var að eins
nauðsynlegt meðal til að geta töfr-
að fram fegtirð tónsmíðanna.
Markús gerði sér Bjartar vonii
um framtíð sína sem jnanoleikara.
\ ið vinir hans gerðum okkur góð-
ar vonir um. að hann myndi vinna
sér varanlega frægð fyrir tónsmíð-
ar sínar. Svo að segja um leið og
hann lærði að leika á piano, íór
liann að semja lög, og þau lék
hann oft fyrir vini sína. Duldist
okkur ekki, aö lögin voru frtunleg'
cg skáldleg. Enn eru þau öll að
eins til í handriti og Jtekkir al-
menningur því ekki önnur en þau,
sem sungin hafa verið opinber-
lega. Almenningur mun kannast
einna lielst við „Bikarinn“ („Einn
sii ég yfir drykkju/' kvæði eftir
Joh. Sigttrjónsson). Lagið er
ahrifamikið og hlandiö örvænt-
ingarfullu vonleysi, enda samið
eftir að hann tók það mein. sem
dró hann til dauða, og varpaði
skugga á síðustu æfiárin. ..Sætt er
siúkum að sofa,“ samdi hann, er
hann var sjúklingur á Vífilsstöð-
tim. Kennir þar sama grunntóns
og i fyrrnefndu lagi og mun hann
háfa rent grun í. jiegar hann santdi
]>að, að skamt væri eftir ólifa'ð.
Markús lagði meiri rækt við önn-
tir tónJagaíorm en sönglögin, og
þykir mér ekki ólíklegt, að þau
muni geyma minningtt þessa sorg-
arbarns lengi meðal þjóðarinnar.
Saga Markúsar er harmasaga.
Fyrir fáum árum virtist brautln
ti! frama standa opin og greið.
Hann virtist kjörinn til kommgs i
ríki listarinnar. I'.n ]>á kom sjúk-
dómurinn, berklarnir. og stöðvuðu
skyndilega framrás hans á lista-
brautinni, einmitt á þvi skeiði, er
meiður hans stóð algrænn og
frjóvgaður og albúinn ]iess ag
ausa auðæfum sínum yfir þjóðina.
Oft kontu mér í hug orð skálds-
ins, er eg vissi vin minn þannig
kominn: „Hví er á anda og at-
hafnir manna örlagahringir dregn-
ir?“ Fyrir 3 árum hló lífið við
hónum. Hann átti eftir að gefa
jiió'ð okkar dýrar og fágætar jærl-
tir, eftir öllunt mannlegtim áætlun-
pm. En skjótt bregður sól sumri.
Örlaganoriiirnar vildu haga þessu
á annan veg en á horfðist. Er eg
hugleiði alt þetta. kemur mér í
hug það, sem letrað er á legstein
Schuberts:
..Hér gróf tónlistin dýran sjóð
en þó miklu dýrari vonir,“
Baldur Andrésson.
Símskeyti
London, 18. jiuií.
United Press. FB.
Ekkert manntjón í .Japan.
Samkvæmt fregn frá Tokio í
dag, urðu engin dauðsföll af
völdum landskjálltans í.Japan,
en lians varð vart á stóru svæði.
Kippirnir stóðu sumstaðar yfir
i hálfa klukkustund.
London, 18. júní.
United Press. - FB.
MacDonald og Henderson
fara í heimsókn.
Opinberlega tilkynt, að Mac-
Donald, forsælisráðherra Bret-
lands, og Henderson utanríkis-
málaráðherra, fari þ. 17. júlí til
Berlínar í heimsókn lil Brúning
og Curtius.
London, 18. júní.
United Press. - FB.
U. S. A. og fjármál Evrópu.
Mellon, fjármálaráðli. Banda-
ríkjanna, kom liingað á þriðju-
dag, og fór á fund MacDonalds
á miðvikudag. Munu þeir liafa
rætt um hernaðarskaðabætur
og fjárhagsástandið í Austurríki
og Þýskalandi. Síðar fór Mellon
á fund yfirbankastjóra Eng-
landsbanka, Montagu Norman.
Raxldu þeir, að því er United
Press hefir fregnað, ráðagerðir
um fjárhagslega aðstoð þýska
ríkinu til handa.
Natal, 18. júní.
United Press. FB.
Dox.
DOX lagði af stað liéðan kl.
5.30 f. h. Kom til Bahia kl. 1.05
e. li.
Khöfn, 18. júní.
(Frá fréttaritara FB.).
Danir og kosningaúrslitin.
Dönsku blöðin halda áfram
að birta ritstjórnargreinir í til-
efni af kosningaúrslitunum á
íslandi. „Nationaltidende“ seg-
ir: Stjómin hefir sigrað og ltjós-
endameirihlutinn þannig fallist
á, bæði stjórnmálastefnu stjórn-
arinnar yfirleitt og þingrofið.
Blaðið bendir á, að innanlands-
mál, ekki sambandsmálið, hafi
verið aðalmálin í kosningabar-
áttimni, kosningarnar liafi ver-
ið aflraun milli sveitanna og
bæjanna, en Danir vænti góðr-
ar samvinnu milli beggja ríkj-
anna framvegis.
„Berlingske Tidende“ segir:
Velgengni stjórnarflokksins hef-
ir ekki stöðvast, þótt andstæð-
ingar stjómarinnar hafi reynt
að kasta inn i kosningabarátt-
una kröfum urn endurskoðun
sa mbands 1 agan na. I>að er ekki
hægt lengur, að heyja stjórn-
málabaráttuna á þaim hátt, sem
tiðkaðist fyrir 1918. Vitnar blað-
ið á það i jæssu sambandi, að
Sigurður Eggerz var ekki end-
urkosinn á þing í kosningun-
um. Annars bendir blaðið á, að
kosningatilhögunin liafi verið
stjómaflokknum liagstæð.
Ath. Ummæli „Politiken“
og ofangreind ummæli bera
það með sér, að Danir liugsa
gott til þess, að framsóknar-
flokkurinn náði þingmeirihluta.
Þau bera einnig með sér, svo
sem vænta mátti, skilningsleysi
á islenskum málum. Og eitt
blaðið hefir dregið rammskakka
ályktun af kosningarúrslitun-
urn, því kjósendameirihlutinn
hefir einmitt e k k i falList á
„stjórn málastefu u st jörnarmn-
ar yfirleilt og þiugrofið“. Er
þetta því undarlegra, sem Vísir
hefir spmst fyrir um J>að, hjá
fréttaritara þessa blaðs, og feng-
ið það svar, að blaðinu liafi
verið símað atkvæðamagn hvers
flokksins um sig, eigi síður en
úrslit í einstökum kjördæmum.
Annars má vera, að ummæli
þessi og fleiri, er siðar verður
um kunnugt, verði tekin lil nán-
ari athugunar í Vísi síðar.
Washington 19. júní.
United Press. FB.
Kafbáturinn Nautilus
verður fyrir áföllum.
Samkvæmt skýrslu frá flota-
málaráðuðneyiinu hefir borist
skeyti frá Wyoming, sem er að
draga Nautilus til Queenstown,
að sjógangur sé mikill, og hafi
Nautilus mist stjórnpallinn og
hringsjána (periskópið). Her-
skipinu gengur vel að draga
Nautilus, sem hefir þilfarsop
lokuð. Wyoming lætur kastljós
sin leika um kafbátinn, þegar
skuggsýnt er, til að geta gefið
honum sem nánastar gætur.
NRP. 18.—19./0. FB.
Norskar loftskeytafréttir.
Annar maður liefir verið
handtekinn í Skien, fyrir árásir
á lögregluna i Menstaðóeirðun-
um á dögunum. Verkamenn í
Skienhéraði hafa með miklum
meiri hluta atkvæða felt að
gera verkfallið víðtækara.
íbúatala Osló er nú, sam-
kvæmt bæjarmanntalinu, 253.-
316, og hefir því fækkað um
ca. 5fKX) seinustu tiu árin.
Kosningafirslitm.
•—o--
Suður-Þingey jarsýsla:
Þar var kosinn Ingólfur Bjarn-
arson með 1034 atkv.
Björn Jóhannsson fékk 217 at-
lcvæði.
Aðalbjörn Pétursson hlaut 121
atkv.
Nprður-ísaf jarðarsýsla:
Þar var kosinn Jón Auðun Jóns-
son raeð 5S7 atkv.
Fimuir Jónsson hi.aut 293 atkv.
Björn H. Jónsson fékk 165 at-
kvæöi.
Atkvæðamagn flokkanna er nú
sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkur .. 1O.4S7
Framsóknarflokkur . . 12.104
Alþýðuflokkur ....... 5-943
Kommúnistaflokkur . 1.02Ó
Samanlög'ð atkvæði andstööu-
flokka stjórnarinnar eru 23.456,
eöa 11.352 atkv. umfram stjórn-
arflokkinn.
Er nú að eins ófrétt úr Stranda-
sýslu og' EyjafjarSarsýslu. Fram-
hjóðendur Framsóknarflokksins í
þessum kjördæmum eru taldir eiga
vísa endtirkosningu. Sé. gert rá'S
fyrir Jiví hafa flokkarnir Jæssa
þingmannatölu á .Vlþingi, aö cneö-
töldum landskjörnum þingmönn-
tt m :
Framsóknarflokkurinn .. 23
SjálfstæÖisflokkurinn ... 15
Alþýöttflokkurinn ......... 4
Utan af landi.
Akureyri 18. jan. FB.
Ilátíðahöld foru fram í gær
fyrir forgöngu Knattspyrnufé-
lags Akureyrar. Skrúðganga
undir lúðrablæstri eftir götuu-
um út á leikvang félagsins. Þar
voru ræður haldnar og iþrótfir
sýndar og skemt með lúðra-
blæstri. Davið Stefánsson talaði
fjTÍr minni Jóns Sigurðssonar.
Jóhann Frímann kennari fyrír
minni íslands, en síra Friðrik
Rafnar fyrir minni Akureyrar.
Dansskemtun mn kvöldið.
Kauptaxti Sjómannafélags
Akureyrar á herpinótaveiðum
í sumar:
1) Línugufuhátar yfir 100 smá-
lestir 31% af veiði; skiftist í
15 staði.
2) Línugufuhátar undir 100,
niður i 60 smálestir, 33%%
al' veiði; skiftist í 15 staði.
3) Gufubátar undir 60 smálest-
um og mótorskíp undir og
. yfir 60 smálestir, sem taka
upp báta, 35% veiði; skift-
ist í 15 staði.
4) SIvip undir 60 sniúlestiun og
sUbfxí, cr draga Mta, 37%
veiði; skiftist í 15 staði.