Vísir - 23.10.1931, Blaðsíða 3

Vísir - 23.10.1931, Blaðsíða 3
VlSIR Engin rýmincrarsalaT til þess eru tímarnir ekki — en þar sem svo margir kjólar eru, eins og í N I N 0 N, — verða altaf nokkrir kjólar, sem ekki komu „með síðasta skipi“. — Þessir mismunandi kjólar eru sérstaklega hengdir fram á morgmi laugardag og seljast án tillits..til raunverulegs verðs, fyrir: 25 ocy 35 króimi". (Kostuðu áður frá 45—85 kr.) Farið i N I N O N og fáið góðan, smekklegan kjól og gjörið góSkaup' NINON'; AartUD/TCÆTI • 13 Kork~parkett ,og kork á gólf undir dúka, úivcga ég beint frá SUBERIT FABRIK A.G. Verðið lægra en áður hefir þekst. Einkaumboð fyrir ísland: Lndvig Síoi»r. ÍJengisskráning hér í dag. Sterlingspund....... kr, 22,15 Dollar .............. — 5.63)4 Ssenskar krónur .... — 132,15 Norskar krónur .... — 124,09 Danskar krónur .... — 124,09 íGyllini...... — 228,94 Þýsk ríkismörk .... 131,84 Frakkn. frankar ... — 22,34 Svissn. frankar .... — 111,06 Pesetar ............. — 50,69 JLirur ............... — 29,47 Belgur ............... — 78,61 Esja kom úr strandferö í nótt. Enskur botnvörpungur kom í gær til þess aö leita sér nögeröar. Selfoss fór til útlanda í gær, meiS kjöt o. fl. Skilnaðarsamsæti fyrir prófessor Jolivet veröur baldiö næstk. laugardag kl. 7)4 Hótel Borg. Áskriftarlisti liggur ó skrifstofu hótelsins. St. Skjaldbreið nr. 117 hefir haustfagnaö í kveld í templarahúsinu í Brattagötu. Sjá íiugl. í dag'. Guðspekifélagið. Fundur í kveld í „Septímu“ i .iGuöspekiféiagshúsinu, kl. 8)4. — Fundarefni: Formaöur talar nokk- ur orö. Siguröur Thorlacius skóla- stjóri flytur erindi um uppeldis- jnál. Dagatöl selur Félagsprentsmiðjan eins ug aö undanförnu, til kaupnianna £>g kaupfélaga. Veröiö sanngjarnt. Utvarpið í dag. 10,15 Veðurfregnir. 46,10 Veðurfregnir. 18,45 Upplestur úr frönskum bókmentum (Prófessor Jolivei). 19,05 Þýzka, I. flokkur. 19.30 Veðurfregnir. 19,35 Enska, 1. flokkur. 20,00 Klukkusláttur. Erindi: Um vikivaka (Jón Jónsson, læknir). 20.30 Fréttir. 21,00 Hljómleikar: Tvíleikur (Þór. Guðmundsson og Emil Thoroddsen) og (Þórhallur Árnason og Emil Thoroddsen). Grainmófón: Haydn: Trio. Hilmir kom af veiðum í morgun. Gjafir til máttlausa drengsins, afh. Vísi: kr. 41, safnaö á Laugaveg 74 (og eru þessir gefendur: E. og O. 10 kr„ Helgi 1 kr., Rósa 1 kr„ Þórdís 1 kr„ Guðr. 1 kr„ Guöleif 2 kr„ Sjöfn 0,50, Steinunn I kr„ Karítas 1 kr„ Guörún 1 kr„ Guö- íinna J. 5 kr„ Gísli 2 kr„ Guðný H. 1 kr„ Þorbjörg G. 1 kr„ Jón- ína M. G. 2 kr. Vilh. Ól. 1 kr„ Guöl. Sn. 1 kr„ N. N. 1 kr„ Jó- hanna Á. 1 kr„ Arnbj. Á. 1 kr„ Jófr. H. 1 kr„ Ólafur G. 2 kr„ Gísli Sbj. kr. 2,50) To kr. frá'Aá., 10 kr. írá S. E. 10 kr. frá N. N„ 5 kr. frá ónefndum. 2 kr. frá J„ 10 kr. frá G. B„ 5 kr. frá M„ 10 kr. frá Þrúðu, 5 kr. frá ónefndum. Bvers eiqa Sðlvallahúar aS gjalða. þegar stjórnarvöid Reykjavíkur- kaupstaðar taka sínar ráðsálykt- anir um götugerð og götulýs- ingu i bænum? Þannig spyrja sín á milli þeir menn, sem eru búsettir á svonefndum Sólvöll- um Iiér í bæ. Engu nýbygðu hverfi bæjarins er af stjórnar- völdum hans sýnd þvilík van- hirðing og mér liggur við að 1 segja fyrirlitning, eins og Sól- völlum. Allstaðar annarstaðar í Vesturbænum, þar sem nýbygð hefir risið upp á síðustu árum, eru mjög sæmilegar götur og götuhirðing. Og í úthverfum bæjarins, þar sem bygðin ris örast um þessar mundir, eru nýjar og fullgerðar götur lago- ar-jafnhraðan. Jafnvel má sjá dæmi þess, að götur eru þandar um lítt bygð svæði, eða þar sem strjál hús rísa öðrum megin götu. Á Sólvöllum er meira um sambyggingar en annarstaðar . bænum. Er þvi bygðin þar mjög þétt að tiltölu. Sumar göt- ur eru þar fullbygðar og aðr- ar þéttbygðar á löngum köflum. Þar sem bvgð er þétt, verða börn að tiltöln mörg, en lóðir og garðar smáir. Hlutskifti þeirra barna, sem um þessar mundir vaxa upp á Sólvöllum, verður að lirekjast á óþrifaleg- uslu, minst hirtu og lakast lýstu götum í bænum. NINON AUXTURJ'TDÆTI • 12 INÚ: i Fermingarkjólar, 29.50. g Nýtísku jalckar. Samkvæmiskjólar, Knipplingskjólar, franskir, m/ ermum 1 og crmalausir, frá 95 kr. 1 Ballkjólar frá 35 kr. Charmeusekjólar frá 16 kr. Ullarkjólar frá 22 kr. Tweed-Modeller “ 29 kr. I Blússur — Jumpers. K.F.U.K. A. D. Fundur i kveld kl. 8yo. Síra Friðrik Hallgrimsson dóm- kirkjupreslur lalar. — Félags- koiiur, fjölmennið! — Utanfé- lagskonur velkomnar. Til bökunap: Hveiti, 40 au. kg„ í 5 kg. pok- um 2 kr„ i 50 kg. pokum 15 kr. Sultutau, 1.40 kg. Strausykur, 50 au. kg. Smjörlíki, 85 au. stk. — Alt fyrsta flokks vörur. Jóhannes Jóhannsson, Spítalastíg 2. Sími 1131. Undanfariri missiri licfir í slórrígningum og vetrarlevs- ingum vcrið., uppislaða vatns sumstaðar í þessum götum því- lík sem gerist, þar sem náttúr- an ein fjallar um landslagið. Dögum og vilcum saman liefir ekki verið minsta eftirlit með fráræslu á þessum svæðum. Og i snjóalögum, þegar gaddur safnast á göturnar, koma þarna svo djúpar uppistöður, að vel gæti svo farið, að smábörn druknuðu á götunni. Götugerð- in sjálf er með þeim hætti, að moldkendu molarusli er fleygt í hrygg á miðja götuna. Og þeg- ar nægilega mikið af þvi er blásið upp í nasir íbúanna og gatan orðin svo holólt, að til verulegra óþæginda er fyrir um- ferðina, cr meira moldarrusli haugað í götuna. Sumstaðar á gatnamótum (Ásvalla- og Ljós- vallagatna) er engin lýsing og göturnar svo holgrafnar og stórsteinóttar, að umferð öll er þar beinlínis hættuleg. Hvers eiga Sólvallabúar að gjalda? Eru þeir óskilvísari gjaldþegnar eða óæðri tegund af mannkyni en aðrir ibúar i nýbygðum hverfum bæjarins. Þcir, sem eiga við slíkt að búa, ala þar upp börn sín, eiga þar húseignir sínar og gjalda slcyld- ur sínar möglunarlaust, eiga lieimtingu á því, að fá að vita, livers vegna þeir eru sliku hróp- legu misrétti beittir. Og þeir eiga heimtingu á meira. Þeir eiga kröfurétt á því, að úr mis- réttinu og vanliirðingunni verði bætt þegar á næsta ári. Jónas Þorbergsson. om takmðrkoa á lnnftutalngl á óþörfum varnlngl. Samkvæmt heimild i lögum Nr. 1, 8. mars 1920, um heim- ild fyrir ríkisstjórnina til að takmarka eða banna innflutning á óþörfum varningi, eru liér með sett eftirfarandi ákvæði um tak- mörkun á innflutningi slíks varnings. 1. gr. Eftirfarandi vörutegúdir er bannað að flytja til landsins: a. Kjötmeti og pylsur, nýtt, saltað, þurkað, reykt eða niðursoðið. Fiskmeti allskonar, nýtt, saltað, hert, reykt eða niðursoðið. Smjör, smjörlíki, ostur. Ávextir niðursoðnir, syltaðir og sykraðir. Ávaxta- mauk, lmetur, niðursoðið grænmeti og makrónudeig. Brauð alls- konar, kaffibrauð, kex, annað en matarkex. Brjóstsykur, kara- mellur, sykurgúmmí, súkkulaði, konfekt, marsipan, lakrís, hun- ang og síróp. ÖI, límonaði, sódavan, óáferig vín, ölkelduvatn, ávaxlasafi (saft). Ilmvötn, hárvötn, hársmyrsl, Blóm og jurtir, lifandi og tilbúin, jólatré og jólatrésskraut. Loðskinn og fatnaður úr þeim. Hanskar, reiðtýgi, skinntöskur og veski. Silkivefnaður, silkihattar, flosliattar, silkiskór, flosskór, sólhlífar, silki og silki- varningur, flauel og flos. Ivnipplingar. Fiður, dúnn og skraut- fjaðrir. Veggmyndir og málverk, mjoidabækur, myndarammar, rammalistar, allur glysvarningur og leikföng, flugeldar og flug- eldaefni. Hljóðfæri allskonar og grammófónplötur. Gull og silfur- smíðisvörur, plettvörur, gimsteinar og hverskonar skrautgripir, eirvörur, tinvörur, nýsilfurvörur, nikkelvörur. Legsteinar. Fólks- flutningabifreiðir og bifhjól. Frímerki og aðrir safnmunir. b. Hverskonar vefnaðarvörur, tilbúinn fatnaður og höfuðföt nema fiskstrigi (Hessian), segldúkur, pokar og pokastrigi, lóðar- belgir, lampakveikir, sáraumbúðir, vinnuföt (overalls) og sjó- klæði. Egg, ný og niðursoðin, eggjaduft, niðursoðin mjólk. Skó- fatnaður allskonar úr leðri og gúmmi. Nýir og þurkaðir ávextir og grænmeti, annað en kartöflur og laukur. . Skósverta, kerti, sápur, gólfáburður, leðuráburður og liverskonar fægiefni, sápu- spænir og sápudufí. Allskonar feitmeti, nema til iðnaðar. Vöru- flutningabifreiðir og reiðhjól. Hverskonar leður og skinn-vörur, sem ekki eru áður nefndar. Tilbúin stofugögn og hlutar úr þeim. Úr og klukkur. Kaffibætir. Bréfspjöld. Kvikmyndir. Efni til brjóstsykur- og konfektgerðar. Sjónaukar, ljósmyndavélar og hlutir i þær. Speglar og glervörur, aðrar en rúðugler, netakúlur, flöskur og lampaglös. Postulínsvörur allskonar. Hnífar, skæri, skotvopn. Skip og bátar. Mótorar allskonar. Skrifvélar, reikni- i élar og aðrar skrifstofuvélar. c. Tóbak, cigarettur, vindlar og aðrar tóbaksvörur, til 1, janúar 1932. 2. gr. Nú telur einhver vafa á því, hvort vara sú, er hann vill flytja til landsins, falli undir ákvæði 1. gr. eða undir livern staf- lið greinarinnar hún falli og getur liann þá leitað úrskurðar at- vinnu- og samgöngumálaráðuneytisins um það, og er það fulln- aðarúrskurður, sem og aðrir úrskurðir þess út af skilningi á ákvæðum reglugjörðar þessarar. 3. gr. Nú telur einliver sér nauðsyn á að flytja til landsins ein- liverja af vörum þeim, sem nefndar eru í 1. gr. og gelur liann þá leilað til þess leyfis innflutningsnefndar, sbr. 4. gr. Innflutn- ingsleyfi á vörum þeim, sem greinir í 1. gr„ staflið a„ verður þó ekki veitt, nema ómissandi þyki og á vörum þeim, sem taldar eru i staflið b. og c. ekki nema nefndin telji þess sérstaka þörf. , 4. gr. Atvinnumálaráðherra skipar 5 manna nefnd lil þess að atliuga beiðnir um innflutningsleyfi og veita þau eftir þvi sem ástæða þykir til. Ef nefndinni þykir ástæða til að veita innflutningsleyfí á einhverri af vörum þeim, sem taldar eru i 1. gr„ staflið a„ verð- ur hún að bera það atriði undir atvinnumálaráðherra, sem þá ákveður, hvort veita skuli leyfið. Kostnaður við nefnd þessa greiðist úr ríkissjóði. 5. gr. Kaupmönnum og lcaupfélögum er skylt að gefa innflutnings- nefnd nákvæma skýrslu um birgðir sinar af vörum þeim, sem innflutningur er bannaður á samkvæmt reglugerð þessari og um verð þeirra kominna i bús hér á landi að greiddum tolli og öðrum kostnaði. Enn fremur ber þeim, sem sækja um innflutningsleyfí á téðum vörum, að gefa nefndinni slíka skýrslu, ef hún óskar þess. 6. gr. Lögreglustjórar og tollstjórinn i Reykjavik skulu liver í sínu umdæmi hafa gætur á því, að fyrirmælum reglugerðar þessarar sé nákvæmlega framfylgt og er þeim heimilt að sctja þær reglur og gera þær ráðstafanir þar að lútandi, sem þurfa þykir. 7. gr. Þær vörur, sem komnar eru i skip í útlöndum áleiðis liingað þegar reglugerð þessi öðlast gildi, má flytja inn á sama liátt og hingað til. 8. gr. Brot gegn ákvæðum 1. gr. reglugerðar þessarar varðar sektum alt að 100,000 kr. 9. gr. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara sem almenn lögreglumál. 10. gr. Reglugerð ]>essi öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem lilut eiga að máli. Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 23. október 1931. TRYGGVI ÞÓRIIALLSSON. . ... i ■ Vigfús Einarsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.