Vísir - 25.11.1931, Blaðsíða 3

Vísir - 25.11.1931, Blaðsíða 3
V I S I R ijókaversluu og bókaútgáfu. Er phætt aö segja, aö á því sviöi hef- ir hann .verið áræSinn og ósérplæg- inn. I;Iann hefir veriB vandur í •valinu um útgáfur sínar og naum- •ast gefiB út aörar bækur en þær, ■sem bókmentalegt gildi hafa eSa hagnýtar eru. GuSm. var vel til Ijókaútgáfustarfs fallinn. Hann er sjálfur víSlesinn og vel mentaSur, ttéfir ágætan skilning á gildi bóka Ajg mikill smekkmaöur á allan ytri frágang, og hefir gert þar mikíls- •verSar umbætur. En slík stefna -*em Guðm. hefir fylgt, er ekki veg- ur til auBsældar hér, og GuSm, hefir ekki aufigast af starfsemi sinni. En hann hefir au'Bgaö ísl. bókamarkaö. 1 almennum málum hefir Gu'Sm. verih áhuga- og athafnamaöur. Hann hefir látiö sér ant um iSn- ;aöannál og lagt góðan skerf til skipulagningar í i'ðnaSarstéttinni ,en löngum veri'ð bjartsýnni en svo, ;aS tillögur hans næðu þeim ár- angri sem hann hefSi kosið. Nokkrum sinnum hefir Guðm. fari'S utan til j>ess aö sækja iönsýn- -jngar bæöi á Noröurlöndum og i Þýskalandi og sótl þangaö jækk- ingu sem aö gagni hefir komið hér lieima. Um bindindismál hefir Guöm. -veriö áhugamaður og ötull starfs- maöur. Hann hefir veriö Good- •templar um langt skeiö og unniö þeim félagsskaji mikiö gagn. Munu margir templarar minnast hans viö jtetta tækifærí meö þakk- læti og viröingu fyrir ágætt starf. Guöm. er ljúfmenni í umgengni og prúömenni hiö mesta, enda nýt- ur vináttu og viröingar allra, sem honum hafa kynst. Munu þeir all- ir óska þess í dag, aö hæfileika og Oiannkosta Guöm. mætti lengi viö jijóta enn. Þ. G. ]Fi*étta]bs*éF úr Húnaþingi. —o— 21. nóv. FB. 30. okt. Seinni hluti október- tnánaðar og fram að 2(5. okt'. má lieita að verið hafi öndveg- jstíð hér nyrðra, oftast lilýviðri með óvenju mörgum sólríkum döguni. Þann 27. olct. snerist i norður nieð krapahríð, en birti með frosti daginn eftir. Þurr- viðri og stillur lil mánaðamóta. Slælli laulc víðast úr miðjum jseptember. Nýttust heyin vel og urðu að lokum sein næst meðallagi að vöxtum, en meiri að gæðum. Sauðfé hefir ekki verið tckið i hús enn. Fjárlaka hefir verið mikil í sveitum austan Húnaflóa, þrátt fyrir verðhrunið. Hjá Sláturfé- lagi K. H. á Blönduósi var slátr- að 17,500 fjár. Þar af fryst all- snikið. Þ. 3.—4. okt. tók Brúar- foss alls á Blönduósi 4,500 kroppa tii útflutnings. — Sauð- fé reyndist í meðallagi að væn- Jeika. Verkalaun fólks hjá slát- urfélaginu urðu sem næst % hluta lægri en í fyrra. Héðan úr sýslu hafa verið «end hross til slátrunar bæði til Akureyrar og Reylcjavíkur. Reyndist verðið svijiað, sist lægra á Akureyri. Nokkuð var unnið liér að vegum í sumar og ein á brúuð, Svarfá. Lítið unnið að síma- lagningum, en fimm nýjum landsímastöðvum bætt við. í vor var búist við að kaup- gjald yrði iiér 60—65 aurar á klst. og hægl að fá menn fvrir það kaup, en við vegagerð var.ð kaup þó 75 aurar á klst. 1 sumar liefir Stefán Ruh- ólfsson bygt rafveitur á þessum stöðum i Húnaþingi: Blönduósi, Fremstagili, Ystagili, Fossum og Ásgeirsá i V.-Húnv. Eru þá alls hygðar 10 rafveitur hér í sýslu. Héraðsskólarnir á Blönduósi og Revkjum i Hrútafirði eru báðir fullskipaðir í vetur. Kom- ust ekki eins margar stúlkur að í Blönduósskólanum og sóti liöfðu. Nýtur skóhnn trausts xil um land, enda kapp lagt á það að nemendunum líði vel, og kostnaði í hóf stilt. Kenslukraft- ar skólans eru góðir. Héraðsfundur var lialdinn 13. sept. á Blönduósi. Var hann frekar illa sóttur. Engin nýmæli höfðu verið rtedd á fundinum. Rætt hafði verið um að fela prófasti að kalla saman auka- Iiéraðsfund i vetur og laka trú- málin til umræðu. Messum mun í sumum sókimm liafa fækkað á árinu. Fiskafli á Húnaflóa hefir ver- ið stopull í sent. og okt., vcgna ógæfta. Allmikill fiskur ])ó ver- ið í flóanum. Ferðamannastraumnum er nú lokið. Telst mönnum svo til, að hann hafi verið mun meiri en í fyrra. Jarðabætur liafa á ])essu sumri verið meiri en áður. í A.- Húnv. liafa 3 dráttarvélar unnið i'vor, sumar og haust. Húsa- gerð aftur verið með minna móti. Árið 1927 lét skógræktar- stjórnin gera tilraunir á þrem- ur stöðum hér i sýslu með sán- ing á birkifræi. Staðir þessir voru allir i Vatnsdalum, á Evj- ólfsstöðum, Hofi og Ilaukagili. Á öllum stöðunum voru blett- irnir girtir. — Þ. 9. sept. s. 1. athugaði skógraéktarstjórinn þcssa reiti og gerði mælingar á plöntunum. Taldi hann allmarg- ar plöntur á Eyjólfsslöðum og Hofi vera frá 7—9 þml. að liæð, en á Haukagili 7—12 þml. Er raklendast á Haukagili. I reitn- um á Haukagili fann hann eina plöntu 23. þml. liáa. Var hún plöntuð liaustið 1927 í jurta- pott og færð út í reitinn um vor- ið. Sýnir þctta, að flýta má fyr- ir plöntunum með ])ví að sá að liaustinu í vermireil og færa þær svo út að vorinii. Eitt nýja emhættið er eftir- litskennaraembætti fýrir á.- Húnvs. Sldpaður i það var Kristján Sigurðsson frá Brúsa- stöðum. Nú er liann að ferðast milli skólastaðanna. Um miðjan þennan mánuð var viktuð ær á Hjallalandi i Vatnsdal. Ærin var tvílemba, átti hrút og gimbur. Ærin vikt- aði 110 pund, hrúturinn 118 pund, en gimbrin 102 pund. Skortur á verkafólki, einkum kvenfólki, hefir verið í haust. Sumstaðar ekki hægt að mat- húa slátur, nema að nokkuru leyti. Kom ])að sér illa, þar sem slátrin eru lítt scljanleg. Nokk- ur eftirspurn hefir verið eftir mönnum til vetrarhirðinga. Virðist ástæða til þess að benda fólki, sem vantar atvinnu að leita hennar út um svcitir lands- ins. Fjárkreppan er nú farin að lcoma í ljós. Vegna verðhruns- ins gátu menn ekki fengið pen- inga hjá verslunum — skuldir fyrir. í sparisjóðum er vegna kreppunnar sagt upp inneign- um og eiga þeir erfitt með að geta fullnægt lánsþörfinni. Pen- iugar i umferð manna á milli eru þvi orðnir af skornum skamti. Látnir merkismenn Zophoni- as Hjálmsson, Blönduósi, d. 28. ágúst, Jón Pálsson prófastur, Höskuldsstöðum, d. 18. sept. og Þorsteinn Gunnarsson, Bjarghúsum, d. 28. sept. Skr. 30. olct. Þ. K. Veðrið í morgun. Iliti í Reykjavík 5 st., Isafirði 3, Akureyri 2, Seyðisfirði 5. Vestmannaeyj um 6, Stykkis- liólmi 4, Blönduósi 5, Hólum í Hornafirði 7 (skeyti vantar frá Raufarliöfn, Grindavik og Kaupmannaliöfn), Færeyjum 7. Julianehaab G- 8, Angmagsalik -v- 1, Jan Mayen 1, Hjaltlandi 9, Tynemouth 8 st. Mestur hiti hér i gær 6 st., minstur -f- 5 st. Úr- koma 0,5 nim. Sólskin 0,2 stund. ■— Djúp hegð fyrir sunnan Is- land á hreyfingu norður eftir. Horfur: Suðvesturland. Faxaflói: Hvass austan fyrst, en gengur síðan í suðaustrið og lægir heldur. Rigning öðru hverju. Breiðafjörður, Vesl- firðir, Norðurland: Hvass ausl- an og síðar suðaustan. Þiðviðri og nokkur rigning. Norðaustur- land, Austfirðir, suðausturland: Allhvass austan og síðar suð- ahstan. Rigning. Silfurbrúðkaup áttu í gær frú Sjdvía Guð- mundsdóttir og Ólafur læknir Lárusson i Vestmannaeyjum. Var þess minst með veglegri veislu í Eyjunum. Höfðu ýmsir vinir lijónanna hér í bæ ætlað að taka þátt í veislunni, en það fórst fyrir vegna óhagstæðra skipaferða. Fimtugsafmæli á í dag'. 25. nóv., frú Jóhannr Egilsdóttir, Bergþórugötu 18. Dr. Max Keil talar í háskólafyrirlestri sínum í kveld kl. 6 um þýskar bókmentir á uppg'ötvunaröldum. Safnaðarfundur verður í dómkirkjunni annað kveld kl. Umræðuefni: Þátt- taka safnaðarins í liknarstarfi hér t bænum í vetur. — Sjá augl. Lögreglan biður að láta þess getið að börn- um sé leyft að renna sér á sleðum á þessum stöðum til kl. 9 síðd. dag hvern: — Arnarhólstúni, Biskups- stofutúni (við Hólatorg), túni Thor Jensen, milli Þingholtsstr. og Fríkirkjuvegar. Ennfremur á ])essum götuspottum: Vesturgötu frá Seljavegi niður aö sjó, Njarð- argötu frá Laufásvegi að Sóleyjar- götu, og Vitatorgi milli Hverfis- götu og Lindargötu. — Lokað verður fyrir bifreiða umferð um þessa götuspotta þegar sleðafæri er. Esja var á Mjóafirði í dag'. Væntan- íeg hingað þ. 29. nóv. Lagarfoss er á Akureyri. Ivolaskip kom Iiingað i morgun. Goðafoss kom í morgun til Vestmanna- eyja. — Væntanlegnr hingað i fyrramálið. Gullfoss kemur hihgað í kveld frá Stvkldsholmi. Grein um Elliheimilið liefir Vísi borist frá S. A .Gíslasyni, og birlist hún í blaðinu á morgun. Símagjöldin. Vill væntanleg framkvæmda- stjórn félágs símanotenda, sem \erið er að stofna í Reykjavík, sjá um aö reiknað verði hæfilegt af- notagjald talsíma fyrir ])á, seni búa og leigja talsíma í úthverf- um borgarinnar? Hingað til hefir það viðgengist, að menn búsettir 1 úthverfum borgarinnar, sem hafa talsíma, verði að greiða okurgjald fyrir uppsetningu eða flutning ]>angað, og ofan á það verða þeir svo að greiða tvöfalt og þrefalt árgjald á við aðra símanotendur. Það er hreinasta okurgjald, að verða aö greiða kr. 200.00 og kr. 300.00 árlega í leigu af talsíma, í úthverfum borgarinnar. T. d. er 20 mínútna gangur frá höfninni og inn að Hlemm, aðrar sléttar 20 mínútur er verið að ganga frá Hlemm og inn á innri Kirkjusand. Flutningur símans inn á Kirkju- sand er svo dýr, að maður skyldi ætla, að línukostnaðurinn væri greiddur með flutningsgjaldinu. En fvrir hvað kemur tvöfalt og þrefalt árgjald? L. S. Fyrirspurn. Alþýðublaðið gat þess fyrir nokkru, aö fyrv. veitingamaðúr á Hótel Skjaldbreið væri á förum austur aö Litla-Hrauni til þess að afplána sekt fyrir vínsölu. Hvers vegna hefir blaðið ekki getiö um, hvort stéttárbróðir hans, eigandi Borgar, hafi greitt sekt sina, eða hvort hann ætli líka aö sitja hana af sér á Litla Hrauni? Þessu er Alþýðublaðið beðið að svara, og cía eg ekki, að því verði það ljúft. Blaðið er svo nákomið aðiljum, aö það hlýtur að vita þetta. Spurull. Leiðrétting. Starfsmenn í Kaffibrennslu O. Johnson & Kaaber liafa beðið Vísi að geta þess, að þeir fóru ekki ld. 6 úr Kaffibrennslunni kveldið, sem eldsins varð vart, helclur kl. 6)4, og höföu áður gengið frá öllu tins og venja er til á hverju kveldi, kælt síðustu 1)rennslu og auðvitað stöðvað allar vélar, eins og venja er til. Þeir telja líklegt, að kviknað hafi frá neista. sem falist hafi í kaffinu. Gengisskráning hér í dag: Sterlingspund........ kr. 22.15 Dollar .............. — 6.121/2 100 sænskarkr......— 119.60 — norskar kr.....— 119.60 — danskar kr.....— 122.04 — þýsk ríkismörk —- 146.45 — fralckn. frankar — 24.41 — belgur ........85.43 — svissn. frankar . 119.60 — gyllini .......— 246.52 — pesetar........— 52.48 — lirur.......... — 31.73 — tékkósl. kr....— 18.31 Gestamót ætlar Ungmennafélagið Velvak- andi að halda öllum imgmenna- félögum sem i bænum eru staddir næstkomandi laugardagskveld, sem og að vanda verða þar fjöl- mennir. Þar verða góðir fyrir- lesarar og' sjónleik ætla þeir að sýna þar, sem sagöur er mjög hlægilegur, söngur verður þar einnig, sem mörgum mun kærkom- inn og eitthvað fleira, að lokum mun verða stíginn dans fraro eftir nóttu. Vv. Ný verslun verður opnuð á morgun a Hverfisgötu 64. Sjá augl. Jóla- og nýárskort í mjög fjölbrevttu úrvah, fást nú eins og áöur i Safnahúsinu, Þeir sem ætla aci senda vinum sínuin jólakorl út um land ættu að kaupa þau sem fyrst meðan nógu er úr að velja. Helgi Árnason. Útvarpið í dag. 10,15 Veðurfregnir. 16,10 Veðurfregnir. 18,40 Barnatimi (Margrét Jónsdóttir). 19,05 Þýzlca, 1. flokkur. 19.30 Veðurfregnir. 19,35 Enska, 1. flokkur. 20,00 Klukkusláttur. Erindi: Frá útlöndum (Villij. Þ. Gíslason). 20.30 Fréttir. 21,00 Hljómleikar: Einsöngur (Daniel Þorkelsson). Kreutzer-sónata, eftir Beéthoven. í Bethaníu samkoma i kveld kl. 8yí- — ' Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn. Þann 26.—29. nóv. verða haldn- ir betrunar- og t)ænadagar. Sækið samkomur þessa daga. Á fimtu- dag stjórna kaptein Axel Olsen og frú. Föstudag: Eiisain Hollaud. Laugardag: Kapt. Svava Gísla- dóttir. Sunnudag: Stabskapt. Arni Jóhannesson og frú. Stabskap- teinninn og írú hans, ásamt fleiri íoringjum, taka þátt í öllum sam- komunum. Lúðrafl. og sti'engja- sveitin aðstoða. Samkomurnar bvrja kl. 8 síðd. Allir velkomnir! Gjöf til máttlausa drengsins, afhent Vísi: 5 kr. frá J. S. Áheit á Strandarltirkju, afh. Vísi: 1 kr. frá í. M. Hitt og þetta. Lloyd George í skemtiför. Lloyd George hefir verið véik- ur síðan snemma í haust, en hefir verið að hressast að undanfömu. Nú hefir hann tekið sig upp að heiman sér til hressingar ásanit konu sinni og tveimur börnum. Lögðu þau af stað 13. þ. m. og var ferðinni heitið til Ceylon. Er búist við, að þau verði þrjár vik- ur hvora leið, en tvær vikur um kyrt þar eystra. Þau fara sjóleið alla leið frá Englandi Vilhelmína drottning í Hollandi hefir tilkynt ráðuneyti sinu, að hún ætli á næsta ári a8 afsala sér 10% af tekjum þeirn, sem hún og elsta dóttir hennar ciga tilkall til. Ennfremur hefir luin leyst nokkura leiguliða stjórn- arjarða frá því aö greiða land- skuldir á þessu ári. Hún haföi áð- ur ákveðiö að láta fyrst um sinn niður falla allar stjórnarveislur, dansleika og hátíðahölcl viS hirðina. Fugferðir frá Englandi. Breska flugfélagið, „Imperial Airways" hefir nýlega lækkað tíl muna fargjöld til meginlands Evrópu. Þrátt fyrir verðlækkun sterlingspunds er nú ódýrara að fljúga frá London til ýmissa staða á meginlandi Evrópu. enda fjölgar þeim stöðugt sem ferðast loftleiðis. Hinsvegar liafa járn- brautarfargjöld frá London til borga á meginlandinu aukist uttl 20%—40%. Flug-farseðill frá

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.