Vísir - 03.12.1931, Blaðsíða 2

Vísir - 03.12.1931, Blaðsíða 2
VlSIR HúsmæOur! Munið, að LIBBY’S mjólkin er besta og þó ódýrasta dósamjólkin, sem þér getið fengið. Biðjið kaupmann yðar um LIBBY’S mjólk. Fæst alstaðar. r^iIH!IIIIK!IliilKI!!I!!l!iið!I!gSI!II!IIIIIIIIIIIIIIUn!IlISII!IlgIIl!H!l!!IKI k^iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiii || Vetrarfrakkar ódýrir, í mjög miklu úrvali, fyrir börn og fuM- orðna. Fóðraðir skinnhanskar, treflar, vetrarsjöí Si í mörgum litum. rma æ Swastika CigaFettui® \7irginia. 20 stykki — 1 króna. Arömidi í hverjum pakka. Fást hvarvetna. æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ Gnnnlaugnr Claessen dr. med. fimtugur. Dr. tned. Gunnlaugur Claessen verSur fimtugnr í dag. Hann flutt- ist hinga'ð til Reykjavíkur áriö 1913, og þegar Röntgenstofan var sett á stofn ári'ð 1914, tók hann við forstöðu hennar, en nú er hann yfirlæknir Röntgendeildar Land- spítalans, eftir að Röntgenstofan fluttist þangað. Dr. Gunnlaugur Claessen er löngu orðinn þjóðkunnur maður, ekki eingöngu vegna þess, að hann hefir veitt Röntgenstofunni for- istöðu, heldur vegna þess, hvernig hann hefir gert það. Röntgenskoð- anir og lækningar eru tiltölulega ung vísindagrein, sem hefir vaxið hröðum skrefum, og því hefir það verið mikil heppni, að fá dr. Gunnlaug sem röntgenlækni. Hann hefir altaf fylgst mjög vel með því, sem gerst hefir í röntgen- íræðum og fært sér þær framfarir í nyt, sem orðið hafa. Svíar hafa verið forgöngumenn á því sviði, og af þeim. hefir dr. Gunnlaugur mest lært, enda er hann lærisveinn próf. Forsells, sem nú mun vera einna þektasti röntgenlæknir í heimi. Fyrir hans tilstilli fékk dr. Gunnlaugur leyfi til þess að verja doctorsrit sitt 1928 um röntgen- skoðun á sullum, við Háskólann í Stokkhólmi, en ritið er svo, að framhjá því verður eigi gengið af þeim, sem við sullarannsóknir fást. Dr. Gunnlaugur Claessen var aðal hvatamaður þess, að Radium- sjóðurinn var stofnaður og radi- um fengið hingað til landsins, en það er nú talið ómissandi við Iækningar á krabbameini og ýms- um öðrum sjúkdómum. Geitur má lækna með röntgen- geislum en með öðru móti er mjög erfitt aö uppræta þær. Dr. Gunn- laugur hefir barist fyrir því, að leitaðir yrðu upp allir geitnasjúkl- ingar á landinu og útvegað styrk á fjárlögum til þess að koma þeim til lækninga, en sjálf lækn- ingin hefir verið ókeypis. Ár- angurinn af því starfi hans er nú orðinn sá, að geitur eru nú nær því horfnar á íslandi. Það yrði oflangt mál að telja upp allt það, sem dr. Gunnlaugur Claessen lrefir starfað að, því að honurn dettur margt í hug og er framkvæmdamaður. Oft hefir hann ritað í dagblöðin um áhuga- mál sin og flutt erindi t. d. um bætiefni. Þá hefir hann unnið mik- ið að því, að bálstofa kærnist hér iijrp og er það mál nú vel á veg komið. Um skeið átti’ hann sæti í bæjarstjórn og þótti þar mikið til hans korna og söknuðu hans margir er hann fór þaðan, cn' blindur flokksmaður hefir hann aldrei gétað orðið. í fyrstú heyrði Röntgenstofan undir Læknadeild Háskólans og kendi dr. Gunnlaugur C-Iaessen þá iífeðlisfræði í deildinni en hætti því er Röntgenstofan varð sjálf- stæð stofnun. Seinna kendi hann þó aftur Hfeðlisfræði í Háskólan- um, í forfölkun annara og nú flyt- ur hann fyrirlestur fyrir stúdenta urn röntgenfræði. Dr. Gunnlaugur Claessen er glæsimenni í sjón og allri fram- komu, vel máli farinn og ungur í anda. Er því enn mikils af honum að vænta. G. Th. Símskeyti New York 2. des. United Press. FB.' Fylgi demokrata og andbann- inga eykst í U. S. A. Aukakosning til þjóðþingsins hefir fram farið í borginni Elizabeth, New Jersey. — Percy Stewart, sem er demokrat og andbanningur, var kosinn. Ivjördæmi þetta hefir til þessa ávalt sent menn úr flokki re- publikana á þing og bannmenn. — Stewart veittist mjög að Hoover forseta í kosningunum og vitti liann fyrir framkomu hans í mörgum þjóðmálum. í fulltrúadeildinni eru nú 219 þingmenn úr flokki demokrata, 214 úr flokki repúblikana og 1 úr flokki verkamanna og bænda (Farm-Iabour-party). Rikisstjórinn i New Jersey hefir útnefnt Warren Harbour, sem er i flokki republikana, til þess að taka sæti Dwigbt Mor- row’s í öldungadeild þjóðþings- ins, sem er látinn, út kjörtíma- bil hans. Harbour er andbann- ingur. Madrid,, 2. des. United Press. FB. Spánverska þjóðþingið sam- þykkir stjórnarskrár- frumvarpið. Azana fyrsti forseti hins spán- verska lýðveldis. Þjóðþingið (cortes) hefir nú lokið við að semja stjórnar- skrárfrumvarpið og samþykt það. Tilkynt er, að Azana sé fyrsti forseti lýðveldisins, og verður liann formlega kosinn í byrjun næstu viku. — Frum- varp liefir verið lagt fyrir þing- ið um laun forsetans. Er ráð- gert, að liann liafi eina miljón peseta í árslaun. Einnig er ráð- gert að forsetinn fái árlega til ferðalaga, starfsmannabalds, í borðfé o. s. frv. 1,250,000 pe- seta. London, 3. des. United Press. FB. Tollmál Breta. Mr. Colville, aðstoðarverslun- armálaráðlierra, skýrði frá því i neðri málstofunni í gær, að ekki væri líklegl, að stjórnin mundi gangast undir neinar þær skuldbindingar, sem drægi úr ákvæðum laga viðvíkjandi óeðlilegum vöruinnflutningi, og er búist við, að þetta muni mjög draga úr tollasainninga-umleit- unum fulltrúa erlendra ríkja. Hymans, utanrikismálaráðherra i Belgíu, er væntanlegur til London á sunnudag, og ætlar að hitta Runciman að máli á mánudag. Einnig er þá búist við, að nefnd franskra viðskifta- sérfræðinga, undir forystu Elbe, ráðunautar utanríkismálaráðu- neytisins, komi þá til London. Þrátt fyrir yfirlýsingu Colville’s, er búist við, að fulltrúar er- lendra ríkja muni leggja mikið kapp á að koma þvi til leiðar, að stjórnin láti eigi koma til framkvæmda ýms áform við- víkjandi takmörkunum á inn- flulningi. London, 2. des. Mótt. 3. United Press. FB. Gengi sterlingspunds. Gengi sterlingspunds, er við- skifti dagsins hófust, 3.25 miðað við dollar, en 3.3914, er viðskift- um dagsins lauk. New York: Gengi sterlings- punds, er viðskifti hófust, $3.33, en $ 3.36, er viðskiftum dagsins lauk. Helsíngfors, 2. des. United Press. FB. Þjóðaratkvæði um bannið í Finnlandi. Finska ríkisstjómin liefir á- kveðið að leggja fyrir þingið frumvarp til laga um þjóðar- atkvæði um vínbannið. Verði frumvarpið samþykt óbreytt, fer þjóðaratkvæðagreiðsla fram 29. og 30. desember. Síldareinkasalan. —o—• Fundur í fulltrúaráði Síldar- einkasölunnar hófst aftur í gær kl. 4 sí'ðd. í Kaupþingssalnum. Voru allir fulltrúarnir mættir, auk jiess Steinþór Guðmundsson, útflutn- ingsnefndarmaður og Guðmundur Skarj^héðinsson, fulltrúi einkasöl- unnar á Siglufirði, sem báðir fengu leyfi fulltrúanna til þess að taka J)átt í umræðum. Fult var áheyrenda fram úr dyrurn. Fundurinn byrjaði á því, að Er- lingur Friðjónsson las upp aftur bráðabirgðayfirlit um efnahag Síldareinkasölunnar, sem Steinþór Guðmundsson fyrir einkasölunnar hönd hafði lagt fram á fundinum á mánudaginn. Var þetta efnahagsyfirlit einka- sölunnar nú tekið til umræðu og fætt um einstaka liði þess, en jafn- framt snerust umræðurnar upp í almennar aðfinslur við einkasöl- uná. Finnur Jónsson spurði hvort J. Östensjö hafi nokkurntíma verið látinn bæta 880 tunnur af úrsalti, sem frá honum hafi komið. Saltið hafi verið blakt á litinn, með slori, fiskuggum og jafnvel heilum fisk- um innan um saltið. Ingvar Guðjónsson sagði að sér væri kunnugt um, sem umboðs- manni Östensjö, að salt þetta hafi verið afhent í ógáti. Guðm. Skarphéðinsson kvað Jietta salt, 880 tunnur, sem komið hafi með e.s. Use til Siglufjarðar, ekki vera einsdæmi. Því að heill farmur af slærnu salti hafi komið með e.s. Varild til veiðistöðvanna við Eyjafjörð. Slæmt salt myndi eiga mikinn þátt 5 síklarskemdun- um sem orðið hcfðu í sumar. Steinþór Guðmundsson sagði Jiað merkilega tilviljun, að höfuð-vitleysur útflutningsnefnd- ar hafi verið ákveðnar á þeim fundum, er hann var fjarverandi. T. d. hafi 18. ágúst í sumar verið ákveðið að greiða verkunarlaun að fullu til síldarsaltenda með ávísun- um eða víxlum, Jjótt þeir ættu þá cftir að afhenda einkasölunni síld- ina. Þetta hafi bakað einkasölunni um 10.000 króna skaða á einum saltanda, Ingvari Guðjónssyni. Ingvar Guðjónsson kvað Stein- þór hafa notað sér þessa sömu samþykt, þótt einkasalan með J)vi tæki á sig meiri áhættu en gagn- vart sér, því að hann ætti sjálfur Ys hluta þeirrar síldar sem hann hafi verkað, en verkunarfélag Steinjiórs ætti lítið af Jieirri sild, sem það verkaði. Steinþór hafi verið á útflutningsnefndarfundum þegar mest afglöp voru gerð, t. d. þegar ákveðið var að salta meira, en nokkurt vit var í. Um efnahagsskýrslu einkasöl- unnar sagði hann að skuldirnar væru taldar minsta kosti 100 þús. krónum lægri en þær væru í raun og veru. Eignamegin væri hreins- uð síld talin 24 krónu virði tunn- an, en sér væri kunnugt um, sam- kvæmt upplýsingum frá Br. Levy, að hún væri ekki seljanleg fyrir 12 krónur tunnan. Sveinn Benediktsson sagði, að samkvæmt efnahagsyfirlitinu frá einkasölunni vantaði ca. 118 þús. krónur upp á að síldarbirgðirnar hrykkju fyrir skuldum, en þar sem sjóðir 196 J)ús. kr. væru tald- ir til skulda, ætti einkasalan að eiga taíp 80 Jnúsund krónur, en J)að væri herfileg blekking, þar sem skuldirnar væru taldar ca. 100 ])ús. kr. lægri en upplýst væri að þær mundu vera; tómtunnur metnar 8r þús. of hátt, saltbirgðir, skrif- stofubygging o. fl. 20 þús. of hátt, síldarskemdirnar alls ekki teknar til greina, þótt upplýst væri, að a. m. k. þriðji hluti síldarinnar væri skemdur og tiltölulega mest dýrasta síldin; yrði J)ví að draga frá vegna skemdanna a. m. k. 540 J-.ús. kr. Tjón vegna óseljanlegrar sildar myndi nema ca. 300 þús. kr., vantalinn sölukostnaður og geymsla erlendis ca. 100 J)ús. kr. Þótt áætlanir þessar væru ekki nákvæmar, myndi það sýna sig, að cfnahagurinn væri síst betri, en þessar tölur sýna. Einkasöluna vantaði því yfir miljón króna til þess að eiga fyrir skuldum. Tjáði ræðumaður að lokum, að hann og Hafsteinn Bergþórsson, fulltrúar sunnlenskra útgerðarmanna, hefði ákveðið að bera fram svohljójS- andi tillögu: „Þar sem ljóst er af bráöa- birgðauppgjöri Síldareinkasölunn- ar, að fyrirtækið á ekki líkt þ)íá tyrir skuldum, þegar tekið er til- lit til þess, að síldarbirgðirnar er» áætlaðar langtum hærra verði, ea þær eru seljanlegar fyrir, og stór- um útgjaldaliðum slept, þá leggur fundurinn til við landsstjórnina, að hún þegar í stað hlutist til um, að einkasalan gefi sig upp og bá- hennar verði tekið til skiftameð- ferðar, sem gjaldþrota." Nefnd var kosin á fundinum tíl Jiess að tala við ríkisstjórnina út af fjárhagsöngþveiti einkasölunn- ar, og hlutu þessir kosningu: Haf- steinn Bergþórsson, Finnur ]ón»- son og Þorlákur Guðmundsson. Deilt var mjög hart á einkasöl- una á þessum fundi. Sérstaka at- hygli vöktu fyrirspurnir frá nefnd, sem Félag linuveiðaraeigenda kaus í haust til að rannsaka gerð- ir einkasölunnar. Kom þar margt gruggugt í dagsljósið. Fundur byrjaði kl. 10 í morgu*. Fypirspnm. Það er altalað hér í bænunx, að hr. Jóhannes Jósefsson, fyr- verandi veitingamaður á Hótel Borg, sé skuldugur orðinn viS „Áfengisverslun rikisins’* um fjárhæð, sem nemur meira ea 100 þúsund krónum. Um síð- ustu áramót cr sagt, að skuldia hafi verið um 80 þúsund króu- ur, og hefir hún þá, ef fregnir þessar eru sannar, vaxið um rúmar 20 þúsund krónur á þessu ári. Eins og menn vita, var því mjög á loft haldið í „Tímanum“ og víðar, að fyrverandi for- stöðumaður áfengisverslunar- innar, hefði látið safnast all- miklar skuldir hjá sumum hér- aðslæknum og þá ekki síður bjá útsölumönnum áfengis ut- an Reykjavíkur. Yar fyrverandí stjórn legið mjög á hálsi fyrir slælegt eftirlit að þessu leyti og sltuldasöfnunin fordæmd. For- stöðumaður áfengisverslunar- innar var og látinn fara frá starfi sínu af þessum sökum, er sjórnarskifti urðu, en við tók þægur og sanntrúaður fram- sóknarmaður. Hóf hann þegar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.