Vísir - 17.02.1932, Side 2

Vísir - 17.02.1932, Side 2
VlSIR Girdingarefni. Girdingarnet mjög vel galv. Girðingarstólpar úp jórnl. Símskeyti París, 16. febr. United Press. FB. Franska stjórnin farin frá. Stefna stjórnarinnar í landsmál- um og utanríkismálum yfirleitt hefir veriö rædd í efri deild þings- ins og þar eS stjórnin aö umræö- um loknum beiö ósigur viö at- kvæöagreiöslu (157:134) hefir Laval afhent Doumer forseta lausnarbeiöni fyrir sig og ráöu- neyti sitt. — Doumer hefir kvatt leiötoga sjórnmálaflokkanna á sinn fund. Búist er viö, að Laval verði faliö aö mynda stjórn á ný. Tardieu er lagður af staö heim- leiðis frá Genf. Dublin, 16. febr. United Press. FB. Iíosningar í írska fríríkinu. Þátttaka í fríríkiskosningunum er góð. Kl. 3.30 e. h. höfðu 50% kjósendanna neytt atkvæöisréttar síns. Úrslit veröa kunn á föstu- dag. Washington 17. febr. United Press. FB. Frá Bandaríkjunum. Öldungadeild þjóöþingsins hef- ir felt frumvarp Lafollette og Cost- igans, sem fer fram á 75 miij. aollara fjárveitingu til þess að hjálpa bjargarvana atvinnuleys- ingjum. — Deildin leit svo á, að hjálp sú, sem ráö væri fyrir gert í irumvarpinu myndi ekki ná til- gangi sínum. Tokio, 17. febr. United Press. FB. Ófriðurinn í Asíu. Ríkisstjórnin hefir skipað Uydea hershöfðingja að senda Kínverj- um úrslitakosti, að ef þeir höri'í ekki 20 km. frá Shanghai, hefj- ist hin áður lioðaöa sókn Japana gegn þeim. London, 16. febr. United Press. FB. Gengi sterlingspunds. Gengi sterlingspunds er viö- skifti hófust miðað við dollar 3-45JÚ en 3.45, er lokaö var. New York: Gengi sterlings- punds $ 3.45^—3.44)4. Frá Alþingi í gær. —0— Þar fóru fram hin venjulega þingsetningarstörf Alþingis, kosn- ingar nefnda og embættismanna þingsins. I sameinuðu þingi var kosiim forseti Einar Árnason meö 23 atkv., Jón Þorláksson fékk 15 atkv.. jón Baldvinsson 3, og einn seöill var auöur. Varaforseti var kösinn Þorleifur Jónssoti, sömuleiðis meö 23 atkv., Magnús Guðmundsson fékk 8 atkv., Magn- ús Torfason 1, en 10 seðlar voru auöir. Skrifafar voru þeir kosnir Jón A. Jónsson og Ingólfur Bjarnarson. í efri deild: var kosinn forseti Guðmundur Ólafsson með 7 atkv., Halldór Steinsson fékk 6 atkv., en einn seðill var auöur. Varaforsetar voru þeir kosnir Ingvar Pálmason og Páll Hemannsson, hvor- tveggja þeirra með 7 atkv., en auðir seölar voru jafnmargir. Skrifarar voru þeir kosnir Pétur Magnússon og Jón Jónsson. Nefndakosningar fóru svo, að kosnir voru: Fjárhagsnefnd: Jón Þorláksson (S), Ingvar Pálmason og Einar Árnason (F). Fjárveitinganefnd: Bjarni Snæ- björnsson og Halldór Steinsson (S), Einar Árnason, Jón Jónsson og Páll Hermannsson (F). Samgöngumálanefnd: Halldór Steinsson (S), Ingvar Pálmason og Páll Hermannsson (F). Landbúnaðarnefnd: Pétur Magnússon (S), Jón Jónsson og Páll Hermannsson (F). Sjávarútvegsnefnd: Jakob Möll- er (S), Einar Árnason og Ingvar Pálmason (F). Mentamálanefnd: Guðrún Lár- usdóttir (S), Jón Jónsson og Páll Hermannsson (F). Allsherjarnefnd: Pétur Magn- ússon (S), Einar Árnason og Jón Jónsson (F). í neðri deild: var kositin forseti Jörundur Brynjólfsson með 16 atkv. Magn- ús Guömundsson fékk 7 atkv., en 5 seðlar voru auðir. Fyrri varafor- seti var kosinnlngólíurBjarnarson meö 15 atkv., en 13 seðlar voru auðir. Annar varaforseti var kos- inn Halldór Stefánsson með 14 at- kv., Bernhard Stefánsson fékk 2 atkv., en 12 seölar voru auöir. Deildarskrifarar voru kosnir þeir Magnús Jónsson og Bernhard Stefánsson. Nefndakosningar fóru þannig: Fjárhagsnefnd: Magnús Jóns- son og Ólafur Thors (S), Bern- iiard Stefánsson, Halldór Stefáns- son og Steingrímur Steinþórsson (F). Fjárveitinganefnd: Magnús Guðmundsson, Pétur Ottesen (S), Björn Kristjánsson, Ingólfur Bjarnarson, Jónas Þorbergsson, Hannes Jónsson og Lárus Helga- son (F). Samgöngumálanefnd: Jóhann jósefsson og Jón A. Jónsson (S), Bergur Jón'sson, Sveinbjörn Högnason og Sveinn Ólafsson (F). Landbúnaðarnefnd: Magnús Guðmundsson og Pétur Ottesen (S), Bjarni Ásgeirsson, Stein- grímur Steinþórsson og Þorleif- ur Jónsson (F). S jávarútvegsnefnd: Guðbrand- ur ísberg og Jóhann Jósefsson (S), Bergur Jónsson, Bjarni Ás- geirsson og Sveinn Ólafsson (F). Meníamálanefnd: Guðbrandur ísberg og Einar Arnórsson (S), Bernhard Stefánsson, Halldór Stefánsson og Sveinbjörn Flögna- son (F). Allsherjarnefnd: Einar Arnórs- son og Jón Ólafsson (S), Bergur Jónsson, Sveinbjörn Högnasou og Þorleifur Jónsson (F). IFlestar virðingarstööur þings- ins eru þánnig skipaðar hinum sömu mönnum, sem á sumarþing- inu, og sama er um nefndirnar að segja. Hafa jafnaöarmenn meö öllu orðið afskiftir, eins og þá; sátu og enda hjá við nefnda- kosningarnar. Nokkur stjórnarfrumvörp eru fram komin, og verður þeirra get- iö jafnóöum og þau koma til um- ræöu í þinginu. Alþýðnblaðið og KeflaTíknrdellan. Það er ganiall málsháttur, að „sannleikanum verði hver sár- reiðastur“, og gætir þess mjög í smágrein í Alþýðublaðinu s. 1. laugardag,, en þar er veist að Vísi fyrir ummæli hans um úr- slit Keflavíkurdeilunnar. Höf- undur þessarar greinar, sem kallar sig n. n., vitnar í þau orð Visis, að útgerðarmenn og sjó- menn í Keflavik liafi með stefnufestu og dugnaði varið rétt sinn. Telur greinarliöf. þetta „ómengaða siðfræði íhaldsins i baráttu þess í vinnu- deilum og stjórnmálum“. Vísir getur nú ekki tekið neitt af þessu aftur. Ilann er þeirrar skoðunar, að það sé lofsvert og til fyrirmyndar, að ef þörf kref- ur, verji menn með stefnufestu og af einbeitni þann rétt, sem stjórnskipunarlög landsins eiga að tryggja horgurunum. Og ef stjórn landsins bregst þeirri skyldu, að tryggja borgurunum þenna rétt, réttinn til að stunda atvinnu sína óáreittir og i friði, getur það í engu talist ámælis- vert, að menn verji þenna rétt sinn. En hitt er annað mál, að menn gæti varið þenna rétt sinn á ýmsan liátt, og Vísir hefir aldrei sagt neitt í þá átt, að menn geti gripið til hvaða ráða sem er, til varnar þessum rétti. En það hefir forkólfum Al- þýðuflokksins loks skilist, að þegar þeir með ofstopa og frekju ætla að kúga atvinnu- rekendur, án þess að hafa nema lítið hrot verklýðsins með sér, hlýtur að reka að því, að at- vinnurekendur láti hart mæta hörðu. Það hafa Keflvikingar gert og mun þeirra lengi verða minst fyrir það, að þeir með einbeitni og stefnufestu liafa látið hótanir alþýðuforkólfanna svo kölluðu sem vind um eyru þjóta, jafnvel þótt við borð lægi, að ekki yrði hægt að stunda sjóinn þar syðra, en undir útgerðinni er öll velferð Keflvikinga komin. Forkólfar Alþýðuflokksins hafa sífelt fært sig upp á skaft- ið og til þessa talið, að alveg væri sama, hve ósvífnar kröfur ]>eir bæri fram, atvinnurekend- ur yrði að láta undan. Þeir voru liættir að vera nokkurri ein- beitni vanir. Þeir gátu líka látið drýgindalega, þar sem skoðana- bræður þeirra eru ráðandi menn í landinu. Þeir bjuggust ekki við neinum aðgerðum af hálfu ríkisstjórnarinnar, því þeir telja sig hafa öll ráð henn- ar í hendi sér, og ekkert bendir til annars, en að þeir geti haldið áfram æsingastarfsemi sinni í vinnudeilum, rikisstjórnarinnar vegna. Hin stefnufasta og ein- beitta framkoma Keflvíkinga er eina alvarlega mótspyrnan, sem æsingamennimir í liði Alþýðu- flokksins hafa orðið fyrir. Og þeim varð svo mikið um, að þeir urðu þegar að láta sig. Alt hjal greinarhöf. um ofsóknir keflvískra útgerðarmanna i garð fátækra manna og veikra kvenna, er órökstutl hjal út í loftið. Og þótt blaðið vilji láta líta svo út, að Vísir liafi átt við rétt útgerðarmanna til að sýna ruddaskap veikum konum og til að flæma fátæka menn burt af heimilum þeirra, þá villir það engan. Hér var um að ræða réttinn til varnar því, að fá- einir æsingamenn með Alþýðu- samband íslands að baki sér, gæti ráðið vinnukjörum á ver- tíðinni, sem nú er byrjuð syðra, kúgað atvinnurekendur og sjó- menn til samninga. En útgerð- armenn í Keflavik höfðu ekki neitað að semja við verka- mannafélag um kjör verka- manna i landi og þá vafalaust ekki heldur við sjómannafélag, um vinnukjör á bátunum, a. m. k. ekki ef félög þessi væri stofn- uð á þann hátt, að hægt væri að viðurkenna þau rétta samnings- aðila, ]). e. að þau hefði með sér félagsbundinn meirihluta verka- manna og sjómanna. Visir teíur ekki ástæðu til að ræða frekara við n. n. þenna, nema hann fari á stúfana aftur. Má þá vel vera, að honum verði gerð betri skil. Alvörumál. —0— Nýlega hafa verið framin þrenn innbrot hér í bænum og hefir það slegið nokkurum óliug á suma bæjarbúa. Einliversstað- ar sá eg þess getið á prenti, að líklegt mætti þykja, að hér hefði útlendur innbrotsþjófur eða þjófar verið að verki, því að svo sniðuglega hefði verið að öllu farið, að likast væri því, sem þaulvanur maður eða menn hefði framið þessi illvirki. Þegar eg skrifa þessar línur liefir þess ekki heyrst getið, að búið væri að handsama glæpa- manninn eða mennina, en lög- reglan er víst all af að rannsaka málið. Þeir, sem litið liafa í kring um sig á síðustu tímum og eitt- hvað fást við að hugsa, furða sig ekki á því, þó að sitt livað ó- skemtilegt geti borið við á þessu landi. — Sljórnmálaskúmarnir hafa ekki verið iðjulausir síð- ustu árin. — Almenningur hefir verið fræddur um það af mikl- uni dugnaði og mikilli óskamm- feilni, að alt sem Reykvíkingar hefði undir höndum, væri í raun og veru stolið. Útgerðarmenn eiga að hafa stolið öllu, sem þeir liafa handa milli og kaup- menn slíkt hið sama. Það, sem embættismenn kunna að hafa aurað sainan með mikilli spar- semi, á lika að vera stolið. Um aðra er minna talað. Stjórnarliðið hefir flutt þjóð- inni þenna hoðskap árum sam- an. „Tíminn“ og „Alþýðublað- ið“, málgögn núverandi stjórn- ar, hafa predikað þetta, þó að þau vilji nú ef til vill ekki kann- asl við það. En lítið í gamla ár- ganga þessara virðulegu mál- gagna, hyggið að hvað þar stendur og skýrið svo frá, hvers þið hafið orðið vísari. í sérstakri bók, sem út hefir vcrið gefin af annari deild stjórnarliosins, hinum svo nefndu jafnaðarmönnum, er því haldið fram með miklum ofsa og ærslum, að allir eigi alt, eng- inn eigi neitt sérstaklega og því sé liverjum einum heimilt, að taka það sem hönd á festi og lionum sýnist. Dæmi: Gamall maður hefir með einstökum dugnaði og sparsemi dregið saman nokkur þúsund krónur, sem hann ætlar að nota sér til framfæris í ellinni, þegar hann er orðinn ófær til vinnu. Sam- kvæmt hinni nýju kenningu, um að „allir eigi alt“, getur livert fyllisvín eða drullusokk- ur, sem aldrei hefir unnið ær- legt liandarvik, ráðist að ósekju á þenna gamla, heiðarlega mann og rænt hann öllum eign- unum.> — Og veiti hinn aldraði, heiðarlegi maður mótspyrnu, er vafalaust — samkvæmt nýju kenningunni — heimilt að misþyrma honum eða drepa hann, því að í áður nefndu „játningarriti“ stjórnarflokk- anna stendur skýrum stöfum, að sjálfsagt sé að hengja ýmsa menn, alsaklausa, ef það er tal- ið liaganlegt. Þar er og talað um, að heimilt sé og ósaknæmt að sprengja í loft upp kirkjur og banka, en liengja presta og bankastjóra. Stjórnin hafði liaft hina megnustu óbeit á liöfundi bók- ar þeirrar, sem hér um ræðir (Alþýðubókarinnar) áður en liún kom fyrir almenningssjón- ir. En þá er hún hafði kynt sér bókina, skoðanir liöf. og ráð- leggingar til alþýðunnar, breytt- ist skyndilega veður i lofti. Höf., sem áður hafði verið atyrtur og svívirtur og talinn getulaus með öllu, var nú alt í einu orð- inn að stórskáldi, sem skylt þótti að verðlauna úr rikissjóði. „Alþýðubókin“, með öllum þeim ógurlegu skoðunum, sem þar er haldið fram, hafði lyft liöf. upp i stjórnarfaðminn og síðan hefir liann legið á brjóst- um hennar. Afnám eignarréttarins hefir verið predikað mörg ár undan- farin. Hafa jafnaðarmenn stað- ið fyrir þeirri predikunarstarf- semi, en „Tíminn“ tekið undir. Hann hefir þó stundum slegið úr og i af liræðslu við bændur, sem yfirleitt eru litið lirifnir af þeint kenningum, að óaldar- menn megi vaða um landið að ósekju og taka alt ránshendi. Bændur vilja fá að eiga sitt í friði og fyrirlíta liið nýja siða- lögmál „Alþýðubókarinnar“. Engi vafi leikur á því, að kenningar „Alþýðubókarinnar" um að „allir eigi alt“ og hverj- um sé rétt að taka það, sem tekið verður, hafa haft nokkur áhrif. — Rikisstjórnin hefir sýnt, að hún metur þessar kenningar mjög mikils, þvi að hún hefir lagt sérstaka blessun vfir höfund þeirra, síðan er liann lét þær á „þrvkk út ganga“. — Áður hafði luin fyr- irlitið liann, svo sem mest má verða. En síðan „Alþýðuhókin“ kom út, hefir liún liossað hon- um á alla vegu og talið hann mikilla launa verðan. Sumir eru nú þeirrar skoðun- ar, að liin tíðu innbrot liér í Reykjavík á síðustu tímum, sé bein aflciðing þeirra kenninga, sem að mönnum liefir verið haldið, bæði í „Alþýðubókinni“, „Alþýðublaðinu“ og jafnvel „Tímanum”, að eignarrétturinn sé ekki friðhelgur og að í raun réttri hafi allir stolið því, sem þeir hafi undir höndum og þyk- ist eiga.-—Ekkert sé eðlilegra en það, að lítilsigldir og kærulaus- ir menn taki mikið tillit til

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.