Vísir - 23.04.1932, Blaðsíða 3

Vísir - 23.04.1932, Blaðsíða 3
V I S1R jKaisla^ér K. F. U. M. Söngstjóri Jóh Halldórsson. • SamsönguF • á morgun 24. apríl kl. 3 síðdegis í Gamla Bíó. Einsöngvarar: Jón Guðmundsson og , Óskar Norðmann. Emil Thoroddsen aðstoðar. Aðgönguniiðar í Bókav. Sigí'. Eyniundss. og Hljóðfæraversl- an K. Viðar og kosta kr. 3,00 (stúkusæti), 2,50 og 1,50. ýiersluna á síðari lið orðsins. Það tuá auðvitað ekki, nema lengd- ur’sé ldjóðstafurinn i áhersluat- kvæði fyrra liðsins að sama skapi, og þyngd áherslan þar, svo að hlutföllin haldist. iÞetta gerði Haraldur samt ekki alls- staðar. Hinn góði leikur Haralds nú sýnir það glögglega, að nýla má kunnáttú hans með góðri og fastri leiðbeiningu. Gestur Páls- son og Gunnar Möller fórú vel íiieð heldur leiðinleg hlutverk sin, og er þess sérstaklega^get- .andi um Gunnar, að hann hefir jiijög golt málfæri og skemtileg- ,an framburð. Emilía Indriða- dóttir lék frú Midget fráhær- tega vel, og Arndis Björnsdóttir fór ágætlega með sitt, heldur jeíðinlega hlutverk. Frú Marta Kalman lék frú Cliveden-Banks, sem áður lék frú Soffía Guð- Jatlgsdóttir; Iiafa þær gengið frá hlutverkinu á mjög ólíkan Jiátt, og er þó meðferð beggja ágæt, en verður naumast borin saman, vegna ólikindanna. Þýðíngin er eftir Jakob jSmára, og að því er heyrt verð- airt mjög góð. Það urgar þó jiokkuð í íslensku eyra að heyra stöðugt japlað á þessu „já, herra" og nei, lierra minn“, sem er andstætt allri islenskri mál- venju. Það væri langbesL að sleppa. slíku alveg, þegar lagt er út á ísíensku, en ' þýðándinn verður þó lítið um þetta sakað- itr, því i enska textanum stend- nr vitanlega „yes, sir“ og no, sír". A þessu lýti ber miklu iheira á leiksviði, lieldur en á prenti, svo að það ér honum <enn afsökun. G. J. iestamannafél, Fáknr lO ára. —o— A morgun eru liöin to ár síðan nokkurir áhugasamir hestamenn hér stofnu'ðú ,,Fák“, eii iné‘8 því að ðllum almenningi er ekki ljóst , hvað sá féjagsskápur hefir haft fyrir stafni jtessi li'ðnu ár, þykir rétt a'ð nota þetta tækifæri til að varpa nokkuru Ijósi yfir störf ]>ess um þetta árask'eið, svo að almenningur fái séð,: að Fáksliðar hafa fejigist við 'fleira en útreiðar, eins og 6- 'kunnugum hefir oft orðið á, að :geta sér til. Stofnun Páks. Stofnendur voru 40, en síðan hefir meðlimum félagsins mikið fjölgað, og nú eru ]reir 200 talsins. Framkvæmdir. Það fyrsta sem félagið Ijyrjaði á. var að sækja uni til bæjarstjórnar 1and undir skeiðvöll og nauðsynjeg- .ar byggingar þar. Bæjarstjórnin lét félaginu i té land það, sem Skeið- vollurinn liggur nú yfir, en þó fékst það eigi til leigu nema um tiltekið .árabil, og er Jtað.eitt með öðru, sent dregur úr nauðsynlegum fram- 'kvæmdum á kappreiðasvæðinu, tíl þcss að géra gest’um ]téim. er kapjv reiðar sækja, staðjnn vistlegan, En* í þessit efni, sem ýmsu öðru, dugði ekki að deila við dómarann. Bæjar- stjórnin réði. Þegar landið undir völlinn var fengið, varð félagiö að hefjast handa og byrja á vallargerðinni, en ])á sem oftar kom gamli mannkyns- óvinurinn til sögunnar, fátæktin. Félagið var með öllu févana, og fé- lagar þeir, sem þá voru í félaginu, reyndust engir auðmenn, en þeir 'hinir sönui áttu til brennandi áhuga ' fyrir hestum og héstaíþróttum, og sáu ]tví strax, að ef félagsskapur- inn ætti ckki þá þegar að kafna í fæðingunni, varð að afla fjár til þess, sem gcra þurfti. Það var því afráðið, að leita frjálsra framlaga hjá félögum og öðrum, til Jiess að húa völlinn og afgirða hann. og átti félagið að endurgreiða Jiessi láu svo fljótt, sem unt væri, af vænt- anlegum tekjum Jiess. Með þessu nióti náðist svo miki'Ö fé, að á vell- inurn var hyrjað, og við hann lok- ið fyrir Jiann tima, sem kappreiðaf hófust. Hér sannaðist sem oftar gamli málshátturinn: „Viljinn dregur hálft hlass.“ Félagið hóf því göngu sína með lánsfé, en í 'fullu trausti jiess, að almenningur skildi þessa viðleitni og sýndi það með þvi, að sækja vel fyrstii kappréiðar jiess, enda varð sú raunin á. Því jað á fyrstu kapp- reiðar, sem félagið háði, 9. júlí 1922. kom múgur' og niafgmenni, og við það baþiaði f járhagurinn, og félagar litu bjartari augum á íram tíðina. — (Hestamenn eru bjart sýnir, eða í það niinsta ])á þeir eru komnir á hak snjöllum gæðing) Síðan hcfir félagið háð tvennar til þrennar kappreiðar á hverju sumri, en’.þó við mjög misjafna að sókn. — Fólk og veður verið dutl ungafult og fjárhaguf félagsins því oltið á ýmsu, enda hefir það þurft í mörg horn að líta. — Völlur. hús og' önnur niannvirki þar kosta fé lagið 12—j 5 þús. krónur. HaRbeit. Frá hyrjun. hefir félagið haft hönd í hagga með hagbeit fyrir hesta jteirra félagsmanna, sem henn- ar hafa þarfnast, og síðan 1925 séð uin haga og ílutning alls þorra reiðhesta félagsmanna o. fl. Reyk- víkinga, en á þeim viðskiftum hef- ir félagið ekki hagnast, enda búið við hátt eftirgjald af hagheitar- löndunum. Hlutaveltur.. Tvær hlutaveltur hefir félagið haldið síðan ]>að hóf sta'rfsemi sina, báðar nieð nokkurum hagnaði. Keiðvegurinu. Aður en ,,Fákur“ kom til sög- únnar, höfðu nokkurir áhugasamir keykvikingar lagt í að leggja reið- veg út úr hænum: sáu réttilega, að kæmi ekki slíkur vegur, væri að mestu úti um reiðhestahakl hér. En nokkuru éftir að ,,Fákur“ var far- inn að starfa, tók hann vegarmál ]ietta í sínar hendur, og er nú kom- inn óslitinti sumarreiðvegur úr Reykjavík að Kolviðarhóli, og.anti- ar vegur, sem liggur sunnanvert við Elliðaár og í kringum Elliðávatn, og kemur á aðalreiðveginti hjá Baldurshaga, F.11 geta má þess; að hið opinhera sá einnig þörf þessa vegar og hefir á ýmsan hátt greitt þá götu. Til vegarins hefir félagið |iegar varið kr. 441.'.’,00. Á hverju sumri hefir félagið farið skemtifafir út úr hænum. og hefir ])á oft mátt líta snjalla gæð- inga og glæsileg tilþrif. Veðmálastarfsemm. Félagar ,.Fáks“ urðu þess fljótt varir, að ýmsir af þeim, sem kapp- reiðar sóttu, veðjuðu s'm á milli á ])á hesta, sem þeir töldu snjallasta. Félagið sótti því unt til Alþingis, að mega reka veðniálastarfsenii í samhandi við kappreiðarnar, og vaf ])að veitt með lögum 1927. En með ])vi að veðjendur hætta að eins smáum fjárhæðum, hefir umsetning bankans verið tiltölulega lítil, en j)ó má ])að teljast stuðn- ingur fyrir félagið. Nokkru af fé því, sem kemur inn fyrir bankastarfsemina, . er árlega varið til viðhalds reiðveginúm; það er því ómissandi liður í starl'semi félagsins. Verðlaun. Eins og öllum álmenningi er ljóst, hefir félagið greitt árlega all- há verðlaun, og liafa hlutaðeigend- ur fengið all-álitlegar peningaíúlg- ur í yerðlaun fyrir hesta sína, en sumif þéiri'a' nianna hafa goldið fé- laginu litlar ])akkir fyrir ])æi: krón- ur. A þessuni 10 árum hefir félagið greitt í verðlauu kr. 17985,00: er ]iað all-áliteg fjárhæð, og vel þess vert, að hlutaðeigendúr veiti því eftir.tekt. Til fróðleiks og gamans set eg hér nöfn þeirra manna, sem liæst verðlaun hafa hlotið fyrir liesta sína á þessttm árum. Skeiðhcstar. K. Þorsteinsson, ,,Hörður“ 675 kr-. F. Hansen, ,,Sjúss“.......900 Sig.. Z. Guðm.. „Sleipnir't, 350 — E. Kvaran. ,,Baldur“, .... 375 Ár- A. Tlallgrímsson, „Valur“. 1000- Stökkhestar. Ol. Magnússon, „Sörli", . 1900 kr. I. Halldórsson. „Skjúni",. 825 E. Gíslasoh, „Dreyri". ... 1565- B. Vigfússon, „Neisti", .. 1450- J. Guðnason, „Reykur", . 425- Hjörtur frá Ðeildartungu, „Móðnir" ............... 450 E. Sæniundsen. „Órn“, .. 330 M.argir fleiri hestaeigendur hafa fengið all-álitlegar fjárhæðir i verðlaun. en eg tel ó]>arft að nefna hér fleiri. Eftir lestur þessara lína geri eg ráð fyrir. að almenningur fái séð, að „Fákur", hefir ekki verið með öllu iðjulaus ])au 10 ár, sem haiin heíir starfað, og eg treysti ]tví, að hæði félagar og aðrir ljái lið sitt til að auka gengi ,,Fáks“. Ennfreniur treysti eg því, að bændur þessa lands sýni ekki tómlæti i að seúda gæðinga sina á kappreiðamót „Fáks", sjái. að góðir hestar auka ekki einungis hróður sinn og eig- ándans, heldur einnig héraðs þess. sem þeir erú kynjaðir frá. Ðan. Dmiíclsson. Dánarfregn. Þ. 20. ]). 111. lésl að heimili sinu, Fljótsdal i Fljótshlið, ITf- ar Jónsson, hóndi. Messur á morgun: t dómkirkjunni kl. 11: Síra Frið- rik Hallgrínisson. (Fernting). — Engin síðdegismessa. , í fríkirkjunni kl. 12: Síra Árni Sigurðsson. (Ferming). Að gefnu tilefni skal þess getiö, að smásöluverð á Teofani Fine Cigapettum hefir verið ákveðið kp. 1,25 fyrir 20 stk. pakka og má því ekki seljast hærra verði Jafnan fyrirliggjandi i heildsölu hjá Tóbakseinkasölu ríkisins. Teofani & Co. Ltd. London. Ný bók eftip Halldór Kiljan Laxness: Fuglinn í fjörunni kemur út í dag. „Fuglinn í fjörunni“ er framhald af og endir á bókinni „Þú vínviður hreirii“, og er æfisaga Sölku Völku, liinnar vinsælu söguhetju „Vínviðarins“, rakin þar áfram, og fléttað inn i hana ýmsum þeim við- fangsefnum nútímans, sem mest eru rædd um þessar mundir. — Cjtvarpshlustendur þekkja nokkra kafla bókarinnar, cftir aS liafa lieyrt höfundinn lesa þá upp í vetur, og munu því margir fagna því að geta nú lesið söguna í heild. Verd 9 kp. ób. Bókadeild Menningarsjóðs Aðalútsala og afgr. hjá: Fæst hjá bóksölum. Austurstræti 1. Sími 26. Landakotskirkja:. Lágmessur kl. 6)4 og kl. 8 árd. Hámessa kl. io árd. Guðsþjónusta með predikun kl. 6 síðd. Spítalakirkján í Hafnarfirði: Hámessa kl. 9 árd. Guðs])jónusta með predikun kl. 6 síðd. Fijntugur verður á morgnn Guðmundur Guðmundsson, Lokastig 20. Trúlofanir. A sumardaginn fyrsta opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Ólafía Guðnadóttir og Haraldur Ámundínusson. Nýlega oþinberuðu trúlofun sína ungfrú Jóhanna Árnadóttir, Bergstaðaslræti 31 og Magnús Magnússon, Ingólfsstræti 7 B. Nýlega opinberuðu trúlofun sína ungfrú Ólafía Davíðsdóttir og Óskar Halldórsson sjómaður. Síðasta vetrardag opinberuðu trúlofun sína ungfrú Margrét Gestsdóttir og Guðni Jónsson járnsmíðanemi. Samsteti, I. R. liélt þátttakenduni í víða- vangshlaupinu o, fl. samsæti á sumardaginn fyrsta. Fór það vel frant og var hið fjörugasta. Ingerfire. Viðgerð fer nú fram.á Inger- fire vegna skemda þeirra, sem urðu á skipinu á dögunum, er hegrinn svifti reykháfinuu af því. H.f. Hámar annást við- gerðirnar. „Töfraflautan", æfintýraleikurinn, seni Leikfélag- ið sýndi í íyrsta sinn á þriðjudags- kveldið, er lipurlega saminn, me‘8 góðum sönglögum eftir Árna • Björnssou píanóleikara. Var leikn- um ágætlega tekið á fyrstu sýning- unm. Hann verður sýndur aftui* á morg'un á nóni (kl. 3R2). X. Botnvörpungarnir. I morgun komu þessir botn- vörpungar af veiðum: Haf- steinn með 78 tn„ Arinbjöni liersir með 81, Karlsefni með 80 og Geir með 82 tn. lifrar. Strandferðaskipin. Esja var á Vopnafirði í morgun. Súðin fór til Borgarness í nótt, með síldarfarm. Gamla Bió sýnir í fyrstá sinni í kveld kvik- niyndina ,.Yvonne“. Aðalhlutverk leikur Greta Garbo.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.