Vísir - 12.08.1932, Blaðsíða 3
y 1 s i r
injölið, sem eg notaði i tilraun-
aniun árin 15)24—26 liafi náö
þvi köfnunarefnismagni. Um
})aö get eg þó ekki sagt, þvi að
á þvi sildarmjöli var engin
efnarannsókn gerð svo eg viti.
Nú þótt tilraunir þær, sem
hér liefir verið drepið á, séu
ekki tæmandi um áburðargildi
síldarmjöls móts við annan á-
burð, og þótt „holt sé lieima
livat“, eins og höf. bendir á i
grein sinni, j)á er það víst, að
j>að er fjarri öllum sanni — og
mundi tilfinnanlega svikja — að
leggja síldarmjöl til jafns við
eða meira en það móti Nitro-
phoska til áburðar. Hins vegar
er niönnum nú orðið það kunn-
ugt, m. a. fyrir fóðurtilraunir
Búnaðarfélagsins, að sildar-
mjölið er ágætis fóður, einkum
með beit og litlum lieyjum.
Rétt þykir mér að geta þess
. um leið að fiskiúrgangsmjöl var
einnig revnt í tilraunum þeim,
sem getið er liér að framan. Á-
burðarefnarannsókn á því 1922
sýndi 8,35% köfnunarefni,
• 8,15% fosfórsýru og 11,3% kalk,
j). e. nokkuru meira köfnunar-
efni en i síldarmjölinu sem áð-
ur er nefnt, þrefalt af fosfor-
sýru, og fjórfalt af lcalki sam-
anborið við síldarmjölið.
Áburðarskamtar af fiskiúr-
.gangsmjöli voru liinir sömu
sem af síldarmjöli. Iluustbreitt
gaf j)að að meðaltali fyrir 4 ár
14,1% meira, en vorbreitt
1,3%: meira en kúamykjan.
Sömu 4 árin gaf haustbreitt
síldarmjöl 2,26% minna og vor-
breitt 2,3% minna en kúamykj-
an. Hefir })ví fiskimjölið —eins
og efnagreiningin bcndir til —
reynst betur en síldarmjölið til
Táburðar, en það er líka dýrara,
og getur því alls ekki jafnast
við Nitrophoska, livorki um
verð eða gagnsemi, sem áburð-
ur.
Þar sem útvarpið liefir haldið
á lofti skoðunum greinarhöf-
midar á síldarmjölinu sem
áburði, vænti eg þess að það
telji sér skylt að skýra einnig
l'rá niðurstöðum mínum og
sáliti á áburðargildi síldarmjöls-
.áns. — i
Rvik, 10. ágúst 1932.
Methúsalem Stefánsson.
Dánarfregn.
í gær andaðist á Isafirði
Björn Magnússon simastjóri.
Hann hafði legið leng'i þungt
Jhaldinn.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavik 12 stig, ísa-
firði 10, Akureyri 12, Seyðis-
firði 7, Vestmannaeyjum 10,
Stykkishólmi 14, Raufarhöfn
11, Hólum í Hornafirði 12, Fær-
eyjum 11, Julianehaab 3, Tvne-
mouth 18 stig'. Skeyti vantarfrá
IBlönduósi, Grindavík, Jan May-
æn, Angmagsalik og Hjaltlandi.
Mestur hiti liér i gær 14 stig,
minstur 9 stig. Sólskin i gær
13.9 sl. Yfirlit: Grunn lægð fyr-
ir norðan og norðvestan land.
Önnur yfir Bretlandseyjum. —
Fregnir vanta suðvestan af hafi.
Horfur: Suðvésturland, Faxa-
flói, Breiðafjörður, Vestfirðir,
Norðurland: Vestan og ' norð-
vestan gola. Sumstaðar smá-
skúrir. Norðausturland, Aust-
firðir, suðausturland: Stilt og
víða bjart veður.
Bifreiðarslys
varð seinni hluta dags i gær,
kl. 5%, á Hafnarfjarðarvegin-
um fvrir sunnan Öskjuhlíð. Ein
B. S. B. bifreiðanna var að
koma sunnan úr Hafnarfirði,
en einkabifreið var á suðurleið.
Þegar á að giska 100 metra bil
var á milli bifreiðanna, mun fát
liafa komið á bifreiðarstjóra
einkabifreiðarinnar. Fór bif-
reiðin út af veginum og mun
hafa farið 2—3 veltur áður en
hún stöðvaðist. Fimm manns
var i bifreiðinni og skar ein
stúlka sig allmjög á glerbrot-
um, en hina sakaði minna en
búast mátti við. Bifreiðastjóri
B. S. R. flutti alt fólkið á Land-
spítalann. Voru meiðsli þcss at-
huguð þar og fóru allir lieim
að því loknu, nema stúlkan. —
Einkabifreiðin skemdist mikið,
en hefir verið flutt hingað til
bæjarins.
Veðurathuganirnar.
Menn þeir, sem annast eiga
veðurathuganirnar á Snæfells-
jökli í sumar, komu á M.s.
Dronning Alexandrine. Höfðu
þeir með sér liús það, sem reist
verður á jöklinum og rannsókn-
aráliöld öll. Yfirmaður farar-
innar er svissneskur prófessor,
Mercanto að nafni. llinir eru
dr. Zingg veðurfræðingur, la
Cour vélfræðingur og P. Jensen
sínnútari. Próf. Mereanto verð-
ur hér eigi nema skamma liríð.
Varðskipið Fvlla mun annast
flutninginn á mönnunum og
farangri þeirra vestur á Snæ-
fcllsnes.
Uppdrátt af Reykjavík
og nágrenni hefir Strætis-
vagnafél. Reykjavíkur gefið út
og sérjmentað. Sýnir hann öku-
leiðir strætisvagna i ár. Bækl-
ingur þessi er lúnn handhæg-
asti og nauðsynlegur mörgum.
Verð lians er 25 aurar eintakið.
— Uj)pdrátturinn sýnir, auk
leiðanna, sem vagnarnir fara,
viðkomustáði og endastöðvar.
Á minni uppdrætti eru sýndar
gjaldskiftistöðvar. — Eru þær
aúðkendar með liringum, en
tölur sýna ökugjald milli stöðv-
anna.
Þórisdalur
i Langjökli er mörgum kunn-
ur úr Grettis sögu og Þjóðsög-
umun, En það er ckki ýkja langt
síðan að menn fengu einhverja
liugmynd um það, livar hann
væri i raun og veru. Enn eru
menn ekki sammála um })að,
Iivar þessi þjóðsagnadalur er.
og hafa ýmsir farið í rannsókn-
arferðir til að leita lians, og
l'leiri hafa vist löngun til þess.
Nú um lielgina gefst mönnum
ágætt tækifæri. Ferðaskrifstofa
íslands gengst fyrir ferð upp á
Kaldadal á laugardagskveld.
Verður tjaldað í Brunnum og á
sunnudaginn verðiu' ekið upp
að jökli og gengið í Þórisdal
undir lciðsögu hins góðkunna
ferðagarps Sigurðar á Laug,
sem þekkir livern krók og Idma
á þessum slóðum. Tjöld leggur
Ferðaskrifstofan til, en sjálfir
verða menn að liafa með sér
mat og teppi, en þau getur
Ferðaskrifstofan einnig leigt.
Fargjaldið er að eins 10 krön-
ur, og má það leljast afar ódýrt.
Fm.
Kappróðrarmót Ármanns
fer fram i kveld og hefst kl.
8. Þátttaka er lieimiluð öllum
félögum innan Iþróttasambands
íslands, en keppendur eru að-
eins úr Ármanni að þessu sinni.
Verða flokkar félagsins þrir og
róa þeir allir samtimis. Kept
verður um bilcar, sem Einar O.
Malmberg kaupmaður gaf í
fyrra. Vann Ármann bikarinn
þá i 1. sinn. Róið verður frá
Laugarnestöngum að Hafnar-
mynninu og er vegalengdin um
2000 metrar. — Bátshafnirnar,
a. m. k. tvær þeirra, hafa verið
taldar nokkuð jafnar, en kepni
mun verða mikil og óvist liver
ber sigur úr býtum. Verður
vafalaust fjölment við liöfnina,
er bátshafnirnar koma að landi.
íþ.
E.s. Gullfoss
er á útleið.
E.s. Goðafoss
er á Siglufirði.
E.s. Brúarfoss
fer frá Leilh í dag áleiðis
hingað.
E.s. Dettifoss
er í Hamborg.
E.s. Lagarfoss
er á leið til Austf jarða. Vænt-
anlegur þangað i dag.
E.s. Selfoss
er á Hesteyri.
Þverárbrúin
verður vígð sunnudaginn 23. þ.
m.
Nytt dilkakjöt
með niðursettu verði.
KjðtbúSin Crunflarstífl 2
Simi 1975.
K.F.U.K.
Ungmeyjadeild.
Þær stúlkur, sem vilja taka
þátt i berjaferð, mæti í liúsi
K. F. U. K. í kveld kl. 8%.
í Þórisdal
verður farin skemtiferð uin
helgina. Lagt af stað á laugar-
dagskveld og gengið i Þórisdal
á sunnudag. Tjöld verða lögð
til íneð bilfarinu, sem kostar
að eins 10 kr.
Ferðaskrifstofa
íslands.
Norsk firma
söker forbindelse með eksportör av törket faare-
kjött for straks levering. Billett med prisopgave
mrk. „God kvalitet“ i bladets eksp. f. v. b.
Þrastalundur
FljótsMíð
daglega kl. 10 f. h.
laugardaga kl. 10 f. h. og 5 e. li.
Akureyri
þriðjudaga og föstudaga.
Ásgeir Þorsteinsson
var meðal far})ega á Lyru í
gær.
Timburskip
til Völundar kom i gær.
M.s. Dronning Alexandrine
fer vestur og norður i kveld.
E.s. Suðurland
fór til Borgamess í morgum
Reykjavíkurkepnin.
í kveld keppa K.R. og Viking-
ur. Kappleikurinn liefst kl. lx/i-
Þeir hestaeigendur,
sem ætla að koma hestum
sinum fyrir í fóður í vctur eða
liaustgöngu, ættu að athuga
augl. hér í blaðinu í gær frá
bændunum á Læk í Leirársveit
og Hvammsvík í Kjós. Eru
þessir staðir ágætir og munu
menn eigi geta komið hestum
sínum á öllu betri staði.
Skeintiförin
upp i Vatnaskóg. Akveðið er
nú, að liin vinsæla Lúðrasveit
Reykjavíkiu' verði mcð í för-
inni. Forgöngumenn fararirinar
hafa séð svo um, að þeir sem
þess óska, geti farið i bifreiðum
frá Saurbæ upp í skóginn gegn
vægri þóknun. Annars er þetta
tim 20 mínútna gangur. Búist
er við að lagt verði af stað frá
Saurby kl. 8 um kveldið heim-
leiðis, og verða þá allir að vera
komnir á skipsfjöl. Ef eitthvað
verður eftir óselt af farseðlum
á laugardaginn kl. 4 verða þeir
seldir eftir })ann tírna í K. R.-
húsinu og hjá Hirti Hanssyni,
Austurstræti 17 (Hús L. H.
Múller, uppi). K.
Útvarpið í dag.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
19,30 Veðurfregnir.
Ódýptl
Metravara, Léreft, bl. og óbl., Sirs, Flauel, Georgette,
Hálfklæði. Tilbúinn fatnadur:
Kápur, Nærfatnaður, Smál)arnaföt,
Kjólar, Sundskýlur, Silkislæður,
Svuntur, Sokkar, Treflar,
Peysur, Vethngar, Bindislifsi á 1 kr.
Lífstykki, Hanskar,
Handldæði, Smávörur: Leggingar, Talkúm,
.Vasaklútar, Milliverk, Brilhantine,
Axlabönd, Töskur, og margt fleira, —
Borðdúkar, Regnlilífar, með 10, 20 og 50%
Ser\4eltur, Púður, afslætti.
Blúndur, Krem,
Verslunin FÍLLINN,
Laugaveg 79. Sinri 1551.
Skemtibáturinn
Grímur Geitskór Þingvallavatni, áætlunarferðir daglega kl.
iy2, frá Þingvöllum til Sandeyjar og viðar á öðrum tímum
eftir samkomulagi. — Upplýsingar á símstöðinni í Valhöll
og mn borð.
19,40 Grammófónsöngur: Leo-
nid Sobinoff syngur:
Sleep my beauty úr
„Mainótt“ og The jov-
ous day departs, úr
„Snjóstúlkan“, eftir
Rimsky-Korsakow; Un-
willingly to tliese sad
sliores, úr „Rusalka“,
eftir Dargomyslisky og
My heart trembles witb
passion and tenderness
úr „Raphael", etfir Ar-
ensky.
20,(K) Klukkusláttur.
Grammófóntónleikar:
Symphonia nr. 1, eftir
Beethoven.
20,30 Fréttir. Lesin dagskrá
næstu viku.
Músik.
Til bágstöddu ekkjunnar,
afhent Vísi: 2 kr. frá ónefnd-
um.
Áheit á Strandarkirkju,
aflient Vísi: 7 kr. frá Þ., 5
kr. (gamalt áheit) frá ónefnd-
um, 10 kr. frá A. R., 5 kr. frá
Sigurþóri, 5 kr. frá ónefndum
og 3 kr. frá konu.
K,R, ogVíkingur keppa í kveld kl.71^ «mn«np.