Vísir - 21.08.1932, Blaðsíða 2

Vísir - 21.08.1932, Blaðsíða 2
V )) Htom & Qlsemi íl Nýkomið: Slétt járn. Biðjið jafhan um æ æ æ Millennium i liveiti. Fæst hvarvetna. æ æ æ æ æ ææææææææææææææææææææææææææ Þðrðar Sveinsson & Co. fllllIII!IllllfllIllllllIflBmBliai»imillllIflBBIIIia!IHllKI8iHIIIIIIHUaillBIlllB MASONITE Þilborðin sænsku eru nú aitaf fyrirliggjandi af mörgum gerðum og til margvíslégra nota. Mjðlkarfélag Reykjavíkur. .................. Sífnskeyti Ottawa, 20. ágúst. United Press. - FB. Ottawa-ráðstefnan. Viðskiftasamnlngar, 12 að tölu, voru undirskrifaðir liér i dag, milli Bretlands og nýlend- anna. Viðskiftasamningarnir verða birtir í London á morgun (sunnudag). Montreal 20. ágúst. United Press. - FB. Mollison í Montreal. Flugvélasýning liefst hér í dag', i St. Hubert flugstöðinni. Mollison flýgur hingað, til þess að verða viðstatídur, er sýning- in verður opnuð, en flýgur því næst áfram til New York á morgun (sunnudag). Utan af landi. Siglufirði, 20. ágúst. — FB. Búið var að salta hér á mið- nætti í nótt 69,881 tn. af salt- sild, 21,826 af kryddsíld, sykur- salta 25,159, verka fyrir Þýska- landsmarkaðinn og öðru vísi meðfama 5,975 tn. og af milli- síld 476 tn. Lagt hefir verið i rikisbræðsl- nna 101,800 mál, til Hjaltalíns 20,619 mál. Vikusöltunin hér 30,565 tn. alls. Allmikið hefir auk þess verið sett í íshúsin. Talsvert af síld Iiefir borist að í morgun. I gær snjóaði hér í fjöll. Gott veður í dag. Þorskafli góður. Norskar loftskejtafregnir. Osló 20. ágúst. NJRP. — FB. Loftskeyti til danskra bíaða herma, að leiðangursskipið Po- ( larbiörn liafi sett á land norska veiðimenn milli Kun-eyjar og Besselfjarðar, og reist stóra loftskeytastöð við Ardencaple- fjörðinn, og auk þess reist veiðimannakofa á milli stöðv- arinnar og húsa danska veiði- félágsins Nanok. Godtfred-Hansen, komman- dörkapteinn, lætur svo um mælt i Extrabladet, að Jjetta kunni að liafa alvarlegar af- leiðingar fjfrir Nanok-félagið, að því er fjárhag félagsins snertir. Kveðst hann vona, að ríkisstjórnin í Danmörku haldi fast á rétti félagsins gagnvart Norðmönnum. Telur hann framferði Norðmanna ólög- legt. Per Rygli, lögmaður, sem liafði Grænlandsmálið til með- ferðar í Haag, telur ásakánir Dana ckki liafa við rök að styðjast. Norðmenn hafi í engu brotið fyrinnæli Grænlands- samningsins. Á ráðuneytisfundi var í gær skipað ráð manna, til þess að hafa með liöndum skipulagn- ingu á saltfisksútflutningnum, i samræmi við ný lög uin það efni. I ráðinu verða: Thore Bersetli, Alasundi, Erik Rolf- sen, Kristianssundi, Oluf Ny- gaard, Salten, J. M. Mostervik, Besaker, Jolian Pedersen, Skjelfjord. Vegna blaðaumæla um sölu á hvallýsi Sven Foyn leiðang- ursins, hefir stjórn félagsins lýst því yfir, að salan liafi ver- ið samþykt einróma á stjórn- arfundi, og hafi viðskiftahags- munir aðeins komið til greina. Gengi i Osló í dag: London 19.95. Hamborg 137.50. París 22.65. New York 5.76. Stokk- hólmur 106.70. Umræður. —o— „Alþýðuhlaðið“ vill liafa miklar umræður um vandræði atvinnulausra manna. Það vill láta meta „hug“ manna „til hins þrautpínda“ mannfjölda eftir því, hvað mikið þeir vilja ræða um þarfir hans opinber- lega í tíma og ótíma. Um fram- kvæmdir virðisl í rauninni skifta minna. — Það var ]iví að vonum, að blaðið teldi það skyldu sína, að flytja svolít- inn pistil um hugarfar þeirra bæjarfulltrúa, sem á síðasta hæjarstjórnarfundi greiddu at- kvæði á móti þvþ að teknar yrðu á dagskrá og umræður hafðar um nýjar tillögur frá sameiginlegum fundi „Dags- brúnar og Sjómannafélags- ins. — Og hvílík harðýðgi og mannvonska, — að vilja ekki le>Ta umræður um þessar til- lögur! — En til hvers? Það kom auðvitað engum manni til liugar, að þessar til- lögur yrðu samþyktar á þess- um hæjarstjórnarfundi. Því síður að þehn yrði hrundið í framkvæmd án alls frekari undirbúnings. Atvinnubóta- málið hefir verið í höndum at- vinnuhótanefndar. í þeirri nefnd eru starfandi fimm full- trúar verkamanna og tveir full- trúar fyrir nieiri hluta bæjar- stjórnai’. — Frá þeirri nefnd lá fyrir bæjarstjórnarfundin- um tillaga um, að séð yrði fyr- ir atvinnu handa 200 manns, fyrst um sinn til mánaðamóta. „Alþýðublaðið“ neitar því nú, að þessi tillaga sé „tillaga Al- ]iýðuflokksmanna“ í nefndinni. Fyrir . bæjarstjórnarfundinum lá eftirrit af fundargerð nefnd- arinnar og í þeirri fundargerð var bókuð þessi tillaga nefnd- arinnar. Undir fundargerðina rita allir nefndarmenn Alþýðu- flokksins, og viðurkenna með því, að þessi tillaga sé þeirra tillaga. Það á sér þvi engan stað, sem Alþhl. lieldur fram, að Alþýðuflokksmenn hafi flutt aðra tillögu. Það eru vís- vitandi ósannindi, svo sem staðfest er með undirskrift þessara fimm nefndarmanna. — Ennfreinur má geta þess, að borgarstjóri hefir, i samráði V I S I R við alla atvinnuhótanefndina, án nokkurs ágreinings, faríð fram á það við ríkisstjórnina, að tillagið úr ríkissjóði, til at- vinnubóta í Pieykjavík, á þessu ári, yrði hækkað um 50 þús. kr., svo að vinna geti orðið til áramóta (frá miðjum ágúst) fyrir sem svarar 330 þús. kr. — Það kom því ekki til mála, að á þessum hæjarstjórnar- fundi vrði gerð ályktun um að auka þessa vinnu, þvert ofan í fyrirliggjandi tillögu atvinnu- hótanefndar, án frekari rann- sóknar. Umræður um tillög- ur verkamannafundarins um aukning vinnunnar, þannig, að nú þegar yrði gerðar ráðstaf- anir til að 350 manns gæti feng- ið vinnu yfir sumarmánuðina og að til áramóta yrði unnið fyrir 500 þús. kr„ voru því ger- samlega tilgangslausar, að svo stöddu. Það er nú harla óvíst, að kleift verði að framkvæma það, sem borgarstjóri, í samráði við atvinnuhótanefnd, ráðgerði i erindí srnu til rikisstjórnarinn- ar, að lialda uppi atvinnubóta- vinnu til áramóta fyrir 330 þús. kr. Alþbl. skýrir að vísu svo frá, að fjármálaráðh. liafi lýst því yfir, að ekki skyldi standa á þvír að ríkissjóður legði fram fé til þess að sínum hluta. Um það var nú raunar ekkert svar komið til horgarstjóra á fimtu- dag, þegar bæjarstjórnarfund- urinn var haldinn, og það var ekki komið, er hæjarráðsfund- ur var haldinn á föstudag. En jafnvel þó að engin fyrirstaða sé á því, að tillag ríkissjóðs fáist, þá hefir bæjarsjóður ekki handhært fé til áð framkvæma þá atvinnubóta-áætlun, sem borgarstjóri og atvinnubóta- nefnd hafa gert, hvað þá meira. Og meðan svo er, til hvers er þá að vera að hafa „umræð- ur“ um auknar framkvæmdir? I sjálfu sér er alveg það sama að segja um aðrar tillög- ur verkamannafundarins. T. d. um það, að fella riiður inn- heimtu á útsvörum atvinnu- lausra manna, alveg án tillits til þess, hvort þeir géta greitt þau. Væntanlega léttir það þó lítið undirmeð framkvæmd at- vinnubótavinnu. — Um enga tillöguna hefði verið gerð nein álvktun á þessum bæjarstjórn- arfundi. Hinsvegar er auðvit- að, að allar tillögurnar verða lagðar fyrir bæjarráðið til al- hugunar, og þar á Stefán Jó- liann sæli, og getur því auð- veldlega flutt þar allar þær upplýsingar og skýringar, sem honum sárnaði svo mjög að fá ekki að flytja í „uinræðum" á hæjarstjórnarfundinum á fimtudaginn. Að endingu skal að eins vak- in athygli á því, að það virðist óþarfi af Alþbl., að vera að gera Stefán Jóhann opinberlega að athlægi, eins og það gerir með því, að skýra frá þeirri barna- legu „hefnd“, sem liann hafi komið fram við meiri hluta bæjarstjórnar í samhandi við meðferð útsvarsmálanna á fundinum. Sú „hefnd“ fór fram fyrir luktum dyrum og því ó- þarft að láta nokkuð vitnast um hana. — Segir Alþbl., að samkvæmt liefndar-kröfu Stef. Jóh. hafi allar útsvarskærur verið lesnar upp orðréttar, svo að fundur hafi orðið eins lang- ur og orðið hefði, þó að atvinnu- bótaumræðumar hefði farið fram fyrst, því að venjan sé að lesa að eins upp „innihald“ þeirra!! — Liklega er nú með „innihaldi“ átt við aðalefni eða útdrátt og meiningin, að það sé venjuleg meðferð á útsvars- | máluin á bæjarstjórnarfund- j um, að lesa ekki upp erindi | þeirra manna, sem fara þess á leit, að fá útsvör sín lækkuð, og að bæjarfulltrúar greiði svo at- kvæði, án þess að hafa heyrt orðrétt slcýrslur beiðanda um ástæður. En þetta er algerlega rangt. Það er alveg föst venja, að lesa öll slík erindi orðrétt upp. Umrædd „hefnd“ Stefáns Jóhanns var þá heldur ekki fólgin í öðru en þvi, að lesin voru upp fylgiskjöl með beiðni um samþykki til einkaskifta á búi eins gjaldanda. Lestur þessara skjala mun hafa tekið minna en 5 mínútur, en með- ferð allra útsvarsmálanna hátt upp í tvo klukkutima. — „Hefndin“ var þannig mjög við hæfi Stefáns Jóhanns! Við skordýrarannsóknir hafa þeir verið i sumar i Austur- Skaftafellssýslu. Geir Gíg'ja og Pálmi Jósefsson. Tíðarfar til slíkra rannsókna hefir veriÖ óhagstætt þar eystra i sumar til skamms tíma. Yoru úrkomur tíÖar, einkanlega framan af sumrinu. íslensk vínber eru nú komin á markaÖinn hér. Hafa þau verið seld í Hressingar- skálanum í Austurstræti. Vínberin eru framleidd á Reykjum. Er tal- iÖ, aÖ fVamleiðslan í sumar muni verÖa 40—50 kg. Vínher voru framleidd á Reykjum í fyrra, og voru þau til sýnis á blómasýning- unni hér i bæ síöastl. haust. ÞaÖ er Fresenius garÖyrkjumaÖur, sem hefir haft meÖ höndum ræktun vín- berjanna og undangengnar tilraun- ir i því sambandi. Aðalfundur Prestafélagsdeildar Austurlands var að þessu sinni haldinn á NorÖ- firði. Hjónacfni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Lilja Matthíasdóttir (Ólafssonar f. alþingismanns) og Sölvi Jónsson, bóksali, Óðinsgötu 24. M.s. Dronning- Alexandrine fór héðan í gierkveldi áleiðis til útlanda: Nýja Bíó sýnir í fyrsla sinn. í kveídi þýska tal og hljómkvikmynd,. sem kölluð er „Drenguriun minn“. Aðallilutverkin leika: Magda Sonja, Hans Feher og .Tar. Kocian. Nýtt stórhýsi. Stórhýsi mikið er Sigurður Jónasson framkvæmdastjóri a4 láta reisa við Tryggvagötu, milli Eiinskipafélagshússins og, húss Mjólkurfélags Reylcjavik.- ur. Frá Þingeyri er Vísi skriíað: „Nú er verið að reisa prestssetur hér á Þing- eyri og verða Sandar lagðir niður sem prestssetur. Yfir- maður er Olgeir Sigurðsso* trésmíðameistari, frá Reykja- vík, en um framkvæmd verks- ins sér sóknarpresturinn. Húsið er 8,50x7,50 metrar, með kjallara, hæð og porthæð, og verður útbúið öllum þægiud- um. Hreppurinn leggur til lóð á fegursta staðnum í þorpdnu. Verður þá prestssetur Sanda- I>restakalls framvegis á Þing- eyri og hefir söfnuðurinn ósk- að ]>ess eindregið, að svo yrði.“ Heimatrúboð leikm.anna.. Vatnsstíg 3. Almenn samkoma. í kvöld kd, 8. Áheit á Strandarkirkju, aíhent Visi: 2 kr. frá S. R., 5 kr. frá K. A. Ctvarpið í dag. 10,00 Messa í dóriikirkjumai síra Friðrik Hallgrims- son). 11,15 Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Barnatimi: Uin iþrótlir eða útiveru (Bened. G. Waage). 20,00 Klukkusláttur. Erindi: Peningahrunið í Þýskalandi (Guðbr. Jóns- son, rithöfundur). 20.30 Fréttir. 21,00 Grammófóntónleikar: Píanó-konsert eftir Raófc- maninoff. Danslög til kl. 24.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.