Vísir - 03.02.1933, Blaðsíða 4

Vísir - 03.02.1933, Blaðsíða 4
Atbyglisverð ksikmjnd. —• Nýja Bíó sýnir þessi kveldin þýska talmynd, „Jugend vor Gericht“, og er hún kölluð liér „Telpur fyrir rétti“. Ivvikmynd þessi er athyglisverð fyrir margnj hluta sakir. í lienni' er lýst kjörum alþýðufólks í stór- borg, sem hefir að eins eilt her- bergi til íhúðar. Húsbóndinn er götusali, sem hefir kvænst öðru sinni, en á dóttur 14-—15 ára. Stjúpa hennar hefir verið laus- laetiskvendi og samkomulagið milli hennar og manns hennar er ekki gott og því síður milli hennar og telpunnar. Húsbónd- inn er drykkfeldur, en drekkur ])Ó minna en hann áður gerði, enda vinnur hann sér lítið inn, en hann reynir þó að sjá fyrir heimihnu eftir getu og varð- veita heimilisfriðinn. Fátæktar- innar vegna er tekinn leigjándi, ungur maður, sem hefir oft komist i færi við lögregluna. Stjúpan lítur liýru auga til leigj- andans en Iiann flekar telpuna, þegar stjúpa hennar er að heiman. Nú atvikast þannig, aö faðir hennar liegnir lienni fvrir framkomu hennar gagnvart stjúpunni og vekur það reiði telpunnar og hefnigirni. Hún keraur ekki heim næstu nótt, er tekin af lögrcglunni, skoðuð af la'kni, og verður honum Ijóst hvað gerst hefir. Þegar gengið er á telpuna, kennir hún föður sínum um, af liefnigirni og í hlifðarskyni við leigjandann, en faðir hennar er ákærður fyrir , sifjaspell. Hið sanna kemst í ; ljós síðar, er alt er um seinan, j þegar faðir hennar hefir fram- j ið sjálfsmorð í fangelsisklefan- um. — Kvikmyndin er átakanleg lýs- ing á }>eim lífsskilyrðum, sem fjöldi fátæks fólks á við að striða í stórborgunum, og cnda viðar, lífsskilyrðum þeirra í lé- legum, heilsuspillandi, þröng- um íbúðum, sem eru gi’óðrar- stiur allsk. veikinda og lasta. En kvikmyndin er ekki ein- göngu gerð til þess að vekja menn til umhugsunar um lifs- skilyrði fátæklinganna, heldur einnig til þess að lciða í ljós live varlegt er að treysta á frain- burð bania og unglinga, sem oft láta tilfinningarnar og ímyndunina hlaupa með sig i gönur, en afleiðingarnar geta oft orðið hörmulegar fyrir ung- lingana sjálfa og aðra. Kvik- myndin er hvorttveggja i senn, alvarleg ákæra og bending lil allra hugsandi manna. Inn- gangsorð dr. Max Schmidt eru þess verð, að menn lcynni sér þau, því að þau varpa skýru ljósi á þcssi vandamál. — Kvikmyndin er gerð af venju- legri þýskri vandvirkni og að mörgu leyti snildarlega leikin. — Kvikmynd þessa ættu seni flestir að sjá. ,Það er liinn mesti misskilningur, að slíkar kvik- myndir eigi að eins erindi til fólksins i stórborgunum. Hlið- stæðir atburðir þeim sem t. d. gerast í þessari kvikmynd, geta gerst í hvaða borg sem er, hafa gerst og kunna að gerast hér sem annarstaðar, og ]>ví er vel, ef eitthvað verður til þess að vekja menn til umhugsunar eins og t. d. þessi átakanlega kvikmynd. —r. Yfiplýsing. • —o— I viðtali við núverandi dóms- málaráðherra, Magnús Guð- mundsosn, út af sakamálsrann- sókn er hafin var á hendur mér 1928, Iét hann orð falla uin þáð, að rannsóknardómarinn, Hall- dór Júlíusson, hefði látið þess getið við sig, að sú ákvörðun hefði verið tekin af lionum og dómsmálaráðherra Jónasi Jóns- syni, að ekkert sakamál yrði liöfðað á hendur mér, er senni- lega styðst við það, að ekkerl saknæmt hefir fundist. Bað eg um skriflega viðurkenning lians á þessu, og mótlók i dag svolát andi bréf frá dómsinálaráðu neytinu: Dóms og kirkuinálaráðuneytið, Reykjavík, 26. janúar 1933. Með skirskotun til viðtals tjáir ráðuneytið yður hérmeð, að sakamálsrannsókn þeirri, er fyrirskipuð var á liendur yður vorið 1928, verður úr þessu ekki haldið áfram. M. Guðmundsson. Gissúr Bergsteinsson. Til fyrverandi sýslumanns herra Einars Jónassonár. Núverandi dómsmálaráðu- neyti fól þeim skrifstofustjóra Guðmundi Sveinbjörnsson og Gissuri Bergsteinssyni fulltrúa, að yfirfara rannsóknina,og hafa þeir haft til meðferðar öll skil- riki, og virðist þvi núverandi ráðuneyti hafa komist að sömu niðurstöðu, en fyrir Iivaða sakir var mér þá vikið frá embætt- inu? Reykjavík, 27. janúar 1933. Virðingarfylst Einar M. Jónasson. V I S 1 R VatnsglBs, vínglös, asíettur, ávaxtaskálar, kökudiskar og bollapör, marg- ar tegundir. Borðlinífar, gaffl- ar og hverskonar búsáhöld best og ódýrust í búsáhaldaverslun Vöggur, Laugaveg 64. Útvarpsfréttir Berlin í morgun. FÚ. Róstunum i Þýskalandi lield- ur enn daglega áfram, og urðu í gær blóðugir bardagar víða uin rikið. í Altona réðust kom- múnistar á þjóðernisjafnaðar- menn — hina svo nefndu Naz- ista — og féll 1 maður í þeirri viðureign, en 7 menn særðust. — 1 Hamborg urðu sainskonar skærur og særðust þar 3 menn. í Zittau á Saxlandi réðust Naz- istar á jafnaðarmenn og féllu þar 4 menn, en 7 særðust. í Duisberg urðu og róstur, og var ein kona drepin í þeim. í gær fór fram húsrannsókn i aðalbækistöð kommúnista i Berlin, „Karl Liebknechthaus“, og í 26 öðrum bækistöðvum þeirra þar í borginni. Fanst þar fjöldinn allur af prentuðum rit- um, sem bönnuð eru, og voru þau öll gerð upptæk. Breslci verslunarmálaráðherr- ann, Runciman, hélt í gær mjög eftirtektarverða ræðu um viðskifli Breta og Þjóðverja. Kvað hann Breta vera fúsa lil þess, að styðja að verslunarvið- skiftum milli þjóðanna, því að það væri ekki mikið, sem skildi Þjóðverja og Breta. Það væri að vísu rétt, að báðar þjóðirn- ar versluðu mikið til með sömu vörur, og að Bretum stafaði mikil samkepni af Þjóðverjum, en það skifti cngu máli, því að Bretar ynnu Þjóðverjum vel viðskiftanna. Hann vélc og að því, að Belgía og Frakkland hefðu ekki liorfið frá gullinn- Iausn, en það stafaði af því, að löndin hefðu talið þetta vel- gengni sinni fyrir bestu. Hins vegar bæri þetta vott um of- fraust á gullinu, þvi að það væri ekki gullið, heldur framleiðslan, en þó sérstaklega viðskifti þjóð- anna, sem réði genginu á gjald- eyri þeirra. K.F.U.K. A. D. fundur í kveld kl. 8VZ. Frú Guörún Lárusdóttir annast fundarefnið. Alt kvenfólk velkomið. r KAUPSKAPUR íslensk kaupi eg ávalt hæsta verSi. Gísli Sigurbjörnsson, Lækjargötu 2. Sími 4292. Til leigu óskast nú þegar eitt gott herbergi og eldliús. með þægindum. A. v. á. (53 Sólrík Ira berbergja ibúð með öllum þægindum, á góðum stað í bænum, er til leigu 14. maí n. k. Tilboð, merkt: „XII“, sendist afgr. Yisis fyrir 5. þ. m. (49 Góð íbúð, 2 herbergi og eld- hús, í Hafnarfirði, til leigu nú þegar eða 15. febrúar. Skipti á ibúð í Reykjavík gætu komið til greina. Uppl. í síma 1927. (48 Vélstjóra á Gullfoss vantar 3ja herbergja íbúð. Mætti vera 4 lit- il. Tilboð, merkt: , ,8“, leggist inn á afgr. blaðsins. (47 Þriggja herbergja íbúð með öllum þægindum og rúm- góðu eldhúsi, vantar mig 14. mai. Jón Ófeigsson, yfirkennari. Simi 3908. (45 Herbergi og eldhús eða eldun- arplássi óskast til leigu strax. Uppl. i síma 3899. Magnús Helgason. (58 Gott geymsluherbergi óskast til leigu i Austurbænum. Uppl. ; Barónsstíg 20A. (57 j Til leigu forstofustofa. Grett- I isgötu 2. (55 j Upphituð herbergi fást fyrir j ferðamenn ódýrast á Hverfis- ; götu 32. (39 t ——— i Til leigu gott lierbergi með húsgögnum á Öldugötu 27. (60 Skíðasleðar, allar stærðir. — Vatnsstíg 3. Húsgagnaverslim Reykjavíkur. (63 3ja lampa Telefunken við- tæki, fyrir bæjarstraum, til sölu. IJverfisgötu 35. (50 Grímubúningur til sölu ó- dýrt. Þingholtsstræti 5. (46 ískassi, hentugur fyrir stór- an mótorbát, til sölu. Uppl, í síma 3144. (41 Til sölu: 2 barnarúm með dýnum, 15—20 kr. stk., og tvær kojur með dýnum, 35 kr. Sig. Einarsson, Njálsgötu t. Sími 2766. (54 ! Nýtt steinhús til sölu. Útborg- un 15000 kr. — Enn fremur smærri og stærri hús. Hef kaup- anda að fremur litlu húsi. Ann- an að erfðafestulandi. Jóhann Karlsson, Bergþórugötu 29. Sími 2088, (61 'VINNA Stúlka óskar eftir góðri vist. Uppl. í sima 1978. (51 Góð stúlka óskast í vist nú þegar eða fyrir 15. þ. m. UppL á Ljósvallagötu 22, niðri. (44 Unglingsstúlka óskast í visf, Njarðargötu 61. (42 Ráðskona öskast til Sand- 1 gerðis. Uppl. Bræðraborgarstíg 1 26, frá kl. 7—10 i kveld. (64 I KEMSLA Hef saumanámskeið fyrir nokkrar stúlkur á kveldin. — Saumastofan Ingólfsstr. 6. (62 FÉLAGSPRENTSMIÐJAN. JÍRNÖ^TILKYHMI ST. FRÓN, nr. 227. Fundur í kveld. Innsetning embættis- manna. Br. sira Árni Sig- urðsson. Sjálfvalið efni. (43 Frón i kveld. Unidæmisstúkan heimsækir. (56 St. Skjaldbreið nr. 117. Fundur í kveld kl. 8V2. — Pétur Zóp- hóníasson flytur erindi. (59 Sá, sem vildi lána 6—8 þús- und krónur gegn tryggu fast- cignarveði geri svo vel og senda tilboð sitt á afgreiðslu þessa blaðs, merkt: „Fasteignaveð“. (52 Likkistuvinnustofan, Óðins-' götu 13. Sjáum um jarðarfarir. Kistur altaf fyrirliggjandi, mál- aðar, fóðraðar og skreyttar. Simi 4929. Ólafur og Halldór. (509‘ H E F N D I R. fallegu, ungu stúlkurnar á hans reki hafa gleymt honum. — Okkur er ekkert um það gefið, að hann verði piparsveinn.“ „Þér eigið við það,“ sagði Nang og rödd iiennar varð alt í einu undarlega hás —“ þér eigið við það, að sonur yðar fari heim til þess að kvongast?“ „Já“, sagði móðir lians. — „Heima á Englandi bíður ung stúlka, sem eg býst við að þyki mjög vænt um, að sjá hann aftur.“ „Og hingað kemur hann aldrei framar?“ Nang neyddi sjálfa sig til, að segja þctta með bros á vör- um. „O—jú“ sagði Hilda, er nú kom lil þeirra. „Einliverntíma kemur liann aftur — ef til vill — og gerist forstjóri fyrir þeirri deild útgerðarinnar og verslunarinnar, sem rekin er hér.“ „Eg er hrædd um,“ sagði frú Gregory, „að Basil sé einn þeirra manna, sem eiga bágt með að taka ákvarðanir, sem binda til Iengdar.“ — Nang Ping þótti þetta undarlega mælt af móður. Hún skildi ekkert í þvi, að nokkur móðir gæti sagt svona liluti um drenginn sinn. — En hún var alveg sannfærð um, að þetta væri rétt. — Svona var Basil i raun og Veru. — Hún klappaði saman lófunum og reis á fætur. Það merki var ætlað Ah Sing. „Mætti eg biðja yður um að gera mér þá ánægju, að drekka með mér te,“ sagði hún því næst og fylgdi þeim að hinu skreytta borði.þar sem alt var lil reiðu, en margir þjónar stóðu umhverfis, bláklæddir, tein- réttir eins og steinlíkön. — Nang Ping gekk fyrir að borðinu og þegar liún nálgaðist, lineigðu þjón- ariiir sig því nær til jarðar. Frú Gregory reyndi að sýnast alvarleg og hátíðleg, en Hilda gat elcki að fullu varist því að flissa, og reyndi lnin þó að stilla sig svo sem henni var auðið. „En livað þetta er skemtilegt,“ sagði lnin um leið og þær settust til borðs — dæmalaust skemtilegt — „Dásamlegt,“ sagði móðir hennar, og Nang Ping þótti vænt um, að gestir hennar voru ánægðir. En sjálfri leið lienni ekki vel — hún var þjökuð and- lega og líkainlega. Hún var sannfærð um, að mæðg- urnar voru einlægar, og bæði Low Soong og Ali Wong, sem höfðu nánar gætur á þeim, voru þess fullvissar, að gleði þeirra væri elcki uppgerð. — Low Soong var þarna eins og lilýðin brúða að vanda, og Ali Wong var bara fávís, trygglynd og torlryggii; kona af lágum stigum. Enginn vissi hvað liún bugs- aði eða livort lnin yfirleitt hugsaði nokkuð. Hún stóð þarna allan iimann, hlustaði á það sem sagt var, og horfði á það sem gerðist. — Sannleikurinn var sá; að liáðar höfðu þessar stúlkur fest sér í minni hverl orð, sem sagt var, og tekið eftir hverju einasta augnatilliti. — Og þó var hvorug vel að sér í málinu, sem talað var. Ah Wong kunni mjög litið í ensku og Low alls ekki neitt. XVI. KAPÍTULI. Hugprýði. Frú Gregory kunni til fullnustu að hegða sér sam- kvæmt þjóðarvenjum við hið kínverska teborð. Hún braut engar venjur og meiddi ekld tilfinningar annara á nokkurn hátt. — Hún hafði lært listirnar í húsi landstjórans og þótti nú vænt um, að hún hafði gert það samviskusamlega. Hitt sárnaði henni, að Hilda skyldi ekki hafa lært þessar listir lika. Nang Ping lvfti tebolla sinum hátt i kveðjuskyni. Fyrst heiLsaði hún frú Gregory, en því næst Hildu — en beið þess svo, að þær sypi á bollunum. Low Soong gerði slíkt hið sama. Síðan drukku þær teið, hneigðu sig hvað eftir annað, og tæmdu liina htlu bolla. Þessu næst var boðinn kryddbakstur og sykraðir ávextir. — Frú Gregory tók að eins einn lítinn mola, en síðar tók liún annan, er eftir því var gengið. — En Hilda tók fimm eða sex mola, ]>egar er Nang Ping bauð henni. Nang Ping tók þá enn meira liandá sér, og slikt hið sama gcrði Low Soong, en var þó auðsjáanlega forviða. — Frú Gregory veitti l>essu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.