Vísir - 17.02.1933, Blaðsíða 2

Vísir - 17.02.1933, Blaðsíða 2
VISIR CerenáBygggrjon sob/n ínymjó/k verdð ð 5 minútum ad ágætum txeheánðfrdut Dafni bamið ckki.qefið þvi Cerena qraut á hverjum deqi. þá forþað falleqar rauðar kinnan Mæður! Alið upp hrausta syni og dæt- ur, gefið börnum ykkar CERGNA bygggrjði. imskeyt Kalkútta 16. febr. United Press. - FB. Forvaxtalækkun. Forvextir hafa verið lækkað- ir um %% í 3%%. Miami 16. febr. United Press. - FB. Tilræðið. Talið er nokkurn veginn sannað, að Valenti sé ekki á nokkurn hátt meðsekur árás- armanni Roosevelt, en hann er enn í haldi hjá lögreglunni. Miami, 17. febrúar. United Press. - FB. Samkvæmt seinustu skýrslu um líðan Cermaks borgarstjóra i Chicago, leið honum vel, eftir atvikum, og hf hans ekki talið i hættu. Zangara var i gær leiddur fyrir glæpamálaréttinn í Miami. Lét hann svo um mælt við rann- sóknardómarann: „Þér getið gert hvað sem yð- ur sýnist, en eg vil ekki, að mér ▼erði veitt nein aðstoð“. Collins dómari ákvað eigi að siður, að Zangara væri skipað- ur verjandi. Því næst var mál- inu frestað þangað til í dag. Brflssel 16. febr. United Press. - FB. Stjórnin í Belgíu verður áfram við völd. Að afloknum viðræðufundi De Broqueville, forsætisráð- herra, og Alberts konungs, var ákveðið á ráðherrafundi, að halda lausnarbeiðni ríkis- stjórnarinnar ekki til streitu. Kovno 16. febr. United Press. - FB. Viðskifti Breta og Lithauga- landsmanna. Sainkv. áreiðanlegum heim- ildum hefir United Press fregn- að, að Bretar hafi tjáð sig fúsa til þess að kaupa allar útflutn- ingsafurðir Lithaugalandsbúa, til þess að tryggja sér mark- aðinn þar i landi. Hinsvegar er ekki fullvíst, að Lithauga- landsbúar fallist á að Iofa því að kaupa í Bretlandi allar þær iðnaðarvörur, sem flytja þarf inn i landið. London 16. febr. United Press. - FB. Viðskifti Breta og Norður- landahúa. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er viðskiftasamn- íngaumleitunum Breta og Norðurlandaþjóðanna allra gvo langt komið. að segja má, að aðeins sé eftir að ganga frá samningunum til fullnustu, þar sem livert einstakt þessara ríkja hefir gert uppkast að við- skiftasamkomulagi við Bret- land. Washington 16. febr. United Press - FR. Afnám bannsins vestra. öldungadeild þjóðþingsins hefir samþykt afnám bannsins. Frá Alþing! í gær. Fundir liófust i báðum deild- um kl. 1, og var þá gengið til nefndakosninga. Fóru þær sem hér segir: Efri deild. 1. Fjárhagsnefnd: Jón Þor- láksson (S.). Ingvar Pálmason og Jónas Jónsson (F.). 2. Fjárveitinganefnd: Haíl- dór Steinsson og Bjarni Snæ- björnsson (S.). Jón Jónsson, Páll Hermannsson og Einar Árnason (F.). 3. Samgöngumálan.: Hall- dór Steinsson (S.). Páll Her- mannsson og Einar Árnason (F.). 4. Landbúnaðarnefnd: Pét- ur Magnússon (S.). Jón Jóns- son og Páll Hermannsson (F.). 5. Sjávarútvegsnefnd: Jak- ob Möller (S.). Ingvar Pálma- son og Magnús Torfason (F.). 6. Iðnaðarnefnd: Jakob Möl- ler (S.). Ingvar Pálmason og Jónas Jónsson (F.). 7. Mentamálanefnd: Guð- rún Lárusdóttir (S.). Jón Jóns- son og Einar Árnason (F.). 8. Allsherjgrnefnd: Pétur Magnússon (S.). Magnús Torfa- son og Jónas Jónsson (F.). Neðri deild. 1. Fjárhagsnefnd: Ólafur Thors og Jón A. Jónsson (S.). Bernharð Stefánsson, Hannes Jónsson og Halldór Stefánsson (F.). 2. Fjárveitinganefnd: Pétur Ottesen og Pétur Halldórsson (S.). Ingólfur Bjamarson, Tryggvi Þórhallsson, Þorleifur Jónsson, Björn Kristjánsson og Jónas Þorbergsson (F.). 3. Samgöngumálanefnd: Jón A. Jónsson og Jón Ólafsson (S.) Sveinn Ólafsson, Sveinbj. Högnason og Hannes Jónsson (F.). 4. Landbúnaðarnefnd: Pét- ur Ottesen og Guðbr. ísberg (S.). Bjarni Ásgeirsson, Stein- gr. Steinþórsson og Lárus Helgason (F.). 5. Sjávarútvegsnefnd: Jó- hann Jósefsson og ólafur Thors (S.). Sveinn Ólafsson, Bjarni Ásgeirsson og Bergur Jónsson (F.). 6. lðnaðarnefnd: Magnús Jónsson og Jón Ólafsson (S.). Bergur Jónsson, Lárus Helga- son og Steingr. Steinþórsson (F.). 7. Mentamálanefnd: Magn- ús Jónsson og Pétur Halldórs- son (S.). Bernhard Stefánsson, Halldór Stefánsson og Sveinbj. Högnason (F.). 8. Allsherjarnefnd: Guðbr. lsberg, Jóhann Jósefsson (S.). Bergur Jónsson, Steingr. Stein- þórsson og Sveinbjörn Högna- son. Jafnaðarmenn sátú hjá við nefndakosningar, eins og á undanförnum þingum. Vígbúnaíur Pólverja. Richard McMillan, fréttarit- ari United Press, símar frá Var- sjá þ. 19. jan. á þessa leið: „Varsjá er höfuðborgin i landi óttans og vígbúnaðarins. Hvarvetna eru hermenn og aft- ur hermenn. Sumstaðar verðui ekki þverfótað fyrir þeim í stóru borgunum. Fyrir 12 ár- um, er Rússar og Pólverjar áttu í ófriði, sáust ekki eins margir hermenn á ferli, enda fjöldi þeirra á vígstöðvum, en einnig nú er fjöldi hermanna í nánd við landamærin. Pólverjar hafa nú stöðugt 250.000 manna vel búinn her, reiðubúinn til þess að fara til vígvallanna fyr- irvaralaust, en á einu dægri geta þeir komið sér upp öflug- um her — miljónar her. Und- ir yfirstjórn frakkneskra her- verkfræðinga hefir verið bygð röð virkja meðfram landamær- um Póllands. En þrátt fyrir öll virkin, sem reist hafa verið að undirlagi Frakka, og þrátt fyr- ir öflugan her, eru Pólverjar smeykir yfirleitt og margir ótta- slegnir, er þeir hugsa um fram- tíðina. Þeir óttast Þjóðverja, Lithaugalandsmenn og seinast en ekki síst Rússa. En þeir geta eignast fleiri óvini, ef stjórn- málahorfurnar breytast í álf- unni. Frakkar liafa lánað Pól- verjum fé, og þeir hafa skipað Pólverjum fyrir í hermálum. Þeir hafa ekki eingöngu bygt virki þeirra á landamærunum; þeir hafa æft her þeirra. Pól- verjar eru nú öflugustu banda- menn Frakka, þeir bandamenn þeirra, sem víst er, að ekki bregðast. Ef til styrjaldar kæmi, myndi Pólland ekki hilca, né heldur Júgóslavía og Rúmenía. Með Frökkum og Pólverjum er tryggasta hern- aðarbandalagið í álfunni. Á meðan það stendur, og á með- an veldi Frakka er hið sama og nú, óttast pólskir stjórn- málamenn ekki svo mjög, því að þá munu Frakkar koma i veg fyrir endurskoðun Versala- friðarsamninganna. En fari veldi Frakka rénandi og tak- ist þeim ekki að koma í veg fyrir endurskoðun samning- anna, mun óttinn verða öflugri. Pólverjar urðu mjög skelkað- ir, er radikalir og jafnaðarmenn unnu í þingkosningunum i Frakklandi. Þeir héldu, að Herriot mundi afneita hernaðarbandalaginu. En vitanlega datt Herriot ekki neitt slikt í hug. Pólverjar eru svipaðrar skoðunar í afvopn- unarmálunum og Frakkar. En sá munurinn, að Pólverjar eiga í rauninni miklu óhægri að- æææææææææææææa 8EFFLE bátamótorar 4-120 iia. œ 00 Sterk og einföld bygging, gangvissir, traustir og end- 88 gg ast vel. Nota ekki vatn. Sparneytnir á hráolíu og smurn- æ £30! ingsoliu. Hafa kúlu- og keflalegur auk margra annara æ 00 yfirburða. æ 00 Verðið er afar lágt. — Hagkvæmir skilmálar. æ æ S8 œ Umboðsmenn Þópöur Sveinsson & Co. 00 Reykjavík. ^ K.F.U.K. A.—D. Fundur i kveld kl. 8%. — Síra Friðrik Hallgrímsson talar. Alt kvenfólk velkomið. stöðu til þess að verja land sitt en Frakkar Frakkland. Pól- land byggja nú 30 miljónir manna. Þjóðirnar, sem réðu hvernig Versalasamningarnir voru úr garði gerðir, sköpuðu hið nýja Pólland, en þetta fórst þeim illa úr hendi, því aðskiln- aður Austur-Prússlands frá Þýskalandi stendur i vegi fyr- ir þvi, að samkomulag náist um landamærin milli Þjóðverja og Pólverja. En Pólverjar þykjast vera sú þjóðin ,sem kemur í veg fyrir, að kommúnisminn breiðist út vestur á bóginn, en Þjóðverjar og Litliaugalands- menn ásaka Pólverja fyrir á- gengni. í augum þeirra eru Pól- verjar mesta harðstjórnarþjóð i Austur-Evrópu. Lithauga- landsbúar segja, að Pólverjar hafi lagt undir sig 60.000 fer- mílur lands með valdi, er þeir lögðu undir sig Vilna 1920, og héraðið þar í kring. Pólverjar segja, að hið hertekna svæði sé landfræðislega hluti aí’ Pól- landi.Lithaugalandsbúarsegja, að það sé hluti af Lithauga- landi. Þeir eru smáþjóð, veik fyrir, enda er ríki þeirra eitt verk þeirra, sem réðu gerð Versala-samninganna. Lit- liaugalandsbúar áttu ekki ann- ars úrkosti en að skjóta mál- inu til þjóðabandalagsins. Og það hefir liaft það til meðferð- ar, en ekkert gert í því, sem Lithaugalandsbúum hefir kom- ið að nokkru gagni. En það verður þó sennilega ekki þetta deilumál, sem nýr ófriður kviknar af þar eystra, heldur deilumálin við Þjóð- verja, því að Þjóðverjar geta vitanlega aldrei unað öðrum málalokum en þeim, að Aust- ur-Prússland sameinist alger- lega Þýskalandi á ný. Þjóðverj- ar segjast vilja koma fram | kröfum sínum i þessu efni með friðsamlegu móti. Pólverjar segja sem svo: „Ef við drög- um úr vígbúnaði okkar, munu Þjóðverjar beita valdi.“ Þjóð- verjar margir segja: „Innan eins áratugs verður íbúatala Póllands 50 miljónir og eftir 25 ár verður Pólland Þýska- landi voldugra. Fari svo, sem nú horfir, verður Pólland vold- ugasta riki í Austur- og Mið- Evrópu. Og það eru þvi mið- ur, ef svo fer, engar horfur á, að þeir muni beita valdi sínu vel.“ Gustav Frenssen. Það þykir jafnan nokkur við- burður í heimi bókmenta Norð- urálfunnar, er þýska skáldið, Gustav Frenssen, sendir frá sér nýja bók. Sem rithöfundur er hann fæddur fullburða í þeim skilningi, að fyrsta bók hans, „Die Sandgráfin“, sem út kom 1896, sló því föstu, að hér væri mikill rithöfundur á ferðum. Bækur lians hafa verið þýddar á Norðurlandamál svo að segja jafnóðum og þær hafa komið út og hafa átt þar miklum vin- sældum að fagna. Fyrir nokk- uru kom út á dönsku allstór skáldsaga eftir Frenssen, og nefnist hún Hans klaufi (Klods Hans). Gustav Frenssen er átthaga- skáld; hann er gróinn við torf- una i bestu merkingu þess orð- tækis, þvi að hann skortir hvorki þá mentun né andlegu víðsýn, sem átthagaskáld þarfn- ast. Sveitin hans og menning hennar hafa ekki gert hann ó- frjóan né þröngsýnan. Hann er fæddur í Barlt í Þéttmerski og er trésmiðssonur. Hann var settur til menta og las guðfræði í Túbingen, Berlin og Kiel. En sá er hátlur þýskra stúdenta, að dveljast við ýmsa háskóla þar í landi á námsárum sínum. Við það öðlast þeir fjöl- breyttari mentun og verða fyrir margvíslegri menningaráhrif- um en þeir, sem verða að binda sig við eina mentastofnun. Frenssen gerðist prestur 29 vetra gamall í Hemme á norð- anverðu Þéttmerski. Árið 1902 lét hann af embætti til þess að geta gefið sig óskiftur við rit- störfum. Frægasta bók hans er | vafalaust skáldsagan Jörn Uhl, sem hefir verið þýdd á ýms mál. Með þeirri bók komst Frenssen í tölu þjóðskálda Þýskalands og hefir lialdið þeim sessi síðan með fullri virðingu, enda þótt eigi hafi allar bækur hans notið óskiftra vinsælda, siður en svo. Hin nýja skáldsaga G. Frens- sens, Hans klaufi, gerist í Þétt- merski,átthögum skáldsins. Þajp er sagt frá bóndasyni einum, Bendix Groth að nafni. Hann á að þvi leyti sammerkt við Hans klaufa H. C. Andersens og kolbitina í íslenskum þjóð- sögum, að samtiðarmenn hans halda, að hann sé fifl. En sú verður hér raunin á, að hann er þeim vitrari og hyggnarL Foreldrar hans eru smábændur og verða að þræla fyrir dagleg- um nauðsynjum. Faðir piltsins er skikkanlegheitamaður, en lætur þó tengdamóður sina koma sér til að kveikja i kofan- um, sem hann býr í, til þess að reyna að ná i háa vátryggingu. En alt fer í handaskolum eins

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.