Vísir


Vísir - 26.02.1933, Qupperneq 2

Vísir - 26.02.1933, Qupperneq 2
V I S I H Höfum fyrirliggjandi: NETAKÚLUR ódýrar. Björn Kristjansson, fyrrum lcaupmaður, banka- stjóri og ráðherra, er hálf- áttræður í dag, fæddur 26. febrúár 1858. — Hann hefir nú látið af öllum opinberum störfum, en sýslar að liugðar- málum sínum heima fyrir. — Honum er orðið þungt um gang, því að fæturnir eru teknir að bila, en hann er enn ungur í anda og vakandi, hugsar mjög um heill lands og þjóðar. Björn Kristjánsson hefir ver- ið óvenjulega fjölhæfur gáfu- maður, starfsamur í besta lagi og fylginn sér. Iiann hefir vafalaust verið efni í mikinn visindamann (efnafræði), list- hneigður og áhugasamur um söngment, fésýslumaður ágæt- ur, stjórnmálamaður og ein- att framarlega í flokki, þing- maður sama lcjördæmis heilan mannsaldur samfleytt, ritfær vel og iðulega staðið í snörp- um deilum. Hann er gott dæmi þess, hversu ungir menn geta hafist úr fátækt og umkomuleysi til vegs og mannvirðinga, ef gáf- urnar eru miklar, viljinn traustur og gifta með i för. FB. 25. febr. Stjórnarskifti í Noregi. Kgl. norska aðalræðismanns- skrifstofan i Reykjavik til- kynnir: Samkvæmt símskeyti frá ut- anríkismálaráðuneytinu norska hefir rikisstjórnin i Noregi beðist lausnar x dag. Tokio 25. febr. United Press. FB. Ófriðurinn í Austur-Asíu. Samkvæmt opinberri til- kynningu féllu 1000 menn af liði Kínverja, er Japanar náðu Peipiao á sitt vald. 1 tilkynn- ingunni er þess eigi getið, hve mannfall var í liði Japana. í henni segir svo: „Japanska stjórnin gerir sér vonir um, að fullnaðarsigur vinnist, án þess að til mjög mannskæðra bar- daga komi.“ Washington 25. febr. Unitcd Press. - FB. Cordell Hull. Það er alment álit stjórn- málamanna, að það sé aug- Ijóst af vali Roosevelt’s á Cor- dell Hull í utanrikisráðherra- embættið, að hin nýja stjórn Bandaríkjanna ætli sér að leggja meginálierslu á að bæta sambúðina við erlend ríki, ekki síst að þvi er til viðskifta kemur. Cordell hefir mikla reynslu i opinberu lifi. Hann hefir átt sæti bæði i fulltrúa- deild og öldungadeild þjóð- þingsins, og látið þar mikið til sin taka. Er hann í miklu áliti sem viðskifta og fjármálasér- fræðingur. — (Cordell Hull varð lögfræðingur í Tennessee 1891. Átti sæti i fulltrúadeild Tennessee-ríkis 1893—1897. Var sjálfboðaliði í spænsk- amerísku styrjöldinni og hafði kapteinstign. Átti sæti í full- trúadeild þjóðþings Banda- ríkjanna 1907-—1921 og 1923 og enn 1931. Kosinn til setu i öld- ungadeild þjóðþingsins 4. nóv. 1930 með 154.131 atkvæðum, en andstæðingur hans fékk 58.654). Utan af landi. —o— Siglufirði 25. febr. FB. Tíð afar umhleypingasöm frá áramótum, en snjólétt. Hægviðri allmikil og frost sið- ustu dagana. Ekkert róið frá miðjum desember fyrr en nú nýlega. Hafa nokkrir bátar ró- ið og fengið reytings-afla á grunnmiðum. Nokkurir Hrís- eyjar og Ólafsfjarðarbátar eru komnir hingað, og verður haldið út héðan. Fleiri eru væntanlegir bráðlega. — f dag var afli sæmilegur, alt upp í 9000 pund, mest í gær 5000 pund. Mest þorskur allvænn. Samkomubanninu vegna skarlatssóttarinnar hefir nú verið af létt og kensla byrjuð á ný í skólunum. Tunnuverksmiðja, sem Þor- kell Clementz st'endur fyrir, er tekin til starfa hér, en efnis- skortur er nolckur. íbúatala kaupstaðarumdæm- isins í ársbyrjun var 2180 manns. Vestm.eyjum 25. febr. FB. Rannsókn stendur yfir i málum beggja botnvörj)unga- skipstjóranna. Dómar falla sennilega ekki fyrr en á morg- un eða mánudag. Frá Alþing! í gær. Efri deild. Þar voru 2 mál á dagskrá. 1. Frv. til laga um leiðsögu skipa. — Dómsmálaráðherra gerði grein fyrir frumvarpinu sem hér segir: Löggjöf er engin til um þessi efni, en þörfin fyrir hana fer vaxandi ár< frá ári, eftir því sem siglingar aukast. Enda hafa verið skipaðir leiðsögu- menn skipa víðsvegar, en það hefir verið gert samkvæmt gömlum venjum, en ekki sam- kvæmt neinum gildandi lög- um, og þykir nú ekki rétt að láta það dragast lengur að setja slíka löggjöf. Þörf skip- anna, sem hingað sigla, fyrir slika leiðsögu er brýn, og auk þess ekki ólíklegt, að af henni leiði það, að betri leigukjör fáist á skipum til flutninga. — Vitamálastjóri hefir undirbúið lagafrumvarpið og sniðið það eftir Iöggjöf annara Norður- landö. Engin almenn leiðsögu- skylda er lögð á, umfram það, Ágætt htís með stórri lóð, við Skerjafjörð, er til sölu eða í skiftum. Uppl. á Nönnug. 5. Sími 3951. Með e.s. Gullfoss kom Dúnléreftið eftirspurda og livít Léreft Ásg. G. Gnnilangssoa & Co sem gilt hefir um einstakar hafnir. Landinu er skift í leið- söguumdæmi, og fá leiðsögu- menn einkarétt til skipaleið- sögu hver í sínu umdæmi, ella mundi ög erfitt að fá menn til að taka leiðsöguna að sér, þvi að ekki er gert ráð fyrir, að neinn kostnaður af leiðsögunni falli á ríkissjóð. — Frv. var vísað til 2. umr. og sjávarút- vegsnefndar. 2. Frv. til laga um eftirlit með sparisjóðum. Jónas Jóns- son er flutmngsmaður frum- varpsins, sem er þess efnis, að leggja niður bankaeftirlits- starfið og fela Landsbankan- um endurskoðun sparisjóða í landinu. — Flutningsmaður kvað þetta mál „svo sjálfsagt“, að um það væri ekki þörf að ræða margt, „enda fylgir því allítarleg greinargerð“, sagði hann og krafðist svo atkvæða- greiðslu með nafnakalli um það, hvort þvi skyldi vísað til 2. umr. — Var það samþykt með 9 samhljóða atkvæðum, 4 þm. greiddu ekki atkv. og 1 var fjarverandi. Samþ. var líka með 7 atkv. að visa frv. til fjárhagsnefndar. Neðri deild. Þar voru tvö mál á dag- skrá. 1. Frv. til Ijósmæðralaga, 2. umr. 2. þm. Rang. (Sv. Högna- son) fór nokkurum orðum um frv. og smávægilegar breyting- ar, sem gerðar voru á þvi í allsherjarnefnd. Frv. var síðan vísað til 3. umr. með 16 sam- hljóða atkv. 2. Frv. lil laga um lælmis- héraðasjóði. Flutriingsmaður þessa frv. er Vilm. Jónsson, og hefir frv. verið flutt á þremur undanförnum þingum. Til- gangur frv. er sá, að stofna sérstaka sjóði í þeim læknis- héruðum, sem eru læknislaus, og skulu þá*launin eða launa- hluti með dýrtiðaruppbót renna í þenna sjóð, sem á að verða eign hlutaðeigandi hér- aðs. „I sama sjóð eiga að renna laun yfirsetukvenna þeirra umdæma, er auð kunna að standa innan læknishéraðs- ins“. Einnig segir i frv.: „Fé þessara læknishéraðasjóða skal varið til þess að tryggja það, að héruðin séu sem sjaldnast læknislaus og yfir- setukvennalaus, svo sem með þvi, að leggja það til læknis- bústaða, uppbótar á launum yfirsetukvenna eða annars þess, sem ætla má að verði til þess, að gera héruðin eftir- sóknarverðari fyrir lækna og yfirsetukonur.“ Flutningsmaður lagði til, að frv. yrði vísað til 2. umr. og allsherjarnefndar, og var það gert með 16 samhlj. atkv. Nýtt frumvarp. Eitt nýtt frumvarp hefir komið fram enn: Frumv. til stjórnarskipunarl. um bregt- ing á stjórnarskrá konungsrík- isins lslands, frá 1920. — Flutningsmaður: Jón Bald- vinsson. Rjómabolluí — Súkkatbollur — Krembollur — Rúsínubollur — Súkkulaðibollur — ljúffengar og góðar.------ Sent um allan bæ. — Pöntunum veitt móttaka í síma 3292. BakaríiO á Klapparstig 17 B-e-s-t-u--- bollurnar ------- v-e-r-ð-a eins og að undanförnu, á Vesturgötu 14, hjá INGA HALLDÓRSSYNI, sími 3854. J Bæjarfréttir y 10 OF 3 = 1142278 =8l/s.O Dr. Björg C. Þorláksson flytur fyrirlestra í Háskólanum um samþróun líkama og sálar, og verður fyrsti fyrirlesturinn á morg- un kl. 8 síðd. Fyrirlestrarnir verða framvegis fluttir tvisvar í viku, mánudaga og fimtudaga, kl. 8 síð- degis. Öllum heimill aðgangur. f dag eru síðustu forvöð að sjá sýn- ingu Ferðafélagsins í Sundhöllinni. Hún verður opin kl. I—io. Brauðsölubúðir eru opnar til kl. 5 e. h. í dag. Bolludagurinn er á morgun. Sindri fór á saltfisksveiðar í gær. Hilmir fer að líkindum á saltfisksveiðar nú um helgina. Norska vörusýningin. Níunda norska vörusýningin verður í ár haldin í Stavanger dagana 16.—23. júlí, og er bú- ist við, að menn fjölmenni mjög á liana frá ýmsum lönd- um heims. — (FB). Leikhúsið. „Æfintýri á gönguför“ verð- ur leikið í kveld í síðasta sinn. Heyrst hefir að leikfélagið fari bráðlega að sýna mjög skemti- legan gamanleik, sem heiti „Karlinn í kreppunni“. Álfafell verður leikið kl. 3I- í dag í síð- asta sinn. Árni Friðriksson náttúrufræðingur flytur erindi í Nýja Bíó kl. 3 í dag um bandortna og sulli. Náttúrufræðifélagið hefir samkomu mánudaginn 27. þ. m. kl. 8'J síðd. i náttúrusögu- bekk Mentaskólans. TÍSKOBLÖfi nýkomin: Elite. La Mode de Paris. I’ÉIégance Feminine. Pariser Record. Butterick. Weldon’s Ladies Joumal. Mabs Fashions. Children’s Dress. Weldon’s Children’s Fash. Home Fashions. Romas Pictorial Fashions. Nordisk Mönster-Tidende. Pappírs- og ritfangaverslunin „Penninn“. Ingólfshvoli. Skuggasveinn verður leikinn í K.-R.-húsinu í kveld. Bethanía. , Samkoma i kveld kl. 8|. Stud. theol. Sigurbjörn Einarsson talar. Allir velkomnir. — Smámeyja- 1 deildin hefir fund kl. 3! e. h. All- ar smámeyjar velkomnar. V. K. F. Framsókn Samkv. auglýsingu, sem birt er í blaðinu í dag, tekur fjármálaritari félagsins á móti árstillögum, fyrst utn sinn á miðvikudögum og föstu- dögum kl. 7—-8 síðd., báða dagana, á Bergþórugötu 6 B. — Sigríður ólafsdóttir, Bergþ.g. 6 B, er f jár- málaritari, og geta lconur, er æskja upplýsinga um félagsmál, snúið sér til hennar. Hafnfirðingar! Framtalsfrestur til tekju- og eignarskatts í Hafnarfirði er 'út- runninn 28. þ. m., en verður fram- lengdur til 7. mars. Sjá nánara í augl., setn birt er í blaðinu í dag. Nauðsynjamál. Samkvæmt beiðni margra ætlar Öl. B. Bjömsson að end- urflytja erindi það, sem hann hélt i útvarpið, um „nauðsyn slysavama", i Nýja Bió kl. 1% i dag, en ekki kl. 2, eins og aug- lýst var. Ágóðinn rennur allur til Slysavamafélagsins.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.