Vísir - 28.02.1933, Page 3
V I ,S I R
' Frv. var siðan samþ. með 16
slilj. atlcv. og vísað til 3. umr.
með 15 shlj. atkv.
ðlafnr Jónsson
læknir
I
andaðist 14. jan. síðastliðinn.
-Jarðarförin fór fram 1. febr.
við afarmikið fjölmenni. Ólaf-
ur læknir var fæddur að Þór-
oddsstað í Köldukinn i Þing-
eyjarsýslu, 19. nóvember 1889.
Foreldrar hans voru presturinn
síra Jón Arason Jochumssonar,
bróður Matthíasar Jochums-
sonar skálds, og frú Guðríðar
Ólafsdóttur frá Mýrarhúsum
við Reykjavik. Ungur fór Ólaf-
ur læknir í mentaskólann, og
lauk þar prófi með lofi. — Sið-
an sigldi liann til Kaupmanna-
hafnar og las þar við háskól-
ann læknisfræði um stund, en
hvarf svo aftur heim, og lauk
liér læknisfræðinámi við há-
skólann með I. einkunn.. —
Kandidatsstörfum gegndi hann
um hríð við spitala í Dan-
mörku. Settist þá að hér í
Reykjavík sem „praktiser-
andi“ læknir. Jafnframt starf-
aði hann með Matth. Einars-
syni, lækni, við margvísleg
læknisstörf. Árið 1915 kvæntist
Ólafur Láru Lárusdóttur,
prestst Jóhannessonar, sýslu-
manns og frú Guðrúnar
Björnsdóttur, áður bæjarfull-
trúa hér í borg, mjög góðri
konu. Þau hjónin eignuðust 5
börn, sem öll eru á lífi, elsta 17
ára.
Með dauða Ólafs læknis er nú
höggvið tilfinnanlegt skarð í
læknastétt landsins. Þyngstur
harmur er þó kveðinn að eftir-
lifandi ekkju og börnum, sem
og margreyndri móður hans,
ásamt nær áttræðri tengda-
móður, sem dvalið hafði nú
um nokkur ár hjá honum og
dóttur sinni og revndíst liann
henni sem besti sonur.
Oklcur Reykvikingum finst
hér mikið mist, er Ólafur Jóns-
son lælcnir er látinn.
Þjóðin hefir mist einn af sin-
urn ágætustu læknum, einn af
sínum drenglyndustu mönnum,
einn af sínum hjartahlýjustu
sonum. Það voru margir streng-
ir í sálu hans, sem bergmáluðu
margt í boðskap Jesú Krists.
Ólafur læknir var mannvinur
mikill, vinfastur og vinsæll.
Sérstaklega var liann vinur
allra þeirra, sem þörfnuðust
lians mest, allra jieirra sjúku
og þjáðu, sem leituðu hans
Þeim var hann manna fljótast-
ur að rétta liknar og vinarhönd,
enda var hann læknir hinn
besti, vel lærður, og þvi vel til
þess fær. Borgunin fyrir læknis-
verkið var honum ávalt eins og
aukaatriði; hitt var aðalatriðið
að geta orðið þeim sjúku að
sem mestu liði. Það var glatt
og hlýtt yfir Ólafi lækni hegar
liann hafði unnið sigur á sjúk-
dómi og þjáningum — og jafn-
vel á dauðanum sjálfum. Það
voru honum bestu launin,
ásamt hlýju handtaki þeirra,
sem hann hafði hjálpað. Hvort
síóklingurnn átti nokkuð ann-
að til endurgjalds skifti engu
máli, ef svo stóð á. Eg tel því
víst, að fjölda margir hér í borg
og viðar um land, sem hann
hcfir læknað eða hiálpað á einn
eða annan hátt, flétti honum nú
fagran minningarkrans vökvað-
an með þakklætis og saknaðar-
tárum. Gestrisin voru þau hjón-
in með afbrigðum, enda var þar
mjög gestkvæmt úr borg og
bygðum, sífelt nætur- og dag-
gestir. Engu síður voru þau
gestrisin við smáa en háa.
Einu sinni var eg sjónarvoltur
að því, á fyrsta jóladag, að ól-
afur læknir sótti sjálfur gamlan
bláfátækan mann, sem gckk alls
á mis, og var sannnefnt öln-
bogabarn mannfélagsins á ail-
an hátt og bauð honum að
borða hjá þeim um jólin. Mér
er minnisstæð alúðin og inni-
legheitin sem þau hjónin sýndu
þessum manni. Það var þvi lík-
ast, sem hann væri bróðir
þeirra, sem þau hefðu ekki
lengi hitt. Og eg gleymi aldrei
augunum i gamla manninum;
þau báru átakanlega vitni um
gleðisnautt líf, og hyldýpi von-
brigða og þjáninga — en urðu
alt i einu eins og leiftrandi
stjörnur, er liann settist við
hægri hönd Ólafs læknis, við
miðdegisborðið. Mér virðist
þetta skýrt fyrirbrigði um ljúf-
mensku Ólafs læknis og hjarta-
hlýju og skilning hans á manns-
sálunum. Það var stundum
eins og hjarta hans logaði af
meðaumkun og kærleika til
beirra, sem skuggamegin eru í
lífinu.
Ólafur læknir var fluggáfað-
ur, og skynjaði þess vegna svo
einkar vel hin margvíslegu blæ-
brigði lifsins; því hefir honum
verið liægara og tamara en
öðrum að setja sig í annara
spor. Listrænn og listelskur
var hann og móðir vora jörð
elskaði hann eins og ástríkur
sonur, og ferðalög um fagrar
sveitir og fjöll voru honum
unaðsríkar og ógleymanlegar
stundir, þar sem útsýnið jókst,
og guðsfriður ríkti. Nú liorfi eg
á eftir þér, læknir, sem ein af
mörgum, með söknuði í sálu —
og bökk i hiarta. Guð blessi þér
framhaldslífið.
Að endingu kveð eg þig með
erindi eftir Matthías Jochums-
son, frænda þinn.
„Yfir góðs manns banaból
breiðist drottins heiði.
Guði dýrð mót glaðri sól
gráti rós á leiði.“
í guðs friði, góða sál!
Þann 14. febrúar 1933.
Elín Sigurðardóttir.
Minningirorð.
í dag er til moldar borin
Monika Sigurlaug Lúðvíks-
dóltir. Hún var dóttir Lúðvíks
Jakobssonar, bókbindara og
konu lians, Signýjar Þorsteins-
dóttur.
Mona, eins og hún var kölluð
venjulega, var fædd 22. jan.
1909 og lést á Vífilsstaðahæli 18.
febrúar s. 1. og var því rúmlega
23 ára, þegar liún lést. Þó- að
aldurinn yrði ekki hár, á Mona
mjög fagra sögu að baki sér,
sem hún skapaði með sinni
góðu og göfugu framkomu.
Hún hafði alla þá kosti til að
bera, sem urðu til þess, að
þeim sem kyntust henni, þótti
vænt um hana. Hún var bók-
hneigð með afbrigðum og söng-
elsk og hafði fallega söngrödd.
Að eðlisfari var hún dul i
skapi og seintekin, en þó glað-
lynd. Eg, sem þessar línur rita,
átti bvi láni að fagna, að eiga
Moniku fyrir vinstúlku. Aldrei
Mjólkurbú Fiðamanna
Týsgötu 1. — Sími 4287.
Reynið okkar ágætu osta.
Til sölu
einbýlishús úr timbri með öll-
um nútíma þægindum. Upplýs-
ingar gefa
Árni & Bjarni.
Bankastræti 9.
hefi eg þelct eins hjálpfúsa og
trygglynda stúlku, og það er
þess vegna svo sárt að sjá á bak.
henni svona fljótt.
Síðasta árið sem Mona lifði,
var hún sjúklingur á Vífilsstöð-
um; allan þann tíma bar hún
veikindi sín með stakri geð-
prýði og kvartaði aldrei. Kæra
vina! Nú er sjúkdómshölinu af
þér létt; nú sé eg þig ekki fram-
ar í þessu lífi, en hugga mig við
það, að sá sem öllu ræður, gefi
að við hittumst aftur, þar sem
að ekkert fær skihð okkur.
Vina.
Tilboð
óskast i 105 rúllur af fiskumbúðastriga með tilheyrandi garni.
Verð sé miðað við staðgreiðslu eða 3ja mánaða víxil með góðri
tryggingu. Tilboð, merkt: „Hessian“, sendist afgr. Visis fyrir
föstudagskveld.
>«xsooc5£soo«ooo«coísoooíxx>ooo<xxíooooqcx5öooo<ksoísooísoooooo«
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
heldur næst siðasta dansleik sinn á vetrinum næstkom-
andi laugardag, 4. mars.
Salurinn skreyttur eins og á aðaldansleiknum.
Hljómsveit Hótel ísland.
Aðgöngumiðar verða seldir frá þvi á fimtudag i K. R.-
húsinu. — Fjölmennum!
Skemtinefndin.
ÍOOOÍÍOSiOGíÍOOOSi
OOOOOOOOÍ
Öskudagssöfnun
Rauía Krossins.
Reykvíkingar skildinga sam-
an i guðskistu Rauða Krossins
einu sinni ári. Á öskudaginn
hafa hin alkunnu og vinsælu
merki félagsins verið seld á
götum bæjarins, frá því að R.
Kr. var stofnaður, og svo verð-
ur enn á morgun.
Rauði Krossinn hefir á s.l.
ári keypt blaðið „Unga Island“,
og verður því smám saman
komið í sama horf og snið sem
gerist um málgagn ungmenna-
deilda R. Kr. erlendis (Junior
Red Cross).
Hjúkrunarsystirin hefir ferð-
ast viða um land á þessum
vetri, og haldið uppi vel sótt-
um námskeiðum um hjúkrun
og hjálp í viðlögum. Systirin
starfar í Sandgerði nú á vetr-
ar- og vorvertíð, sem undan-
farin ár. Hefir R. Kr. hug á að
koma þar upp hjúkrunarskýli,
baðhúsi og lestrarstofu fyrir
sjómenn, þegar efni leyfa.
Á Akureyri er sérstök fé-
lagsdeild, sem heldur uppi
hjálparstöð fyrir berklaveika,
og annast bæjarhjúkrun. Jafn-
framt er á Akureyri sjúkrabíll,
til flutnings svo langt, sem ak-
vegir leyfa.
í Reykjavik hefir Rauði
Krossinn i mörg ár haft sjúkra-
bíl, sem einkum liefir verið
notaður til flutnings út fyrir
bæinn, eri jafnframt hefir
Rauða Kross bíllinn oft komið
að notum við bilun á bæjar-
bílnum.
t fyrrasumar hélt félagið
„Sumargjöfin“ uppi dagheim-
ili í Grænuborg, þar sem börn
voru tekin til umönnunar og
fæðis fyrir vægt gjald. Rauði
Krossinn léði dagheimilinu
hjúkrunarsysturina endur-
gjaldslaust alt sumarið til þess
að sinna um börnin, ásamt
öðru starfsfólki, sem þar vann.
Félagið væntir þess, að
merkjasalan á morgun gangi
greiðlega, og þvi muni áskotn-
ast væn upphæð, til þess að
létta hin útdráttarsömu störf
Rauða Krossins.
G. Cl.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík — 2 st., ísafirði
— 2, Akureyri — 3, Seyðisfirði —
o, Vestmannaeyjum 1, Stykkishólmi
— 4, Blönduósi — 3, Raufarhöfn
— 2, Hólum í Hornafirði 2, Gríms-
ey — 2, Grindavík — 3, Færeyjum
6, Julianehaab — 8, Jan Mayen —
7 st. Skeyti vantar frá Angmagsa-
lik, Hjaltlandi og Tynemouth).
Mestur hiti hér í gær 1 st., minstur
— 3 st. Sólskin 8,6 st. Yfirlit: Há-
þrýstisvæði um Grænland og ís-
land, en lægð vestan við Bretlands-
eyjar. — Horfur: Suðvesturland,
Faxaflói, Breiðafjörður: Allhvass
norðaustan. Bjartviðri. Vestfirðir,
Norðurland, norðausturland, Aust-
firðir: Norðaustan átt. Sumstaðar
allhvass og dálítil snjóél. Suðaust-
urland: Allhvass norðaustan. Létt-
skýjað.
Björn Kristjánsson,
fyrrum alþm. og bankastjóri átti
75 ára afmæli 26. þ. m., eins og
getið var um hér í blaðinu. Var hon- |
um þann dag sýndur margvíslegur
vottur virðingar og sæmdar og j
barst mikill f jöldi heillaóska-skeyta.
I
Inflúensan.
Landlæknisskrifstofan hefir feng-
ið skeyti frá ýmsum stöðum eystra
um útbreiðslu inflúensunnar. Á
Norðfirði breiðist inflúensan út, en
er vægari en í byrjun. Engir fylgi-
kvillar. Frá Hjaltastað á Fljótsdals-
héraði símar héraðslæknirinn, að
inflúnsan sé á 14 heimilum. H. u.
b. hver maður tekur veikina, og
legst hún allþungt á suma. Frá
Eskifirði er símað, að væg inflú-
ensa gangi þar, og hafi menn veik-
ina 2—4 daga. Á Seyðisfirði er eng-
in inflúensa. Á Djúpavogi er hæg-
fara inflúnsa. — Landlæknir tel-
ur að allmiklar líkur séu til, að víð-
ast sé um samskonar, jafnvæga, in-
flúensu að ræða, og gengur hér í
bænum.
Föstuguðsþjónusta
í dómkirkjunni miðvikudag kl. 6
síðd. Síra Friðrik Hallgrímsson.
Minning Ólafs læknis Jónssonar.
Eins og getið hefir verið hér í
blaðinu verður safnað fé til minn-
ingar um Ólaf heit. Jónsson lækni.
Fyrir fé það, sem safnast, verða
keypt húsgögn í eitt herbergi í
sjúkrahæli Hvítabandsins, og á
stofan að tiera nafn hins látna lækn-
is. Afgreiðsla Vísis tekur við gjöf-
um í þesgu skyni.
E.s. Selfoss
kom frá útlöndum i nótt.
TÁMALIT óbrothættu vörur:
Bollar, Bikarar,
Diskar, Staup, o. fL
TÁMALIT er hentugt tilferða-
laga, lil heimilisnotkunar fyrir
börn, fyrir skólabörn o. m. fl.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
Bankastr. 11.
Aflasölur.
Vénus seldi ísfisksafla i Bret-
landi í gær, 2800 körfur, fyrir
1084 sterlingspund. Geir selur í
dag eða á morgun.
Á saltfisksveiðar
hafa farið, frá þvi á laugardag
síðastl.: Bragi, Kópur, Hilmir, Max
Pemberton, Gulltoppur, Gyllir, Þór-
ólfur, Snorri goði og Geysir. EgiII
Skallagrímsson fer sennilega á veið-
ar í dag, og Skallagrímur í nótt.
E.s. Goðafoss
kom að vestan og norðan í nótt.
Ólafur
er væntanlegur frá Englandi í
dag.
Gullverð
ísl. krónu er nú 57.43.
Tónlistarskólinn.
Vegna mikiilar aðsóknar að
unglinganámskeiði skólans,
verður ekki liægt að taka fleiri
umsóknir til greina en þegar
eru komnar. Þeir sem sótt hafa
um upptöku að námskeiðinu,
mæti á morgun (miðvikudag)
kl. 3 stundvíslega í Hljómskál-
anum.
Skemtun
lieldur glímufélagið Ármann
i Iðnó laugardaginn 4. mars.
Verður þar fimleikasýning hins
afbragðsgóða drengjaflokks Ár-
manns, söngur og ýmislegt
fleira til skemtunar og að lolc-
um stiginn dans til kl. 4. Hin
vel þekta hljómsvcit Aage
Lorange leikur alla nóttiria. —
Aðgöngumiðar fyrir félags-
menn kosta kr. 2,50. Nánara
auglýst síðar. (Á.).
Gamla Bíó
sýnir í fyrsta sinni í kveld
kvikm. „Frænka Charles”, sem
oft liefir verið leikin hér sem
annarsstaðar og mörgum orðið
til skemtunar. I þessari kvikm.
leikur Charles Ruggles „frærik-
una“ og fer mikið orð af hve
vel honum farist það úr hendL
X.
Dráttarvextir.
Þeir gjaldendur hér í bæ, sem
hafa ekki greitt lóðaleigugjöld og
fasteignagjöld, sem féllu í gjald-
daga fyrst í janúar þ. á., fyrir 3.
næsta mánaðar, verða að greiða af
þeim dráttarvexti frá gjalddaga.