Vísir - 02.03.1933, Síða 2

Vísir - 02.03.1933, Síða 2
V I S I H Holmhlads spil, fjölbreytt úrval. — Þessi spil eru viðurkend af öllum spilamönnum. Sími: Einn — tveir — þrír — fjórir. fmskeyf Mukden 1. mars. United Press. FB. F. U. Me A.-D. fundur í kveld kl. 8%- Síra Bjarni Jónsson talar. Inn- taka nýrra félaga. Allir karl- menn velkomnir. Ófriðurinn í Austur-Asíu. Japanar lögðu undir sig borgina Chifeng, sem er mikil- væg borg frá hernaðarlegu sjónarmiði séð. ICínverjar hörfa undan suður á bóginn. Mulcden 1. mars. United Press. FB. Fregnir hafa borist um það hingað, að forvarðalið Japana sé komið að útjöðrum Ling- yuan. Detrnit 1. mars. United Pi'ess. FB. Skrifari Henry Ford’s fundinn. Liebold, einkaskrifari Hen- ry Fords, fanst í Travers City, Michigan. Kvaðst hann vera orðinn þreyttur á öllu, og tek- ið það ráð að flýja. Detroit 2. mars. United Press. FB. First National bankinn hef- ir hafnað tillögum og tilboði Henry Fords um stuðning, sem var því skilyrði bundið, að Ford fengi einræðisvald í mál- um bankans. — Bankinn hefir ákveðið að opna á ný undir eins og fylkisþingið hefir gert ráðstafanir til vemdar bank- anum. New York City 2. mars. United Press. FB. Minkandi gullforði i Bandaríkjunum. Federal Reserve banliinn hefir tilkynt, að gullforðinn hafi minkað um 36.827.000 dollara, þar af 27 miljónir vegna þess að menn hafa lagt stund á að komast yfir gull og geyma það. Samkvæmt opin- berum fregnum hefir gullforð- inn minkað um 194 miljónir dollara í febrúar. Berlín 1. mars. United Press. FB. Ástand og horfur í Þýskalandi. Samkvæmt bráðabirgðalög- unum, sem Hindenburg forseti hefir undirskrifað, liggur þung hegning við hverskonar svik- semi við þýsku þjóðina, og við landráðastarfsemi liggur dauðasök. Ströng ákvæði eru í lögunum um hegningu fyrir að láta af hendi hernaðarleg leyndarmál, eða hafa liernað- arlega njósnarstarfsemi með höndum. Erfurt 1. mars. United Press. FB. Lögreglan hefir fundið hér leynilega, ólöglega aðalbæki- stöð kommúnistiskra verklýðs- félaga. Fanst þar mikið af gögnum, sem sanna undirróð- urs- og æsingastarfsemi kom- múnista til hermdarverka. Prentvélarnar, sem fundust í bækistöðinni, voru gerðar upp- tækar af lögreglunni. — Þrjá- tíu og ríu kommúnista-leið- togar hafa verið handteknir. Frá Alþingl í g æ r. Efri deild. Þar var eitt mál á dagskrá, frv. til stjórnskipiuiarlaga um bregting á stjórnarskrá kon- unqsrikisins Islands. (Flm. Jón Bald.). Aðaltilgangur þessa frv. er: 1. Að gera landið alt að einu kjördæmi, og skulu eiga sæti á þingi 42 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir lilutbundn- um kosningum. Þingið skal skipað þannig, að hver þing- flokkur hafi þingsæti í sam- ræmi við atkvæðatölh þá, sem greidd er frambjóðendum flokksins samtals við almenn- ar kosningar. Einnig er ætlast til þess, að varaþingmenn séu kosnir á sama liátt, um leið og þingmenn eru kosnir, og skal varaþingmaður ávalt taka sæti þingm., ef liann deyr eða forfallast af öðrum ástæðum. 2. Að kosningarrétt til Al- þingis hafi karlar og konur, sem eru 21 árs eða eldri, og hafa ríkisborgararétt hér á landi og hafa verið búsettir hér í landinu árið áður en kosningar fara fram. Óflekk- að mannorð og fjárforræði er og áskilið, til þess að geta átt kosningarrétt. J. B. kvað biðina hafa verið orðna svo langa eftir stjórnar- skrárfrumvarpi ríkisstjórnar- innar, að sér hefði ekki þótt fært að draga lengur að koma fram með þetta frumvarp, sem markaði „baráttugrundvöll“ Alþýðuflokksins i þessu máli. Hann kvaðst binsvegar vita það, að frumvarpið mundi ekki verða samþykt, og þó að nú væri lika komið frv. frá stjórninni, þá virtist eins lík- legt, að engin lausn málsins fengist á þessu þingi, enda mundu nú sjálfstæðismenn horfnir frá fyrri kröfum sin- um í kjördæmamálinu. Mælt- ist hann að lokum til þess, að frv. yrði vísað til 2. umr. og kosin sérstök stjórnarskrár- nefnd. Jón Þorláksson mótmælti þeirri aðdróttun J. ,B. í garð sjálfstæðismanna, að þeir væri nú orðið ekki sammála AI- þýðufl. um kjördæmamálið í aðalatriðinu, sem væri það, að stjórnmálaflokkarnir fengi þingmannatölu í lilutfalli við kjósandafjölda. Hitt væri rétt, að um fyrirkomulagið væri þeir ekki á sama máli. Jón Jónsson kvaðst, að gefnu tilefni, ekki geta um það sagt, hver yrðu afdrif stjórnarskrár- breytinga á þessu þingi. En auðvitað kæmi ekki til mála, að frv. J. B. næði fram að gúnga. Jónas Jónsson kvað sjálf- stæðisniönnum liafa skjátlast í samningunum við Framsókn í fyrra, er þeir hefðu látið sér nægja loforð um, að frumvarp yrði borið fram, en enga trygg- ingu áskilið fyrir þvi, að það yrði samþykt. — Var þá hleg- ið mjög. Frumvarpi J. B. var siðan visað til 2. umr. og samþykt að kjósa 5 manna stjórnarskrár- nefnd. Neðri deild. Þar voru 6 mál á dagskrá. 1. Frv. til l. um breyting á lögum um útflutning hrossa, 3. umr. Frv. var samþ. eins og það nú lá fyrir og visað til efri deildar með 15 shlj. atkv. 2. Bifreiðaskattur o. fl., til 3. umr. Um mál þetta urðu tals- verðar umræður, og lmigu þær flestar í sömu átt og ræður þingm. við fyrstu umr. málsins. En nokkrar breytingartillögur höfðu komið fram, og náði frv. að lokum samþykki deildar- innar og var vísað til efri deild- ar. — 3. Frv. til l. um bann gegn jarðraski við sjó í kaupstöðum og sjávarþorpum var tekið af dagskrá. 4. mál á dagskrá var tili. til þál. um styrk handa lækni til þess að nema lyfjafræði. Nokk- ur ágreiningur var um það, hvort máli þessu skyldi vísað til allsherjaruefndar (tillaga flutningsm.) eða fjárveitinga- nefndar, og var því vísað til fjárveitinganefndar með 17:1 atkv. og umr. frestað. 5. máli, frv. til l. um lögreglu- stjóraembætti i Bolungarvík, var umræðulaust vísað til 2. umr., með 19 shlj. atlcv. og alls- herjarn. með 16 samhlj. atkv. 6. mál var frv. til l. um sölu kirkju jarðarinnar Mið-Sáms- staða. 1. flutningsm. (Tr. Þór- hallsson) lagði til að málinu yrði visað til 2. umr. og alls- herjarn., og var það gert með 16 samhlj. atkv. Stjörnarskrárbreytlngln. í gær var útbýtt í báðum deildum Alþingis „frumvarpi til stjórnarskipunarlaga um breyting á stjórnarskrá kon- ungsríkisins íslands, 18. maí 1920.“ Stjórnin leggur frumvarp þetta fyrir Alþingi og hefir áður verið sagt frá efni þess liér i blaðinu, að því er tekur til tölu þingmanna og kosn- inga-fyrirkomulagsins, en þó skal vikið að því öðru sinni. „Á Alþingi eiga sæti alt að 50 þjóðkjörnir þingmenn,kosn- ir leynilegum kosningum, þar af 32 í einmennings- og tvímenn- ingskjördæmum þeim, sem nú eru“ og er kosning þeirra ó- hlutbundin. — í Reykjavík skulu kosnir 6 þingmenn hlut- bundnum kosningum „og jafn- margir til vara samtimis.“ — Loks verða alt að 12 uppbótar- þingsæti „til jöfnunar milli þingflokka, svo að hver þeirra j hafi þingsæti sem næst sam- j ræmi við atkvæðatölu þá, sem 1 greidd er þingmannaefnum flokksins samtals við almenn- ar kosningar.“ Um kosningarrétt til Alþing- is segir svo í frv.: „Kosningarrétt við kosning- ar til Alþingis hafa allir, karl- ar sem konur, sem eru 21 árs eða eldri, þegar kosning fer fram, hafa rikisborgararétt hér á landi og hafa verið bú- settir i landinu siðustp fimm Útsala byrjar i dag. Verslun Ben. S. Þórarinssonar selr fyrir hálfvirði og minna: Stufkápur, Morgunkjóla, Svuntur, Náttkjóla, Skyrtur, Barnanáttföt, Gúmmísvuntur, Vinnujakka og Smádrengjajakka- og Matrósaföt o. fl. Útsalan stendr til helgar. — árin áður en kosning fer fram. Þó getur enginn átt kosningar- rétt nema hann hafi óflekkað mannorð og sé fjár síns ráð- andi.“ Aðrar breytingar á gildandi stjórnarskrá eru þær lielstar, að gert er ráð fyrir, að frum- varp til fjárlaga og fjárauká- laga skuli ávalt leggja fyrir sameinað Alþingi og afgreiða þar við þrjár umræður. í greinargerð fyrir frum- varpinu segir svo m. a.: — „Tala uppbótarþingmanna, sem koma í stað landkjörinna þingmanna, má ekki fara fram úr 12, en getur verið lægri, þegar jöfnuður næst með lægri tölu. Auk þess er 2 þingsætum bætt við Reykjavik. Ef balda á núverandi kjördæmaskipKii óbreyttri, þá verður ekki jafn- að til á annan veg en með nokkurri þingmannafjölgun. En sá sparnaður, sem af þvi leiðir, að ræða fjájrlög ein- göngu í sameinuðu þingi, ger- ir meira en að vega upp á móti.“ Alftadráp. Bjarni Ásgeirsson, þingmað- ur Mýramanna, hefir fundið hvöt lijá sér til þess að stuðla að álftadrápi út um sveitir landsins, og verður sannast að segja ekki séð, livað fyrir þing- manninum vakir, nema hann sé hér í hugsunarleysi að reka erindi einhverra þröngsýnna kjósenda sinna, sem ætla sér að liagnast á því. Islendingar liafa til þessa látið álftirnar í friði, þessa tigulegu söngfugla, sem telja má einhverja unaðs- legustu prýði landsins. Er þess að vænta, að menn hefji al- menn mótmæli gegn þessu frumvarpi þingmannsins. Kjós- endur hans, og Breiðfirðing- arnir, sem liann þykist bera fyrir brjósti, þurfa áreiðanlega ekki að sækja sér björg í bú með álftadrápi. Með því að leyfa álftadráp liygg eg, að unnið sé ilt verk, og án efa mun það spilla öllu þvi, sem gert hefir verið til þess að venja menn af óþörfu fugla- drápi og ala hjá mönnum ó- beit á því. Þegar álftunum á ekki að verða vært lengur, livað mun þá um aðrar fuglategund- ir, ýmsar? Ástæðum þeim, sem tilfærðar eru í greinargerð frumvarpsins, legg eg ekki mikið upp úr. Það mun eng- inn gera, nema þeir, sem hafa svo spilst, að þeir hika ekki við að meta magafylli og nokkurra aura hagnað meira en fyrir- litning alþjóðar. Þingmaðurinn ætti að sjá svo um, sjálfs sín vegna og kjósenda sinna, að þetta leið- inlega frumvarp verði ekki rætt á þingi. Úr því sem kom- ið er, er það eina leiðina fyrir þingmanninn, til þess að losna við vansæmd af málinu. En ef svo færi, að hann héldi frumvarpinu til streitu, munu íoíiöoísooosíoísoísooeíioöoíioöoc . , ;--OvJ4 SOOSÍÍ SOOOISOSStX SOOOÍSÍSOOOÍSOOOÍSOOSSSSOOÍSÍSOOOC SOOOOSSOOOCSOOOtSOOOCSSSOOCSOOOC Bestar eru CIGARETTUR Mildar og ilmandi. TEOFANI - LONDON. ssssssssss sssssos soosss ssssssss ssssssss sssossc SSSOSSOSSOOOSSSSOOSSOÍSOSSOOOSSSSSSSSS SSSSSSSSSSSSSSSSSSSOOíSSSSSSSOSSSSSSSSSSSSSSSSS SOOOOSSOOOSSOOSSSSOOOSSOOOSSSSOSS5 menn alment óska þess, að það komi í ljós, að það sé ekki nema einn álftadrápsmaður á Alþingi íslendinga. Álftavinur. Brynjólfar Jóhannesson mun i dag leika eitt vinsælasta hlutverk sitt, Friðmund Frið- ar í „Karlinn i kassanum“, og gefur Leikfélagið honum kost á því, til þess að minnast þess, að nú eru 15 ár síðan liann lék fyrst. Annars á Brynjólfur alt- af færi á því að leika, svo að þetta er frekar tækifæri, sem áhorfendum býðst til þess að gleðjast yfir þessum ágæta leikara í þessu hlutverki, og til þess að sýna honum, hvað þeir hafa á honum miklar mæt- ur. Hann er vel að því kominn, og það er eins og þar stendur, sannarlega verðugt og rétt, gott og mjög hjálpsamlegt, að þakka altaf alt það, sem vel er gert. Leikarar eru með margvís- legu móti. Sumir leika af því, að þeim er það í blóðið borið, aðrir af því, að þeir eru vits- munamenn á vísu slcilnings og glöggir á náunga sina. I tölu hinna siðari er Brynjólfur. Hann er vitsmunamaður, sem með köldu auga skilningsins sér mennina í kringum sig, veg- ur þá og metur, lærir þá og sýnir þá. Slíkir leikarar eru oftast fjölhæfari en hinir, sem leika eftir tauganna tilvísan, en hvort tveggja hefir þá jafn- mikið til sins ágætis. Þegar Reykvíkingar sjá Brynjólf nú enn einu sinni í hinu bráðhlægilega hlutverki Friðmunds Friðar, mega þeir ekki gleyma öllum hinum hlut- >

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.