Vísir - 11.03.1933, Blaðsíða 3

Vísir - 11.03.1933, Blaðsíða 3
V í s I R Forsætisráðherra verður að gera sér ljóst, að meiri Uuti þjóðarinnar sættir sig ekki við núverandi réttleysi öllu lengur. Málið verður ekki svæft eða þaggað niður, þó að Jónas frá Hriflu og aðrir kommúnistar imyndi sér það i fávisku sinni. — Ásgeir Ásgeirsson verður að vera skeleggur í þessu máli og segja flokksmönnum sínum, að taka við stjórninni, ef þeir leggjast gegn jæssari sjálfsögðu réttarbót. — F,n tíðindavænlegt gæti þá orðið í landinu, er Ás- geir væri horfinn úr stjórnar- forsæti, en Jónas leystur úr böndum og slept á landslýðinn öðrn sinni. Önnur réttarbót frumvarps- ins er álcvæðið um það, að kosn- ingarrétturinn skuli framvegis bundinn við 21 árs aldur. Mun öll hin unga kynslóð fagna því, að stjórnin liefir tekið þetta ákvæði upp i frumvarp sitt. Það er ekki kunnugt enn sem komið er, hvcrnig jafnaðar- menn á þingi muni snúast við frumvarpinu. — En sé ráð fyr- ir-þvi gert, að þeim leiki í raun og veru nokkur liugur á því, að fá einhverju um þokað í kjördæmamálinu, þá er óhugs- andi, að þeir snúist gegn þvi. Þeir vita mæta vel, að krafa þeirra, nm gð alt landið verði gert að einu kjördæmi, er alveg ófáanleg — cldci einungis á þessu þingi eða næstu þingum, heldur jafnvel um alia framtíð eða meðan ekki verður horfið frá núverandi þjóðskipulagi. — Virðist því alveg sjálfsagt, að þeir taki þvi besta, sem í boði er á hverjum tíma, en hafi jafn- an liugfast, að þoka málunum áfram, lengra og lengra i átt- ina til þess sigurs, sem þeir telja eftirsóknarverðastan. Eg þarf væntanlega ekki að taka það fram, að eg íel sjálf- sagt, að reynt verði að laga frumvarp stjórnarinnar svo, að sem flestir megi við una í bráð. Stjórnin hefir lagt samkomu- lags-grundvöll með frv. sínu og er þess að vænta, að reynt verði að lagfæra það á þeim grund- velli, i þeim atriðum, sem helst þykja óaðgengileg eða varhuga- *verð. 5. mars. Kjósajttdi. Messur á morgun. í dómkirkjunni kl. u, síra Frið- rik Hallgrímsson; kl. 5, síra Bjami Jónsson. í fríkirkjunni kl. 2, síra Ámi Sig- urðsson. I fríkirkjunni í Hafnarfirði, kl. 2, síra Jón Auðuns. í Landakotskirkju: Lágmessur lcl. 6j4 og kl. 8 árd. Söngmessa kl. 10 árd. Guðþjónusta með prédik- ,un kl. 6 síðd. 1 Aðventkirkjunni kl. 8 siðd. All- ir velkomnir! Veðrið í morgun. Hiti í Reykjavík o st., ísafirði — 2, Akureyri 1, Seyðisfirði 2, Vestmannaeyjum 2, Grímsey o, Stykkishólmi — o, Blöriduósi 1, Raufarhöfn 1, Hólum í Hornafirði 7, Grindavík 1, Færeyjum 8, Juli- anehaab — 2, Jan Mayen — 3, Angmagsalik — 9, Hjaltlandi 7 st. Mestur hiti hér í gær 5 st., minst- ur o st. Úrkoma 4,7 mm. Sólskin 4,2 st. Yfirlit: Grunn lægð yfir Is- landi. — Horfur: Suðvesturland, Faxaflói: Norðvestan og norðan gola. Smáskúrir eða éljagangur. Breiðafjörður, Vestfirðir: Flæg norðanátt, úrkomulaust að mestu. Norðurland, norðausturland, Aust- firðir: Austan og suðaustan gola. Dimmviðri og úrkoma öðru hverju. Suðausturland: Brcytileg átt og hægviðri. Rigning öðru hvcrju. Bruninn á Fórsgötu. Slökkviliðinu tókst að kæfa eld- inn á þakhæð hússins eftir tveggja stunda látlausar slökkvitilraunir. Tókst að koma í veg fyrir, að eld- urinn kæmist niður á neðri hæð- iniar. Af neðri hæðunum var mik- ið borið út af húsgögnum, en litið sem ekkert af ])akhæðinni. í húsinu munu hafa átt heima um 20 manns. á þakhæðinni bjuggu hjón með 2 böm og mæðgur tvær, einnig tveir einhleypingar. Fljá þessu fólki mun ekkert hafa verið vátryggt. Á mið- hæðinni ltjuggu húseigendur, systur tvær, dóttir attnarar og fósturdóttir hinnar. Innbú systranna mun hafa verið vátryggt. 1 kjallaranum var einnig búið, og munu innanstokks- munir þar hafa verið óvátrygðir. Líkur eru til, að kviknað hafi út frá kerti, sem böm voru að leika sér með, en rannsókn í málinu er enn eigi lokið. Nesjamenska og stigamenska. Guðm. skáld Friðjónsson talar á morgun kl. 3% í Nýja Btó, um „nesjamensku og stigamensku", eða ritstörf Sigurðar prests Einarsson- ar og þvílíkra manna. Guðm. er orð- hagur og málsnjall, sem kunnugt er, og munu margir vilja hlusta á er- indi hans. Aðgöngumiðar á 1 kr. fást í dag í Bókaversl. Sigf. Ey- mundssonar og á morgun í Nýja Bíó, ef eitthvað verður óselt í kveld. Docent, dr. phiL Albert Oisen flytur 6 háskólafyrirlestra um stjórnmál og þjóðarhagi eftir heimsstyrjöldina. Efni hinna einstöku fyrirlestra er þetta: 1. Um stjórnmálaálirif þau frá fyrri tima, sem aðallega koma til greina á árunum eftir ófriðinn. — 2. Versailles-friður- inn. — 3. Tímabilið frá ófriðar- lokum til 1929. — 4. Kreppan síðan 1929. — 5. Fascisminn. — 6. Bolshevisminn. — F'yrirlestr- arnir verða fluttir í kaupþings- salnum, hinn fyrsti laugardag 11. mars kl. 6, og síðan daglega á sama tíma. Hollensku flugmennirnir hafa farið nokkrar ranrisóknar- ferðir, til þess að reyna að komast að hver orðið hafi afdrif erlendu botnvörpunganna „James Long“ og „Meteor“, sem talið er líklegt, að farist hafi hér við land. Flugferð- irnar báru engan árangur. íþróttafél. Reykjavikur er 26 ára í dag. Það er eitt af bestu og athafnamestu íþróttafélög- um landsins. Menn ættu að minn- ast þessa afmælis félagsins með því að kaupa happdrættismið- ana að Ford-bifreiðinni, sem kosta aðeins 1 kr. (Bifreiðin kostar 4000 kr.). Allur ágóði happdrættisins fer til styrktar þeim málum, sem fé- lagið berst fyrir. B. Eiður Sigurðsson Kvaran hefir tekið próf í sagnfræði og mannfræði við háskólann í Mún- chen, með fyrstu einkunn. Leikfélagið biður þess getið, að „Ævintýri á gönguför“ verði leikið á morg- un fyrir böm kl. 3, en ekld kl. 8. Fimlcikakepnin um bikar „Oslo Turnforening“ fer fram sunnudaginn 30. apríl n. k. Handhafi Glímufélagið Ármann. Félög þau, sem ætla að senda flokka , á kepnina, skulu hafa sent stunda- skrá sína, ásamt nöfnum keppenda, eigi síðar en /> mán. fyrir mótið, til Jens Guðbjömssonar, form. Glimufél. Ármanns. Unglst. Æskan heimsækir stúkuna „Vonarljósið“ í Hafnarfirði á morgun. Sjá augl. „ÁstalíF*. Samkvæmt beiðni manna endur- tekur Pétur Sigurðsson erindi sitt um ástir, í Varðarhúsinú annað kvQld kl. 8/2. Inngangur i.króna. Börn fá ekki aðgang. Erindið stendur yfir hátt á aðra klukku- stund. Af veiðum hafa komið Baldur með 85, Otur með 90 og Hilmir ineð 62 tn. lifrar. Voraldarsamkoma í Varðarhúsinu á morgmi kl. 3. Pétur Sigurðsson talar. Unglst. Unnur heldur afmælisfagnað sinn í G,- T.-húsinu í kveld. Til skemtunar verður upplestur, kórsöngur, kveð- skapur o. m. fl. Árshátíð stúknanna Víkings og Framtíð- arinnar verður haldin mánudag 13. mars í G.-T.-húsinu. Verður þar margt til skemtunar. Sjá augl. Bethanía. Samkoma annað kveld kl. 8%. Bjarni Jónsson talar. Allir velkomnir. Valur. Æfing á morgtin (sunnud.) kl. 10 f. h., ef veður leyfir. Til utanbæjarmannsins, samkvæmt hjálparbeiðni 5. mars : 2 kr. frá I. E./ 5 kr. frá G/M. Áheit á Strandarkirkju, afhent Vísi: 5 kr. (gamalt áheit) frá K. S., 10 kr. frá N. N. Útvarpið. 10,00 Veðurfregnir. 10,12 Skólaútvarp. (Frey- steinn Gunnarsson). 12.30 Hádegisútvarp. 16,00 Veðurfregnir. 18,15 Háskólafyrirlestur. (Águst H. Bjarnason). 19,05 Þingfréttir. 19.30 Veðurfregnir. 19,40 Tilkynningar. Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20.30 Leiksýning. (Soffía Guð- laugsdóttir 0. fl.): Þætt- ir úr: „Vér morðingj- ar“, eftirGuðm.Kamban. 21,00 Tónleikar. (Útvarps- kvartettinn). Grammó- fónkórsöngur: (Orfei drangar). Alfvén: Sveri- ges flagga. Wennerberg: Hör os Svea! Josephson: Stjárnorna tindra. Prins Gustav: Sjung um stu- dentens lyckliga da’r. Glad sásom fágeln. Kuhlau: O, liur hárligt majsol ler. Danslög til kl. 24. Utan af landi. Akureyri, 10. mars.FB. Samkomubann hefir verið fyrirskipað í bænum vegna in- flúensunnar. Almennur borg- arafundur, sem ráðgerður var, um norsku samningana, ferst þess vegna fyrir. KXKSCOOQOCOOOÍÍCOOOOOOOÖCÍXXÍOOOOCCOOOOOOÍÍÍÍOOCOOOOCíOOOOí útungunarvélar og fósturmæður eru óðum að ryðja sér til rúms á Norðurlöndum, sökum framúrskarandi vand- aðrar smíði og efnis, og yfirgnæfandi útungunarmögu- leika. Útungunarvélar þessar liafa olíugeymi, sem endist allan útungunartímann, og sjálfsnúara. sem snýr öllum eggjunum í einu. Mjög lítil olíueyðsla. — 1 Stærðir fyrir 100 til 10000 egg. — Höfum nokkrar vélar til sjmis og sölu. — Biðjið um verðlista. — Jóh. Ólafsson & Co. Aðalumboðsmenn á íslandi fyrir: Í „KILDEBO“ ^ Jý C. F. Skafte, Sorp. § ÍOOOOOOOOOOOOÍÍOOOOOOOQOOOOÍÍOOOOOOOOOQOOOÍSOOOOOOOOOOOOÍ fslandLsviniii?. Árið 1889 kom hingað til lands- ins ungur Englendingur, Mr. Ho- ward Little, og ferðaðist hér aust- ur yfir fjall til Þingvalla og víðar og varð hann svo hriíinn af landi og þjóð þessa fáu daga, sem hann dvaldi hér, að hann sagði við einn kunningja sinn: „Hingað vil eg koma aftur“. Hann lét ekki lenda við orðin ein, heldur kom hann aft- ur sumarið 1924, til að athuga ým- islegt í sambandi við það, að flytj- ast hingað og setjast hér að. Það varð til þess, að hann fór út aftur og sótti konu sína og kom hingað í september 1924 og seftist hér að sem enskukennari og fréttaritari stórblaðsins „The Times“. Eg ætla ekki að fjölyrða um kenslu hans, því að hann er svo þektur orðinn fyrir hana, og hefir kent svo mörg- um, ungum og gömlum af öllum stétttum, að hún mælir með sér sjálf. Hann hefir kent ráðherrum, læknum, málaflutningsmönnum, kennurura o. fl. Munu nemendur hans skifta hundruðum. Eins og eg gat um áður, þá var hann fréttaritari fyrir „The Times“ og var það þangað til árið 1928, en þá birtist grein um Island í „The Tirnes". Þar var rangt skýrt frá sambandi voru við Danmörku. Mr. Little gerði ítrekaðar tilraunir til þess, að fá blaðið til ?ð leiðrétta þetta, en það reyndist árangurslaust og sagði hann þá af sér starfi sínu við blaðið. Eftir það gerðist hann fréttaritari fyrir „The Morning Post“, en það var miklu ver laun- að starf. Þarna tapaði hann fé, vegna þess, að hann vildi ékki að hallað væri á oss. Mr. Little hefir skrifað fjölda greina um land vort og þjóð í ýms ensk blöð og tímarit, og leitast við að auka þekkingu annara á oss, og ennfremur hefir hann reynt eftir mætti. að bæta og liðka viðskifti milli Islands og Bretlands. Mér vit- anlega hefir hann litla eða enga við- urkenningu hlotið fyrir störf sín í vora þágu. Það hefir ekkert verið gert til þess, að greiða götu hans hér, t. d. á Alþingishátíðinni 1930 Barnafataverslunin, Laugaveg 23. Simi 2035. Nýjar danskar vörur, sem vegna verðfalls dönsku krónunnar eru mikið ódýr- ari en áður. var alt gert, sem hægt var, til þess að greiða fyrir fréttariturum er- lendra blaða, nema honum. Hann varð að sjá um sig sjálfur. Hingað hafa komið erlendir kenn- arar og dvalið hér lengri eða skemri tima, og fyrir þeim hefir verið greitt. Þeir hafa fengið húsnæði við háskólann, til að kenna í, og verið aðstoðaðir á ýmsan hátt. Hingað var fengin amerísk kona til að kenna ensku við útvarpið. Eg held, að það hafi verið óþarfi, að fara að sækja kennara til Ameríku. Það hefði borið eins mikinn árang- ur, að fá Mr. Little til að kenna þar sitt móðtirmál, og eg hygg, að útvarpið gæti, sér að skaðlausu, slept einhverjum af atriðum þeim, er það hefir á dagskrá sinni, og fengið svo heldur Mr. Little til að kenna ensku í staðinn, því að enska er það mál, sem vér þurfum mikiÖ að nota, og vér fáum ekki færari mann til þess en hann, því hann er ágætur kennari og hámentaður maður. Mér virðist, að þessum manni hafi verið sýnt óafsakanlegt tómlæti, fyrir hið mikla og góða starf hans í vora þágu. Eyj. Jóhannsson. Hitt og þettao Kinverjar f San Francisco ráðgera að safna einni miljón dollara til stuðnings kínversku stjórninni i baráttunni gegn Japönum. Kínverjar i San Fran- cisco eru 30.000 talsins. Mælt er, að 200 amerískir flugmenn hafi heitið kínversku stjórninni liðveislu sinni í ófriðinum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.