Vísir - 17.05.1933, Qupperneq 2
VlSTB
Höfum fengið aftur:
Búðingsduft, ailar tegundir.
Gerduft í bréfum og pökkum.
Sími: Einn-tveir-þrír-fjórir.
Biíreiðastöð íslands.
Hafnarstræti 21 Sími 1540.
Simskeyti
Amsterdam, 17. mai,
United Press. - FB.
Stjómarmyndun í Hollandi
/ gengur erfiðlega.
Dr. Colyn, leiötogi íhaldsmanna,
hefir gefist upp viö aS mynda
stjórn. Drottningin hefir því faliö
hónum á hendur aö mynda ópóli-
t'iska stjórn,
Washington, 1(5. maí.
United Press. - FB.
Friðarboöskapur Roosevelt’s.
Roosevelt forseti liefir sent
boðskap til rikisstjórna allra
ríkja, einnig Sovét-Rússlauds,
um afvopnunarmálin, og eru
tiIJögur hans í þrentur liðum.
Hvetur hann allar þjóðir til
þess að taka þátt í gerð sátt-
mála iil varðveislu friðarins,
en samkvæmt sáttmála þessum
skuldbindi hver þjóð sig tit
þess, hvaða deilumál sem um
er að ræða, að senda eigi vopn-
að lið út fyrir landamæri sín.
Að öðru leyti leggur hann til:
1) Aknenn afvopnun fari
fram í samræmi við tillögur
þær, sem Ramsay MaeDonald,
forsætisráðlierra Bretlands, bar
fram og gerði grein fyrir í
Genf.
2) Samkómulag verði um,
hve löngum tíma megi verja til
undirbúnings afvopnunarinn-
ar og að ákveða innan hve
langs tima afvopnunaráætlunin
komi til framkvæmda.
3) Samkomulag verði um, að
engin þjóð auki vígbúnað sinn
umfram það, sem núgildandi
samningar leyía, meðan eigi
hafa verið teknar fullnaðar-
ákvarðanir um þau mál, sem
heyra undir lið 2.
Roosevell kvað svo að orði,
að ef nokkurt hinna voldugu
rikja sendi vopnað lið út fyrir
landamæri sín, til þess að út-
kljá deilumál, mundi öllum lýð-
um ljóst verða, hver ábyrgðina
bæri. Kvað hann ekkert geta
rétllætl, að nokkur þjóð tæki
á sig ábyrgð af því, að grípa til
slíkra ráðstafana. Forsetinn fór
mörgum orðum um, að brýn-
asla nauðsyn krefði, að þjóðim-
ar gerði með sér hátíðlegt sam-
komulag um að gripa eigi til
vopná í árásar skyni og stað-
festi hátíðlega, að þeim beri
skylda til að" takmarka vigbún-
að sinn og ganga þannig frá
sáttmáia um þetta efni, að hver
þjóð teldi sér skylt að virða
það heit, að senda undir eng-
um kringumstæðum vopnað lið
út fyrir landamæri sín.
Stjórnmálamenn era þeirrar
skoðunar, að hin hátíðlega
hvatning forsetans komi fram
á réttum tíma og beri væntan-
lega þann árangur, að hin
hættulegu ágreiningsmál
Frakka og Þjóðverja verði
jöfnuð, en af þvi leiði aflur, að
þær vonir rætist, sem menn í
upphafi gerðu sér um afvopn-
unaiTáðstefnuna.
London, 17. maí.
United Press. - FB.
Ramsay MacDonald hélt ræöu í
„Anglo-American Pilgrims So-
ciety“, en hann var heiðursgestur
á samkomu félagsins, og fór niörg-
um og fögrum orðum um hina
snjöllu ræðu Roosevelts forseta,
sem hann kvað mundu marka
tímamót í sögunni. MacDonald
kvað Þjóðverja verða að gera sér
Ijóst, að þótt Bretar vilji stuðla að
því, að þeir fái fullan rétt á
við hin veldin, verði þeir að
sýna það svo óvéfengjanlegt sé,
að athafnir þeirra verði í sam-
ræmi við þær yfirlýsingar, sem
þeir hafi áður gefið, að þeir vilji
stuðla að því, að friðurinn varð-
veitist.
Frá Alþingi
í g æ r .
—o—
Neðri deild.
Stjórnarskrármálið.
Bergur Jónsson, frsm. nefnd-
ariimar, tók fyrstur til máls.
Afsakaði hann drátt málsins,
sem að mestu leyti liefði verið
vegna veikinda sinna.
Því næst ræddi þm. hrtt. þær,
sem minni lxl. nefndarinnar
háru fram. Kvað hann meiri hl.
nefndarinnar geta faUist á
kosningu varaþingm. í brtt. H.
V. en ekki á landslistafyrir-
komulagið.
Hann kvaðsl og geta fallist á
þá brtt. sjálfstæðismanna, að
binda ekki uppbótarsætin við
þau kjördæmi, sem aikvæða-
munurinn er minstur i. Og
mundi vera best að láta jie.Ua
vera óbundið í stjómarskránni.
Hann kvaðst- ennfremur geta
fallist á að 2 þingm. yrðu fyrir
fjölmennustu kjördæmin, en
þó ekki á jiann hátt, að þeir
væra kosnir hlutfallskosningu.
Þá gerði jiingm. grein fyrir
brtt. meiri hl., sem var sú, að
uppbótarsætin skyldu vera 10
í stað 12, §em ákveðið var í frv.
sijórnarinnar. Lægju tvær
ástæður fyrir brlt. þessari.
önnur, sem ekki gæti talist
mikilvæg, væri sú, að menn
væru yfirleitt mótfallnir liærri
þingmannatölu. En hin, sem
væri höfuðástæðan, væri sú, að
meiri hl. nefndarinnar teldi
vafalaust, að 10 uppbólavsæti
mundu á liverjum tíma vera
nægileg til jafnaðar milli
flokkanna.
Magnús Jónsson kvaddi sér
næstur liljóðs. Hann kvað marg-
sinnis hafa verið sýnt fram á
jiað með nægum rökum, að rétt-
ur kjósenda til áhrifa á full-
tráavaiið væri, með kosninga-
fyrirJajmulagi því, sem nú væri,
mjög misjafn. Það væri vitað,
að flokkur sá í landinu, sem að
eins rúmur Jiriðjungur atkvæða
stæði á bak við, hefði nú þá að-
stöðu, að hafa meiri hluta full-
trúanna, og væri það eingöngu
vegna þessa úrelta fyrirkomu-
lags. Það væri þó svo komið,
að viðurkenning hefði fengist á
því, að jiörf væri á að bæta úr
þessum misrétti. Frv. það, sem
hér væri til umræðu, væri á-
vöxtur jiess starfs, sem milli-
Jjinganefndin og samsteypu-
stjórain hefðit leyst af hendi.
Það væri að vísu langt frá jjvi,
að réttur sá, sem Sjálfstæðis-
menn liefðu krafisi með tili.
sinum í milliþinganefndinni og
með frv. sínu i fyrra, fengist
með samþ. Jjessa frv.
Fyrsti gallinn væri sá, að
taka kjördæmaskipunina upp í
stjórnarskrána. Það væri full-
\íst, að slíkt fyrirkomulag gæti
oft farið út í öfgar, og nefndi
þm. nokkur dæmi jjess, einkum
frá Englandi.
Annar gallinn væri sá, að á-
kveða tvímenningskjördæmi, án
þess að Jjað jafnframt væri á-
kveðið, að það skyldu vera f jöl-
mennustu kjördæmin.
Enn fremur væri Jjað stór
galli, að leyfu ekki hlutfalis-
kosningu í tvímenningskjör-
dæmunum, þar sem hún myndi
í flestum tibellum draga úr
jjörf uppbótarsætanna. En fjölg-
1111 jjingmanna væri Jjó að eins
réttlætanleg', að tilætlað jafn-
rétti milli flokkanna næðist
með henni. En þrátt fyrir galla
jjessa liefðu Sjálfstæðismeun
tekið fi*\r. jjessu með velvilja,
m. a. vegna Jjess, að með Jjví
væri fcngin viðurkenning á Jjví,
að liér væri um réttlælismál að
ræða. En til Jjess að bæta að
nokkru leyti úr göllum fiv.,
hefðu Sjálfstæðismenn í stjórn-
arskrárnefndinni borið fram
breytingartill. sínar og liefir
Jjeirra \erið getið hér i blaðinu
áður. Loks kvaðst þingm. vona,
að Jjingið bæri gæfu til að ganga
frá máli Jjessu á viðunanlegan
hátt og fulltrúum Jjjóðarinnar
til sóma. En lil Jjess að nokk-
ur von væri um slíka lausn
málsins væri ómögulegt að
ganga skemra en gert væri i
frv. stjóraarinnar, að viðbætt-
um brtt. Sjálfstæðismanna.
Héðinn Valdimarsson gerði
grein fyrir brtt. sínuni, og vildi
jafnframt lielga þeim í'áu Al-
þýðuflokksfulltrúum, sem sæti
eiga á þin%i, allan heiður af ár-
angi-i Jjeim, sem náðst hefir með
baráttunni fyrir máli Jjessu. Yf-
irlýsing Jjessi koin enguni á ó-
vart, Jjví að Jjað er jafnan venja
Jjeirra félaga, að eigna sér upp-
tökin að öllum þeim málum,
sem Jjingið hefir heiður af.
Hins vegar kvað ræðumaður
frv. Jjelta vera langt frá því að
gefa fullan rétt. Sem dæmi Jjess
sagði hann, að eftir siðustu at-
kvæðatölum ætti Aljjýðufl. að
fá 8 þingmenn skv. frv., en ætti
eftir ströngustu réttlætiskröfum
að fá 9y2.
Forsætisráðh. kvað nú auð-
sætt, að réttlætismál Jjetta væri
að komast í höfn. Merkasta
brtt., sem fran> liefði komið,
væri fækknn uppb<)tarsætanna.
Kvaðst liann vera á móti Jjví,
að fækka Jjeim frá þ\a, sem
ókveðið væri í fr\r., en Jjað væri
Jjó ekki svo mikilvægt atriði, að
afgreiðsla málsins gæti strand
að á Jjví.
Till. jafnaðarm. um landslist
ann væri að visu okki mjög
óaðgengileg. Kvaðst hann Jkj
Rabarbarahnaosar
til sðln. Afgreiddir i portinn
Vonarstrætl 4.
Magnús Th S Blðndahl h.f. 1
Slml 2358. £§
Þakjárn og slétt járn
galv., bestu tegundb', þabsaum- (
ur, þakpappinn ,Samson sterki‘,
sem ekki á sinn líka. Nýkomn-
ar miklar birgðir.
Verðið er að vanda hið lægsta.
Tugavogirnap
góðkunnu
burðarmagn 250 kg., á kr. 54.00,
eru komnar aftur til
VERSL. B. H. BJARNASON.
VERSL. B. H. BJARNASON.
Frönskn borðhnlfarnlr
óryðnæmu, sárþráðu eru komn-
ir aftur, og forkrómaðir Gaffl-
ar og Skeiðar, sem aldrei þarf
að fægja.
Verð og gæði mun betri en
kostur er á að ia annarstaðar.
VERSL. B. H. BJARNASON.
fremur hallast að till. Sjálfstæð-
ismannanna. Aðrar breytingar
væru svo stórfeldar, að engin
von væri um, að málið fengi
framgang með Jjeini, eins og' nú
stæðu sakir.
Enn fremur töluðu H. Stpí'.
og Sv. Ól. fjTÍr brtt. þeim, sem
Jjeir háru fram við frv.
Enn fremur urðu nokkur
orðaskifti milli framsögum.
meiri lilutans (B. J.) og Magn-
úsar Jónssonar.
M. J. kvaðst efa Jjað, að mál
þetta næði fram að gauga, ef
enn ætti að skerða þá litlu
tryggnigu, sem væri í sljómar-
frv. Ef Bergur Jónsson héldi að
10 uppbólarsæti væri nóg Jjeg-
ar lilutfallskosningin í tvímenn-
ingskjördæmunum væri ekki
leyfð, lilyti liann að hafa kom-
jst að Jjeirri niðurstöðu, að
framsóknarflokkkurinn væri að
tapa fylgi. Með öðru móii gæti
ályktun hans elcki staðist. Með
hlutfallskosn. i tvímennings-
kjörd. væri enn fremur að
nokkru leyti girt fyrir Jjað, að
flokkur, sem hefði minni hluta
kjósenda að baki séf, vrði bú-
inn að fá meiri liluta þingsæta
áður en til upphótarsætanna
Jjyrfti að taka.
Atkv.gr. um frv. fór á þá leið,
að till. meiri lil. nefndarinnar
var samþ. með öllum atkvæð-
um Framsóknarmanna (15) ó
mpti atkv. sjálfstæðis- og jafn-
aðarinanna og Ásgeirs Ásgeirs-
sonar.
Aðrar till. voru allar feldar,
nema till. jafnaðarm. um lands-
listann og till. sjóbstæðism. um,
að Iáta vera ókveðið í stjórnar-
skránni, hvernig fyrir skuM
komið kosningu uppbótarjjing-
inanna. Þær voru báðar, skv.
ósk forsætisráðh. teknar aftur
til 3. umr.
Frv. var siðan samþykl með
23:3 atkv. Nei sögðu: Jóh. Jós.,
M. J. og P. H., en H. V. og Viba.
Jónss. greiddu ekki atkvæði.
Þrettándakveld
eftir W. Shakespeare hefir veriS
leikið nú í 2 kveld viö ágæta aíe
sókn. — Leikurinn er rááðskeinti-
legur og a'.lur iitbúna'ður ágætur.
— Lkki ætti Jjað að spilla ánægj*
fólks að hinn vinsæli söngvapi
Kristján Kristjánsson syngur
| mjög skemtilega söngva me'ð unitf-
I irleik hljómsveitar frá Tónlista-
skólanum. — Hér að ofan er mynd
af honum í hlutverkinu „Fífliö/.
— Næst verður- leikiö á morgiai
(fimtudag) ,og er vissara fyrír
fólk að tryggja sér aðgöngumiða
í tíma. — * L.
RITVÉLAPAPPÍR, hvítur, gulur, blár, grænn. Margar tegund-
ir. Hvergi ódýrari!
RITVÉLAKALKERPAPPÍK, svartur, blár, fjóluhlár, grænn og
rauður. Sérstaklega ódýr, ef mikið er kevjit i einu.
RITVÉLABÖND, ágæt tegund. Fyrir allar vélar, seni hér eru
notaðar. Hvergi eins ódýr! T. d. að eins kr. 2.00 fyrir Re-
mington Portable.
Hvítur Kalkerpappír i stórum örkuin. Ágæt tegund.
TEIKNIPAPPÍR, vatnsbtapappír, pausjjappír, millinretraijappir.
Stærsta úrval bæjarins (yfir 40 tegundir).
Pappíffs- og pitfangavepsl.
„PENNINN“
Ingólfshvoli. Sími 2354.