Vísir - 17.05.1933, Blaðsíða 3
1.0.0 F.=0MP =115518874
— P.st. = Hrst. = K p.st.
Veðrið í morgun.
Hiti i Reykjavik 9 stig, ísa-
firði 7, Akureyri 9, Seyðisfirði
6, Vestmannaeyj um 7, Stykkis-
hólmi 7, Blönduósi 9, Hólum i
Hornafirði 7, Færeyjum 8,
Julianehaab 11, Jan Mayen —2,
Angmagsalik 6, Hjaltlandi 8,
Tynemputh 8 stig. Mestur lntí
hér í gær 14 stig, minstur 5.
Sólskin 9,6 stundir. Yfirlit:
Hæð fyrir austan land, en víð-
áttumikil lægð suðveslur af Is-
Jandi á hægii lueyfingc norð-
austur eða norður eflir. Horfur:
'Suðvesturland: Allhviss auslan.
Hvuas uiidir Eyjafjöilum. Dálit-
il rigning. Faxaflói: Stinnings
kaldi á austan. Úrkomulaust.
tíreiðafjörður, Vestfirðir: Aust-
an gola og bjartviðri i dag, en
kaldi og þyknar upp í nóti.
Nor ðuríand, norðausturland,
Auslfirðir: Suðaustan goia.
Víðast bjartviðri. Suðaustur-
land: Suðaustan kaldi. Dálitil
rigning.
75 ára
er i dag frú Þóra Magnússon.
Silfurbrúðkaupsdag
áttu í gær, 16. maí, frú Ingfi-
biörg' Kristjánsdóttir og' Valdi-
mar J. Jónsson frá Nýjabæ, Póst-
hússtræti 15.
Hjónaefni.
SíSastl. laugardag birtu trúlof-
un sína ungfrú Lára Agústsdóttir,
Ingólfsstræti 3, og Óskar Gísla-
.son, sjómaður, Vestmarmaeyjum.
Kvenstúdentafélag íslands
heldur aðalfund i Þingholts-
stræti 18, Íd. 8*4 í kveld. Á dag-
skrá eru venjuleg aðalfundar-
-störf og Dýrleif Árnadóttir flvt-
ur eríndi um rússneskar konur.
Dómur
var uppkveSinn i aukarétti
Reykjavíkur í gær, í niáli því, er
réttvísin höfðaði út af óspektum
þeim, sem urðu hér í bæ 7. júlí og
-9. nóv. fyrra árs i sainbandi við
fundi bæjarstjórnar. Rannsóknar-
•dómari í þessum málum var skip-
;aður Kristján Kristjánsson full-
trúi, og kvað hann upp dóminn.
Af hinum ákærðu voru þrír sýkn-
aðir. 25 fengu skilorðsbundinn
fangelsisdóm og 3 fangelsisdótn
án skilorðs. Þeir Sigurður Ólafs-
son, Sigurjón A. Ólafsson og Torfi
Þorbjörnsson voru sýknaðir. Skil-
■orðsbundinn fangelsisdóm fengju
(fangelsi við venjulegt fangavið-
tirværi) : Erlingur Klemensson 90
<jaga, Guðni Guðmundsson 3 mán.
Jeinf. fangelsi), Adolf Petersen,
'Gunnar Benediktsson, Halldór
Kristmundsson og Héðinn Valdi-
marssou 60 daga fangelsi við
venjulegt fangaviðurværi. Stefán
Pétursson 45 daga, Jens Figved
40 daga, Brynjólfur Bjarnason 35
daga, Hjalti Árnason, Sigurður
Guðnason, Jafet Ottósson, Guðjón
Einarsson og Þóroddur Þórodds-
sn 30 daga hver. Einar Olgeirs-
son 25 daga. Haraldur Knudsen,
Hjörtur B. Helgason, Matthías
Guöbjartsson, Runólfur Sigurðs-
son 30 daga hver. Einar Olgeirs-
20 daga, Indiana Garibaldadóttir,
Jón Guðjónsson og Kristinn Árna-
son 10 daga. Ólafur Sigurðsson 5
daga. Hegning framantaldra
manna fellur niður eftir 5 ár frá
t'.ppsögn dómsins,ef hinir dótnfeldu
verða eigi sekir um lagabrot á
ný. — Fangelsisdóm án skilorös
fengu þeir Guðjón Benediktsson
■og Þorsteinn Pétursson, 90 daga
fangelsi hvor, við venjulegt fanga-
viðurværi, og Haukur Bjömsson
60 daga við venjulegt fangaviður-
væri.
Söngskemtun
Gunnars Pálssonar er í Iðnó
í kveld og hefst kl. 9. A söng-
skránni em erlend og innlend
lög. M. a. syngur G. P. lög eftir
Verdi, tíoltm, Sjöberg og Leon-
cavallo. Islensku lögin á söng-
skránni eru þessi: Stjárna
stjörnum fegrí (S. Þórðarson),
Augun bláú (S. Einarsson),
Ingjaldur í skinnfeldi (Arni
Thorsteinson), Draumur lijarð-
sveinsins (S. Kaldalóns) og
Kveðja (Þ. Guðmundsson).
Gunnar Pálsson ltefir fengið
ágæta dóma hér á landi og er-
lendis fyrir söng siun og verð-
ur væntanlega góð aðsókn að
söngskemtun hans.
Skólasýning.
Eins og að undanförnu hafði
ísak Jónsson kennari einka-
skólu i vetur fyrir smábörn a
aldrinum 5—7 ára, og miinu
það hafa verið yngstu skóla-
nemendur á íslandi s. I. vctur.
Siðastliðinn sunnudag bafði ís-
ak sýningu i Grænuborg á vetr-
arvinnu þessara bama; var þar
margt nýtt og merkilegt að sjá,
margt, sem mun vera alveg nýtt
í sögu islenskra barnaskóla.
Sumt af því hefir ísak sjálfur
tekið upp eftir eigin reynslu,
sumt eru erlendar nýungar,
sem ltann befir breytt og snið-
ið eftir íslenskum staðbáttum.
Öll bar sýningin ótviræðan vott
uín það, hve þessi kennari
þekkir vel barnseðlið og kann
vel að samræma leik og starf
við námið hjá hinum ungu
nentendum sínum svo að það
beri árangur. Hér verður sýn-
ingunni ekki lýst nánara, en eg
vil að eins lýsa ánægju minni
yfir því, sem þar var að sjá, og
er gott til þess að vita að kenn-
aranemar hafa i vetur baft að-
gang að þessum skóla til að
læra sntábarnakenslu ltjá þess-
um áhugamanni. Er það i fyrsta
sinn, sem kennaranetnar hafa
átt kost á svo fullkotnmni æf-
ingu i smábamakenslu og tekið
sérpróf i henni. Um 30 kennarar
luku prófi i vor, sem allir lærðu
ltjá Isak og með þeim berst að-
ferð hans og nýungar viðsveg-
ar um landið og er það vel far-
ið. — Þökk fyrir sýninguna
ísak! Starfið þér ótrauður þótt
eitthvað blási á móti.
15. maí 1933.
Sýningargestur.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss fór frá Kaupinanna-
liöfn í gærmorgun. Goðafoss er
i Ilamlxirg. Brúarfoss var í
Stykkishólmi i morgun. Selfoss
fer frá Antwerpen annað kveld.
Dettifoss fer vestur og norður
i kveld. Lagarfoss er i Kaup-
mannahöfn.
Bethanía.
Saumafundui'inn á morgun. 18.
maí, veröur- á Laugaveg 36. Utan-
félagskonur eru líka velkonmar.
Gengið í dag.
Sterlingspund .... kr. 22.15
Dollar ..............— 5.64
100 ríkismörk þýsk. — 151.33
— frankar, frakkn — 25.94
— belgur...........— 91.52
— frankar, svissn.. — 127.02
— lírur ...........— 34.22
— mörk, finsk .. . — 9.80
— pesetar .........— 56.46
— gyllini......... — 264.55
— tékkósl. kr. ... — 19.72
— sænskar kr. ... — 114.15
— norskar lcr. ... — 112.57
— danskar kr. ... — 100.00
VISIR
Utvarpið.
10,00 Veðuríregnir.
12,10 Hádegisútvarp. —
Þingfréttir.
16,00 Veðurfregnir.
19,15 Grammófóntónleikar.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Tilkynuingar. Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur.
Fréttlr.
20.30 Háskólafyrirlestur.
(Arni Pálsson).
Taf lilaup.
—o---
Nú á seinni árum eru ísjend-
ingar farnir að iðka ýmiskonar
íþróttir, en af skiljaulegum
ástæðum bafa þeir orðið að
sadtja þá þekkingu til nágranna-
þjóðanna okkar, en imi leið má
hiklaust geta þess, að þeim hef-
ir gengið vel að nema íþróttirn-
ar og sýnt, að þeir eru síst eftir-
bátar annara þjóða hvað
hraustleika, mýkt og snarræði
við kemur, i þvi scm þeir liafa
numið. En liinn mikli hraði,
sem nú er orðinn á öllu heimt-
ar fjölhreytni í íþróttum sem
öðru. Þa?> sjá aðrar þjóðir, enda
hafa þær tekið hestana i sína
þjónustu og leika á þeim ýmis-
konar listir.
Við íslendingai- gerum enn
litið að því, liöldum í þvi efni
að eins áfram með að jx'nja
hestana okkar áfram á þeim
gangtegundum, sem þeir vilja
ganga; þó er nú i ráði, að
Heslamannafélagið Fákur fái
menn til að sýna list hesta i að
lilaupa yfir „töT‘ á næstu kapp-
reiðum á anuan í hvítasunnu.
En þar sem Jxssi list er flestum
hér ókunn, vil eg með eftirfar-
andi hnum kynna þeim mönn-
um, sem þessa list ætla að leika,
nokkuð af aðferðum þeim, er
Englendingar nota þá þeir eru
að kenna hestum sínum að
stökkva yfir garða og girðing-
ar, og styðst cg aðallega við bók
eftir M. F. McTaggart, „Tlxe
horse and his schooling“. I bók
þessari eru margar myndir, sem
sýna „töfin“, og livernig maður
og hestur hagai’ sér við þá
íþrótt, cn þvi miður liefi eg
eigi tækifæri til að láta þær
fylgja þessum skrifum mínum,
sem ' Jxi væri æskilegt, og
mundu þær betur geta fært
mönnum heiin sanninn í ]>ess-
ari iþrótt en eg get gert í fá-
orðri blaðagrein.
Þegar byrjað er að kenna
Iiesti að lilaupa yfir grindur,
garða, skurði eður önnur „töf“,
verður það að gerast’ reglulega,
og gæta verður þcss, að láta
„töfin“ ekki vera of liá til að
byrja með svo liesturinn liræð-
ist ekki lilaupið, því ef liann
hræðist það má búast við, að
hann fyrtist og getur þá orðið
erfitt að eiga við hann á eftir
Það verður því að leggja
áherslu á að fá hestinn til að
stökkva léltilega jTir lágu „töf-
in“ áður en þau eru til muna
hækkuð, en í þessu efni verður
skarpskygni reiðmannsins að
koma til greina, hann á að geta
fundið livað bjóða má hestin-
um, að öðrum kosti er hann
ekki starfinu vaxinn.
I „taflilaupi“ á að hafa stutt.
í ístöðum, því reiðmaðurinn á
að lyfta sér upp um léið og hest-
urinn hefur sig upp, en láta sig
falla niður i hnakkinn um leið
og hesturinn kemur aftur niður.
Styðja ber við tauminn, en gæta
þó þess, að sá sfuðningur tefji
ekki hestinn á stökkinu. Falleg-
ust stökk mimu best nást með
Hevlebænke
haves paa Lager i alle StörreJ-
ser, til bilhgste Priser i Dan-
mark. Katalog tilsendes gratis.
H. Jensen Trævarefabrik, Tlf.
1370. Svendborg, Danmark.
þvi, að hafa „töfin“ nokkuð
breið en ekki há, enda leiðir af
sjálfu sér, að ef hestur á að
stökkva yfir breitt „taf“ þá
verður hami að stökkva hátt ef
hann á ekki að lenda á „tafinu“,
gæta verður þess, að völlurinn,
sem notaður er til æfinganna sé
ekki of harður né of linur og
umfram alt ekki sleipur.
Eg efast ekki um, að takast
megi að kenna islensku hestun-
um að stökkva yfir, þeir eru
liðugir og léttir á sér, og takist
að lcenua þeim ]>essa íþrótt má
hiklaust kenna þeim fleira, og
miðar það að bættum sölu-
möguleikum þeirra.
Dan. Daníelsson.
Sorpbreinsnn.
Eg- hefi lesið þaö í dagblöðun-
um, aS lögreglustjóri skorar á hús-
eigendur a'S girða lóöir sínar og
hreinsa. En mér er spurn. hvað
þýðir aö hreinsa lóöir og bera í
hrúgur og hauga, þegar ekki er
hægt að losna við það fyr en eft-
ir langan tíma, hálfan mánuð eða
jafnvel lengri tíma, eins og nú á
sér stað? Því hreinsunin er nú í
svo mik.lu ólagi sem frekast getur
verið. Mér dettur ekki i hug að
að áfella þá menn sem við það eru,
eg fæ ekki betur séð en þeir vinni
með trúmensku. En þetta er orðið
alt of mikið verk fyrir ekki fleiri
menn. Eins og allir vita, hefir bær-
,inn stækkað mjög mikið í rúm
fjórtán ár, sem eru liðln síðan
húseigendum var bannað að
hreinsa sjálfir eða sjá um hreins-
un, en menn ekki fleiri nú en þá,
að sögn þeirra sem hreinsa og
eg hefi talað við. Hvernig stendur
á þessu? Er svo mikil vinna nú,
að ekki sé hægt að fá menn til að
vinna þetta verk?1 Mér finst það
satt að segja mjög ótrúlegt. Eg
vil þvi skora á borgarstjóra að
ráða bót á þessu sleifarlagi, og
það sem fyrst, sem nú er á hreins-
uninni, að heita má alt árið, fyrst
heilbrigðisfulltrúinn, sem mér
skilst að eigi að líta eftir þrifnaði
í bænum, annað hvort sér ekki
jiörfina á að hreinsa oftar, eða hef-
ir ekki framkvæmdarvald til að
láta gera það. Eg sé ekki að það
sé hægt með öðru móti, en að
fjölga mönnum, og það nú þegar,
og hafa svo marga aö það verði
iireinsað, að minsta kosti viku-
lega í sumar, meðan hita- og
maðkatíminn er. Það er mjög
ógeðslegt að sjá maðkiim skríða
upp um öll ílát, bæði utan og inn-
an og alt í kring, eins1 og átt hefir
sér stað undan farin sumur. Mér
finst líka að bæjarbúar eigi fulla
lieimtingai á því, að það séu hafðir
svo margir menn við þetta verk,
að hreinsunin sé í lagi, en ekki
verri en þegar húseigendur sáu
um það sjálfir. Gjöldin eru líka
svo mikil af húsunum aö þau
þorga fyllilega kostnaðinn þó
mönnurn sé fjölgað, enda heil-
brigðara að láta vinnufúsa og full-
fríska memi, sem verða að sækja
sinn lífeyri í bæjarsjóð, vinna fyr-
ir honum ekki síst þegar um jafn-
nauðsynlegt verk er að ræða og
þetta er að mínu áliti.
Húseigandi.
N orskar
loftskeytafregnir.
Osló, 10. maí.
NRP. - FB.
Einn af kunnustu húsameist-
urum i Osló, Victor Nordan, er
látinn, 71 árs að aldri. Ullevaal
sjúkrahús, Björgvinjar sjúkra-
hús og fleiri stórbyggingar voru
reistar að lians fyrirsögn.
Til hlaðanna í Osló er sím-
að frá Bretlandi, að húist sé
við, að viðskiftasamningar
Breta og Norðmanna verði und-
irskrifaðir næstkomandi mánu-
dag. Blaðið Daily Telegraph get-
nr um, að útgerðarmenn séu
ánægðir með samningana, en af
þeirn leiði, að örugt verði að
innflutningur fiskjar frá Nofegi
ininki um sem svarar 10% af
meðal-innflutningi síðustu
þriggja ára. I tilefni al' þessu
segir norska blaðið Sjöfartstid-
ende, að Norðmenn geti tæplega
tekið þátt í ánægju Breta, þeg-
ar tekið sé tillit til þess, að út-
flutningur á ferskum fiski frá
Noregi til Bretlands eigi að
binda við meðaltal þriggja ára*
sem hafi verið að meira og
minna leyti óhagslæð, og því
næst eigi að draga 10% þar frá.
Samkvæml þessu verður út-
flutningur Norðmanna á fersk-
um fiski til Bretlands að eins
um 12.000 smálestir.
Skólaskipið Sörlandet var i
gær miðja vega milli Noregs og'
Ameriku.
Hvalveiðavertíðin er nú löngu
um garð gengin á suðurhafa-
miðunum og eru að eins fá
bræðsluskip ókomin til Noregs.
Veiðin á vertiðinni nam 2.458.-
260 fötum af hvallýsi, þai- af
1.110.660 föt af norskum skip-
urn.
Oslo, 16. mai.
NRP. - FE.
E.s. Bergensfjord kom i gær tii
Oslo með 32. miíj. króna í gulli
frá New York til Noregsbanka.
Á þjóðhátíðardegi Norðmamia
á morg-un verður afhjúpað lík-
neski af P. A. Munch fyrý- frama*
háskólann.
Fyrrverandi sendiherra Wedei
Jarlsberg gaf Stórþinginu skýrslu
um Grænlandsmálið í dag, á fundi,
sem haldinn var fyrir luktunt
dyrum. Skýrslan var aðallega uim
samningaumleitanir við Dani uni
sættir.
Hiö víðkunna ferðamannagisti-
hús Viktoria á Holmenkollen
brann til kaldra kola í nótt. Hásið
var vátrygt fyrir 106.000 kr.
Frá New York er símað, að tih
kynt hafi verið opinberlega, aá
Roosevelt forseti ætli að halda
ræðu, sennilega á miðvikudag, um
afstöðu Bandarikjanna til friðar-
mála Evrópu og öryggismálanna.
Vitað er, að forsetinn ætlar að
koma því til leiðar með ræðu
sinni, að Bandaríkin gangi fremst
í fylkingu til þess að leiða af-
vopnunarmálin, öryggiskröfurnar
og viðskiftaviöreisnina til farsælla
lykta. Fullyrt er i stjórnardeild-
unum, að það, sem forsetinn leggi
til ]>essara mála í ræðu sinni, muni
vekja alheimsathygli, m. a. muni
liann Ixra fram tillögur sem
væntanlega komi í veg fyrir, að
Starf afvopnunarráðstefnunnar
fari út um ]>úfur og geri það ör-
ugt, að góður árangur náist á við-
skiftamálaráðstefnunni.
Gengi: London 19.70, Hantborg
135.50, París 23.10, Brússel 82.00.
Amsterdam 235.50, New York
5.03, Ztirich 113.50, Stokkliólmur
101.75, Kaupmannahöfn 88.25.
Helsingfors 8.75, Prag 17.60,
Varsjá 67.00.