Vísir - 17.06.1933, Blaðsíða 2
Höfum fyrirliggjandi: •
w| Coats, 6-þættan.
A w lllfi Kerrs 4. þættan
Gæðin óviðjafnanleg — verðið lágt.
Alfitnglskosnlagarnar.
Ný framboð
af hálfu Sjálfstæðisflokksins.
—0—
í Suður-Þingeyjarsýslu: Kári
Arngrímsson, bóndi.
í Norður-Þingeyjarsýslu: Júl-
íus Havsteen, sýslumaður.
í Austur-Húnavatnssýslu: Jón
Pálmason, bóndi.
1 Vestur-Húnavatnssýslu: —
Þórarinn Jónsson, l>óndi.
í Vestur-ísafjarðarsýslu: —
Guðm. Benediktsson, bæjar-
gjaldkeri.
Bálstofan.
Á siðasta bæjarstjórnarfundi
svaraði borgarstjóri fyrirspurn
frá Ágústi Jósefssyni mn það,
hvað liði bálstofumálinu.
Borgarstjóri skjæði frá því,
að framkvæmdir i þvi máli væri
strandaðar í bili. Ivvaðst hann
hafa tekið málið upp til atliug-
unar, skömmu eftir að liann
tók við borgarstjóraembættinu,
og byggist hann við, að full-
nægjandi bálstofu fjrir bæinn
mætti koma upp fyrir um 100
þús. krónur. Ráðgert liefði
verið, að fé mundi fást til þess
hjá danska likbrenslufélaginu
með sérlega góðum kjörum, og
hefði liann þvi snúið sér til for-
manns þess félags og spurst
fyrir uin það, hvort það mundi
vilja lána bænum féð, ef þess
yrði leitað. En svarið liefði,
mót vonum, orðið neitandi,
þannig, að meiri bluti félags-
stjórnarinnar liefði að vísu
viljað veita lánið, en sam-
kvæmt lögum félagsins mætti
stjómin þvi að eins veita slíkt
lán, að „aukinn“ meiri liluti
stjórnarinnar yrði því sam-
þykkur, en sá aukni meirihluti
hefði ekki fengist.
Kvað borgarstjóri þessi úr-
slit hafa orðið mikil vonbrigði
þeim mönnum, sem um málið
hefðu fjallað áður, og talið
höfðu vist, að slíkri málaleitun
mundi verða vel tekið, og
nefndi hann í þvi sambandi
formann þessa danska félags
og Svein Björnsson sendilierra.
Og ef til vill væri ekki með
öllu vonlaust um, að úr þessu
greiddist, því að ekki hefði enn
verið endurseud skjöl, er send
hefðu verið formanni félagsins.
Kvaðst borgarsljóri að lokum
mundu kynna sér betur ýmis-
legt í sambandi við málið í
væntaulegri utanför sinni í
sumar.
Umræður urðu nokkurar um
málið á bæjarstjórnarfundin-
um, og tóku til máls auk borg-
arstjóra: Ágúst Jósefsson, Ólaf-
ur Friðriksson og M. Júl. Magn-
ús, sem bar fram eftirfarandi
tillögu:
„Bæjarstjómin felur borgar-
stjóra að lialda áfram tilraun-
um til að fá hagfelt lán til bál-
stofubyggingar, hjá þeim er-
lendu félögum, er til mála hefir
komið, að lánuðu fé, og óskar
að nákvæm lcostnaðaráætlun
verði gerð um bálstofubyggingu
og að málið verði siðan lagt
aftur fyrir bæjarstjórn, ekki
síðar en svo, að málið verði tek-
ið fyrir áður en næsta fjárliags-
áætlun verður samin.“
Var tillaga þessi samþykt
með 9 samhljóða atkvæðum.
Símskeyti
—o---
London, 15. júní.
United Press. - FB.
Aukakosning í Bretlandi.
Aukakosning licfir farið fram
í Altringham, Cheshire. íhalds-
frambjóðandinn, Sir Edward
Grigg, bar sigur úr býtum.
Hlaut liann 25,392 atlcvæði. P.
M. Oliver, frjálslyndur, lilaut
15,892 atkv., J. H. Hudson, jafn-
aðarm., hlaut 8,333 atkvæði. —
Aukakosningin fór fram vegna
}>ess, að fráfarandi þingmaður,
Cyril Atkinson, var skipaður
dómari.
Ivliabarovsk, 15. júni.
United Press. - FB.
Hnattflugið.
Mattem lagði af stað héðan
kl. 5,30 i morgun.
London, 15. júní.
United Press. - FB.
Samkomulag um verðfestingu
dollars og stertingspunds.
Tilkvnt hefir verið, að Bret-
land og Bandaríkin hafi náð
samkomulagi í aðalatriðum um
verðfestingu dollars og sterl-
ingspunds, einnig gagnvart
frankanum, en skoðanamunur
sé enn um mikilváeg einstök
atriði milil þcirra Roosevelts og
Chamberlain, sem nauðsynlegt
sé að fá fullnaðarsamkomulag
um.
London, 16. júni.
United Press. - FB.
Skuldamál Þjóðvérja.
Þeir lánveitendur Þjóðverja,
sem hafa veitt þeim lán til
skamms tíma, liafa falhst á
nýtt samkomulag, að því er
snertir lán, sem falla í gjald-
daga frá 1. júlí til 28. febrúar
1934, en til þess tíma er sam-
komulagið í gildi. Heildarupp-
liæð lána þcirra, sem liér um
ræðir, er 80 miljónir ríkis-
marka, og falla lánveitendurnir
frá fyrri kröfum um endur-
greiðslur á þessu tímabili, en
vextir lækka úr í 4^4%.
Skemtiferðin.
—o—
Kvennadeikl Slysavarnafélags
Island efnir til skemtiferSar á
morgun kl. i e. h. Er í rá'Si a'ð
íari'S veröi inn í Kollafjörö. Þarf
enginn aö efa, aö hér er góð
skemtun í boöi. Skipstjóra og skip
þekkja allir aö góðu og þarf ekki
aö maela meö hljómsveit og hljóm-
stjóra, sem skemta á leiðinni. Veö-
urhorfur ent ágætar. Hvers skyldi
tnenn fyekar þurfa en.að lyfta sér
V 1 S 1R
upp núna i góða veðrinu, eftir alla
molluna aö undanförnu? En ekki
er þó minst um það vert, að menn
styrkja meö því hið mesta þarfa-
mál, að fara í þessa skemtiferð.
Það er mikil og brýn nauðsyn, að
koma slysavörnunum við Faxa-
ilóa í betra horf. Er í ráði að
kaupa björgunarskútu til þess,
undir eins og nægilegt fé er fyrir
hendi. Með því að taka þátt í
skemtiferöinni leggja menn fram
drjúgan skerf til þess, að miklu
nauðsynjamáli verði hrundið í
framkvæmd. R.
Úprf hræðsla.
Síðasta blað „Tímans“ ber
þvi órækt vitni, að þeir sem það
blað hafa skrifað, muni vera
meira en litið hræddir um þess-
ar mundir. Má svo að orði
kveða, að óstjórnleg hræðsla
skíni út úr hverri línu og skilja
menn ekkert í þessum ósköp-
um.
Og við hvað eru mennirnir
hræddir?
Það mun nú þykja ótrúlegt,
en satt er það samt, að þeir
ei*u hræddir við Þjóðemissinn-
ana. Þeir sjá voðann i öllum
áttum, og þeim hefir jafnvel
hejTst einhver vera að hafa orð
á því, að nauðsynlegl væri, að
„ryðja“ einhverjum Thnamönn-
um „úr vegi!“
Þetta er vafalaust misheym.
— Eins og nokkrum heilvita
manni detti i liug, að fara að
„ryðja úr vegi“ þeim átta mönn-
um, sem upp eru taldir í „Tím-
anum“! — Nei, eg held nú sið-
ur! Það er einmitt ágætt og til-
valið, að liafa þá alla saman
sem lengst i þessum synduga
heimi. Og sumir þeirra munu
reynast allra manna liðtækastir
i því, að lama þann flokk, sem
þeir þykjast vera að vinna fyr-
ir. Það væri dáindis-laglegt, að
fara að „ryðja“ svoleiðis per-
sónum „úr vegi“!
Nei — átímenningarnir þurfa
ekki að vera hræddir um það,
að nokkur maður hafi hug á
því, að stjaka við þeim eða
„ryðja“ þeim „úr vegi“. Hitt er
ekki fortakandi, að bændurnir
kunni að „ryðja“ þeim eitthvað
til liliðar, svona við tækifæri.
Átlmenningunum er áreiðan-
lega óhætl að fara allra sinna
ferða fyrir Reykvíkingum.
Bæjarbúum þykir bara gaman
að þeim. — „Hreyfingar“-
mennirnir láta þá vafalaust af-
skiftalausa. Það væri þá kann-
ske helst það, að þeir færi eitt-
hvað að lirella þá éða stríða
þeini, ef þeir sæi á þeim hræðsl-
una og flóttasvipinn.
Eg get hugsað mér, að þessi
stöðuga hræðsla „taki upp á
taugamar og sansana“, eins og
kerlingin sagði. Það hlýtur að
vera annað en gaman, að vera
alt af „með lífið í lúkunum“ og
þora varla um þvert hús eða
þvera götu að ganga í sjálfum
sólmánuði ársins.
Verið óhræddir, piltar!
„Hreyfingarmennirnir“ lála
ykkur í friði — það er áreiðan-
legt. — Menn mega ekki af ykk-
ur sjá og enginn vill missa ykk-
ur, fvrr en þið eruð búnir að
drepa Framsóknarflokkinn. —
Við vitum að þið eruð að því
og viljum lofá ykkur að „naga
stoðirnar“ i friði.
12. júní.
Gangleri.
ÁstandiS f Anstnrrfki.
Eins og kunnugt er á stjórn-
in i Austurriki við mikla erfið-
leika að stríða. Að visu hefir
stjórninni orðið allmikið á-
gengt með að rétta við slæman
f járhag landsins, en hún er ekki
traust í sessi. Andstæðingar
liennar eru fjölmennir og öfl-
ugir, en enga þeirra óttast
stjómin svo mjög sem Þjóð-
ernisjafnaðarmenn, er fá nú
mikinn stuðning frá skoðana-
bræðrum sínum í Þýskalandi.
Samkvæmt fregnum, sem birt-
ar voru í erlendum blöðum 6.
júní, er augljóst, að austurríska
stjórnin gerir ráð fyrir því, að
til þess kunni að koma, að
flokkar þjóðernisjafnaðar-
manna frá Þýskalandi geri inn-
rás i landið, til }>ess að veita
austurrískum þjóðernis j af nað-
armönnum lið. Hefir þvi verið
sent heimwehr-lið, voj>nað riffl-
um og vélbyssum, til ýmissa
staða við landamærin. Áður en
heimwehr-menn fóru lil landa-
mæranna, unnu þeir eið að þvi,
að vera trúir föðurlandi sínu.
Ríkisstjórinn i Tvrol, dr.
Stumpl', ávarpaði liðið, og sagði
m. a„ að rikisstjórnin reiddi sig
á, að þeir myndi verja föður-
landið fyrir yfirvofandi liættu.
Rikisstjórnin er staðráðin i að
bæla niður allar óeirðir, sem
þjóðernisjafnaðarmenn stofna
til. — Kanslarinn, Dollfuss, var
í byrjun mánaðarins i Róma-
borg og átti þar tal við konung-
inn í Ítalíu, páfann og Musso-
lini. Lét liann i ljós mikla
ánægju yfir viðtökuuum hjá
þeim, en eins og kunnugt er
veltur það á mjög miklu, á með-
an sambúð Austurrikismanna
og Þjóðverja er slæm, að þeir
eigi vingott við ítali.
Dánarfregn.
Jón Kristbjörnsson, markvörð-
ur Vals, sem slasaðist á íþrótta-
vellinum íyrir skömmu andaðist í
nótí;
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 10, síra
Bjarni Jónsson.
I fríkirkjunni i Reykjavik kl.
10, síra Ámi Sigurðsson.
í fríkirkjunni i Hafnarfirði
kl. 2, síra Jón Auðuns.
Doktorsritgerð
sína um Njálu varði Einar Olaf-
ur Sveinsson i Háskólanunr í gær.
Andmælendur hans voru þeir dr.
Sigurður Nordal prófessor og
Árni Pálsson prófessor. Fóru þeir
báðir miklum lofsorðum um rit-
gerðina og kvað dr. S. N. svo að
orði, að Háskólanum væri hinn
mesti sómi að því að veita doktors-
nafnbót fyrir svo ágætt verk.
Fimtug
er í dag frú Guðríður Páls-
dóttir, Brávallagötu 8.
Hjúskapur.
Gefin verða saman í hjónaband i
dag ungfrú Rannveig Ásgríms-
dóttir og Sigfús Kolbeinsson,
skipstjóri. Heimili þeirra verður á
Sjafnargötu io.
S. 1. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband af síra Áma Sig-
urðssyni ungfrú Bjarnheiður Sig-
uiðardóttir og Steingrímur Sveins-
son, Grettisgötu 8.
Rúðugler.
Hamrað gler, Munstrað gler,
og 5 mm gler nýkomið. Verðið
mikið lækkað. Leitið tilboða.
VERSL. B. H. BJARNASON.
Laxa og
siInngsveiðiáhOld
af öllu tagi, þ. á m. góðar sii-
ungastangir, frá kr. 4.50.
VERSL. B. H. RJARNASON.
Háskólarektor
fvrir háskólaárið frá 1. októ-
ber 1933—-1. október 1934, var
Alexander Jóhannesson prófess-
or endurkosinn í morgun, á
sameiginlegum fimdi allra bá-
skólakennara.
Max Pemberton
kom inn í gær með 48 tn. og
hættir nú veiðuin.
E.s. Suðurland
kom frá Borgarnesi i gærkveldi.
E.s. Gullfoss
er væntanlegur liingað í kveld
frá útlöndnm.
E.s. Brúarfoss
fór héðan í gærkveldi áleiðis til
útlanda. Á meðal farþega voru:
Kristinn Armannsson, Þorvaldur
Hlíðdal, Ólafur Þorsteinsson lækn-
ir og frú, frú Hlín Þorsteinsdóttir,
ungfrú Flavie Broberg, frú Yvonae
Albertsson, Lára L. Thorberg»
Inga Mortensen, Inga Erlends-
dóttir, Björg Jakobsdóttir, F.iríkur
Benedikz, Fr. Nathan o. m. fl.
E.s. Dusken
fór héðan í gærkveldi áleiðis til
utlanda með lýsisfarm.
G.s. ísland
fór héðan í gærkveldi áleiðis
vestur og norður.
Sæbimi Magnússyni
liefir verið veitt héraðslækn-
isembættið í Hes tcyrarhéraði
frá 1. þ. 111. að telja.
Framsóknarflokkurinn
hefir Bjarna Ásgeirsson í kjöri
i Mýrasýslu, Björn Kristjánsso*
■ Norður-Þingeyjarsýslu, Halldór
Stefánsson og Pál Hermannsson í
Norður-Múlasýslu, Ingvar Pálma-
son i Suður-Múlasýslu, Ingólf
Bjarnarson í Suður-Þingeyjar-
sýslu, Pál Zóphoniasson og Svein-
bjöm Högnason í Rangárvalla-
sýslu, Hannes Jónsson i Snæfells-
ness og Hnappadalssýslu, Þorstei*
Briem í Dalasýslu, Guðmund ÓI-
afsson í Austur-Húnavatnssýslu,
Iiannes Jónsson í Vestur-Húna-
vatnssýslu, Klemens Jónsson í
Gullbringu- og Kjósarsýslu, Lárus
Helgason í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Heyrst hefir, að Arthur
Guðmundsson, sem er framsóknar-
maður, hafi neitað að draga sig í
hlé, og reynist það rétt verða tveir
íramsóknarmenn í kjöri í Snæ-
fellsness og Hnappadalssýslu.
Kommúnistar
ætla að liafa franibjóðendur í
kjöri allvíða í þingkosningun-
um 16. 11. m. Á lista þeirra hér
í Reykjavík cru þeir Brynjólfur
Bjarnason,, Guðjón Benedikts-
son, Stefán Pétursson og Guð-
brandur Gúðmundsson. — Utan
Reykjavíkur liafa kommúnist-
ar þessa frambjóðendur í
kjöri: í Vestmannaeyjum ísleif
Högnason. Hafnarfirði: Björa
Bjarnason. Gullbringu- og
Kjósarsýslu: Hjört Helgason.
Mýrasýslu: Mattlúas Guð-
]>j örnsson. Barðastrandarsýslu-: