Vísir - 17.06.1933, Side 3
BifreiðastSðin HEKLA
hefir ávalt til leigu fimm manna drossíur í bæjarkeyrslu og
lengri ferðir. Hvergi sanngjarnara verð. — Ef ykkur vantar
bil, þá hringið i sima 1515 og 2500.
Andrés Straumland. Vestur-
Húnavatnssýslu: Ingólf Gunn-
laugsson. Austur-Húnavatns-
sýslu: Erling' Ellingsen. Skaga-
firði: Elísabetu Eiríksdóltur og
Pétur Laxdal. Eyjafjarðar-
sýslu: Gunnar Jóhannsson og
Steingrím Aðalsteinsson. Suður-
Þingevjarsýslu: Aðalhjörn Pét-
ursson. Suður-Múlasýslu: Jens
Figved og Arnfinn Jónsson.
Árnessýslu: Hauk Bjöi'nsson og
Magnús Magnússon. Akureyri:
Einar Olgeirsson. Norður-Múla-
sýslu: Gunnar Benediktsson. Á
ísafirði: Jón Rafnsson.
Jíýja Bíó
sýnir í kveld kvikm. „Dáleiöar-
inn Chandu“. Vekur hún mikla eft-
irtekt.
Gamla Bíó
sýnir í kveld kvikmyndina
„Nautnir“. Aðalhlutverk leika
Norma Sliearer og Lionel Barrv--
more. — Kvikmynd þessi hefir
hlotið mikið lof erlendis. Y.
Innflutningurinn.
Samkvæmt tilkynningu fjár-
málaráöuneytisins, dagsettri þ. 15.
júní, nam innflutningurinn í mai-
mánuöi síðastlíönum kr. 3.085.-
700.00, þar af var innflutt til
Reykjavíkur fyrir kr. 1.588.668.00.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 4.—10. júní
(í svigum tölur næstu viku á und-
an): Hálsbólga 58 (15). Kvefsótt
101 (31). Kveflungnabólga 5 (2).
Gigtsótt 2 (1). Iöralcv'ef 39 (2).
Inflúensa o (o). Taksótt o (1).
Ratiðir hundar o (1), Hlaupa-
"böla 15 (o). Munnangur 3 (ii).
Þrimlasótt 1 (3). Heimakoma o
(1). Mannslát 6 (6). Landlæknis-
skrifstofan. (FB.).
Farsóttartilfelli í maí
voru, að þvi er hermt er
i mánaðarskýrslu landlæknisskrif-
stofunnar 2356 talsins, þar af í
Reykjavik 792, á Suðurlandi 632,
Vesturlandi 375, Norðurlandi 224
•og Austurlandi 333. Inflúensutil-
feflin voru flest eða 942 talsins,
kvefsóttar 684, kverkabólgu 383,
íðrakvefs 163, kveflungnabólgu 42,
hlaupabólu 29, blóðsóttar 22, tak-
sóttar 19, skarlatssóttar 16, murnx-
arigurs 14, syefnsýkis 11 (þar af 3
i Reykjavík) o. s. frv. Mænusótt-
artilfelli var aðeins 1 í mánuðin-
um og taugaveikistilfelli 1. (FB.).
Kennaraþingið
verður sett á mánudagskveld kl.
•S í Iðnó uppi.
í dag og á morguh
verða seldar á götunum og
Iþrótiavellinum laglegar nælur
með I.S.I.-merkinu, til ágóða
fyrir íþróttastarfsemina í land-
inu. Væntir stjórn I. S. I. þess,
að íþróttðvinir kaupi þessar
aiælur.
Gengið í dag.
Sterlingspund ..... kr. 22.15
Bollar .............— 5.50*%
100 ríkismörk þýsk. —- 155.36
— frankar, frakkn — 25.86
— belgur............— 91.50
— frankar, svissn.. — 126.54
— lírur ............— 34.35
— mörk, finsk ... — 9.82
— pesetar .........— 56.11
— gyllini...........— 263.30
— tékkósl. kr. ... — 19.64
— sænskar kr. ... — 114.11
— norskar kr. ... — 112.23
— danskar kr. ... — 100.00
Sambandsþing
kristniboðsfélaganna hefst á
sunnudaginn 18. þ. m. kl. 3)4 síðd.
i samkomuhúsinu Betania á Lauf-
ásveg 13 hér í bænum. Allir með-
limir kristniboðsfélaganna og ann-
ara kristilegra félaga eru velkomn-
ir meöan húsrúm leyfir. — Síra
Gunnar Árnason frá Æsustöðum
flyrtur erindi í dómkirkjunni kl. 8
(ekki. kl. 8)4). Allir þar vel-
komnir.
S. Á. Gíslason
(p. t. form. Sambandsins).
Sunnudagslæknir
er á morgun Halldór Stefáus-
son, Laugaveg 49.
Áheit á Barnaheimilið Vorblómið
(Happakrossinn), afhent Vísi:
11 kr. frá S.
Betania.
Kristileg samkoma i kveld kl.
8)4 síðdegis í tilefni 17, júní.
Nokkrir ræðumenn. — Allir vel-
komnir.
Áheit á Hallgrímskirkju
í Saurbæ, afhent Visi: 5 kr. frá
J. S. B.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 10 kr. frá A. S., 25
kr. frá Arksju.
Útvarpið.
10,00 Veðurfregnir.
12.15 Hádegisútvarp.
19.30 Veðurfregnir .
20.15 Kórsöngur. (Karlakór
Reykjavíkur).
21,00 Fréttir.
21.30 Tónleikar. (Útvarpstríó-
ið).
Danslög til kl. 24.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 7 stig, ísa-
firði 4, Akureyri 7, Seyðisfirði
10, Vestmannaeyjum 8, Stykk-
ishólmi 5, Blönduósi 5, Hólum
i Hornafirði 12, Grindavík 6,
Raufarliöfn 6, Færeyjum 12,
Juhanehaab 13, Jan Mayen 5,
Angmagsalik 9 stig. Mestur
liiti hér í gær 9 stig, miöstur 4.
Sólskin í gær 6,6 stundir. Yfir-
lit: Djúp lægð um Færeyjar á
lireyfingu norðaustur eftir. —
Horfur: Suðvesturland, Faxa-
flói, Breiðafjörður: Allhvass
norðan fram eftir deginum, en
lygnir með kveldinu. Bjart-
viðri. Vestfirðir: Minkandi
norðaustan hvassviðri. Léttir
til með nóttinni. Norðurland,
norðausturland, Austfirðir:
Stinningskaldi á norðan og
norðaustan. Þykkviðri og rign-
ing eða þokusúld. Suðaustur-
land: Bjartviðri.
Stéttarfélag
baroakennara i Rvík.
Stéttarfélag harnakennara í
Reykjavík hefir beðið F.B. að
senda blöðunum eftirfarandi
f undarskýrslu:
„Stéttarfélag barnakennara í
Reykjavik liafði fund 9. júni
síðastliðinn. Var fyrsta mál:
Börnin og stjórnmálin. Sigur-
vin Einarsson var framsögu-
maður. Tillaga þessi var sanx-
þykt: ,
„Fundurinn , kýs 5 manna
nefnd til þess að undirbúa og
koma í framkvæmd skipulagðri
starfsemi kennara, er miði að
því, að fá börnum bæjarins á
skólaskyldualdri menningarleg
viðfangsefni í hendur, einkum
að sumrinu, svo sem með leikj-
um, störfum, ferðum, námi o.
fl., er fjarlægi börnin frá skað-
legum áhrifum götulífsins.“
Tillögu þessa báru fram Arn-
gr. Kristjánsson, Sigurvin Ein-
arsson og Sigurður Jónsson
skólastjóri. Urðu miklar um-
ræður um málið. Þessir menn
VlSIR
voixi kosnir í nefndina: Arn-
grímur Kristjánsson, Hallgrim-
ur Jónsson, Jón Sigurðsson, Sig.
Jónsson og Sigurvin Einarsson.
—• Sigurður Jónsson kallar
nefndina saman.
Annað mál var: Kvikmynda-
liúsin og eftirlit k\iknmida. —
Hallgrimur Jónsson hafði fram-
sögu. Þessi tillaga var samþykt
frá Gimnari M. .Magnúss og
Hallgr. Jónssyni:
„Vegna þess, að lög frá Al-
þingi mæla svo fyrir, að einn
maður skuli vera gagnrýnandi
barnakvikmynda, skorar fund-
urinn á stjóm Sambands ísl.
barnakennara að gera þá kröfu,
að kennari verði skipaður aðal-
gagnrýnandi barnakvikmynda.“
Þá tilkynti formaður félags-
ins, að Björn Bjarnason teikni-
kennari ætli að hafa námskeið
í teikningu frá 19. júní til 30.
júní, að tilhlutun Sambands ísl.
barnakennara.
Það hefir komið fyrir, að
kennarar hafa notið kennara-
nafnið sem dulnefni undir
greinar, sem snerta stjórnmál,
trúarbrögð eða stéttarmál kenn-
ara og skotið sér þannig undan
einkaábyrgð. Vegna þessa bám
þeir Amgr. Kristjánsson og
Gunnar M. Magnúss fram cftir-
farandi tillögu:
„Fundurinn fordæmir fram-
komu þeirra lcennara, er skrifa
í landsmálablöð pólitískar grein-
ar, er varða stéttina sem heild
eða störf liennar, en skjóta sér
undir dulnefnið „kennari” eða
„nokkrir kennarar“ og láta þar
með í ljósi villandi og vafasam
ar liugmyndir um opinbera af-
stöðu stéttarinnar um stéttar-
mál o ,fl. Er þvi skorað á stjórn
Samb. ísl. barnakennara, að
hafa glöggar gætur á þvihkum
ritsmíðum og varði héðan í frá
brottrekstri úr stéttarsamtökum
kennara, að gerast sekur um
nefnt alhæfi.“
Var þcssi tillaga samþykt að
viðhöfðu nafnakalli. Greiddi
einn atkvæði á móti. (Útdrátt-
ur úr fundabók Stéttarfélags ísl.
bamakennara).
Gunnar M. Magnúss,
form.
Hallgr. Jónsson,
ritari.
Erlendar fréttir.
Wasliingtou, í júní.
United Press. - FB.
Ástandið í Rússlandi.
Amerískir sérfræðingar hafa
að undanförnu liaft til athugun-
ar hver áhrif breytingar þær,
sem orðið hafa og eru að verða
í atvinnu- og frainleiðslulífi
rússneskra þjóða, hafa liaft og
kunna að liafa á aðrar þjóðir,
að því er atvinnu, framleiðslu
og viðskifti snertir. Eins og
horfir a. m. k. eru menn þeirr-
ar skoðunar, að vegna hinna
stórfeldu iðnaðaráforma, sem
rússneskar þjóðir liafa með
höndum, muni útflutningur á
landbúnaðarafurðum frá Rúss-
landi fara heldur minkandi en
hitt. Hinsvegar verður eigi séð,
samkvæmt þeim gögnum sem
eru fyrir hendi, að með hinu
nýja fyrirkomulagi í landbún-
aðarmálum í rússneskum lönd-
um, verði framleitt meira en
með gamla fyrirkomulaginu.
Þá er þess að gæta, að mikhr
fólksflutningar hafa átt'sér stað
úr sveitahéruðunum í borgirn-
ar. Rússneskar iðnaðarstéttir
hafa vaxið mjög ört og rúss-
neskir iðnaðarmenn eru nú sex
sinnum fleiri en þeir voru, er
farið Var að framkvæma iðnað-
arframleiðslu-áformin miklu.
Af þessu hefir leitt mjög aukna
eftirspurn eftir matvælum inn-
anlands og að sama skapi, eftir
því sem verksmiðjunum fjölg-
ar, vex eftirspurnin eftir hrá-
efnum.
Enda þótt Rússar flytji enn
út inikið af korni eru sumir
sérfræðingar þeirrar skoðunar,
að vegna hinna stórfeldu iðn-
aða, sem risið liafa upp í land-
inu, fái Rússar markað fyrir
mikinn hluta kornframleiðslu
sinnar innanlands. Hveitiút-
flutningurinn nam 19,725,000
skeppum 1932, en 91,710,000
1931. — Útflutningur frá Rúss-
landi 1932 er talinn hafa num-
ið $ 290,400,000, en $417,773,-
000 1931 og $553,731,000 1930,
en innflutningurinn 1932
$359,827,000 .1931 $569,093,-
000 og 1930 $ 544,295,000. Árið
1932 nam útflutningurinn til
Bretlands $ 69,170,000, Þýska-
lands $ 21,318,000, Mongólíu
$21,318,000, Frakklands $14,-
696,000, Ítalíu $ 13,396,000,
Persíu $ 13,065,000, Bandaríkj-
anna $8,762,000 o. s. fr\r. Ótt-
inn við samkepni á heimsmörk-
uðum af Rússa hálfu mun hafa
haft nokkur áhrif til þess að
seinka því, að Bandaríkjastjóm
viðurkendi sovét-stjórnina, en
þar sem þessi ótti virðist hafa
við minni rök að styðjast en
ætlað var og af fleiri ástæðum,
em nú líkur til, að þess verði
eigi mjög langt að bíða, að við-
urkenning Bandaríkjastjórnar
á sovétstjóminni fáist, og mun
af þvi leiða aukin viðskifti milli
Rússa og Bandaríkjamanna.
Cyril H. Curtis látinn.
Cyril H. Curtis, einn af kunn-
ustu blaðainönnum og útgef-
endum Banclar., lést nýlega í
Washington, D. C., 83 ára að
aldri. Curtis var forseti útgáfu-
félags þess, sem bar nafn hans,
The Curtis Publishing Co., en
það gefur út, sem kunnugt er,
hið heimsfræga vikurit, The
Saturdav Evening Posl, sem
stofnað var af Benjamín Frank-
lin 1728. Ennfreniur gefur fé-
lagið út The Ladies Home Jour-
nal og Tlie Country Gentleman.
Kannast margir enskulesendur
hér vel við öll þessi tímarit. Ar-
ið 1925, áður en kreppan liófst,
voru fjórir menn í Bandaríkj-
unum, sem höfðu yfir 5 miljón-
ir dollara i árstekjur, þeir John
Rockefeller, Andrew Mellon
fvrv. fjármálaráðherra, James
Couzens öldungadeildarþing-
maður og Curtis. — Curtis var
fæddur í Portland, Maine, og
byrjaði viðskiftaferil sinn á
blaðasölu, þegar hann var litill
dreiigur.
Frakknesk blöð
og viðskiftamálaráðstefnan.
Frakknesk blöð gera sér
lieldur litlar vonir um árangur
af alþjóða viðskiftamálaráð-
stefnunni, sem nú stendur yfir
i Lundúnaborg. M. a. segir svo
í blaðinu Journée Industrielle:
„Alt bendir til, að farið verði
fram á það við fulltrúa Frakk-
GERI UPPDRÆTTI af allskonM
húsum. — Þorleifur Eyjólfssom,
húsameistari, Öldugötu 19.
Best að auglýsa í VM.
Til sundmannsins.
Signrjöns Pétnrssonar
á Álafossi.
—o—
Þú hefir margan sóniann séö,
um suma lítt þú hiröir.
En þiggðu þennan minsta me’ð,
frá manni, sem þig virðir.
Þú hefir synt og sýnt það vel,
sundiS, sterka og slynga;
hróður þinn eg hróður tel
hraustra Islendinga.
Hér skaltu aðra íþrótt sjá,
annað sund — í rnáli.
Þar má líka þreyta og ná
þrótti og silfurstáli.
Þessu sterka, stiltu vel,
steyptu i eldi og stáli. — —
Syndirðu’ á undan, heim í Hd>
þá heilsaðu Gretti og — NjáH.
Sig. SigurSsson
frá Anxarholti,
Ort eftir að hafa verið víð-
staddur 20 ára afmæli Fánadags-
ins á Álafossi.
lands, að þeir fallist á, að frank-
inn verði lækkaður í verði eins
og sterlingspund og dollar, til
þess að stuðla að hækkandi
verðlagi, en það hefir sem kunn-
ugt er, að undanförnu verið
höfuðviðfangsefni ýmissa
manna, sem hafa tekið sér fyrir
hendur að lækna viðskiftamein-
in, en farið að eins og druknir
menn. Vér gerum oss vonir um,
að ríkisstjórnin láti ekki leiðast
til þess að fella frankann, en
hún á vafalaust við erfiðleika
að stríða, þvi að það verður
mikið að henni lagt af erlend-
nm og ef til vill allmörgum inn-
lendum mönnum líka.“
Blaðið Ere Novelle drepur á
það, að Bretar áformi ekki að
liækka pundið upp í gullgildi og
ræðir fjármálastefnu Bandar.-
stjómar, fall dollarsins og af-
nám gullákvæðisins úr skulda-
bréfum, og loks um hinn fyrir-
hugaða skuldagreiðsluf rest
Þjóðverja, en telur, að betur
hefði horft um árangnr af ráð-
stefnunni, ef þjóðir þessar hefðí
hver um sig reynt að treysta
gengi gjaldmiðils síns, í stað
þess að stuðla að verðfalli pen-
inganna.
Blaðið Temps varar frakk-
nesku stjórnina við, að láta aðra
ráða fram úr vandamálum sín-
um. Frakkar sjálfir verði að
finna lausn viðskiftavandamála
sinna.
Lundúnablað
bannfært í Þýskalandi.
Lundúna-dagblaðið The Daily
Herald tilkynti þ. 7. júní, að
þýska ríkisstjórnin liefði bann-
að sölu á blaðinu í Þýskalandi.