Vísir - 27.07.1933, Blaðsíða 2
VI S I R
Fengum með e.s. Godafoss:
APPELSÍNUR 126, 150, 176, 240 og 300 stk.
SÍTRÓNUR.
EPLI.
LAUK mjög ódýran.
Sími: 1—2—3—4.
krefst aukaþings í simar.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins sendi i gær forsætisráðherra
eftirfarandi bréf:
Miðstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins leyfir sér liér með, fvrir
hönd þingflokks Sjálfstæðis-
manna, að bera fram þá ósk
og kröfu til yðar, hæstvirtur
forsætisráðlierra, að þér hlutist
til um, að Alþingi verði kvatt
saman til aukafundar hið allra
bráðasta, og eigi síðar en 15.
ágúst, til þess að samþykkja
stjómarskrána og setja kosn-
ingalög. Lítur Sjálfstæðisflokk-
urinn svo á, að þetta sé i fullu
samræmi við tilgang 8. gr.
stjómarskrárfrumvarpsins.
Jafnframt leyfir Miðstjórnin
sér að æskja þess, að nú þegar
verði skipuð þriggja manna
nefnd til þess, að undirbúa
kosningalögin og ráði Miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins einum
nefndarmanni, en liinir sé til-
nefndir af Framsóknarflokkn-
um og Alþýðuflokknum.
Athygli skal vakin á þvi, að
nauðsyn ber til að kalla þingið
sem fyrst saman, til þess að
trygt sé, að kosningar verði ekki
siðar en fyrsta vetrardag.
Virðingarfylst,
Ólafur Thors, varaformaður.
A ukaþing.
Sj glf s tæðisf lokkurinn hefir
nú krafist þess, að þing verði
kvatt saman, eins fljótt og auð-
ið er, til þess að afgreiða stjóm-
arskrármálið tii fullnustu og
til að gera þær breytingar á
kosningalögunum, sem nauð-
synlegar eru, vegna ákvæða
hinnar nýju stjórnarskrár.
Þessi krafa er í alla staði
réltmæt og sjálfsögð.
Þingið liefir samþykt og lagt
undir úrskurð þjóðarinnar
stjórnarskrárfrumvarp, sem
hefir i för með sér verulega
fjölgun kjósenda, þar sem
kosningaréttur er veittur ung-
um mönnum, konuin og körl-
um, á aldrinum frá 21 til 25
ára. Ennfremur er þar gerð svo
mikilvæg breyting á kosninga-
fyrirkomulaginu, að hún ein
mundi nægja íil að gerbreyta
skipun þingsins. — Þjóðin hef-
ir fyrir sitt leyti samþykt þess-
ar brevtingar á stjórnarskránni,
þannig, að ekki verður um það
deilt, hver vilji hennar sé. Hún
hefir gert það með því að taka
meirihluta valdið á Alþiugi af
þeim flokki, sem barist hefir á
móti breytingunum, og fá það
i hendur þeim flokkum, sem
hafa barist fvrir þeim. Þessar
breytingar á stjórnarskránni
hafa verið samþyktar af Al-
þingi og alþingiskjósendum,
með það fyrir augum, að þær
yrði til þess að gera þingið
hæfara til að ráða ráðum þjóð-
arinnar, að þingið j'rði betur í
samræmi við þjóðarviljann. En
af þessu leiðir, að þing, sem
kosið er samkvæmt þeim regl-
um, sem farið hefir verið eftir
að undanfömu, er ekki lengur
bært um að fara með umboð
þjóðarinnar, nema að eins til
þess að koma vilja hennar í
framkvæmd í þessu efni. Þjóð-
in hefir lýst þvi yfir, að hún
vilji fela umboð sitt þingi, sem
skipað sé eftir öðrum reglum.
Þess vegna væri það í raun og
veru valdarán, ef þing það, sem
nú hefir verið kosið eftir gamla
fjTÍrkomuIaginu, til þess að
koma á hinu nýja skipulagi,
tæki sér vald til þess að fara
með umboð þjóðarinnar á reglu-
legu ])ingi, semja fjárlög, sem
eiga að koma til framkvæmda
mörgum mánuðum eftir að hið
nýja skipulag er komið á, og
setja önnur lög, sem öldungis ó-
víst er, að næði samþykki þings,
sem skipað væri samkvæmt yf-
irlýstum vilja þjóðarinnar.
Þegar af þessum áslæðum
virðist ekki annað gela komið
til mála, en að þing verði kvatt
saman nú þegar, til þcss að
binda endi á stjórnarskrármál-
ið, svo að nýjar kosningar geti
farið fram, samkv. hinu nýja
skipulagi, áður en að því kem-
ur, að kveðja þarf saman reglu-
legt fjárlagaþing. Jafnvel ])ó að
veigamikil rök mætti færa fram
fjTÍr því, að það væri að ýmsu
lej'ti vandkvæðum bundið, að
efna nú til aukaþings, að eins
til þess að afgreiða stjórnar-
skrármálið, þá verður ekki hjá
þvi komist. En rök þau, sem
færð Iiafa verið fram gegn
þessu, eru einskis virði.
Það er talað um óþarfan
kostnað í þessu sambandi. En
þegar um svo sjálfsagt mál er
að ræða, getur slík viðbára varla
komið til greina. Og þar við
bætist, að augljóst er, að kostn-
aður við slíkt aukaþing þarf
ekki að vera nema sáralítill, og
alveg örugt, að hann getur unn-
ist upp að fullu, og vel það, á
því, hve miklu styttra næsta
reglulegt þing gæti þá orðið.
Aukaþingið þyrfti ekki að
eiga setu nema 10 til 15 daga.
Stjórnarskrárfrumvarpinu má í
engu breyta. Brejdingarnar á
kosningalögunum geta verið til-
búnar í frumvarpsformi í þing-
byrjun. Umræður þurfa sama
sem engar að verða og prent-
unarkostnaður verður því ör-
lítill. Allur þyrfti kostnaðurinn
af þinginu fráleitt að verða
S
meiri en 20 þús. krónur. — En
hins vegar yrði þá næsta reglu-
legt þing háð samkvæmt nýju
stjórnarskránni og fjárlögin
lögð fjrir sameinað þing. Það
er mjög varlega áætlað, að þing-
ið geti orðið þremur vikum
stj'ttra með þeim hætti, heldur
en með gamla fyrirkomulaginu,
því að sparast mundi langdrægt
sá tími, sem efri deild liefir
þurft til að afgreiða fjárlögin
að sínum hluta. En liér við bæt-
ist enn, að gera má ráð fyrir
tiltölulega miklu færri brevt-
ingartillögum við fjárlögin, i
sameinuðu þingi, lieldur en í
báðum deildum, og auk tíma-
sparnaðarins við það, má jafn-
vel gera ráð fjrir því, að færri
slikar tillögur verði samþyktar,
svo að rikissjóði sparist þannig
nokkur útgjöld. — Það eru því
miklu meiri likur til þess, að
sparnaður jrrði að því, að af-
greiða stjórnarskrána á auka-
þingi í sumar, heldur en auk-
inn kostnaður.
Þá eru menn mjög að barma
sér j'fir þvi, fj'rir liönd kjós-
enda úli um hinar dreifðu bjrgð-
ir, að þurfa að sækja kosningar
að haustlagi. Mest mun nú vera
undan þessu kvartað hér i Rvik.
Að minsta kosti mun það full-
víst, að sjálfslæðismenn úti um
sveitir telja þenna annmarka
lítils verðan. Enda er það kunn-
ara en frá þurfi að segja, að
fyrsti vetrardagur hefir um
nókkurt árabil verið allsherjar-
kjördagur og einmitt valinn til
þess af bændum á Alþingi. Og
þar að auki vill svo til, að nú
er einmitt ráð fyrir því gert,
að í haust fari fram allsherjar
atkvæðagreiðsla um bannmálið.
En sé það nú fært, að krefjast
þess af mönnum úti um liinar
dreifðu bygðir, að þeir taki sér
ferð á liendur á haustdegi til
þess að greiða atkvæði um
bannið, hví skjldi þá ekki einn-
ig vera fært að láta alþingis-
kosningar fara fram að haust-
lagi? Enginn mun minanst þess,
að nokkurum andmælum hafi
verið hrej'ft gegn því, að at-
kvæðagreiðslan um bannið yrði
látin fara fram í haust. Og hvers
vegna má þá ekki láta kosn-
ingarnar fara fram samtimis?
Það virðist einmitt alveg sjálf-
sagt, þvi að með því er lands-
mönnum spöruð fjrirhöfn og
gerður þess kostur, að gera eina
ferðina — í stað tveggja.
Að þessu athuguðu, er aug-
Ijóst, áð engin frambærileg rök
er hægt að færa gegn því, að
aukaþing verði kvatt saman nú
þegar, stjórnarskrá og kosn-
ingalög afgreidd og nýjar kosn-
ingar látnar fara fram i haust.
— Enda mun það vera svo að
segja einróma krafa allra Jieirra
manna, sem ekkert liafa að ótt-
ast í sambandi við nýjar kosn-
ingar.
Simskeyti
—o—
London, 26. júlí.
United Press. - FB.
Hópflugið.
Flugvélarnar komnar til New-
foundland.
Kl. 17,41: Fregn frá Cliar-
lottetown á Prince Edward Is-
land hermir, að 23 flugvélar
hafi flogið þar yfir kl. 11 f. li.
— Flugvél, sem Rovis flug-
kapteinn sljómaði nauðlenti i
Victoria Harbour til viðgerðar.
Kl. 18,14: Fregn frá Shoal
Harbour hermir, að fyrstu
flugvélarnar úr flota Balhos
hafi lent kl. 12,40 e. li.
• Kl. 18,42: MacKaj-loftskej'ta-
stöðin hefir lilkynt, að 23 flug-
vélar úr flota Balbos hafi lent í
Shoal Harbour.
Sliediac, 26. júli.
United Press. - FB.
ítölsku flugvélarnar lögðu af
stað kl. 8,43 f. h. áleiðis til Val-
encia í írska fríríkinu.
(Síðari fregn hermir að flug-
vélarnar muni fvrst fljúga til
Shoal Harbour).
Berlín, 26. júlí.
United Press. - FB.
Frá Þýskalandi.
Birt liafa verið i málgagni
stjórnarinnar ný lög, sem ríkis-
stjórnin liefir látið ganga i gildi.
Samkvæmt ])eini er heimild —
ef vísindin telja gildar ástæður
fvrir hendi, að gera menn
ófrjóa, t. d. ef fullvist þjkir, að
afkomendurnir rnuni taka i
erfðir hætlulega sjúkdóma og
tilhneigingar, svo sem geðveiki,
blindu, lieyrnarleysi, ofdrykkju-
hneigð o. s. frv.
Lissal)on, 26. júlí.
United Press. - FB.
Frá Portugal.
Mótmæli hafa komið fram inn-
an setuliðsins gegn þvt, að Pereira
verði innanríkismálaráðherra,
vegna ]iess, að hann sé hlyntur
vinstri flokkunum. Oliveira her-
málaráðherra hefir átt tal um þetta
við forsætisráðherrann. sem lýsti
því ýfir, að hann niundi ef til vill
bjóðast til þess, að öll ríkisstjórnin
segði af sér. ef Jiessari mótspyrnu
vrði haldið áfram.
Utan af landi
—o—
Siglufirði, 26. júli. FB.
A miðdegi í gær var búið að
verka hér 26.500 síldartunnur og á
Eyjafirði 10.200. — Söltun hér
síðasta sólarhring rúmar 6000. Af
];essu er grófsaltað 23000. Þýska-
landsverkað 12.000, sérverkað um
1700 tn. Söltun á öllu landinu
31.381 tn.
Tíð mjög liagstæð að undan-
förnu. Síldveiði mikii og veiðin
rnjög nærtæk síðustu viku. Ríkis-
bræðslurnar eru hættar að geta
tckið á móti síld í bili. Mörg skip
liggja fullfermd og bíða losunar.
Allar söltunarstöðvar salta nú eins
og þær geta. en hafa varla undan.
Síldin sæmileg vara. — Þorskafli
mjög rýr.
AlpýðDblaðið
i gær segir, að „í ritstjórnar-
grein (í Visi) á 2. síðu standi,
að það skuli ekki dæmt, hvort
kosningar skuli fara, fram í
haust og þing koma saman i
sumar, því að enn hafi mið-
stjórnir flokkana ekki látið
neitt up|) um ])að“. Og blaðið
bætir því við af visku sinni, að
„eftir þessu só íhaldið óskrifað
blað“.
Sá, er þessar línur ritar, er
höfundur greinar ])eirrar, sem
Alþbl. minnist á, og er greinin
ekki ritstjórnargrein. Það skift-
ir þó í raun og veru ekki miklu
máli. Greinin var skrifuð til
þess að sýna fram á með hve
litlum rökum Tr. Þ. mótmælti
því, að aukaþing væri haldið í
JBidjiö jafnan
um
TEOFANI
Cigarettur.
Fást hTarvetna.
20 stk. 125
VÍSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
sumar, og þar sem Alþbl. læst
vera því fylgjandi, að aukaþing
verði haldið i sumar og nýjar
kosningar fari fram í liaust
mætti ætla að það tæki undir
með þeim, sem vinna að sama
marki og það segist gera. Hitt
er annað mál, að í umræddri
grein var af ásettu ráði gengið
fram hjá því að ræða ítarlega,
hvort aukaþing skj'ldi lialdið í
sumar eða elcki, þar sem afstaða
ýmissa helstu stjórnmálamanna
um þetla var eigi kunn, en
kjósendurnir livattir til þess að
láta uppi sínar skoðanir þegar
er liún væri orðin kunn.Munþað
þó vart liafa lejnt sér, að grein-
arliöf. er hlyntur aukaþingi í
sumar og nýjum kosningum í
liaust. En þegar til þess kemur,
cr Alþbl. segir, „að eftir Jæssu
sé ihaldið óskrifað blað“, þá er
þess að gæta, að Sjálfstæðis-
flokkurinn liefir nú eimnitt
krafist þess af rikisstjórninni,
að aukaþing verði liáð, en enn
hefir ekki frést, að Alþýðu-
flokkurinn hafi gert neinar
kröfur i þá átt. Alþbl. ætti að
forðast dj’lgjur um aðra flokka
og spara skæling sinn. Gæti
blaðið tekið sér þarfara verk-
efni, t. d. með þvi að gera hreint
fj'rir sínum dyrum og' skýra
frá því, livaða kröfur sam-
bandsstjórn Alþýðuflokksins
eða þingmenn flokksins ætla
sér að gera viðvíkjandi auka-
þingi og nýjum kosningum.
Menn hafa sjálfsagt margir bú-
ist við því, að Alþýðuflokks-
menn jrði fyrstir til þess að
krefjast þess, að aukaþing j'rði
lialdið í sumar, en engar kröf-
ur eru fram komnar frá flokks-
stjórninni eða þingmönnum
flokksins. Hvers vegna liafa
þeir ekki krafist aukaþings ? Var
það vonin um að geta hreiðrað
um sig í flatsænginni gömlu?En
nú liafa sjálfstæðismenn kraf-
ist þinghalds og kosninga í
haust. Og kannske taka
þingmenn Alþýðuflokksins
undir kröfur þeirra um auka-
þing, þegar útséð virðist um,
að gott næði verði í flatsæng-
inni með „framsókn“.
V