Vísir - 06.10.1933, Qupperneq 5
V 1S IR
Föstudaginn 6. okt. 1933.
Stefán frá Hvítadal.
I óðheimi norrænum gullhörpu glæsta þú slóst.
Þín gígja var tengd við ástguðsins varma brjóst.
í háborg þess ódauðlega um eilífar aldir,
eldvígða leistu kirkju frá lággrunni rísa.
Máttarorð bænar og trúar veginn vísa,
vegfara þreyttum uns dagar hans lífs eru taldir.
Þinn söngur var mildur, en fegurð þú áttir og afl.
1 orðsögn þíns rímmáls þú dýrkaðir algeimsins tafl.
Það sló bjarma á þitt land af lífs þíns helga óði.
Þú lagðir hjarta þitt fram svo þróuðust vordagsins blóm;
við ársólar gullið skin og liæðanna hljóm
þín harpa var lauguð i sáttmálans lieilaga hlóði.
Brosandi fjólan, sem bíður i söngvanna heim,
hún brýtur lilekki þagnar og lofar hinn dýrðlega geim.
Hún vakir og biður, en bænirnar stiga til hæða,
Brennandi orð, frá kærleikans iðrandi sál.
En alvaldið háa að eins metur það mál,
sem myndas't af þörf þess innra, þá lifundir blæða.
sem heíir frætt hann um land
og þjóð. — í Sönderjydsk Dag-
blad 8. sept. er grein um ávarp,
sem skáldkonan Tliit Jensen
flutti á samkundu Norðurlanda-
búa í Chicago. 1 ávarpi sínu
ræddi hún um komu sína til Is-
lands.
í „Stockholms-Tidningen —
Stockholms Daghlad", þ. 21. sept.
er birt viötal viS Vennerström ráö-
herra, seiruhér var á ferö í sumar.
Fyrirsögn viðtalsins er „Ekono-
misk uppmarsch pá Island“. Kem-
ur ráöherrann víða við i viðtali
sínu, getur um vegalagningar,
mjólkurbúin uýju, skólamál,
stjórnmál o. fl.. Öll ummæli ráð-
herrans eru, sem vænta mátti
mjög vinsamlega i garð lands og
þjóðar. — í „Svenska Dagbladet“,
21. sept., er birt viðtal við dönsku
söngmærina Engel Lund, sem hef-
ir haldið söngskemtanir i Stoklc-
liólmi við mikið lof. (FB.).
Frelsisins svanur þú varst og hugðir þér liátt.
Þíns lijarta gróður ei féll við veðranna slátt.
Til sólarlanda, að friðarins fögru ströndum,
flugleið liins mikla anda þreyttir þú einn og frjáls.
Þú beygðir þín kné fyrir altari eilífðar-máls.
Eldliaukur Braga, heill þér að ódáins löndum.
Ásmundur Jónsson
frá Skúfstöðum.
Sólskin
hér i Reykjavik i ágústmán-
uði s. 1. var 136,6 stundir, eða
27,0% af því sólskini, sem gæti
verið, en meðaltal 10 undanfar-
inna ára er 177,1 stund. Mest
var sólskinið 13,9 stundir, þann
21., en 6 daga var sólskinslaust
með öllu. (Veðráttan).
Hdtlveigarstaðir.
—o—
ÞaÖ hefir verið hljótt um bygg-
ingarmál íslenskra kvenna síðustu
árin. Forgöngukonum fyrirtækisins
hefir þótt rétt aÖ láta mestu krepp-
una líða hjá, og hafa lítið gert til
þess að safna fé. Þó hafa stöku
skemtanir verið haldnar og nú um
næstu helgi verður haldin hlutávelta
til ágóða fyrir hinn svonefnda
„Hallveigarsjóð kvennaheimilis-
ins“, er orðinn er til af gjöfum
og ágóða af skemtunum, blómasölu
o. fl. —■ En eins og nú er komið,
er raunverulegur ágóÖi af skemtun-
um og hlutaveltu mjög lítill, og því
munu Hallveigarstaðir seint byggj-
ast, ef farin er sú leiðin eingöngu.
— Þegar byrjað var að vinna fyrir
þetta mál, var til þess safnað með
hlutafé. Eru hlutabréfin 25, 50, 100
og 500 króna, og hafa safnast á
þann hátt nokkrir tugir þúsunda.
Auðvitað verður það og aðalleiðin
til eflingar fyrirtækinu. Altaf er að
verða meiri og meiri nauðsyn á því,
að eignast hentugt húsnæði, þar
sem konur geta starfað að áhuga-
málum sínum og fyrirtækjum, og
vil eg leyfa mér að nefna nokkur
helstu verkefnin, er bíða úrlausnar:
Vinnuskóli fyrir ungar stúlkur,
er lokið hafa barnaskólanámi, hús-
mæðranámskeið, leiðbeiningarskrif-
stofa kvenna, smáíbúðir fyrir ein-
hleypar konur. Er mjög spurt eft-
ir slíkum íbúðum, og er ætlast til,
að þær verði önnur hliðarálma
hússins, ennfremur gistiherbergi
fyrir aðkomukonur. —
Mönnum á að skiljast það, að
hér er uni menningarmál að ræða,
starí, sem á að beinast að því, með-
al annars, að greiða fyrir ungum
stúlkum, leiðbeina þeim, vekja á-
huga þeirra á þarflegum hlutum og
gera þær sjálfbjarga.
Á Hallveigarstöðum er ætlast til
þess, að kensla fari fram í ýmsum
þjóðlegum greinum, sem þó verð-
ur miðað við kröfur nútímans og
hollustu, og í fundasalnum, er jafn-
framt verður fyrirlestrasalur, verða
flutt fræðandi erindi um ýmiskon-
ar efni. Lestrarfélag kvenna mun
flytja þangað bókasafn sitt og
barnalesstofu, sem starfað hefir
síðustu 22 árin til góðs fyrir bæj-
arfélagið. Ennfremur þarf að sjá
fyrir nokkrum gistiherbergjum fyr-
ir aðkomukonur, innlendar og út-
lendar, sem dvelja vilja í höfuð-
staðnum um styttri eða lengri tíma,
en leiðbeiningarskrifstofa heimilis-
ins ætti að verða einn af merkari
þáttíinum í starfi stofnúnarinnar.
Eg hefi leyft mér að fara nokkr-
um orðum um hið væntanlega starf
þessa kvennaheimilis, og geri það
sökum þess, að við hefir borið, að
ýmsum, er eg hefi leitt þetta mál
í tal við, hefir eigi verið ljóst, hvert
markmiðið væri. Þá eru enn aðrir,
er óttast að bygging eins og þessi
muni aldrei bera sig. Það sé því
að kasta fé á glæ, að styrkja svona
málefni. Það er að vísu rétt, að
stofnanir, er starfa að almennings-
heill, eiga oft erfitt uppdráttar,
fjárhagslega, en væri úr vegi að
vænta þess, ef vér konur sýndurn
þann dugnað, að koma húsinu upp,
að Alþingi og bæjarstjórn Reykja-
víkur legðu fram árlegan styrk til
reksturs og viðhalds stofnuninni.
Að vísu mun nokkur hluti bygg-
ingarinnar undir eins renta sig. Á
eg þar við smáíbúðirnar og nokkr-
ar leigubúðir á neðstu hæð hússins,
ennfremur gistiherbergin og matsöl-
una. Eflaust mun mörg húsfreyjan
kjósa fremur að leita til Hallveig-
arstaða, heldur en eitthvað annað,
ef ónógt rúm er heima fyrir, en
ferming, gifting eða annar vina-
fagnaður ber að höndum. Vona eg,
að allir þeir, er lesa þessa greinar-
gerð, játi, að það sé mjög æskilegt
að kvenna-bygging þessi rísi upp
sem fyrst, á hinni fallegu lóÖ heirn-
ilisins við Garðastræti.
Laufey Vilhjálmsdóttir.
Dánarfregn.
Guðlaug Jónsdóttir Þórdar-
son andaðist í ágústmánuði
síðastliðnum á Grace sjúkra-
húsi í Winnipeg eftir langvinn
veikindi. Hún var fædd að
Gufunesi. i MosfelLsveit og var
52 ára, er liún lést.
(HKR. — FB).
Ísland í erlendum blöðum.
í Star, London, er stutt grein,
sem heitir Modern Iceland. —
Greinarhöfundur hefir átt tal
við Harald Árnason, kaupmann,
Úrkoma
var með mesta móti liér á
landi í ágústmánuði s. 1., eða
76% umfrám meðallag. Úr-
komudagar voru og sérstaklega
margir suð-vestan lands, sum-
staðar um 10 íleiri en venju-
lega í þeim mánuði. Mest mán-
aðar-úrkoma var i Hveradöl-
um: 279,3 mm. Mest sólar-
liringsúrkoma þar var 42,8
mm., en mesta sólarhrings-úr-
koma, mæld i þessum mánuði,
var 49,0 mm. (í Fagradal).
Pétur Sigurðsson
hefir nýlega gefið út fyrir-
lestur eftir sig, liinn 5. í röð-
inni. Kallar liann fyrirlestur
þenna: „Auga sérfræðingsins.
Ivosti syndarans og Gullið í
manninum“. —■ Áður hefir
liann gefið út „Heimur og
heimili“ (kvæðabók), „Takið
steininn burt“ (trúfræðilegt rit)
og fjóra fyrirlestra, ýmislegs
efnis.
Hjálpræðisherinn.
í kveld kl. 8 (ekki 8)4) stjórn-
ar Major Beckett helgunarsam-
komu, frú Beckett talar. Félagar
og aörir kristnir, fjölmennið.
Fríkirkjan í Reykjavík.
Gjafir 0g áheit: Frá ónefndri
konu kr. 10, Jóh. Indriðasyni kr.
10, 2+9 (afh. sr. Árna Sigurös-
syni) kr. 10. Samtals 30 krónur.
Einlægar þakkir.
Ásm. Gestsson.
Álirif vínbannsins.
Ungan kennara hitti eg i Stykkis-
hólmi; við sátum þar við sama
borð, og eg gaf mig á tal við hann
og spurði, hvort óregla væri og vin-
brugg í hans bygðarlagi, — hann
var úr Barðastrandarsýslu. — Nei,
sagði hann, ekkert, sem orð er á
gerandi. Svo bætti hann við: „Eg
var 19 ára gamall, er eg fyrst sá
ölvaðan mann.“ — „Hefir þetta alt-
af verið þannig þarna um slóðir?“
spurði eg. „Nei,„ kvað hann við.
■—- „Batnaði það, þegar bannlögin
komu?“ spurði eg aftur. — „Já,“
sagði hann, „það er sannleikurinn,
ef menn vilja kannast við hann.“
— Hann sagði, að í þeim tveirn
sveitum, sem hann þekti best til,
væri alls enginn drykkjuskapur. —
Eg fór nú að segja honunr frá af-
námi bannsins i Canada, til dæmis
í Manitoba, þar sem eg þekti til,
og hvernig afnám bannsins þar hafi
reynst. Sagði hann mér þá, að síð-
Landsmálafélagið Vörður
heldur fund laugardaginn 7. október í Varðarhúsinu
)
ld. 8V2 stundvíslega.
Fundare fni:
Bæjarmál. Frunnnælandi Jón Þorláksson, borgarstjóri.
Allir sjálfstæðismenn velkomnir.
astliðið sumar hefði hann verið
samtíða norskum nranni, sem hefði.
alls ekki verið bannnraður, en hann
hefði sagt, að ástandið þar í landi
lrefði stórunr versnað við afnánr
bannsins, og nrætti heita, að áfeng-
ið flyti nú um alt landið. — Ætli
það sé ekki sannleikanum næst.
Pétur Sigurðsson.
ÚtvarpiÖ.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19,00 Grammófóntónleikar.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Tilkynningar. Tónleikar.
19,35 Erindi Búnaðarfélagsins:
Urn ásetning á komandi
vetri. (Theodór Arn-
bjarnarson).
20,00 Klukkusláttur.
Grammófóntónleikar:
Wagner: Lög úr „Tann-
háuser“.
20.30 Ereindi: Um fávilahæli,
II. (Sigurbjörn Á. Gísla-
son).
21,00 Fréttir.
21.30 Grammófóntónleikar.
Schubert: Kvartett í D-
moll. (Der Tod und das
Mádclien).
„Verkfall á Blðndnösr.
—o—
Leiðrétting.
—O—
■Eg biður yður, hr. ritstjóri, að
taka fyrir mig eftirfarandi vinnu-
skýrslu út af grein þeirri, er birt-
ist i Verkalýðsblaðinu i gær, um
verkfallið á Blönduósi.
Einhver (velviljaður) maður á
Blönduósi hefir sent Verklýðsblað-
inu á laugardag 30. september, þau
ósannindi, að eg ætti óborgað kaup
til verkamanna þar, sem gerðu
verkfall í gær, -— frá 200—1000
kr. hverjum.
Eg veit, að blaðið hefir alls ekki
fengið upp þessar tölur hjá neinum
verkamanna, sem vinnur hjá mér,
því að eg get fullvissað blaðið um
])að, að verkamennirnir á Blöndu-
ósi hafa miklu hlýrri hug til mín
og meiri samúð með verkinu en
fréttaritaranum, — hann er í litlu
áliti á Blönduósi nú, og verður eftir-
leiðis, — enda er hann uppvís að
þvi, að fara með blekkingar.
Verkfallið kom aðeins fram vegna
þess, að þegar eg kom hingað til
bæjarins, — fyrir nokkrum dög-
um, — vildi mér til það óhapp, að
eg meiddist á höfði og hefi verið
í rúminu síðan, og gat ekki sent
peninga fyr en kl. 3 í dag, til að
greiða vinnulaunin. Verklýðsblað-
ið má búast við þvi, að fréttarit-
arinn „hröklist" fyr frá Blönduósi,
vegna ósanninda, en eg frá verk-
inu, ef eg kemst á fætur aftur.
Eftirfarandi skýrsla sýnir starfs-
mannakaup, sem var óborgað í gær.
Mennirnir hafa unnið mismunandi
marga daga í síðastl. mánuði, og
var ]dví mismunandi mikið, sem
liver átti. Síðasta útborgun fór
fram 9. september síðastl., og fyrir
afstaðið tímabil fram að 1. septem-
ber. Nokkrir menn eru á skýrsl-
unni, sem voru ekki með í verkfall-
inu, en áttu kaup sitt ógreitt.
Fatatau
og alt
tilhejTandi
best og
ódýrast hjá
B m C—
P3
XC3 exs ^tí
!>
03
E ■ | .
P3 æ 03 «0
S es> u- s =s
WD 03 'Su S— 03
6*— «3 05
ts» ca
XC3 :C3 '03 xo s= M
CO —1 11 m
*=> C3 S— ha C*_' aa
a-
03 CD
KO B
iX! 03
A
Hafsteinn Björnsson .. kr. 155.75
Hjálmar Stefánsson .. — 145*38
Páll Stefánsson ....... — 155.63
Kristm. Stefánsson .. — 107.63
Filippus Vigfússon .. — 141.00
Þorvaldur Þórarinsson — 190.00
Lúðvig Blöndal .........— 370.00
Halldór Leví ...........— 390-58
Jónas Vermundsson .. — 224.00
Oddur Sigurjónsson . . — 383.60
Guðmundur Steinsson — 153-00
Páll Geirmundsson ... — 119.00
Jón Einarsson ..........— 284.45
Ragnar Einarsson .... — 204.03
Jón Benónýsson ........ — 154-00
Jónas Jónsson ..........— 135-00
Sigurður Jónasson ... — 45.00
Jón Pálsson .......... —- 60.00
Páll Pálsson .......... — 70.00
Agnar B. Guðmundsson — 45.00
Guðmundur Pétursson — 45-00
Svafar Agnarsson .... — 45.00
Marteinn Björnsson .. — 144.00
Björn Geirmundsson .. — 37-50
Sveinbjörn Hannesson — 74.25
Johann Kristjánsson .. — 90.00
Jón Karlsson ...........— 108.75
Sigvaldi Bergsson .... — 108.75
Samtals kr. 4186.30
Rvík, 3. okt. 1933.
Stefán Runólfsson.
Erlendar fréttir.
—o—
Stokkhólmi, í sept.
United Press. - FB.
Frá Svíum.
Svíar eru að kalla hættir að
flytja úr landi lil þess aS setjast
aS erlendis. í júlímánuSi t. d.
voru útflytjendur aS eins 20
talsins, þar af 14 konur. Fyrstu
7 mánuSi ársins voru útflytj-
endur alls 174, en á sama tíma
1932 204, 1931 430, 1930 2,377
og 1929 7,206.