Vísir - 31.10.1933, Side 3

Vísir - 31.10.1933, Side 3
VISIR NINONKJÓLAR NÝTÍSKU EFTIRMIBDAGS-, KVÖLD- og DANSKJÓLAR. NÝTÍSKUEFNI. SANNGJARNT VERÐ. NINON, ' ' / ■ AuSturstræti 12, uppi. Opio f',á 2—7. Þetta hefir farið nokkuð á annan veg. „Morgunn" er vin- sæll tímarit og hefir orðið mörgum til huggunar. Sérstak- lega mun ritið kærkominn gest- ur á fjölmörgum sveitaheimil- um. Þar er meiri ró yfir mann- lífinu enn sem komið er, heldur en í kaupstöðunum. Þar mun og öllu meira hugsað um lifiö og hvað við taki, er því lýkur hér. Ys og þys og skarkali kaup- staðalífsins þykir vilja glepja hina ungu lcynslóð (einkum á vissu aldursskeiði) svo að liún hefir ekki tima til, eða lætur undir höfuð leggjast, að siuna andlegum málefnum, og er þar ekki um nýtt fyrirbrigði að ræða. Hér er átt við allan þorr- ann, en að vísu eru margar und- antelcningar frá höfuðreglunni og hafa ávalt verið. Og eitthvað af ungu fólki sleppur algerlega við liið andlega gelgjuskeið. Um hitt atriðið, hættu þá, sem kristinni trú væri búin af til- komu „Morguns“, er það að segja, að enginn mun geta á það bent með neinum jökum, að þjóðin liafi afkristnast á þeim 14 árum, sem ritið hefir verið gestur heimilanna og góð- ur vinur. — Hitt mun sanni nær, að trúarlífið i landinu hafi glæðst heldur cn hitt á þessurn árum. En óskanda væri, að það glæddisl ekki eða þróaðist í þá átt, sem Akureyrar-kennaran- um er hugleiknast, þeim er skrifaði í Vísi fyrir stuttu. S. ]Pyi»ii»spii!»n til stjórnar Síldarverksmiðju ríkisins. —o— Eg_ hefi verið viðskiftamað- ur Sildarverksmiðju ríkisins, síðan hún var stofnuð árið 1930. Tvö fyrstu árin lagði eg inn síld af skipi minu til vinslu í verksmiðjunni, en í fyrra og í ár liefir verksmiðjan keypt síldina. Mér er þvi forvitni á því að vita, livernig á því stendur, að relcstrarreikningar og efnahagsreikningar verk- smiðjunnar hafa aldrei verið birtir. Eg hefi leitað í Stjórn- artíðindum og Landsreikning- um og ekki fundið þessa reikn- inga. Það er óviðkunnanlegt, að fyrir þau ár, aö minsta kosti, sem verksmiðjan tók við síldinni til vinslu fyrir reikn- ing síldarinnleggjenda, að þeir skuli ekki liafa fengið reikn- inga verksmiðjunnar, syo að þeir geti séð hvernig vinslan á vöru þeirra hefir tekist. Hvernig stendur á því, að reikningarnir hafa ekki verið birtir og sendir viðskiftamönn- um verksmiðjunnar? Útgerðcirmaður. Leiðpétting. —o— í 294. tölubl. dagbl. Vísis, 28. ]). m. birtist grein me'ö yfirskrift- inni Sjóvátryggingarfélag íslands, Forstjóraskiíti. Eftir aö búiS er aö skýra frá, aiS féiagiö haíi veri'ö stofnaö 20. október 1918, segir: „A ári hverju rann þá mikiö fé út úr landinu af þeim sökum, að hér var ekkert innlent tryggingarfélag í sjóvá- tryggingum*) og að ýmsu leyti var ekki árennilegt aö stofna slík- an felagsskaþ. Vegna þess, ’aö hér er réttu máli hallaö, veröur ekki lcomist hjá aö skýra frá, aö meö lögum nr. 54, 30. júlí 1909, er stofnað vátrygg- ingarfélag fyrir fiskiskip þ. e. Samábyrgð íslands á fiskiskipum, félag þetta byrjaöi að starfa i fe- brúar 19x0, og hafði því unnið aö sj óvátryggingum hátt á níunda ár áður en Sjóvátryggingarfélag ís- lands hóf göngu sína og má af þessu nokkuð marka, hvort þess- ara tveggja sjóvátryggingarfélaga hefir unnið þarfara verk í þágu hinnar ungu vélskipaútgeröar, senx byrjaöi skömrnu eftir siðustu aldamót, og stuðlaði að því. að hún kæmist á legg. Jón Gunnarsson. Atkvaeðagreiðslan am bannið. —o— Norður-Múlasýsla. Þar'Var talið í gær og höfðu 237 sagl já, en 236 nei. Norður-ísafjarðarsýsla. Þar sögðu 384 nei, en 279 já. Auðir voru 3 seðlar, en ógildir 96. Talning fer fram í Arnessýslu í dag og hefst upp úr hádcgi. Veorið í morgun. Hiti i Reykjavík 2 stig, ísafirði o, Akureyri i, Seyðisíirði 3, Vest- mannaeyjum 2, Grimsey — j, Stykkishólmi 1, Blönduósi 1, Rauf- arhöfn i. Hólum í Hornafirði 2, Grindavík 1, Færeyjum 3, Juliane-. haab > — 2, Hjaltlandi 5. Skeyti vantar frá Jan Mayen, Angmagsa- lik og Tynemouth. Mestur hiti hér í gær 6 stig, minstur 1. Úrkoma 0,3 mm. Sólskin í gær 1,5 st. — Yfirlil: LægÖ austan vi'Ö Færeyjar veldur norðanátt hér á landi. —1 Horfur: Suðvesturland, Faxaflói, Breiðafjörður: Norðan kaldi. Létt- skýjað. Vestfirðir: Nor'ðaustan kakli. Snjóél norðan til í dag, en birtir með kveldinu. Norðurland, norðausturland, Austfirðir: All- hvass norðan og éljagangur i dag, en lygnir og batnar í nótt. Suð- austurland: Norðanátt. Bjartviðri. ÓsamkomulagiÖ í síldarverksmiðjustjórninni. Á fundi, sem Magnús Guðmundsson dómsmálaráðherra, hélt með stjórn síldarverksmiðju ríkisins í gær, héldu þeir Loftur Bjarnason og Guðm. Hlíðdal fast við úrsögn sina úr verksmiðjustjórninni. Fullyrt er hinsvegar, að Þörmóður hafi vilj- að vera áfram, en ótrúlegt þykir, að hann verði hafður lengur í þessu ábyrgðarmikla staríi. *) auðkent aí undirrituðum. BARNAFATAVERSLUNIN, Laugaveg 23. Sími 2035. Nýkomið fallegt og ódýrt skinn á barnakápur. verður lialdið við bifreiðarskiir- ana hjá Arnarhváli kl. 2 á morg- im. Verða þar seldir ýmis kon- ar ganilir nninir, svo sem fatn- aður, húsmunir o. fl. Greiðsla fari fram við liamarshögg. Lögreglustjórinn í Reykjavík, Silfurbrúðkaupsdag eiga i dag frú Guðríður Sig- urðardóttir og Eiríkur Filippus- son, Skólavöröustíg 20. Einnig eiga silfurbrúðkaups- dag í dag frú Þórunn Jónsdóttir og Einar H. Sigurðsson, klæð- skeri, Laugavegi 5. Silfurbrúðkaup eiga i dag frú Elísabet og Þórarinn Egilson framkvæmdarstjóri, Hafnar- firði. Silfurbrúðkaup eiga í dag frú Margrét Einarsdóttir og .Tóel Úlfsson, Hverfisgötu 100A. Skip Eimskipafélagsins. Brúarfoss kom hingaö í dag frá útlöndum. Selfoss íór héðan í morgun áleiöis til útlanda. Gull- t'oss fór frá Kaupmannahöfn í gær. Goðafoss er í Hull. Dettifoss fór frá Borgarfiði í gær áleiðis til útlanda. Franskt kveld í útvarpinu. Alliance Franqaise gekkst fyrir frönsku kveldi í útvarpinu síðast- liðið laugardagskveld. Hófst það kl. 8,30 með ávarpi, sem ræðis- maður Frakka í Reykjavík, G. Pcllissier, heiöursforseti félagsins, flutti á frönsku og' lagt var út á íslensku á eftir. Að því loknu lék frú Chouíllou tvö frönsk lög á slaghörpu. Þá hélt forseti félags- ins, frk. Thora Friöriksson, ágæt- an fyrirlestur um háskólann og stúdentagarðinn (Cité universita- ire) í París, og síðan söng frk. M'aría Markan 4 frönsk lög. Henri Boissin, franski sendikennarinn við háskóla íslands, las upp á frönsku tvær þektar dæmisögur eftir La Fontaine, og á eftir voru leikiii á grammófón nokkúr lög eftir fræg frönsk tónskáld. Kveld- inu lyktaði meö því aö leiknir voru þjóösöngvar Frakka og íslendingá. B.v. Haukanes er á leið til Englands frá Aust- fjörðum með fullfermi af báta- fiski. í bifreið frá Blönduósi komu hingað á sunnudagskvcld þingmennirnir Jón Sigurösson á Reynistað, Guðhrandur ísberg sýslumaður og Jón Pálmason á Akri. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. Næturlæknir er í nótt Kristín Ólafsdóttir, Tjarnargötu 10. Simi 2i6t. Aflasala Hannes ráðherra hefir selt ís- fiskafla í Grimsby, 2200 körfur fyrir 1380 stpd. KaupmennT Álaborgar rúgmjölid er ódýrt og gott. — Hafið það ávalt í versl- un yðar. — H. BENEDIKTSSON & CO. Sími 1228 (4 línur). Hiúkranarnámskeið heldur Rauði Efoss íslauds frá 6. nóvember til 14. nóvember, að sunnudeginmn undanskildum. Fáist nægileg þátttaka verður kent í tveim flokkum, frá klukkan 16—18 og 20—22. Áskriftarlisti liggur framnii í Hljóðfæraverslun Katrín- ar Viðar. — PROOUCTS Rúðuþurkur á bíla eru viðurkendar um allan lieim, og eru taldar lang ábyggilegastar allra tegunda, enda sést naumast nokkur önnur gerð á nýjum bil. Þessi gerð þurkar þversum yfir alla rúðuna og getur einnig þurkað helminginn eftir vild. Algeng og mjög ódýr gerð. Venjuleg legimd með hliðararmi. Varahlutir fyrirliggjandi i flestar tegundirnar. Endurnýiö ávalt með Trico og gætið þess að kaupa ekki eftirlíkingar. Einkasalar á Islandi Jtih. ðlafsson & Co, HmflsgOto 18, REYKJAVlK. Stúdentafélag Reykjavíkur heldur aðalfund sinn í Varðar- húsinu kl. 8)4 í kveld. E.s. Lyra kom til Bergeu kl. 10 í gær. Knattspyrnufél. Valur hefir í hyggju aö halda mikla hlutaveltu næstkomandi sunnudag. Stjórnin hiður félaga og aðra stuðningsmenn félagsins, að sýna nú, sem fyr, rausn sína og velvilja, með því að gefa sem flesta og besta muni á hlutaveltuna. Stjórnin niun kappkosta nú, eins og ætíð fyr, að gera hlutaveltu Vals þá langliestu á árinu, enda munu meðlimir og aðrir velunnarar félagsins, stuðla að því að svo megi verða. Þeir, sem eitthvað vildu gefa á hlutaveltuna, eru vinsamlegast beðnir að gera einhverjum úr stjórninni aðvart, og mun það þá verða sótt. B.v. Kópur fór liéðan í morgun vestur á fjörðu. Tekur þar bátafisk til út- ílutnings. Gúmmístimplar eru búnir til í Félagsprentsmiðjunni. Vandaðir og ódýrir. Línuv. ÓI. Bjarnason er á leið til Englands með ís- fiskafla. Einar Markan efnir til söngskemtunar í Gamla Bió kl. 7,15 næstk. fimtudag. Á söngskránni eru lög eftir útl. tónskáldin Stra- della, Caccini og Gounod, en flest lögin eru eftir íslenska tón- lagasmiði, m. a. nokkur lög eftir söngvarann sjálfan, svo sem lag við kvæði Gísla Brynjúlfssonar „Far vel“. Hefir lag þetta komið út hjá Norsk Notestik og Forlag i Osló. Hjúkrunarnámskeið helclur Rauði Kross íslands frá 6.—14. nóv. n, k. að sunnudegin- um undanskildum. Sjá augl.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.