Vísir - 22.11.1933, Blaðsíða 3
VlSIR
Iund,“ sagði liann ennfremur.
. „Er það Þjóðverjum að kenna?
Höfum vér gerst sekir nm nokk-
uð, sem réttlætir þennan vig-
búnað jxíirra? Ef svo er ekki,
því hafa þessar þjóðir þá aukið.
vígbúnað sinn?“
„Eg hefi barist fyrir stefnu-
skrá minni í 13 ár. Leið sú, sem
. er að balci, var ekki altaf greið.
Vér urðum að berjast við öfund
og óvináttu. Fyrsta og mesta
hlutverk okkar var að uppræta
flokka liins gamla skipulags.
Þeirra tími kemur aldrei aftur.
Næsta hlutverkið er að búa svo
i haginn, að atvinna skapist næg
i landinu og jafnfram er áform-
ið að skapa einliuga þjóð. Vér
höfum þegar hafist handa um,
að berjast við lausn ótal vanda-
mála, en það er ekki hægt að
byggja upp á átta mánuðum
það, sem aðrir hafa lagt í rústir.
Vér höfum þegar komið meiru
::í verk en vér höfum lofað. Vér
höfum nú að eins 3,800,000 at-
vinnuleysingja, en ef gamla
skipulagið vapri enn við lýði,
væri þeir að minsta kosti tíu
miljónir."
Ennfremur kvaðst Hitler hafa
áoi'kað miklu í þvi að uppræta
stéttahatrið, nú vinni menta-
snenn og verkamenn saman.
Klerkastéttin sé hætt afskiftum
af stjórnmálum og fjöldinn sé
aftur farinn að leita til kirkn-
anna. í þessu geti ekki verið
nein liætta fólgin fyrir aðrar
þjóðix'. „Óvinir Þjóðverja eru
að eins þeir, sem vilja leggja í
eyði verslun þjóðar vorrar og
iðnað. Flóttamenn okkar eru
allir menn, sem eru að flýja
undan réttlátum dómi. Við öf-
nndum ekki aðrar þjóðir yfir að
hafa orðið að taka við þeim, þvi
að það mun reynast þeim kosln-
aðarsamt. Þetta munu þær brátt
viðurkenna. Það eru ekki að
•eins góðir Þjóðverjar, sem
dveljast með erlendum þjóðum,
og vondir Þjóðverjar, sem
heima eru.“
Hitler kvað Þjóðverja óvig-
búna þjóð, en ef litið væri „í
aðra átt sæi menn 20,000 skrið-
■drelta — ef til vill 30,000, flug-
vélar o. s. frv.“ í þessum víg-
búnaði felist hótun til Þjóð-
verja. „Vér þráum frið, þyí að
þótt styrjöld i Evrópu myndi ef
til vill breyta landabréfinu, þá
mundi liún ekki breyta þjóðun-
mn. Vér óskum ekki eftir að
senda fólk vort, sem vér elsk-
um, til vígvallanna, enginn ósk-
ar eftir nýrri styrjöld, vér vilj-
um vera vinir annara Evrópu-
þjóða, og vér viljum auka
skilning þeirra milli og lifa í
sátt við þær. — Vér eigiun að
krefjast réttinda vorra og jafn-
framt ástunda að lifa í friði við
saðrar þjóðir.“
Svo mörg eru þau orð. Þau
virðast bera vott um einlægan
friðarvilja, en þrátt fyrir það
efasl menn alment enn víða um
lönd um friðarvilja leiðtoga
þj óðernisj af naðarmanna í
Þýskalandi, vegna þess sem á
aundan cr gengið.
Utan af landi.
—o—•
I
SeyöisfirSi 2i- nóv. FB.
Frá Eskifiröi hefir frést, aö
helmingur aöstandenda barna á
; skólaskyldualdri hafi kotnið upp
einkaskóla fyrir börn sín- Hefir
veriö ágreiningur tit af skólamál-
tmum þar síöan í haust a. m. k.
Þann 23- okt. fréttist til Winni-
peg, aö tvcir Íslendingar, bræöurn-
ir Björn og Þorlákur Vatnsdal,
synir Friðriks heitins Vatnsdals,
er um langt skeiö var kaupmaður
í Wadena, Saskatchewan, heföi
beðið bana af slysi þá um morgun-
inn. Fregnin var ógreinileg og ekki
getiö um með hvaöa hætti slysiö
hefði viljað til. Þeir voru búsettir
í grend við Smeaton, Sask. Björn
var ekkjumaður. Kona hans var
Brynhildur Eldon, fósturdóttir
Guttorms heitins Sigurðssonar.
Þrjú börn þeirra eru á lífi.og öll
ung. (HKR.—FB-).
Þættir fir spænskri
iiúkmentasögu.
•—o—
Serkir og bókmentir þeirra
á Spáni.
Rúmlega hálfri öld eftir dauða
Avicebrons fæddist sá, sem talinn
hefir verið mestur spekingur meðal
Gyðinga á Spáni og síðastur rit-
snillingur þess timabils, sem Gyð-
ingar héldu áfram a'ð vera þjóðar-
brot út af fyrir sig. Þa<5 var Móses
ben Maimon eða Maimonides (dá-
inn 1204). Hann var af tignum ætt-
um. Faðir hans, Maimun, lærdóms-
maður mikill, kendi honum hebresk
fræði, stjörnufærði og stærðfræði,
kojn honum því næst í skóla til á-
gætra kennara, arabískra og he-
breskra, þar sem hann lærði heim-
speki og læknisfræði. En mjög ung-
ur varð hann að hætta námi og
flýja átthagana ásamt foreldrum
sínum, sakir trúarofsókna Almohad-
anna, serknesks þjóðflokks, sem um
það leyti fékk yfii'ráð á Spáni.
Dvaldist hann nú landflótta i Mar-
okkó, Sýrlandi, ■Gyði.ngalandi, og
settist loks að í Kaíró. Þar gat hann
um skeið sint vísindastörfum sin-
um, jafnframt því sem hann hafði
ofan af fyrir sér með gimsteina-
verslun, er hann og bróðir hans,
Davíð, ráku í félagi. En sá bróðir
hans braut skip sitt á leið til Ind-
lands og druknaði, og misti Mai-
monides þar aleigu sína. Kom hon-
um þá að góðu- haldi kunnátta sín
í læknisfræði. Fyrir tilstilli niðgjaf-
ans Alfadel, varð hann líflæknir
Saladíns sokláns og ávann sér mik-
ið álit. Komst hann þó oít i lífs-
háska sakir íýógs Múhameðsmanna
og öfundar trúbræðra sinna, Gyð-
ingapresta, er töldu hann ómakíég-
an þeirrar virðingar, sem hann naut
hvarvetna.
Maimonides hafði, þi'átt fyrir ó-
næðissam:.. æfi. aflað sér furðu-
mikillar þekkingar á arabiskum og
hebreskum fræðum, læknisfræði og
gríski'i heimspeki, einkanlegakenn-
ingum y\ristótelesar. Um alt þetta
skrifaði hann mörg rit, flest á arab-
isku. Lang-merkast þeirra er það,
sem kallað hefir verið í spænskri
þýðingu Guía dc los descarriados —-
leiðarvísir hinna villuráfandi. Það
er hvorttveggja í senn, útlistun á
trúarsetningum Gyðingdómsins og
leiðarvísir um það, hvernig megi
sami'ýma þær röksémdum skyn-
seminnar og skoðunum heimspek-
inganna. Höfundurinn stílar það til
þeirra, sem hafa árangurslaust reynt
að finna samræmið milli ritningar-
hókstafsins og vísindalegra sann-
inda og standa af þeim sökum uppi
ráðþrota og efablandnir. Þar sem
djúpið virðist óbrúanlegt milli trú-
ar og skynsemi, grípur Maimonides
til líkingafullra útlistana, uns hon-
um tekst að komast að sömu niður-
stöðu, hvorn veginn sem hann vel-
ur. Þetta tvent, trú og skynsemi,
J leitast hann við að samræma, eins
og Averróes og heilagur Tómas. Og
sakir vísindalegrar nákvæmni sinn-
ar sem biblíuskýrandi, hefir haxm
verið talinn fyrirrennari Spinosa.
Siðakenningar hans byggjast á gyð-
inglegum hugsunarhætti, eru hent-
ugar og ])ægilegar í framkvæmd-
inni; hann leggur lítið upp úr mein-
lætalifnaði og bænagjörð, ef mað-
ur gerir sér ekki um leið far um
að verða efnalega sjálfstæður og
þess umkominn að hjálpa öðrum.
Framh.
Þórh. Þorg.
Dánarfregn.
Siðastliðinn föstudag andaðist á
Landakotsspítala eftir uppskurý
Gunnlaugur Helgason fyrrum
bóndi á Gilsá í Breiðdal, nú til
heimilis á Brekku á Álptanesi.
Veðrið í morgim.
Hiti i Reykjavík 2 stig, ísafirði
o, Akureyid — 5, Seyðisfirði — i,-
Vestmannaeyjum 4, Grhnsey 1,
Stykkishólmi 1, Raufarhöfn o,
Hólum í Hornafirði —• 1, Grinda-
vík 3, Færeyjum 6, Julianehaab
— 3, Jan Mayen — 3, Hjaltlandi
6, Tynemouth 7 stig. Mestur hiti
hér i gær 6 stig, minstur 1. Sól-
skin 1.8 st. — lYfirlit: Hæð fyrir
norðvestan land. Lægð suðvestur
í hafi á hægi'i hreyfingu norðaust-
ureftir. Horfur: Suðvesturland:
AustanátJ. Allhvass og dálítil rign-
ing austan til. Faxaflói, Breiða-
fjörður, Vestfirðir, Norðurland:
Hæg austanátt. Bjartviðri. Norð-
austurland. Austfirðir, suðaustui'-
land: Hæg norðaustan og austan-
átt. Víðast úrkomulaust-
Heiðurssamsæti
var frú Guðríði Guðmunds-
dóttur, konu Ólafs Ólafssonar,
fyrv. fríkirkjuprests, haldið í
Oddfellowliúsinu i gærkveldi.
Sátu það á annað hundrað
manna við góðan fagnað. Þeirra
hjónanna mintust í ræðum síra
Árni Sigurðsson frikirkjuprest-
ur, dr. Alexander Jóliannesson,
Magnús Sigurðsson bankastjóri,
Jón Ólafsson bankastj., Sigfús
Johnsen liæstaréttarritari, ísleif-
ur Jónsson kennari o. fl. Síra
Ólafur talaði tvivegis og þakk-
aði sóma þann, sem þeim hjón-
um var sýndur.
Pétur Á. Jónsson
heldur þriðja óperuliljómleik
sinn annað kveld. Nú eru það
lög úr óperum eftir Verdi, og úr
Niflungahringnum eftir Wag-
ner, sem liann syngur, en þess
er einmitt getandi um söngvar-
ann, sem reyndar allir vita, að
hann er sérstaklega Wagner-
söngvari, og nýtur hin mikla
rödd lians sín sérstaklega ágæt-
lega í Wagner-óperum. Hafa
undirtektimar undir ópérusöng-
kveld Pélurs verið ágætar og
viðtökurnar, sem hann hefir
fengið lijá áhevrendum, fram-
úrskarandi góðar. Það er líka að
maklegleikum, enda liefði hann
ekki verið árum saman aðal-
kraftur við bestu söngleikahús
úti i álfu, ef liann væri ekki frá-
bær söngvari. x.
Aflasölur.
Bragi liefir selt 1400 körfur
ísfiskjar i Grimshy fyrir 794
stpd. og' Gylfi 1000 körfur í
Hull fyrir 777 stpd. — Gyllir
hefir selt ísfiskafla í Cuxliaven
fyrir 25,900 mörk og er það af-
bragðs sala, en sá böggull fvlgir
skammrifi, að af þessari upp-
hæð verður að greiða 2,700 rm.
lendingarkostnað og 13,000 mi.
toll. — Fisktollur í Þýskalandi
er 100 rm. á smálest. Samninga-
umleitanir, sem staðið hafa yfir
um lækkun þessa tolls, hafa enn
ekki borið árangur.
Sæsíminn
komst í lag i gærkveldi-
Slys.
Ingimundur fisksali Guömunds-
soji vai'ð fyrir slysi í gær suðtxr
viS Þormóðsstaði, er hann var að
skjóta í mark. Var þetta um kl.
1. Haf'ði byssan sprungið í höndum
hans og skotið hlaupið í ennið.
Líður honum sæmilega, eftir at-
vikúm, og ekki talinn í neinni lífs-
hættu-
Bifreið stolið.
Ölvaður maður, nýkominn frá
Litla-Hrauni, stal bifreið í gær
fyrir utan húsið nr. 40 við Hverf-
isgötu. Bifreiðarstjórinn, Kristinn
Kristjánssón, hafði skroppið þar
inn í búð. Þegar út kom sá hann
á eftir bífreiðinni austur götuna.
Fór hann þá í bifreið, ásamt kunn-
ingja sínum, á eftir þjófnum. Ók
maðurinn hratt, en er upp fyrir Ár-
bæ kom ók hann út af veginum. -
Seg'ist hann hafa ætlað sér
að fara austur að Litla-Hrauni í
k)mnisför.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er á leið til Kaup-
mannahafnar. Goðafoss var á Dal-
vik i morgun. Brúarfoss fór frá
Kaupmannahöfn í jnorgun. Detti-
foss kom til Hull i morgun. Sel-
foss fór héðan í gærkveldi til
Stykkishólms.
50 ára
er í dag frú Guðríður Eiríks-
dóttii', Laugavegi 81.
E.s. Súðin
kom úr hringferð í gærkveldi.
I ðnaðarmannaf élagið
í Reykjavík heldur fund í bað-
stofu fé.lagsins annað kveld kl.
8yZ. Fundai'efni: Erindi frá Lands-
sambandi iðnaðarmanna. Helgi H.
Eirik^son flytur erindi með
skuggamyndum. Stjórnin skýrir
frá gerðum sínum o. fl. Sjá nán-
ara i augl.
K. F. U. M. og K. í Hafnarfirði.
efna til hlutaveltu um næstu
helgi- Meðlimir og velunnarar, eru
vinsamlegast beðnir um að hafa
þetta í huga. K.
Bethania.
KI. St/2 í kveld flytur sira Frið-
rik Hallgrimsson erindi. Ræðu-
efni: „William Carey kristniboði i
Indlandi." Barnakór syngur. Allir
velkomnir.
„Alþýðu-magasín“
heitir hefta-safn, sem byrjar að
koma út á morgun. Afgr. verður í
Hafnarstr. 18, uppi.
Gullverð
ísl. krónu er nú 54.55, miðað
við frakkneskan franka.
Gengið í dag.
Sterlingspund ....... kr. 22.15
Dollar — 4,14
100 ríkismörk þýsk. — 162,17
— frankar, frakkn. . — 26,80
— belgur — 95,08
— frankar, svissn. . — 132,50
— lírur — 36,45
— mörk, finsk .... — 9,93
— pesetar — 56,33
— gyllini — 275,39
— tékkósl. kr — 20,62
— sænskar kr — 114,41
— norskar kr — 111,44
— danskar kr — 100.00
Útvarpið í dag.
Pianó
sama sem nýtt, til sölu
með góðum greiðsluskil-
málum.
Org'el, stór og minni, ný og
dálítið notuð, seljast með
góðum greiðsluskilmálum,
góðu fólki.
Hljóðfærahnsið,
Bankastræti 7.
Nýkomið:
Sardínur.
Grænmeti allskonar.
Egg til bökunar og suðu.
Matvöraverslan
Tðmasar Jdnssonar.
ðrsmlðavionnstofa
min er í Austurstræti 3.
’Hapaldup Hagan.
Simi: 3890.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fi.
Þingfréttir.
M.s. Dronning
Aiexandrine
fer annað kveld klukkan 6
til Isafjarðar, Sigluf jarðar,
Akureyrar. Þaðan sömu
ieið til baka.
Farþegar sæki l'arseðla í
dag.
Tilkynningar um vörur
komi í dag.
Fyrsta ferð félagsins
á næsta ári yerður 3. janú-
ar frá Kaupmannahöfn.
Verður það hraðferð og fer
skipið eins og vanalega tll
Vestur- og Norðurlandsins.
Sklpaafgreiðsla
Jes Zimsen.
Tryggvagötu. Sími 3025.
Trúofanarhringar
aliaf fyrirliggjandi.
Haraldup Hagan.
Sími: 3890. Austurstræti 3.
GERI UPPDUÆTTI af allskonai!
húsum. — Þorleifur Eyjólfssoa,
húsameistari, Öldugötu 19.
19,00 Tónleikar.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Tilkynningar. Tónleikar.
19,35 Tónlistarfræðsla, V.
(Emil Thoroddsen).
20,00 Klukkusláttnr.
Fréttir.
20,30 Erindi. Þættir úr náttúrtt-
fræði: Eldgosið á Kraka-
tá. (Pálmi Hannesson).
21,00 Tónleikar.
Útvarpstríóið).
Grammóf ón: Debussy:
Pelléas og Melisande.
Sálmur.