Vísir - 17.12.1933, Page 3
VlSIR
Vér leyfum oss að benda
sérstaklega á þessar nýju
bækur til jólagjafa í ár:
Sögup frá ýmsum löndum II. bindi.
(I. bindi kom út i fyrra). Verð lieft kr. 7.50, ib. 10.00. Þýð-
endur: Bogi Ólafsson, Einar H. Kvaran, Freysteinn Gunnars-
son, Jón Sigurðsson, Kristján Albertson, Magnús Ásgeirsson,
Ragnar E. Kvaran, Þorsteinn Gíslason.
sagan um Saxt Miehele eftir Axel Munthe.
Þýðendur Karl ísfeld og Haraldur Sigurðsson. 488 bls. i stóru
broti.Verð heft kr. 13,50, í léreftsbandi 17.50, í skinnbandi 22.00.
Sögur handa börnum og unglingum.
Sira Friðrik Hallgrimsson safnaði. 3. hefti. Verð ib. kr. 2.50.
(1. hefti kom út árið 1931, 2. hefti árið 1932).
Egils saga Skallagrímssonar.
Sigurður Nordal gaf út. Útgáfa Fornritafélagsins. verð heft
kr. 9.00, í pappabandi kr. 10.00, í skinnbandi kr. 15.00.
Bækurnar fást í bókabúðum.
n Siilúsar [yaiuaússsnar
og Bókabúð Austurbæjar BSE Lv. 34.
unni, eða bæta þeim upp að ein-
hverju leyti hin miklu og óvenju-
legu fóðurbætiskaup. — Hins veg-
ar kveðst „Mjólkurbandalagið"
vona, að mjólkin og aðrar mjólk-
urvörur geti lækkað í verði til góðra
muna, er mjólkurlögin komi til
framkvæmda.
Bæjarverkfræðingur
birtir í blaðinu í dag áskorun til
bæjarbúa'að fara eins sparlega með
vatnið og frekast er unt, því að
óhæfileg vatnseyðsla baki fólki í
upphverfunum hin mestu óþægindi.
Vatnsskortur er nú að verða meiri
í háhverfunum en þegar þvegið
er á öllum fiskstöðvum, og er þó
enginn fiskur þveginn nú. Stafar
þetta eingöngu af of mikilli eyðslu
í heimahúsum eins og venja er til
fyrir hátíðar. — Ætti menn að
bregðast vel við áskorun þessari og
spara vatnið eins og unt er.
G.s. ísland
fór héðan í gærkveldi áleiðis til
útlanda.
E.s. Goðafoss
kom til Vestmannaeyja í gær-
kveldi og er væntanlegur hingað
í dag snemma.
M álverkasýningu
hefur frú Greta Björnsson í
gluggutn afgr. Álafoss, Þingholts-
stræti 2, í dag og á morgun. Mál-
verkin eru fögur og vel gerð. X.
„Börnin frá Víðigerði“
nefnist saga (sem Vísi hefir ver-
ið send alveg nýlega) eftir Gunn-
ar M. Magnússon, kennara. —
Blaðið hefir ekki haft tíma til að
kynna sér bókina og verður því
dómur um hana að bíðá betri tíma.
Höf. er kunnur af bókum, sem áð-
ur eru út komnar, en þær eru þess-
ar: „Fiðrildi" (sögur) 1928,
„Brekkur" (barnabók) 1932 og ef
til vill einhverjar fleiri. En til er í
handriti, að því er frá er skýrt,
Reykjavikursaga, er nefnist
„Fönnin á glugganum.“ — Ólafur
P.' Stefánsson hefir gefið bókina
út og er frágangur allur hinn
snyrtilegasti.
Ágæt skemtun
er í Góðtemplarahúsinu í kveld.
Þar verður skrautsýning og tví-
söngur (Gluntarne), leiksýning og
dans. Sbr. augl., sem birt var í
blaðinu í gær.
Sýning á leirmunum
verður opin til kl. 11 í kveld i
Listvinahúsinu.
Fyrirspurn.
Vill ekki stjórn Skiðafélagsins
gera svo vel og birta opinberlega
skýrslu um það, hvað Skíðafélag-
inu áskotnaöist mikið fé í 2-króna-
veltunni og hvenær vænta megi að
skíðaskálinn komist upp?
Skíðamaður.
Kvikmyndahúsin.
Athygli skal vakin á því ,að aug-
lvsingar kvikmyndahúsanna eru í
blaði 344 C.
Enskukensla útvarpsins.
Það er nú auglýst þráfaldlega
væntanleg enskukensla í útvarpinu.
Er mikil áhersla lögð á, að bæk-
urnar sé keyptar þegar í stað. Eg
er einn þeirra, sem mun taka þátt
í kenslu þessari, en eg vil ekki kaupa
bók fyrr en eg veit fyrir víst á
hvaða tíma kenslan fer fram. Svo
mun um fleiri. Það er því áskorun
mín til útvarpsins, að það bæti inn
í auglýsinguna næst á hvaða tíma
kenslan fer fram, því að eg kæri
mig ekki um að kaupa bók, sem eg
hefi kannske engin not af.
O tvarpsiwtandi.
Barnaguðsþjónusta
verður í Elliheimilinu kl. 1 )4 i
dag.
„Sagnarandinn“
heitir gamansaga úr sveit
(handa börnum og unglingum),
sem Óskar Kjartansson hefir ritað,
en Ólafur P. Stefánsson gefið út.
— Höf. er að góðu kunnur og hef-
ir ýmislegt ritað við hæfi barna og
unglinga, svo sem „Lisa og Pétur“
(æfintýri), „í tröllahöndum“ og ef
til vill eitthvað fleira. — Ungling-
um mun þykja gaman að „Sagnar-
andanum,“ því að þar kemur sitt
hvað spaugilegft fyrir. Myndir eru
i kverinu til skýringar atburðum
þeim, sem frá er sagt.
Landsmálafélagið Vörður
heldur fund annað kveld kl. 8)4
í Varðarhúsinu. Alþingismenn
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
segja þingfréttir. — Allir sjálf-
stæðismenn velkomnir.
Jólatrésskemtun
heldur Skipstjórafélagið „Aldan"
fyrir börn félagsmanna 27. des. kl.
4á Hótel Borg. Sjá augl.
Til heilsulausu stúlkunnar,
afhent Vísi: 5 kr. frá N. N.,
10 kr. frá N. N., 10 kr. frá S. G,
Betanía.
Samkoma i kveld kl. 8)4. Þ.
Einarsson talar. Allir velkonmir.
Áheit á Barnaheimilið Vorblómið
(Happakrossinn) : Frá J. Ólafs-
son, Canada, 2 sterlingspund, frá
Þ. B. 5 kr. og O. n. 2 kr, og
stúlku 3 kr. — Móttekiö með þakk-
læti. Þ. Sigfurðardóttir.
Áhei't á Barnaheimilið (Vorblómið
(Happakrossinn), afhent Vísi:
Kr. 5,00, gamalt áheit frá ónefnd-
um.
Heimatrúboð leikmanna
Vatnsstíg 3. Samkomur i dag:
Bænasamkoma kl. 10 f. h. Bama-
samkoma kl. 2 e. h. Almenn sam-
koma kl. 8 e. h. Allir velkomnir.
VlSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
Aðventkirkjan.
Samkoma verður haldin i Að-
ventkirkjunni kl. 8 í kveld. Allir
velkomnir.
Síldveiði
er enn allmikil á Austfjörð-
um. Bolnv. Ólafur tók 900 tn.
af síld til útflutnings á Norð-
firði í fyrradag.
Útvarpið í dag.
10,00 Fréttaerindi (Vilhj. Þ.
Gíslason) og endurtekn-
ing frétta.
10,40 Veðurfregnir.
11,00 Messa i dómkirkjunni.
(Síra Friðrik Hallgríms-
son).
15,00 Miðdegisútvarp.
15.30 Erindi: Bernhard Shaw
og svertingjastúlkan. —
(Ragnar E. Kvaran).
18,45 Barnatimi. (Frú Ragn-
heiður Jónsdóttir).
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Tilkynningar.
19,25 Grammófóntónleikar:
Verdi: Lög úr Othello.
19,50 Tilkynningar.
20,00 Klukkusláttur.
Fréttir.
20.30 Erindi: Uppruni og þró-
un tónlistari I. (Páll ís-
ólfsson).
21,00 Tónleikar.
(Lúðrasv. Reykjavíkur).
Grammófón:
Haydn: Kvartett í G-dúr.
(Budapester strengja-
kvartettinn).
Danslög til kl. 24.
Póstfliitningar.
Undanfarin ár hefir verið leitast
við að fá póst fluttan milli landa
og hér innan lands með togurum
og flutningaskipum.
Þeir, sem fyrir skipunum ráða,
hafa sýnt mikið tómlæti í því, að
tilkynna brottför skipa sinna, en
skylda þeirra í þessum efnum er
sú, að tilkynna pósthúsi á brottfar-
arstað skipsferðina með 24 klukku-
stunda fyrirvara. — Liggja sektir
við vanrækslu í þessu efni, alt að
1000 krónum.
Póststjórnin hefir þrásinnis gert
tilraunir til þess, að fá forráðamenn
skipa til þess að gegna skyldu sinni,
og láta pósthúsin vita um farartíma
skipa sinna, svo að hægt sé að
senda með þeim póst, og síðast með
sérprentuðum auglýsingum snemma
á þessu ári. — Samt hefir árang-
urinn orðið lítill og ríkir enn hið
forna tómlæti Af þessum sökum
kemur það iðulega fyrir, að skip
fara héðan og frá höfnum kring um
land, án þess að taka póst.
Þetta er óviðunandi ástand og
verður að breytast.
N orskar
loftskeytafregnir.
—o--
Osló 16. des.
NRP. - FB.
Eftirlit með síldarútflutningi.
Ríkisstjórnin liefir álcveðið,
að þangað til öðru vísi verði
ákveðið, skuli bannað að flydja
út ferska stórsíld og vorsíld,
nema því að eins að verslunar-
ráðuneytið hafi fallist á sam-
þyktir og reglur þeirra útflytj-
enda, sem lilut eiga að máli.