Vísir - 15.01.1934, Blaðsíða 4
/
VlSIR
aö stytta eöa sníða burt eftir hætti.
Fyrsti þátturinn, kvöldvakan í
Hliö, fellur dauöur til jarðar, ein-
göngu vegna þess aö skærunum
hefir ekki verið beitt. Þaö er og
ekki hægt að dylja þaö, aö það,
sem þessum leik íleytist, fleytist
;honum á Jóni Thoroddsen, en ekki
á höf. Sér það best á í síðasta þætti
þegar höf. á að spiitna til enda
þráðinn, sem Jón Thoroddsen
• fékk ekki lokið við, því að þá
. verður allt efnislaust og leiðinlegt,
vegna þess eins, að nú mótar Jón
Thoroddsen ekki persónurnar
lengur. Þaö er þetta sem veldur,
en ekki hitt að höf. ráði ekki við
málfarið; að því er ekkert að
finna, —; höf. er jafnvel málfimur.
En það skrifa enginn Jón Thor-
oddsen nema Jón Thoroddsen. Eg
vil hér taka það frant, að höf.
annars getur margt og gerir vel;
t d. eru fáir honum slyngari í aö
þýða erlenda gamanleiki og stað-
setja þá, ef hann leggur sig frarn.
Skal svo lokið þessu tali.
Leiðbeiningin virtist hafa verið
mjög natin, og meðferð leikend-
anna var í heild sinni góð. Hjá
sumum var hún ágæt, en þó var
heldur ekki örgrant um það aö
sumum mistækist. Höfuð og herð-
ar, yfir alla báru þau Brynjólfur
Jóhannesson, sem lék sira Sigvalda,
og Gunnþórunn Halldórsdóttir,
sem lék Staðar-Gunnu. Mér væri
nær að halda, að þetta væri eitt
allra besta hlutverk Brynjólfs;
gerfi, fas og hvað eina stóð svo
vel af sér við hlutverkið sem unt
var. Eg minnist þess varla að hafa
séð helgislepjóttari flærðarhund en
þarna. Leikurinn var svo jafn og
samfeldur, að hvergi vottaði fyrir
bláþráðum. Bestur þótti mér hann
þó, þegar hann var að blaða í
ræðuruslinu til þess að búa sig
undir það, ef rækallinn skyldi
reka það upp á hanu að þurfa að
messa. Það má í raun réttri segja
flest hið sama um leik Gunnþór-
unnar og leik Brynjólfs, enda er
hún frábærum ná11úru 1 ei kgáfíun1,
búin á sínu sviði. Valdimar
Helgason lék Hjálmar tudda og
gerði það vel, en meðferðin var þó
ekki eins frjálsleg og heföi mátt
vera. Soffía Guðlaugsdóttir lék
Þuríði gömlu og gerði það, að mér
fanst, óaðfinnanlega, en þó þótti
mér leikur hennar ekki duga, og
get eg ekki gert mér neina grein
fyrir hvað valdið hafi, en jafn vist
er það, að leikur hennar virtist
einnig fara fyrir ofan garð og neð-
an hjá öðrum áhorfendum. Alfred
Andrésson lék Hallvarð Hallsson
og gerði það með hressilegasta
fjöri, og var hreint furða hvað
hann gat gert mikið úr langlokun-
um í hlutverkinu. Martha Kalman,
Arndís Björnsdóttir, Indriði
Waage og Valur Gíslason léku
leiðinleg og ómerkileg hlutverk
með þeirri leikni, sem góðum og
þaulvönum leikurum sómdi.
Magnea Sigurðsson lék Sigrúnu
Þorsteinsdóttur, sem er lítið leið-
indahlutverk; það var hreint
furða hvað fólk var hrifið af henni,
því að hún aðhafðist ekki annað
en að vera snotur, og mér hefir
fitist svo til, að henni sé það ósjálf-
rátt, og að það sé óviðkomandi
feik hennar. Grím meðhjálpará lék
Lárus Ingólfsson, en Bjami
Björnsson lék Egil son hans. Þeir
ftJðgar eru oinfald'ir durga'r, en
ekki kluhnar (Klown). í liöndum-
þeirra Láruar og Bjarna urðu
þeir aðl Molbúum — einmitt aö
Molbúum en ekki aö Bakka-bræðf-
um það var nefnilega greini-
lega tlönsk slikja á þeiin. Frammi-
staðan var ])ó mun skárri hjá Lár-
usi. Um öniuir iilutverk er ekkcrl
að segja, nerna hvað Finnur vinnu-
nlaður á Stað, sem Lárus Pálsson
lék, talaði of lágt.
iigljsíi i Y1SI.
Leikskráin er aö þessu sinni ó-
venjugóð, en eg held þó að það sé
heppilegra að hafa ekki í henni
greinar, sem þarf að skifta.
Aðsóknin að leiknum sýnir, að
hann þrátt fyrir alt fellur mönnurn
vel, enda verður því ekki með
sanni nejtað, að það eru (mörg
skringileg atvik í honum. Eg tel
það víst aö hann muni endast
leikfélaginu lengi.
G. J.
Bæjarfréttir
1.0.0 F. 0.b.lP. = mil681/i
sEL
Veðrið í morgun.
Hiti i Reykjavik 1 stig, ísa-
firði 0, Akureyri —2, Seyðis-
firði —1, Vestmannaeyjum 2,
Grímsey —2, Stykkishólmi 0,
Blönduósi —1, Raufarhöfn 0,
Hólum í Hornafirði 1, Grinda-
vik 1, Færeyjum 3, Juliane-
haab —2, Jan Mayen 4, Ang-
tnagsalik —6, Hjaltlandi 6,
Tynemoulh 6 stig. Mestur hiti
liér i gær 2 stig, minstur —1.
Úrkoma 6.1 mm. Yfirlit: Kyrr-
stæð lægð við suðvesturströnd
íslands. Horfur: Suðveslurland,
Austan gola. Dálítil úrkoma.
Faxaflói, Breiðafjörður: Austan
gola. Víðast úrkomulaust. Vest-
firðir, Noi’ðurland, norðaustur-
land: Norðaustan kaldi. Sum-
staðar lítils háttar snjókoma.
Austfirðir, suðausturland: Hæg
norðan og norðaustan átt. Úr-
komulaust að mestu.
Útvarpsumræður
um bæjarmál Reykjayíkur byrja
i kveld kl. og verður haldið á-
fram á sama tíma annað kveld og
miðvikudagskveld. í kveld verður
ein 35 mínútna ræða frá hverjum
flokki og annað kveld fær hver
flokkur einnig 35 mín., sem verð-
ur tvískift, en á miðvikudagskveld
verða umferðir flokkanna tvær, 20
mín. og 15 mín. Dregið \rar um í
hvaða röð ræðurnar væri fluttar
og verður röðin þessi öll kveldin:
1. Alþýðuflokkur, 2. Framsóknar-
flokkur, 3. Þjóðernissinnar, 4.
Kommúnistar og 5. Sjálfstæðis-
flokkur. — 1 kveld talar Jón Þor-
láksson borgarstjóri af hálfu Sjálf-
stæðisflokksins.
Á Akureyri
fara bæjarstjórnarkosningar
fram á morgun. Eins og áður hef-
ir verið frá skýrt hér í blaðinu
voru lagðir fram þar sex listar.
Kosningaáhugínn er sagður mjög
mikill á Akureyri nú.
Óþrifnaður.
Mjög er nú kvartað undan
þvi hér i bænum, svo sem á bið-
stofum lækna og viðar, að kosn-
ingableðli þeirra Jónasar og
Hermanns sé fleygt þar inn í
leyfisleysi, stundum mörgum
eintökum saman og oft á dag.
Þykir að þessu hinn mesti ó-
þrifnaður, svo sem von er til,
og hefiir fólk varla við að
fleygja „skarninu“ út, jafnóð-
um og því er Iroðið inn.
Hafa allir hinn megnasta við-
bjóð á þessari frekju og á-
gengni hinna alræmdu og i 11-
ræmdu bleðilsfeðra.
E.s. Esja
fer héðan í kveld kl. to vestur
og uorður um land í hringferð.
KI Ij Ð £2 Jts Cí
Kildebo útungunarvexar hafa selst meira hér ú landi
en nokkur önnur tegund, sökum sinna framúr-
skarandi litungunarárangra samfara afar lágu
verði.
Kildebo er mjög auðvelt að passa, sökum þess að hita-
SS stillirinn er afar öruggur og heldur hitanum jöfn-
um, og sjálfsnúari er snýr öllum eggjunum í einu. s
55 Kildebo er mjög steinolíuspör og er þvi mjög ódýr i —
notkun.
= Ef þið viljið fá rnarga og hransta unga, þá kaupið
= Kildebo.
Kildebo verksmiðjan framleiðir útungunarvélar frá S
100 eggja stærð upp í alt að 10 þúsund eggja. Enn- S=
fremur fósturmæður og annað er að fuglarækt S
Mynda- og verðlistar sendir þeim er óska.
I Jóh. Ólafsson & Co., |
SS Símn.: JuweL REYKJAVÍK. Sími: 1630.
Aðalumboðsmenn á Islandi fyrir :
„Kildebo“ Rugemaskinfabrik, Sorö.
lÍmHiniiiitiiimnniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiniiiiiiim
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er hér. Goðafoss er í
Kaupmannahöfn. Brúarfoss er á
leið til Austfjarða frá Leith. Detti-
foss er í Vcstmannaeyjum. Vænt-
anlegur hingað í nótt. T.agarfoss
er í Kaupmannahöfn. Selfoss er
á leið til Hull.
Enn á götunum!
Kosningableðill þeirra Jónas-
ar og Hermanns skýrir frá þvi
sem miklum tíðindum, að Her-
mann sinni enn embætti sinu
með likuin hætti og verið hefir,
þrátt fyrir allar aðfinslurnar,
sem á honum hafi dunið. „Her-
mann Jónasson gengur hér um
göturnar, eins og ekkert hafi i
skorist“, segir bleðillinn. Haun
er svo sem ekki á þvi, að hæta
ráð sitt, maðurinn sá!
Gengið í dag.
Sterlingspund ......kr. 22.15
Dollar .......... — 4.36%
100 rikismörk þýsk. — 161.92
— frankar, frakkn.. — 26.90
— belgur .............— 95.18
— frankar, svissn. . — 132.70
— lírur......... — 36.35
— mörk, finsk .... — 9.93
— pesetar ..........— 56.92
— gyllini ............— 275.05
— tékkósl. kr.....— 20.67
— sænskar kr.....— 114.41
— norskar kr....—- 111.39
—- danskar kr....... 100.00
Gullverð
ísl. krónu er nú 54,35. tniðað viö
frakkneskan franka.
Næturlæknir
er í nótt Daniel Fjeldsted. Að-
alstræti 9. Sími 3272.
Næturvörður
er þessa viku i Reykjavíkur apo-
teki og Lyfjabúðinni Tðunni.
Hljómleika
halda þeir í frikirkjunni annað
kvéid kl. 8yi Einar Sigfússon og
PáM ísólfsson. Verkefni hafa þeir
valið sér eftir Frescobalcli. Senaillé,
Bach, Pugnani, Kreisler, César
Franck og Vitali.
Fimleikaæfingar f. R.
falla niður í dag vegna veikinda
kennara.
Nýja Bíó
biður þess getið, aö hin fræga
kvikmynd „Cavalcade“ verði sýnd
annaðkveld, vegna f jölda áskorana.
— Myndin verður send út nú i
vikunni, svo að nú cru síöustu for-
vöð að sjá hana.
Happdrætti.
Húsbyggingarsjóðs fríkirkjunn-
ar í Reykjavík, sem draga átti um
í dag verður framlengt til 15. maí
þ. á. Sjá augl.
Útvarpið í kveld:
19,00 Tónleikar. 19,10 Veður-
fregnir. 19,29 Tilkynningar. —
Tónleikar. 19,30 Tónlistarfræðsla
(Emil Thoroddsen). 19,55 Auglýs-
ingar. 20,00 Klukkusláttur. Frétt-
ir. 20,30 Stjórnmálaumræður:
Bæjarmál Reykjavíkur.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 31. des—
6. jan. 1934 (í svigum tölur
næstu viku á undan): Hálsbólga
7 (27). Kvefsótt 30 (40). Kvef-
lungnabólga 1 (0). Iðrakvef 4
(9). Taksótt 1 (2). Hlaupabóla
0 (1). Skarlatssólt 1 (0) Manns-
lál 4 (3). — Landlæknisskrif-
stofan, (FB.).
Síldarútflutningurinn.
Arið sem leiö voru fluttár cit
224.674 tn. af sílcl, verð kr. 4.290.-
170, en 1932 249.184 tn., verð kr.
4.484.810. Auk þess voru flutt út
árið sem leift 371.670 kg. af ísaftri
síld, verð kr. 20.710.
Ullarútflutningurinn
iiam 1.286.760 kg. árift sem leið,
verft kr. 1.382.650, en 1932 553.900.
verft kr. 496.830.
Saltfisksutflutningurinn.
All árið sem leið voru flull
út 60.737.220 kg. af verkuðum
r
KAUPSKAPUR
\
I
Orgel. — Litið notað Miill-
er-orgel er til sölu nú
þegar. •— A. v. á.
I
Skiði, stafir og skór til sölu
með tækifærisverði. Hringbraut
132. — (255
Munið eftir heilu sérbökuðu
Vinarbrauðunum með 3-kaff-
inu, ásamt öðru góðu i Bem-
liöfts-útsölunni i Nönnugötu 7.
(183
Hvanneyrarskyr fæst daglega «
Matarverslun Tómasar Jónssonar.
________________ (215-
Kjamabrauðið ættu allir að not&
Það er holl fæða og ódýr. Fæst
hjá Kaupfélagsbrauðgerðinni í.
Bankastræti. Sími 4562. (512
r
VINNA
1
Stúlka óskast hálfsmánaðar-
tima. Uppl. Urðarstíg 14. (253
Stúlka óskast tii Grindavikur..
Hátt kaup. Uppl. í sima 4331.
eftir kl. 7. (252
Góð stúlka eða eldri kona
óskast. Barnlaust heimili. —
Uppl. Vatnsstíg 3, uppi. (251
Stúlka eða eldri kona óskast
um óákveðinn tíma. Lítið heim-
ili. Uppl. á Njálsgötu 52. (250
Vantar duglegan lifrar-
bræðslumann. Uppl. á Hótel
Ileklu. Herb. nr. 11. (249
Stúlka óskast í létta vist..
Tvent i heimili. Uppl. Klappar-
stig 42. (258
Sendisveinn óskast nú þegar
i Ingólfs Apótek. (257
Ráðskona óskast til Grinda-
vikur. — Uppl. Vesturgötu 59.
(254
Þvottahús Kristínar Sigurðar-
dóttur, Hafnarstræti 18. Sími 3927.
(68
Hreinsa og geri við eldfæri og
miðstöðvar. Simi 3183. (69
Leiknir, Hverfisgötu 34, ger-
ir við: — Hjól, grammófóna,
saumavélar, ritvélar. — Sann-
gjarnt verð. Sími 3459. (168
Stúlka óskast í vist á Hverfis-
götu 70, vegna forfalla annarar,
(256
r
TAPAÐ - FUNDIÐ
1
Umslag með 25 kr. i tapaðisf
á laugardaginn í miðbænum.
Skilvís finnandi er vinsamlega
beðinn að skila því á afgr. gegn
fundarlaunum. (256
I
l
KENSLA
Tungumálaskólinn Laugaveg
11. Enska, danska, þýska, vél-
ritun og verslunarbréf. Viðtals-
tími 11—12 og 6—11 e. h. (153
saltfiski, verð kr. 24.261.910. --
Til samanburðar skal þess gel-
ið, að 1932 voru flutt út 59.103.-
080 kg., verð kr. 21.889.950.
Af óverkuðum saltfiski voru
flutt út 1933 16.363.680 kg.r
verð kr. 3.881.400, en 1932 17,-
762.970, vcu’ð kr. 3.801.670.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
)