Vísir - 18.02.1934, Síða 4

Vísir - 18.02.1934, Síða 4
VlSIR WINCHESTER „RANGER“ haglaskot eru best -- og ódýrust. Sportvöruhús Reykjavíkur. Islendinpar! Neytið íslensku fæðunnar. Steinbítsriklingur, valinn. Lúðuriklingur. Harðfiskur, beinlaus. Freðýsa. Saltfiskur, pressaður. Hákarl. Hvalur, Síld. Alt eru þetta góðar og girni- legar vörur.--- Páll Halibjðrns. Simi 3448. Laugaveg 55. Oslo 17. febr. FB. Réttindi kvenna til embætta. Óðalsþingið samþykti með 6o at- kv. gegn 49, tillögur meiri hluta dómsmálan. um réttindi kvenna til ráðherraembætta, og prestsem- bætta í þjóðkirkjunni. Með tillög- unum greiddu atkvæði verkalýðs- þingmenn og nokkurir þingmenn úr vinstri og hægri flokkunum og rót- tæka þjóðflokknum. — Óvíst er, hverjar undirtektir málið fær í Lög- þinginu. Kunnur norskur rithöfundur látinn. Ivar Mortensen, fyrv. sóknar- prestur, er nýlega látinn. Ilann var kunnur rithöfundur og skrifaði á landsmáli. Skipstrand. Eimskipið Canis, eign Björgvinj- argufuskipafélagsins, kendi grunns í nótt við Oddekalven fyrir sunn- an Florö. Björgunarbáturinn Her- kúles er lagður af stað frá Bergen áleiðis á strandstaðinn. Tjón af ofviðri. Fárviðri hefir valdið tjóni á tnannvirkjum í Valladal á Sunn- mæri. í gær svifti stormhryðja húsi af grunninum og valt húsið niður bratta hlið. 20 stk -1-25 TEOFANI Cicjðtrettum er ötltötf liförvdi Allur fjöldinn af bíla- og báta- mótoraverksmiðjum notar AC kerti í vélarnar í upphafi. Það er vegna þess, að ekki er völ á ábyggilegri kertum og ending- arbetri. — Endurnýið með AC, svo vélin gangi vel og sé bensínspör. — Allar mögulegar gerðir oftast fyrirliggjandi og verð mjög hóf- legt. — AC kertin eru búin til hjá General Motors, eftir allra fullkomnustu aðferð er þekkist. 54 SI2B «Fóh. Ólafsson & Co. Hverfisgötu 18, Reykjavik. Aöalfandnr Slysavarnafélags íslands Þegar kaup- menn segja, að Efnagerðar- soyan líki af- bragðs-vel, og sé mjög vinsæl, þá verða þessi ummæli að skoðast sem bergmál við- skiftavina þeirra, og hin bestu meðmæli. H.f. Efnagerð Reykjavíkur Húsmæður. Kaupið AXA haframjölið Það er gott og nærandi. Framleitt undir lækn- iseftirliti. VfSIS KAFFIÐ gerir alla glaða. verður baldinn í kaupþingssalnum í dag kl. 3*4 síðdegis. DAGSKRÁ: 1. Stjórnin gefur skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári. 2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins tii sam- þyktar. 3. Kosnir 5 menn í stjórn til tveggja ára og 5 til vara. Enn- fremur kosnir tveir endurskoðendur til tveggja ára og tveir til vara. 4. Tekin ákvörðun um byggingu björgunarskútu fyrir Faxa- flóa. 5. Ýms önnur mál er upp verða borin. STJÖRNIN. Nýju bæknpnar: Sögur frá ýmsum Iöndum, n. bindi, ib. 10,00. Sagan um San Michele eftir Munthe, ib. 17,50 og 22,00. Sögur handa börnum og unglingum, III. bindi, ib. 2,50. Egils saga Skallagrimssonar, útg. Fomritafélagsins, ib. 15,00, Btikaverslnn Sigf. Eymnrdssonar og Bókabúð Austurbæjar B. S. E. Laugavegi 34. | KAUPSKAPUR Nokkrir tilbúnir kvenfatnað- ir til sölu með verksmiðjuverði. Skólavörðustíg 16 (portið). — (329 Tófuskiun óskast keypt. — A. v. á. : (328 Mótorhjól óskast. — Tilboð, merkt: „Mótorhjól",. liggist inn á afgr. Vísis. (326 Athugið: Hattar, karlmanna- fatnaðarvörur, og liattaviðgerð- ir, best og ódýrast. Ivarlmanna- hattabúðinni, Haínarstræti 18, (325 Hús, stór og smá, hefi eg tiJ sölu. Einnig nýbýli í Mosfells- sveit og laxveiðijörð í Árnes- sýslu. Eignaskifti geta komið til greina. Tek hús i umboðssölu, Pétur Jakobsson, Kárastíg 12. Sími 4492. (321 Haraldur Sveinbjarnarson selur ódýrar hjólhcstalugtir, nýjasta patent. (317 VINNA I Fullorðin, glaðlýnd stúlka óskast *sem fyrst, m. a. til að lesa part úr degi íslensku og a. m. k. dönsku fyrir lasinn mann. Tilboð, merkl: „Lestur“. sendist afgr. Vísis. (322 Tek að mér fjölritun og vél- ritun skjala, einnig allskonar lögfræðilega skjalagerð. Pétur Jakobsson, Kárastig 12. (208 Vegna veikinda vantar inni- stúlku til O. Ellingsen, Stýri- inannastíg 10. HÚSNÆÐI Stofa með eldunarplássi til leigu. Uppl. Óðinsgötu 20A. (324 Upphituð herbergi fást fyrir ferðamenn, ódýrast á Hverfis- götu 32. (1153- TAPAÐ-FUNDIð'11^ Silfurbúinn tóbaksbaukur tapaðist i austurbænum i gær. Skilist á Bjarnarstíg 5. (327 Frakki, blágrár, tapaðist i Hressingarskálanum i gær. -— Skilist á afgr. Vísis. (323 FÉLAGSPRENTSMIÐJAN. MUNAÐARLEYSINGI. Helen tók nú að spyrja mig um fólk það, er eg hafði minst á og eg var meira en fús til þess, að lýsa fyrir henni raunura mínum og öllu þvi andstreymi, sem eg hafði átt við að búa. 'Helen hlustaði á mig rólega, þar til eg hafði lokið máli minu. Því næst þagði eg stundarkorn og vænti þess fastlega, að hún mundi taka til máls og lýsa samúð sinni tneð mér og þjáningum mínum. En það brást. Hún mælti ekki orS frá vörum. „Nú, — nú — hvað segirðu ?“ spurði eg næsta óþolin- móð. „Finst þér ekki frú Reed vera vond kona? Reglu- leg ókind?“ „Hún hefir verið þér óvinsamleg — það er alveg satt. En hvernig í ósköpunum geturðu munað öll þessi smá- atriði svona glögt? Það er auðséð, að ranglætið, sem hún auðsýndi þér, hefir valdið miklum sársauka og haft mikil áhrif á þig! Heldurðu ekki, að þér liði betur, ef ]nt gleymdir kuldanum og ranglætinu? Þú yrðir áreið- anlega hamingjusamari, ef þú reyndir það. Lífið er svo stutt. Viö megum ekki eyða því í það að magna með okkur óvild og hatur til annara. — Frelsarinn gaf okltur fagurt dæmi til eftirbreytni, meðan hann dvaldist hér á jörðunni. Við skulum reyna að breyta, eins og hann bauð okkur?“ Eg starði undrandi á þessa hálf-vöxnu stúlku. Mér þótti þessar skoðanir furðulegar. Eg hafði aldrei heyrt neinii halda þeim fram. Eg ætlaði að heíja máls á ný og spyrja Helenu um það, við hvað hún ætti, og láta hana útlista skoðanir sínar. En í þeim svifum kom ein af stóru stúlkunum til okkar og mælti ströngum rómi: „Eg kæri þig fyrir ungfrú Scatcherd, ef þú lætur ekki hækurnar þínar á sinn stað tafarlaust.“ Helen Bruns andvarpaði þungan og reis á fætur. Þvi næst gerði hún tafarlausl) það, sem fyrir hana hafði ver- iö lagt, VII. Þeir voru lengi að liða fyrstu mánuðirnir, er eg dvald- ist í Lowood. Eg var óvön hinum föstu skorðum skóla- lífsins og barðist dag hvern dyggilega við það, að reyna að venjast reglunum og halda þær. í jánúar, febrúar og framan af marsmánuði var snjóa- samt og miklir skaflar í garðinum. Sí'Öla í marsmánuði tók að hlána. Þá var krap-elgur og mikil ófærð úti fyrir. En þrátt fyrir það var til þess ætlast, allan þennan tíma, að við hefðumst við úti eina klukkustund á dag. Kuldinn var mikill og fötin okkar voru ekki þannig gerð, að þau gæti skýlt okkur fyrir honuin. Við áttum ekki stígvél og snjórinn komst ofan i skóna okkar. Við höfðum frostbólgu og kuldapolla bæði á höndum og fótum. Og hungrið kvaldi okkur engu minna en kuld- inn. Matarskamtur sá, sem okkur var ætlaður, var hvergi nærri nógur. Auk þess sátu stærri telpurnar urn það, er tækifæri gafst, að kúga okkur, sem minni vorum til þess, að láta af höndum nokkuð af mat okkar, þó að hann væri numinn við nögl og allsendis ónógur. Á sunnudögum var líðan okkar verst. Stjórnandi skól- ans messaði í Brocklehurst-kirkju, en þangað var tveggja mílna gangur, og okkur var ætlað að sækja kirkju á hverjum sunnudegi. Okkur var kalt þegar við lögðum af stað og loppnar og skjálfandi af kulda komum við til kirkjunnar, rétt aðeins nógu snemma til þess, að hlýða morgunmessu. Sökum vegalengdarinnar gátum við ekki farið heim til miðdegisverðar. Okkur var því úthlutað nokkuru af brauði og mjólk við kirkjuna. En svo var það illa og naumlega útilátið, að við vorurn jafnsvangar eftir sent áÖur. Því næst urðum við að bíða, annað hvort úti fyrir eða í kirkjunni, þartil er hádegismessan færi fram. Þegar halda skyldi heim, var jafnan orðið áliðið dags. Á veginum var hvergi skjól af skógi eða hæðum, og is- kaldur vindurinn næddi um okkur. Var oft svo nístandi kalt, að okkur þótti sem við værum stungnar í sífellu með ísnálum. Ungfrú Temple reyndist okkur hið besta í kirkju- ferðunum. Hún reyndi að hughreysta. okkur og stappa.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.