Vísir - 14.03.1934, Síða 4
/
VÍSIR
Berlín í morguíi. FÚ.
Fjárlög Belgíumanna.
Fjárlögin voru til umræöu i
belgíska þinginu í gær. Fjármála-
ráöherra fylgdi þeim úr hla'öi, og
sagði að eins og sakir stæöu væri
áætlaður tekjuhalli, cr nemur 500
miljón franka. — Hann kvað
þaö vera i vald þingsins sett, að
lækka þenna halla, með því að
samþykkja tillögur stjómarinnar
um lækkun útgjalda og nýja tekju-
lfði.
Utan af landL
Vestmannaeyjum, 13. mars. FÚ.
Aflabrögð.
Þótt tíðin hafi verið stirð und-
anfarið, hafa þó venjulega ein-
hverjir verið á sjó, og afli verið
sæmilegur. í gær var gott veður
og voru allir bátar á sjó. Afli
var mjög misjafn. Alt að hehn-
ingur bátanna aflaði lítið, en
aðrir fengu 1200—2800 fiska.
i dag var austan stormur, og
samt voru allir bátar á sjó, en
fáir komnir að er fréttin var
«end kl. 16,35, svo ókunnugt
er um hvemig aflast hefir.
Gufuskipið Kannik er statt
hér og tekur eftirstöðvar af
fyrra árs fiski fyrir Fisksölu-
samlagið.
Hafnarfirði, 13. mars. FÚ,
Frá Hafnarfirði.
í gær kom botnvörpungur-
inn Rán inn og lagði hér upp
afla sinn. Var hann með 72 föt
lífrar. Aflinn var eingöngu
þorskur. Einnig lagði línuveið-
arinn Málmey upp afia sinn, 80
skpd.
Samvinnufélagshátarnir frá
ísafirði selja afla sinn hér í
Hafnarfirði fyrst um sinn, og
fcom fyrsti báturinn, Sæbjörn,
á sunnudaginn. Ilafði hann
fengið ágætan afla, eða um 100
skpd. i þrem legum.
Ennfremur voru j>essir vél-
bátar inni i dag: Árni Árnason,
Marz, Víðir og Dagsbrún. Allir
höfðu aflað vel.
Nemendur i Barnaskólanum
hér héldu skemtun í Gooð-
templarahúsinu i gær kl.
4%. Börnin skemtu sjálf
méð söngvum, upplestrum,
sjónleik, vikivökum, og íþrótt-
um. Skemtanir þessar halda
börnin til ágóða fyrir ferðasjóð
sinn. Skemtunin þóttist takast
vel, og verður endurtekin á
fimtudaginn kemur, þá aðallega
fyrir fullorðna. Þetta er þriðji
Síldarnætur
seljum við frá
Johan Hansens Sönner,
Fagerheims Fabriker.
Bergen.
Þeir, sem liaía í hyggju að kaupa síldarnætur
fyrir næsta sumar, ættu að tala við okkur nú
jægar og fá tiiboð. Lægsta verð. Hagkvæmir |
greiðsluskilmálar. |
Þðrðnr Sveinsson & Co. j
JOCíÍGCÖÖÖttCCCOCÖGCQCöO? ÍQöa«OC550CCCCOCtt5 ttSOQCCCOOCÖCGOW
BLACK & DECKER
Rafmagnsborar og borvélar fyrir járn og trésmíði af
öllum mögulegiun stærðum og gerðum. Skrúfjárn,
hamrar o. fl. o. fl. Einkar hentug verkfæri og vélar fyrir
bílaviðgerðir.
Black & Decker er í sinni grein eitthvert allra þekt-
asta og stsersta verksmiðjufyrirtæki.
Þægilegar sagir af mörgum stærðum fyrir livers-
konar trésmíði.
Öll áhöldin frá þessum verksmiðjum eru sérlega
vönduð og þægileg að vinna með. — Verðið mjög hóf-
legt, fljót afgreiðsla.
Umboðsmenn
Jóh. Ólafsson & Co., Reykjavík.
veturinn síðan skólabörn hér
hófu þessa starfsemi, til þess
að geta ferðast að vorinu, þeg-
ar skóla lýkur.
í nótt kom Kópur af veiðum
með 60 föt lifrar, og ísfirsku
samvinnubátarnir ísbjörn.
Gunnbjörn og Auðbjörg, allir
með ágætan afla. Ásbjörn kom
beina leið frá ísafirði raeð beitu.
F.U.M.
A.—D. fundur annað kveld
kl. 8V2. Framkvæmdarstjórinn
talar (Bibliulestur). Allir utan-
íelagsmenu velkomnir.
BfcntapðBot
Damatipur
BamapaUr
Bama-
avampar
GummldAkar
Dðmubindi
Sprautur og aílsr, tcguadir ai
lyfiaaáptmv
O
tbúö,
2ja—3ja herbergja, með öllum
nútíma þægindum, óskast 14.
mai, tvent í heimili. Skilvís fyr-
irfram greiðsla. Tilljoð auðkent:
„2827“, sendist afgr. Vísis.
Lítið herbergi til leigu á Amt-
mannsstíg 4. Að eins fyrir ein-
hleypa. Húsgögn geta fylgt ef
vill. (269
Maður í fastri stöðu óskar eft-
ir 2 herbergjum og eldliúsi
með þægindum 14. maí. Tilboð,
merkt: „Góð íbúð“, sendist af-
greiðslu Vísis. (268
Til leigu 3 herbergi og eldhús
með öllum þægindum. — Uppl.
Hverfisgötu 62. Bjöm Jónsson.
(265
2 herbergi og eldhiis með öll-
um þægindum (helst i suður-
bænum) óskast frá 14. maí
næstk. Tilboð, merkt: „lbúð„
leggist i Box 427. (250
Herbergi til leigu, Ljós og hiti
fylgir. Bergþórugölu 33, uppi.
Sími 3803. (277
Óska eftir ibúð. Get haft í
fæði þá sem leigja mér. Tilboð,
merkt: „Domus“ sendist Vísi.
(274
2 herbergi og eldhús óskast
14. maí. Tiloð, merkt: „32“,
sendist afgr. Vísis. (272
Máður i fastri stöðu óskar eft-
ir 2ja—3ja herbergja íbúð 14.
maí. 2 í heimili. Uppl. i síma
4587, kl. 9—7. (282
r
KAUPSKAPUR
1
Haraldur Sveinbjarnarson
selur allskonar bifreiðafjaðrir,
ný sending koxn 12. mars. Nýtl
verð, miklu lægra en áður. (271
Vil kaupa gamla eldavél. ------
Uppl. Hverfisg. 91, uppi. (270
Ljóðmæli Sveins frá Elivog-
um, fást keypt hjá Pétri Jakobs-
syni, Kárastig 12. (233
Til sölu byg'gingarlóð í mið-
bænum. Einnig ódýrt rúmstæði.
Sími 2119. ' (280
I
VINNA
I
Unglingsstúlka óskast í vist
hálfan daginn, 2 í heimili. UppL
Öldugötu 2, niðri. (267
Vanur bifreiðax-stjóri óskar
eftir atvinnu. Einnig verkstæð-
islæx'ður. Sanngjamt kaup. —
Uppl. Vitastíg 10. (266
Hreinsa og geri við eldfæri
og miðstöðvar. Sími 3183. (415
Fótaaðgerðir. Tek burtu lík-
þorn og harða húð, laga inn-
grónar neglur. Hefi rafmagn og
nudd við þreyttum fótum. Við-
talstími 10—12, 3—5 og eftir
umtali. Sigurbjörg Magnúsdótt-
ir, Pósthússtræti 17. Sími 3016,
(125
Stúlka eða eldri kona óskast.
Litið heimili. Uppl. Njálsg. 52-
(278
Stúlka óskast strax á fáment
heimili. Uppl. á Ljósvallagötu
14, uppi eða i sima 2423. (279
Stúlka óskast í vist nú þegar
til 14. maí. A. v. á. (275
Allskonar dömufatnaður
saumaður ú Óðinsgötu 20 B.
Ingibjörg Guðjóns. (281
r
TAPAÐ-FUNDIÐ
1
Kvenbudda með iieningum í
fanst í Mentaskólaportinu. Vitj-
ist Þingholtsstræti 7, uppi. (278
Tapast hefir sjálfblekungur,
merktur Axel Axelsson, Soffíu-
búð. Skilist i Garðastræti 47,
gegn fundai-launum. (283
r
LEIGA
\
Kjötbúð til leigu strax. Sími
3664. (276
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN,
MUNAÖARLEYSINGI.
xnér, að sofa í neinni þeirra.
Eg þakkaði umhyggjusemi hennar og kannaðist við,
að eg væri þreytt. Tók hún þá kertaljós úr stofunni og
við gengum saman upp á loft.
Frú Fairfax bauð mér loks góðar nætur og eg læsti
að mér, er hún var farin. Fanst mér nú, sem eg væri ör-
ugg og ánægð í fyrsta sinni á ævi minni og var óum-
ræðilega glöð í hjarta mínu, er eg hvtgsaði til framtíðar-
innar. Þá er eg loksins komin í örugga höfn, — hugsa'Si
eg og lagðist róleg til hvíldar. Þegar eg vaknaði aftur
var hjábjartur dagur.
Herbergið tnitt var mjög vistlegt og notalegt. Vegg-
fóðrið var Ijósleitt og blá léreftstjöld fyrir gluggunum.
Eg gladdist yfir hinu unaðslega umhverfi. Eg hafði ekki
átt þvíliku að venjast árurn saman. í Lowood voru ht-
býli og aðbúð öll eins fátækleg og frekast var unt.
Eg fór á fætur og bjó tnig setn best. Mig langaði til
að vera eins þokkaleg ásýndum og hægt væri. Eg hafði
altaf harmað það, að eg væri ólagleg stúlka. Eg hafði
óskað þess, að eg væri rjóð t kinnum, hefði fallegt nef
og væri munnfríð. Mig haföi líka langað til þess, að vera
há og grönn. Eg hafði skoðaö það sem hið mesta ólátí,
að eg skýldi vera lítil vexti, föl i andliti og andlitsdrættir
mínir óreglulegir.
Eg greiddi hár mitt og snotraði ntig sein best. Eg bjó
mig svörtum kjól með hvítum kraga um hálsinn og þótt
ist nú nógu vel til fara og fær um-að koma fratn fyrir
frú Fairfax. Eg óskaöi þess í hjarta tnínu, að litlu telp-
itnni, sem átti að verða nemándi minn, geðjaðist aö mér,
—■ að henni þætti eg ekki frámunalega ljót. Eg opnaði
íluggann, og gekk því næst á brott úr herberginu.
Eg gekk eftir ganginum, sem var langur og fremttr
skuggalegur, og ofan stigann.
Aðaldyrnar stóöu opnar i hálfa gátt og eg fór út fyrir.
Það var töfrandi haustmorgun. Sólin skein á engin, setn
ennþá voru græn og varpaði fölutn geislum á upplitað
laufiö á trjánuin. Eg fór ofan tröppurnar og tók að virða
fyrir mér húsið, setn var þrjár hæðir, prýtt turnum með
grönnum spírum, sem settu á ]>að einkennilegan svip.
Húsið var grátt á lit og fór vel viö klettana og skóginn
í grendinni. Skógurinn var hávaxinn en ekki svo þéttur.
að skygði á útsýnið, er var rnjög vingjarnlegt þenna.n
milda haustmorgun.
Mér þótti húsið fagurt og hugsaöi með mér, að það
væri i rauninni altof stórt fyrir konu, sem væri ein slns
liðs, eins og frú Fairfax. í þessum svifutn kom frá Fair-
fax út itr húsinu.
„Þér eruð árrisular,“ sagði hún undrandi. Eg gekk til
rnóts við hana og bauð henni: „góðan dag“ með handa-
bandi. „Hvernig geðjast yður að Thornfield?“ mælti hún
ennfremur. Kg lét í Ijós aðdáun mína á Thornfield og
hinu fagra útsýni. Frú Fairfax hóf þá máls á ttý og sagði:
„Já, hér er yndislegt, en húsið liggur undir skemdum. Og.
eg er hrædd um, að það hrörni íljótlega, ef hr. Roc-
hester lætur það eiga sig mikið l§ngur. Það er nauðsyn-
legt að þeir, sem eiga stórhýsi, sinni þeim og hirði uni
þau. Þeir þurfa lielst að búa í þeim sjálfir.“ — „Hr.
Rochester?" tnælti eg spurnarrómi. „Hver er þaö?“ —
„Hann er eigandi Thornfields,“ svaraði hún rólega. „Var
yður ekki kunnugt um það, að eigandi Thornfields hétí
Rochester ?“
Auðvitað vissi eg það ekki — eg hafði aldrei heyrt
manninn nefndan á nafn fyrri. En gamla konan var auð-
sjáanlega á þeirri skoðun, að allir hlyti að kannast við-
húsbónda hennar. Annað væri óhugsandi.
„Eg hélt að þér ættuð Thornfield," sagði eg í mesta
sakleysi. „Eg? — Hamingjan góða — hvernig gat yöur
komið slíkt til hugar, barnið gott ? — Eg eigandi að þess-
ari miklu eign! — Nei eg er bara ráöskona hérna. Eg
er aö vísu skyld hr. Rochester — eða öllu heldur tengd
honum. Maðurinn minn var prestur í kirkjunni, sem þér
sjáið þarna fyrir handan og frændkona hans var móðir
hr. Rochester.—• En eg er aldrei að flika þessum tengd-
um — eg man varla eftir þeim. Eg álít mig aðeins vera
ráðskonu hérna og hegða mér samkvæmt því.Hr.Rochcst
er er altaf frámunalega kurteis við mig og það nægir
mér, Eg heimta ekki meira.“