Vísir - 25.05.1934, Qupperneq 2
VISIR
)) feTffiiNl & ÖLSEIN] ((i
---járn
--- pappi
---saumui*
Sími: Einn—tveir—þrír—fjórir
Verzlun Ben. S. Þóraxinssonar fekk með síðuslu skipum inn-
dælan kvenundirfatnað úr silki. Litum og vex-ði viðbrugðið.
Verzlun Ben. S. Þórarinssonar sendir vörur út uxn land gegn
póstkröfu.
Gleymið ekkt aS í verzlnn Ben. S. Þðrarinssonar,
fást allt af bezt kaup. Nefnum bara karlmannanærfatnaðinn —
sokkana — vestin — og hálsbindin. Drengjamatrósafötin o. fl.
o. fl. Að ógleymdu hinu alkunna ullarbandi í öllum regnbogans
lbum.
Stefán Guðjohnsen
kaupmaður í Húsavík,
andaðist að lieimili sínu i gær-
morgun, eftir hálfsmánaðar
legu.
Æviatriða lians verður síð-
ar getið' hér í blaðinu.
Símskeyti
Atvinnuleysi í Bretlandi
minkar hröðum fetum.
London, 24. maí. — FB.
Fullyrt er, samkvæml áreið-
anlegunx heimildum, að at-
vinnuleysisskýrslur, sem birtar
verða 4. júni, leiði í ljós, að at-
vinnuleysingjum hafi enn fækk-
að unx 50.000, vegna mikillar
atvinnuaukningar í stál- og
járn-iðnaðinum. Gera nxenn sér
nú vonir um, að í júlímánuði
næstkomandi verði tala at-
vinnuleysingja komin niður í
tvær miljónir. (United Press).
Nýtt Atlantshafsflug.
New York, 24. nxaí. — FB.
Twir Bandaríkjamenn af
pólskum ættum, Bénjamin og
Joseph Adanxowicz, áfornxa að
leggja al' stað í Atlantshafsflug
í júnímánuði næstkoxxxandi.
Þeir ætla sér að fljúga án við-
komu frá New York (Floyd
Bennett flugvelli) til Varsjá.
Flugmenn þessir eru bræður og
hafa dvalist um tuttugu ára
skeið vestx-a. Þeir lærðu að
fljúga 1926 og ætluðu að fljúga
til Póllands í fyrrasumar, en af
þvi gat ekki orðið þá. Þeir nota
Bellancaflugvél, senx kostaði
25 þús. dollara. Leiðbeinandi
þeirra er Holger Höiriis, sem
1931 flaug frá New York til
Krefeld í Þýskalandi, ásamt
Otto Hilling vélamanni.
Hundaæði.
Helsingfors, 24. maí. — FB.
Mikill hundaæðisfaraldur er
i austur og suðurliluta Eistlands
og er talimx þangað korninn frá
Rússlandi. — 300 menn, sem
óðir hundar hafa bitið, hafa
verið fluttir til Pasteurstofnuix-
arinnar í Dorpat, til lækninga.
— Yfirvöldin hafa skipað svo
fyrir, að drepa skuli alla hunda
og ketti, senx í næst, og liafa
7000 þegar verið skotnir.
(United Press).
Umferðaslys í Bretlandi.
London, 24. nxaí, kl. 16. F.Ú.
Síðastliðna viku dóu í Bret-
landi 127 manns af umferða-
slysum, en 4816 særðust.
Masaryk kjörinn forseti Tékko-
slovakiu.
Prag, FB. 25. nxaí.
Masaryk hefir verið kjörinn for-
seti Tékkóslóvakiu í fjóröa sinn
me'S yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæöa. — I stjórnarskránni er tek-
iö frarn, aö engan mann megi kjósa
forseta oftar en tvívegis, nerna
fyrsta forseta lýöveldisins. — Á
dr. Masaryk almennum vinsældum
íiö fagna i landinu meöal manna
af öllunx flokkum. Hátíöahöld fóru
frarn í Prag og víöar, þegar úrslit-
in voru kunn. (United Press).
Breska stjórnin og síldarútgerðin
í Skotlandi.
London, FB. 25. maí.
Samkvæmt áreiöanlegum heim-
iidum hefir ríkisstjórnin hafnaö til-
lögu um aö veita beinan fjárstyrk
ti! skoskra útgeröarmanna til
síklveiða. Var tillögunni hafnaö á
þeirn grundvelli, aö ekki væri
hægt aö gera þannig upp á rnilli
atvinnuveganna, ef fariö yæri út
á þessa braut, rnyndi slíkar beiön-
ir koma úr fleiri áttum. Væri öld-
ungis ógerlegt aö sinna slíkum
kröfurn á yfirstandandi tímum. —
Hinsvegar er taliö, aö svo illa
horfi um síldarútveginn í Skot-
landi, aö nxáliö verði tekið fyrir á
þingi mjög bráðlega, þrátt fyrir
hinar'daufu undirtektir stjómar-
innar. (United Press).
Kollumálíð.
Ðómnr kveðian npp f gær.
Ár 1934, fimtudaginn 24. maí kl.
4,30 e. h., var lögregluréttur
Reykjavíkur settur í bæjarþings-
stofunni í hegningarhúsinu og
haldinn af setulögreglustjóra Arn-
ljóti Jónssyni, með undirrituðum
réttarvottum:
Fyrir var tekið lögregluréttar-
rnálið:
Valdstjórnin
gegn
Hermdnni Jónassyni,
lögreglustjóra í Reykjavík.
Dómarinn leggur fram í réttin-
um, senx rskj. nr. 38, hegningar-
vottorð úr Skagafjarðarsýslu, svo-
hlj óðandi: .....
Var þá í málinu uppkveðinn
svohljóðandi .
d ó m u r:
Mál þetta er með stefnu, útg. 22.
þ. m., höfðað af valdsstjórnarinn-
ai- hálfu gegn Hermanni Jónassyni
lögreglustjóra, til heimilis Laufás-
veg 79 í Reykjavík, fyrir brot á
lögreglusamþykt fyrir Reykjavík
frá 1. febr. 1930, sbr. hafnarreglu-
gerð fyrir Reykjavikurkaupstað
frá 12. nóv. 1917, svo og brot á
lögunx nr. 58 frá 10. nóv. 1913 um
íriðun æðarfugla.
Með bréfi til dómsmálaráðuneyt-
isins, dags. 12. jan. síðastl. kærði
Oddgeir Bárðarson verkamaður,
Njálsgötu 60 hér í bæ, lögreglu-
stjórann í Reykjavík Hermann
Jónassón fyrir brot á lögreglusam-
þykt Reykjavíkur og lögurn um
friðun fugla. Var kærðum þar gef-
ið það að sök, að hann hefði í síð-
astliðnum októbermánuði skotið af
byssu úti í Orfirisey, að því er
kærandi áleit á sjófugla, og enn-
fremur að kærður hefði gerst sek-
ur urn að hafa á fullveldisdaginn
1930 skotið æðarkollu í nefndri
eyju. V'ar unx þetta siðara atriði
vísað til Waðagreinar eftir Sigurð
Jónsson rafvirkja, er þar kvað sér
vera kunnugt urn, að þetta hefði
átt sér stað.
Við rannsókn málsins, er hófst
23. s. m., hefir það upplýstst, að
fyrri part októbermánaðar fór
kærður út í Orfirisey og skaut ]>ar
nokkrum skoturn, úr riffli, að því
er ætla má. Þykir þetta, þrátt fyr-
ir neitun kærðs, nægilega sannað af
framhurðum vitnanna Oddgeirs
Bárðarsonar og Gústafs Karlsson-
ar, er háðir hafa verið staðfestir.
Hinsvegar hefir eigi fram komið
neitt er bendi til að kærður hafi
þá skotið fugl í eyjunni.
1. desember 1930 fór kærður út
Grandagarðinn út í Örfirisey og
hafði riffil meðferðis.-. Skaut hann
þar nokkrum skotum úr rifflinum.
Miðaði hann þá og skaut á æðar-
fuglahóp þar við eyjuna og hitti og
drap eina æðarkollu. Vitni að þessu
voru þeir Valdemar Þórðarson,
Víglærg Einarsson, Egill Jónasson
og Stefán Ólafsson. Sáu þeir
Valdemar og Vígberg kærðan, er
hann stóð á öskuhaug vestur við
sjóinn hjá Grandagarðinum og var
að miða rifflinum út á sjóinn, og
var þar mikið af fugli, liæði máfi,
æðarfugli og fleiri fuglum. Vitnið
Valdemar sá og að kærður miðaÖi
byssunni á leiðinni út garðinn, en
vitnið gat ekki urn það borið, hvort
kærður hleypti af, því l)rimgnýr var
og vél bifreiðar þeirrar, er vitnið
sat í, var i gangi. Vitnið Egill, sem
ásamt Stefáni, var úti í Örfirisey,
bæði sá og heyrði að kærður skaut
nokkrum skotum á leiðinni út garð-
inn, og telur að kærður hafi skotiÖ
á rnáfa á flugi, en ekki hitt fugl-
ana. í eyjunni sáu og heyrðu þessi
tvö vitni er kærður skaut þar. Voru
þau sjónarvottar að því, að kærð-
ur skaut æðarkolluna. Kom kærð-
ur eftir ]xað til þeirra og bauð þeinx
að skjóta úr rifflinum, en þeir
þágu ekki boðið. Eftir þetta gengu
vitnin niður að sjónum og fundu
æðarkolluna; þá fundu þau og
pakka með rúmlega 30 Remington
,,22 long“ riffilskotum á þeirn stað,
er kærður hafði setið, er hann hand-
lék riffilinn, eftir að hann skaut
æðarkolluna. Hafa þessi vitni stað-
fest héraðlútandi framlxurði sína
með eiði.
Kærður hefir játað, að hafa oft-
ar en einu sinni urn ]xetta leyti, eða
árið 1930, verið að skjóta úti í Ör-
firisey, en telur það hafa verið æf-
ingar í að skjóta til marks, og hef-
ir hann neitað því að hafa skotið
þar æðarfugl, því „sér vitanlega
hafi hann alls ekki gert það.“ Flins-
vegar hefir kærður ekki neitað því,
að hann kunni' að hafa hitt þá
Stefán og Egil um ]>etta leyti úti
i eyjunni og að þeir hafi séð sig
skjóta þar. Kærður hefir upplýst,
að riffil þana, er hann þá notaði,
hafi hann keypt fyrir allmörgum
árurn hjá Jóhanni Ólafssyni & Co.
í Reykjavík. Sé það Browning riff-
ill fyrir skot nr. 22 og eigi hann
riffilinn ennþá og geyrni heima hjá
sér. Voru skothylkin rnátuð i þenn-
an riffil og lýsti kærður yfir því,
að þau pössuðu í riffilinn. Þá hef-
ir kærður og upplýst, að hann hafi
keypt skot í riffilinn hjá Jóhanni
Ólafssyni & Co., en það firrna hef-
ir einkaumboð fyrir skot af þeirri
tegund, sem vitnin fundu. Enn-
fremur hefir kærður upplýst, að
hann hafi ekki þá né síðan átt eða
* notað annan riffil, svo hann muni
til.
Kærður hefir haldið því fram,
að þetta atferli sitt, að skjóta í eyj-
unni, sé verknaður, senx sér og lög-
reglunni í Reykjavík sé heimill, og
hefir í því sambandi -bent á, að það
sé „ein af nauðsynlegustu íþrótt-
urn lögreglunnar að kunna að fara
með skotvopn," því lögreglan þurfi
. „æði oft að taka skotvopn, jafnvel
hlaðin skotvopn, af mönnum, sem
hún tekur fasta,“ og ennfremur
þurfi hún „iðulegá að aflífa særð
og veik dýr nxeð skotvopnum" og
,,éf að þetta væri ekki heimilt, þá
væri lögreglan i Reykjavík eina
lögreglan í veröldinni, sem ekki
hefði leyfi til að æfa sig á þennan
hátt í sínu lögsagnarumdæmi."
Jafnvel þótt þessi skoðun kærðs
hefði við rök að styðjast, þá lítur
rétturinn svo á, að kærður hafi í
unxrætt skifti ekki verið við skot-
æfingu sem lögreglunxaður eða lög-
reglustjóri í embætti sínu, heldur
hafi hann verið að skjóta sér til
skemtunar.
Rannsókn málsins leiddi enn-
frernur í ljós, að kærður kom dag
einrt, síðast í nó^ember eða fyrst í
desembermánuði 1931, út i Örfiris-
ey og hitti þar Þórð Guðlaugsson
og Daða Þorkelsson og átti tal við
þá. Skaut kærður ])á til marks úr
riffli og var rnarkið steinn í fjör-
unni. Gengu þeir síðan með kærð-
um til aÖ svipast eftir fugli og skaut
þá kærður og drap æðarkollu þar
við eyjuna. Hefir kærður þrætt
fyrir þennan verknað, sem þó þyk-
ir nægilega upplýstur og sannaður
af staðfestum framburðum þessara
vitna. Viðvíkjandi staðfestingu
])essara vitna, Þórðar og Daða, sem
bæði eru í kristnu trúaríélagi, Að-
ventistakirkjusöfnuði, skal það tek-
ið fram, að vegna trúarskoðunar
þeirra, staðfestu þau framburð
sinn með drengskaparorði, en eigi
með eiði. Telur rétturinn að stað-
festing ])eirra sé fullkomlega gild
með þessu rnóti.
Rétturinn telur því, að í málinu
sé frarn komin full lögsönnun fyr-
ir því, að kærður hafi bæði fyrsta
desember 1930 og seint á árinu
1931 skotið æðarfugl í lögsagnar-
umdærni Reykjavíkur. Hefir hann
með þessu brotið 1. gr. nefndra
laga um friðun æðarfugla, nr. 58,
frá 10. nóv. 1913. Þá hefir kærður
og í sömu tvö skifti, senx og í októ-
bermánuði síðastliðnum, brotið lög-
reglusam]iykt Reykjavíkur 6. gr.,
sbr. 70. gr„ sbr. og hafnarreglu-
gerð fyrir Reykjavíkurkaupstað, 6.
gr.
Kærður hefir nú haldið þvi franx,
að þótt hann hefði orðið sekur við
lögin um friðun æðarfugla með því
að skjóta æðarfugl 1930 og 1931,
þá væru þær sakir fyrndar sanx-
kvænxt analogiu 67. gr. hegningar-
laganna. Á þetta verður þó ekki
fallist. Rétturinn lítur svo á, að
fyrningarreglur 67. gr. hegningar-
laganna eða analogiu hennar verði
að eins beitt, þegar um er að ræða
brot á hinum alnxennu hegningar-
lögum eða lögum þótt yngri séu,
sem í eðli sínu séu svo skyld hin-
um almenuu hegningarlögum, að
telja megi, að þau hefðu verið tek-
in upp í hin almennu hegningarlög,
ef lögfest hefðu verið þá eða áður.
Hinsvegar telur rétturinn alt aðrar
ástæður og alt önnur sjónannið
koma til greina, ]>ar sem unx er að
ræða brot á lögreglusamþyktum,
friðunarlögum eða annari þess hátt-
ar löggjöf. Verður kærður því ekki
sýknaður af þessari ástæðu. Sam-
kvæmt framansögðu þykir ])ví
verða að sakfella kærðan og þykir
refsing hans, sem kominn er yfir
lögaldur sakamanna og ekki hefir
áður sætt kæru eða refsingu fyrir
neitt lagabrot, hæfilega ákveðin
4.00 krónur, er skiftist þannig, að
í bæjarsjóð Reykjavíkur renni
387,33 krónur og til uppljóstrar-
mannsins Oddgeirs Bárðarsonar
12,67 krónur og komi 25 daga ein-
falt fangelsi í stað sektarinnar,
verði hún eigi greidd innan 30 daga
frá löglegri birtingu dóms þessa.
Þá skal og riffill lcærða upptækur
vera og renni andvirði hans í l)æj-
arsjóð Reykjavíkur. Svo greiði
kærður og allan kostnað sakarinnar.
Á máli þessu hefir enginn ólög-
legur dráttur orðið.
Þ v í dæmist rétt vera:
Kærður, Hermann Jónasson,
greiði 400 króna sekt, er skift-
ist þannig, að í bæjarsjóð
Iíeykjavíkur renni 387,33 krón-
ur og til uppljóstrarmannsins,
Oddgeirs Bárðarsonar, 12,67
krónur, og komi 25 daga ein-
falt fangelsi í stað sektarinn-
ar, verði hún eigi greidd inn-
an 30 daga frá löglegri birt-
ingu dóms þessa. Riffill kærða
jsé upptækur og renni andvirði
hans í bæjarsjóð Reykjavíkur.
Svo greiði kærði óg allan kostn-
að sakarinnar.
Dómi þessum ber að full-
nægja að viðlagðri aðför að
lögum.
Arnljótnr Jónsson.
Viðskifti Róssa og
Bandaríkjamanna!
—o—
Þegar Bandaríkin loks viðui-
kendu Sovét-Rússland, var því
spáð, að viðskifti nxyndi aukast
mjög íxiikið að kalla þegar i
stað, nxilli Bandarikjanxanna og
Rússa, en það liefir yfirleitt
slefnt lieldur Ixægt í þá átt, og
mun það aðallega stafa af
tregðu af liálfu Baxxdaríkja-
nxanna að lána Rússum fé, á
meðan elcki næst sanxkonxulag
um skuldirnar gömlu frá keis-
araveldistímanum, sexxx bolsvík-
ingar hafa aklrei viljað viður-
kenna. Fleira hefir vitanlega
konxið til greina, sem veldur
þvi, að viðskiftin hafa ekki auk-
ist, eins og menn gerðu sér von-
ir unx. — Nú hefir hið svo kall-
aða rússnesk-ameríska verslun-
arráð stofnað til Rússlandsfai-
ar amerískra kaupsýslunxanna,
svo að þeir geti af eigin reynd
kynt sér kröfur þær, sem gerð-