Vísir - 06.06.1934, Blaðsíða 4

Vísir - 06.06.1934, Blaðsíða 4
VISIR Ú tvarpsfr éttir. —o— Berlín i morgun. FÚ. Námuslys. Námusprenging varð í gær- morgun í Buckingen í Þýska- landi, og er lalið, að allir þeir, sem i námunni voru, muni hafa farist. Björgunartilraunir stóðu yfir i allan gærdag, og höfðu í gærkveidi náðst lík tuttugu námumanna. — • Rannsókn leiddi i Ijós, að gaseitrun hafði orðið þeim öllum að bana. Önnur námusprenging varð siðari hluta dagsins í gær, ná- lægl Pilsen i Tékkó-slóvakíu. — Sprengingin varð þremur mönnum að bana, en allir aðr- ir hafa bjargast úr námunni. Berlin i morgun. FÚ. Fellibylur. Fellibylur hefir gengið yfir Kóreuskagann og valdið miklu tjóni á lífi og eignum. Allir fiskibátar voru á sjó, þegar byl- urinn skall á, og fórust 350 sjó- menn, en 1800 öðrum tókst að eins að hjarga lífinu með naum- indum. Hér um bil 200 bátar og smáskip fórust, og brotnuðu flest þeirra i spón af veðurofs- anum. London, 5. júní. FÚ. Finnland stendur enn við skuld- bindingar sínar. Finnland virðist enn einu sinni ætla að verða eina ríkið, sem greiðir skuldaafborgun sina lil Bandaríkjanna. Tilkynti stjórnin í dag, að hún myndi, 15. júní, greiða alla upphæðina. Hitt og þetta. —o— ítalir hafa mist trúna á alþjóða- málaráðstefnum. / Rómaborg í maí. FB. Komiö hefir til orða að kveðja saman viðskifta og peningamála- stefnu og yrði hún þá framhald á starfsemi samskonar alþjóðaráð- stefnu, sem haldin var í London. —- Erlendir stjórnmálamenn hafa leitaö hófanna í Ítalíu um það, hvort ítalska stjórnin mundi vilja senda fulltrúa á s’íka ráðstefnu á þessu ári, en fengíð daufar undir- tektir. — Kunnur italskur stjórn- málamaður hefir íátið þess getið í viðtali, að alþjóðaráðstefnur hafi yfirleitt alls ekki náð tilgangi sín- um og þátttakendurnir eigi alls ekki góðar minningar frá slíkum ráðstefnum, þvi að árangurinn sé Saltkjöt frá Hólmavík. Kæfu, Rúllupylsur, Tólg og ísl. smjör, verður best að kaupa hjá Páli Hallbjöpns. Laugaveg 55. Sími 3448. tOOQCXXÍMOOOQOOOQMOOOOMOOW Skógarmenn I Fundur í kvöld kl. 8Látið ekkert lefja ykkur frá að fjöl- menna. aldrei neinn að ráði, en öll mál dreginn á langinn eða svæfð með stöðugu þófi og vafningum. Kostn- aður af þessum ráðstefnum sé hins- vegar afskaplega mikill. Stjórn- málamaður þessi, sem ekki óskar | að nafns síns. sé getið, segir að | mjög sé fariö að bera á óþolin- mæði yfir því í Ítaiíu, hversu til gangi á ráðstefnunum, og Italir séu alment að hallast á þá sveif, að réttast væri að aðeins fáar þjóð- ir kæmi saman, til þess að ræða vandamál sín, þ. e. að ítalir t. d. ástundi fyrst og fremst sam- vinnu við nágrannaríki sín. enda er þetta í samræmi við stefnu stjórnarinnar að undanförnu. — ítaískir stjórnmálamenn eru svo vondaufir um árangur af annari viðskifta og fjármálaráðstefnu, að þeir efast um, að einróma sam- komulag næðist um nokkurt deilu- atriöi, hversu smávægilegt sem ]jað væri. Þegar þannig er i .pottinn búið, væri best að leggja ekki í mikinn kostnað við að boða 'til nýrrar alþjóðastefnu. „Von- brigðin af ráðstefnunni 1933 eru mönnum elcki úr minni liðin“, sagði stjórnmálamaðurinn að lok- um. (United Press). U'tanríkisverslun Austurríkis- manna fer stöðugt batnandi, segir í sím- fregn frá Vínarborg, en byltingin i febrúar s. I. og ókyrðarástandið í landinu að undanförnu hefir þó seinkað viðskiftabatanum. A fyrsta fjórðungi árs 1933 var óhagstæður viðskiftajöfnuður 81.057.000 schill- ingar, en 64.071.000 á fyrsta fjórð- ungi yfirstandandi árs. Rotbart- Snperfine er næfurþunt blað, fok- hart, flugbítur, þohr mikla sveigju og brotnar ekki i vélinni. Passar i allar eldri gerðir Gillette-rakvéla. — Fæst í flestum búðum. mxxxxmxxmiOKmiCðO' Hár. Hefi altaf fyirliggjandi hár við íslenskan búning. Verð við allra hæfi. Versl. Goöafoss, Laugaveg 5. Simi 3436. r TAPAÐ-FUNDIÐ 1 Lítill, grænn fugl tapaðist i gær; Ef einliver hefir náð hon- um, vinsaml. tilkynni það í sima 2509. (153 Sjálfblekungur tapaðist á mánudag í miðbænum. Skilist í Húsgagnaverslun Kristjáns Sig- geirssonar, Laugaveg 13. (149 Armbandsúr hefir tapast. — Finnandi vinsamlega beðinn að gera aðvart i síma 2319. (163 F HUSNÆÐI 1 Stór og góð stofa til leigu á Bragagötu 21: Uppl. í dag og á morgun. (151 Herbergi til leigu með að- gangi að baði. — Hverfisgötu 102A, miðhæð. (148 Herbergi og eldhús til leigu nú þegar. Uppl. í sima 4035, kl. 5—9. (168 Ein góð forstofustofa til leigu. Uppl. hjá Guðjóni Jónssyni, Hverfisgötu 50. (170 Stofa til leigu á Grettisgötu 22D. (155 2 lierbergi og aðgangur að eldhúsi lil leigu á Laufásveg 27, uppi. (127 Hefi nokkur einbýlisherbergi til leigu nú þegar. G. Eyjólfs- son, Laugaveg 34. Simi 4301. (114 p VINNA | 2 stúlkur óskast upp í Borg- arfjörð, önnur strax. — Uppl. á Hverfisgötu 76. (145 Stúlka óskast i visl nú þegar um óákveðinn tima. Emil Thor- oddsen. Túngötu 12. (143 KAUPSKAPUR I Hvítt sjal með frönskum bekk, til sölu. Bergstaðastræti 12. (146 M°ld óskast á Barónsstíg 65. Simi 2322. Til sölu: 3 ljósakrónur, 1 pianó, 1 rúm með madressu, náttborð og klæðaskápur, 1 grammófónn. Til sýnis í dag og næstu daga frá kl. 6—8 síðd. í Aðalstræti 16. (144 Barnavagn til sölu á Rauðar- árstig 5. (142 Stúlka óskast á sumarliótel. Einnig unglingur. Uppl. Þing- holtsstræti 15, hakliús. (141 Unglingsstúlka óskast til að gæta 2ja barna. Ólga Árnason, Sellandsstíg 20. Sími 2850. (162 Stúlka óskast liálfan eða all- an daginn, lil Trausta Ólafsson- ar, Eiríksgötu 6. Sími 4117. (161 Rösk stúlka óskast strax á barnlaust heimili. — Uppl. á Ivlapparstíg 37, eftir kl: 7 (mið- hæð). (159 Ungur maður, sem unnið hef- ir við einn fjölbreyttan vara- hlutalager (bifreiða), óskar eft- ir þess konar atvinnu. A. v. á. (157 Kaupakona óskast á gott heim- ili. Uppl. á Sólvallagötu 12, eft- ir kl. 7. (156 Saumakona óskast strax. Ein- ara Jónsdóttir, saumakennari, Skólavörðustíg 21. (154 Snúningadrengur óskasl. — Björn Vigfússon, lögregluþjónn. (152 Tökum að okkur að setja i stand lóðir kringum hús. Einn- ig að grafa fyrir húsum. ódýr vinna. Uppl. i sínia 4013. (150 HÚSMÆÐURll Farið i „Brýnslu“, I Hverfisgötu 4. I Alt brýnt. Sími 1987.B Bílstjóri óskar eftir atvinnu við keyrslu, — helst með vöru- bíl — nú þegar. A. v. á. (101 Saumastúlku lil að sauma vesti og buxur vantar mig nú. Guðm. Sigurðsson klæðskeri, Vesturgötu 3. Simi 3377. (166 Góður barnavagn lil sölu með tækifærisverði á Laugaveg 93, 3. hæð. (160 Mjög vönduð og góð bifreið — Buick — til sölu mjög ódýrt, gegn staðgreiðslu. Magnús Sch. Thorsteinsson. Símar 2093 og 3362. (158 Mótorhjól, lítið cða stórt, í sæmilegu standi. óskast. Sími 2406. (147 Blómstrandi stjúpmæður og hellisar, og margar tegundir af sumarblómaplöntum, frá 2 au. stykkið. Plöntusalan í Suður- götu 12. (109 Mold fæst á Vesturgötu 37, góð i garða eða ofaníburð. Sími 4051. (167 Sumarbústaður með heit- vatnslögn úr hver til gufubaðs, kerbaðs, suðu og upphitunar til sölu. Uppl. í sima 3693 og 4693. (165 Barnavagn, vel útlítandi, til sölu. Skifti á stólkerru gætu komið til greina. Uppl. á Vatns- stig 8. (164 5-föld harmonika til sölu með; tækifærisverði og barnavagn og körfuvagga, á Bræðraborgar- stig 14. (130 TILKYNNING Uppod verður haldið að Norður-Gröf á Ivjalarnesi, föstudaginn 8. þ. m. og hefst kl. 1 e. h. Verða þar seldar margar og góðar kýr, búsáhöld o. fl. Greiðslufrestur til 20. sept. FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.. MUNAÐARLEYSINGI. spákerlinguna. — Eftir litla slund hætti liún að rýna i bókina og leit upp. „Þér óskið þess, að fá að heyra eitthvað um ó- komna ævi vðar?“ — Málrómurinn var óþjáll og harður. „Nei, því fer fjarri,“ svaraði eg. „Þér eruð alveg sjálfráðar um það, hvort þér viljið segja mér eitt- hvað um framtiðina eða ekki. Annars er rétt að eg taki það fram nú þegar, að eg trúi ekki á þessháttar spásagnir.“ „Eg bjóst við slíku svari,“ sagði kerlingin. „Eg fann það á mér, þegar jiér koniuð inn í stofuna, að þér munduð vera ein af því tæinu.“ „Skoðum til!“ „Eg heyrði það líka á göngulaginu. Það segir til sin, eitl með öðru.“ „Þér hafið hærilega lieyrn, eftir því að dæma.“ „O-já. — Eg kvarta ekki. Og augun eru lika i bcsta lagi. Og skilningurinn slíkt hið sama.“ „Þess mun líka þörf í yðar starfsgrein, að skiln- ingarvitin sé í góðu lagi“. „Ekki er því að leyna, Ijósið mitt. — Eg tala nú ekki um, þegar viðskiftamennirnir eru svijiaðir yð- ur! — Iivers vegna titrið þér ekki eða skjálfið ?“ „Mér er ekki kall“. „Hvers vegna fölnið þér ekki? Hvers vegna verð- ið þér ekki hvítar i andliti — snjóhvítar, eins og pappírsblað?" „Eg er ekki veik“. „Hvers vegna leggið þér ekki trúnað á spádóms- gáfu mína?“ „Eg er ekki heimskingi“. Þegar hér var komið, tók kerlingarvargurinn að hrista höfuðið og tauta eitthvað fyrir munni sér. Þvi næst tók hún svarta reykjarpipu, tróð hana fulla, kveikti í tóhakinu og svældi í ákafa. Þessu fór fram stundarkorn, en þá hætti hún alt i einu að reykja og sagði með mikilli áherslu á hverju orði: „Yður er kait. Þér eruð veikar. Og þér eruð heimskingi!“ „Sannið jiessi orð yðar“, sagði eg. „Það er mér leilcur einn“, sagði sú gamla. — „Yð- ur er kalt, sakir þess, að þér eruð einstæðingur. Eng- inn maður hefir kveikt eldinn, sem liggur falinn í Jirjósli yðar. — Þér eruð sjúkar vegna þess, að þér eigið ekki enn sem komið er dásamlegustu tilfinn- ingar konulijartans. — Þér eruð heimskingi sakir þess, að hversu mjög sem þér þjáist, þá viljið þér ekki gera neitt til þess, að mæta á miðri leið þeim manni, sem vakið getur hinar dýrlegustu tilfinning- ar i hjarta yðar“. Hún þagnaði, tók pípuna og reykli i ákafa. — „Það er hægur vandi, að dæma mig“, svaraði eg- — „Þér vitið þó sjálfsagt, að eg er öðrum háð, sak- ir atvinnu minnar, og ekki sjálfri mér ráðandi.“ „Gelið þér bent mér á nokkurn, sem býr við svip- aða aðstöðu og þér?“, spurði kerlingin. „Eg gæti bent á þúsundir manna og kvenna, ef eg kærði mig um.“ „Nei, segi eg. Þér getið ekki bent á eina einustu manneskju. Staða yðar er nefnilega öldungis óvenju- leg. Þér standið við hlið hamingjunnar — eða mjög nærri því að minsta kosti. Þar inni fyrir er alt, sem þér þráið —■ all sem þér þarfnist. Vandinn eng- inn annar en sá, að ojma liliðið. Og lykilhnn liggur i lófanum á yður —- eða gelur legið þar, hvenær sém þér óskið þess. En þér ln'rist úti fyrir — i kuldan- um. — Væri þér skynsöm stúlka, en ekki lieimskur þrákálfur, munduð þér ljúka upp hliðinu og ganga inn fyrir. Og þar mundi hamingjan breiða faðm- inn á móti yður“. „Eg skil ekki dularfullar ræður. Og eg liefi aldrei lagt það fyrir mig, að ráða gátur.“ „Ef þér óskið þess, að eg tali Ijósara, ]iá réttið mér hönd yðar.“ „Eg geri ráð fyi'ir, að ]xér ætlist til þess, að eitt- hvað liggi í lófanum?“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.