Vísir - 17.06.1934, Síða 2

Vísir - 17.06.1934, Síða 2
Ví SIR Kosningapnar. í dag er rétt vika til kosning- anna. Kosningar hafa verið svo tíðar, nú að undanförnu, að mönnum finst það varla i frá- sögur færandi. En þessar kosn- ingar, sem fram eiga að fara á sunnudaginn kemur, eru að mörgu leyti merkilegri og'þýð- ingarmeiri heldur en flestar kosningar, sem fram hafa farið liér á landi um langt skeið. Um tvennar síðustu þing- kosningarnar vissu menn það fyrirfram, að segja mátti að ekki væri tjaldað nema til einn- ar nætur, eða að nýjar kosning- ar mundu fara fram á næsta eða öðru ári þar frá. Nú vita menn, eða gera að minsta kosti ráð fyrir því, að kosið verði til fjögurra ára, eða heils kjör- tímabils. En það er viðurkent, að sérstaklega beri að vanda til þess, „sem lengi á að standa“. Og þó eru það að sjálfsögðu aðrar ástæður, sem gera þessar kosningar sérstaklega merki- legar og afdrifarikar. Nú er orðin sú breyting á stjórnskipulögum landsins, að kjósendur í hverju einstöku kjördæmi liafa ekki að eins áhrif á það hver úrslitin verða í hverju kjördæmi fyrir sig, heldur einnig á heildarúrslit kosninganna, í sambandi við skiftingu uppbótarþingsætanna milli flokka. Áður var það svo, að minni hluti í kjördæmi var svo að segja réttlaus. í fjöl- mörgum kjördæmum bafa menn vitað það fyrirfram með fullri vissu, hver mundu verða úrslitin, hver eða hverjir mundu ná kosningu af þeim, sem i kjöri hafa verið, og liverjir mundu falla. Fjöldi kjósanda hefir þannig vitað það fyrir- fram með fullri vissu, að at- kvæði sín mundu falla ógild með öllu. — Nú er það hins vegar svo, að hvernig svo sem flokkum er skipað í einstökum kjördæmum, þá getur atkvæði hvers kjósanda, hvaða flokki sem hann fylgir, hvort sem hann er i meiri hluta eða minni hluta, haft fult gildi og full á- hrif, til jafns við atkvæði þeirra, sem eiga vísan sigurinn í kjör- dæminu. Þessi breyting er sérstaklega mikilvæg fyrir kjósendur í Reykjavík. Þó að Reykvíking- um sé ekki skömtuð' nema 6 þingsæti, eða tæplega áttundi ; hluti þingsætanna eins og þau I geta orðið flest, þá geta áhrif Reykvikinga á heildarúrslit j kosninganna orðið fullkomlega . sem svarar kjósandafjöldanum. í stað þess að áður hafði hver kjósandi utan Reykjavíkur til jafnaðar þrefaldan rétt á við hvern Reykviking, geta Reyk- vikingar nú fengið fullkomið jafnrétti til áhrifa á skipun þingsins. En það getur því að eins orðið, að kjósendur í Reykjavík nötisérkosningarrétt sinn eins alment og aðrir lands- menn. Því almennari sem þátt- taka Reykjavíkur verður í kosn- ingunum, því meiri verða áhrif bæjarins á skipun þingsins. Á herðum Reykvíkinga livíl- ir mestur „vegur og vandi“ af því, livernig tekst til um stjórn landsins, að minsta kosti mest- ur vandi! Fjárhagsafkoma rík- issjóðs hvílir að margfalt meira leyti á Reykjavik, heldur en sem svarar fólksf jöldanum. Ef illa er haldið á fjármálastjórn ríkisins, þá bitnar það á Reyk- víkingum með margföldum þunga á við aðra landsmenn. Það hefir nú verið lialdið þann- ig á fjármálastjórn landsins að undanförnu, að fullkomin á- stæða er til að óttast, að alveg „keyri um þvert bak“, ef ekki verður þegar í stað tekið föst- um tökum til viðreisnar. Reyk- víkingar vita hvers er að vænla í þeim efnum, ef „rauðu“ flokkarnir, undir forustu Jón- asar Jónssonar og socialista- broddanna, ná aftur völdunum í sínar hendur. Þeir vita það af reynslunni árin 1928—31, þegar óhófseyðsla ríkisstjórnarinnar var svo mikil, að þrátt fyrir afburða góðæri ár eftir ár, og stórfelda hækkun allra skatta og lolla, þá varð þó ekki kom- ist hjá því meira en að tvöfalda skuldir ríkissjóðs, og síðan enn að liækka álögurnar á borgar- ana. — Reykvíkingar þekkja það líka, livernig komið er hag þeirra bæjar- og sveitarfélaga, þar sem jafnaðarmenn hafa náð völdum. Hvert af öðru hafa þau gefist upp og „sagt sig til sveitar“, en önnur hanga á hor- riminni og geta þó ekki hangið lengi úr þessu. Á fullvita og fullábyrgum kjósendum Reykjavikurbæjar hvílir nú liöfuðábyrgðin á þvi, hverju fram vindur um hag þjóðarbúsins á næstu fjórum árunum. — Það var anðsætt, að þessir kjósendur voru sér þess fyllilega meðvitandi í vetur, ill- viðrisdaginn þegar kosið var í bæjarstjórn, hver áhyrgð hvildi á þeim. Þrátt fyrir örðugleikana varð þátttakan í þeirri kosningu meiri en dæmi voru tH áður um bæjarstjórnarkosningar. Nú eiga fram að fara, á sunnudag- inn kemur, jafnvel enn þá af- drifaríkari kosningar, afdrifa- ríkari fyrir alla þjóðina og þó vafalaust afdrifaríkastar fyrir Reykvíkinga. Það þarf ekki að efast um það, að liver einasti kjósandi i Reykjavík, sem fulla ábyrgðartilfinningu hefir, gerir skyldu sína á kosningadaginn 24. júní —- en skyldu sína gerir enginn kjósandi með fullri á- byrgðartilfinningu, nema liann greiði Sjálfstæðisflokknum at- kvæði og kjósi E-listann. Snndhðllin. —o--- Maðurinn frá Ilriflu, sjóð- stofnandinn frægi, sá liinn sami, er gaf fæðingarhreppnum skuld- ir sínar í fyrra eða liitt eð fyrra, hefir látið piltunga sína, tvo eða fleiri, pára allskonar vitleysu um sundliallarmálið að undan- förnu. Tilgangurinn er sá, að rægja meiri hluta bæjar- stjórnar fyrir afskifti hans af málinu, en vitanlega er það „sjálfum“ Jónasi Jónssyni og óþokkuni á hans reki að kenna, að sundhöllin er ekki fullbúin til notkunar fyrir löngu. Þess þarf naumast að geta, að í skrif- um Jónasar og félaga lians um sundhallarmálið, hefir hvergi vottað fyrir heilbrigðri skyn- semi og engin heil brú verið í neinu. Þar hafa þær haldist í hendur systurnar, lieimskan og ósvífnin, svo sem líklegt má þykja. Sundhöllin er ekki fullbúin til afnota sakir þess eins, að ríkis- stjórnin hefir ekki lagt fram til- skilið fé til hennar. Ríkissjóður hefir ekki lagt fram grænan eyri til þessara hluta, en bæjar- sjóður Reykjavíkur er búinn að verja til sundhallarinnar 330 þúsund krónum. Jónas Jónsson liefir spilt því eftir föngum, að ríkið legði fram sinn skerf til sundhallar- innar. Og honum hefir lánast að tefja málið hingað til. Meiri hluti stjórnar í. S. í. hefir beðið Vísi að birta eftir- farandi Y f i r 1 ý s i n g,u. Vegna blaöagreina þeirra um íþróttamál, sem birtar hafa veriS i Nýja Dagblaðinu fyrir sí'Sustu bæjarstjórnarkosningar og nú, og undirritaSar eru af þeim GuSm. Kr' Guðmundssyni og Magnúsi Stef- ánssyni, en báðir þéssir menn eiga sæti i stjórn íþrótttasambands ís- lands, þykir okkur rétt, vegna mis- skilnings manna á meðal í sam- bandi við þessi mál, a'ö taka þetta fram: 1. Að þessar blaðagreinar eru stjórn í. S. í. algerlega óviðkom- andi og veröa ]>ví greinarhöfunri- arnir sjálfir a'S bera alla ábyrgS á þeim. 2. AS það er algerlega gegn vilja meiri hluta stjórnar í. S. I., aö birtar séu stjórnmálalega litaö- ar greinar um íþróttamál. Allir stjórnmálaflokkarnir hafa sýnt íþróttamálunum skilning og vel- Vilja, og ]dví álítum viS þaöíþrótta- niálunum til hnekkis, þegar gerö- ar eru tilraunir til, að draga þau undir einn stjórnmálaflokk sér- staklega. 3. Að þ.ví er viðkemur sund- höllinni í Reykjavík, viljum við taka það frani: Að allir fulltrúar, sem sæti eiga í bæjarráði Reykjavikur hafa íerzlan Ben. S. Þðrarinssonar bfðr bezt kanp. heitið því, að þegar verði hafist handa um að ljúka viö byggingu Sundhallarinnar er fjárstyrkur sá, sem siðasta Alþingi ákvað að greiða til hennar verður greiddur bænum af stjórn ríkisins. Og hefir borgarstjóri jafnvel talið nægilegt, að ríkisstjórnin aðeins, ábyrgist lántöku til byggingar Sundhallar- innar, og virðist þá ekki til mikils mælst eða freklega af hálfu bæj- arins. Það er því áreiðanlegt, að fáist annaðhvort, féð eða ábyrgðin, hjá ríkinu, þá mun.ekki standa á bæjarstjórn Reykjavíkur, enda á hún enga sök á þeirri töf, sem orð- iö hefir í þessu máli nú. Að við teljum með öllu órétt-- mætt að veitast að bæjarstjórn Reykjavíkur vegna sundhallar- málsins, því að hún hefir, á mjög erfiðum tímum, varið um 300 þús- und krónum til byggingar Sund- hallarinnar, og er það alt það fé, sem varið hefir verið til þessarar byggingar fram á þennan dag. — Hafa því íþróttamenn þessa bæjar enga ástæðu til að efast um, að bæjarstjórn Reykjavíkur standi við loforð sín í þessu efni. Að við teljum það í hæsta máta eðlilegt, að bæjarstjórn Reykjavík- ur sleppi ekki ríkisstjórninni við að standa við ákvörðun Alþingis í Sundhallarmálinu, og bíði því eftir fullnaðarsvari ríkisstjórnar- innar, sem lofað hefir verið í næsta mánuði. Ennfremur teljum við það eðlilegt, eins og nú er komið þessu máli og öll aðstaða er nú til, að bæjarstjórnin taki ekki lán til þessa verks fyr en endanlegt svar ríkis- stjórnarinnar er fengið. Við álítum íþróttamálin sameig- inlegt menningarmál allra þegna Jíjóðfélagsins og munum því gera okkar ítrasta til að halda þeim fyr- ir utan stjórnmáladeilurnar. Reykjavík, 6. júní 1934. Ben. G. Waage. Erlingur Pálsson. Kjartan Þorvarðsson. Næstu ]kapp.i*eidaF« —o— ■ Eftir knappan mánuð (8. n. k. m.) ætlar Hestamannafélagið Fák- ur, að halda sinar aðrar kappreið- ar ársins, og veita marga og all- myndarlega vinninga. Metvinning- ar verða í það sinn hækkaðir um helming frá ]>ví. sem áður hefir verið, eða með öðrum orðum, þeir hestar sem ryðja eldri metum, fá frá 75-—100 krónur en áður hafa metlaun verið 50 kr. Með þessari hækkun vakti fyr- ir félagiftu, að fá hesteigendur til að þjálfa svo vel hesta sina, að í Ijós kæmi þau gæði, þol og flýtir, sem vitanlegt er, að býr í góðum ísl. hesti. Þeir rnenn, er vilja skara fram úr i iþróttum verða að leggja á sig mikiö erfiöi og sama gildir um hest; eigi hann að skara fram úr, þá verður hann um langan tíma að vera æfður eftir settum reglum, af manni með viti, þar verður heili og hönd að starfa saman, ]>ví að öðrum kosti má búast við, að hest- urinn fái þær skráveifur,-sem hann aldrei býðtir baétur af. Síðustu kappreiðarnar hér báru því miður, þess merki, að fíestir liestarnir, er þar hlupu, höfðu ekki fengið næga þjálfan, og stafaði það mest af því, að tíð var slæm og völlurinn þess vegna, framund- ir kappreiðarnar, ófær til æfinga. Nú horfir þetta öðru visi við, því nú er völlurinn í góðu lagi, og má því strax byrja á að æfa, og Reiðbuxur. Oxfordbuxur. Sportskyrtur. Sportsokkar. Manchettskyrtur. Vinnufatnaður í miklu úrvali. Austurstræti 1. þótt tíminn til kappreiða sé ekki langur, þá má með viturlegri þjálf- an, stór auka hraða hests á þess- um tíma, ekki síst þess hests, sem búinn er að liggja úti og liðka sig' eftir básstöðurnar. Það verður að vera metnaður Reykvíkinga, sem eiga góða hesta og fara vel með þá, að hestarnir ekki einungis bæti við sig holdurri af hinu ríkulega fóðri, sem þeim er gefið, heldur og einnig aö þeir auki við sig gæðum og flýti. Um sama leyti i vor og Fákur hélt hér kappreiðar héldu Skag- firðingar einnig kappreiðar, og eft- ix þeim skýrslum, sem hingað komu um flýti þeirra hesta, er þar voru reyndir kom þar í ljós, að Reykvíkingar mega hafa sig alla við eigi hestar hér að halda götu íyrir þeim skagfirsku. Folar þar bafa þegar rutt folameti Fáks, og eru á góðum vegi með að ryðja meti „Móðnis“ á 300 metrum. Á þessu fá menn séð, að sveita hestarnir geta ef. rétt er á haldið, orðið reykvísku gæðingunum skeinuhættir ef vilji og vit þeirra manna, sem með þá fara, er til staðar. Þeir Reykvíkingar, sem eiga góöa hesta og hafa í hyggju að leggja þá fram við næstu kapp- reiðar hér, ættu ekki að draga lengi úr þessu að byrja á æfingum, því svo best vinnast hin háu met- laun, sem Fákur býður nú fram, að fyrir þau sé eitthvað lagt í söl- urnar. Dan. Dan. Bændnrnlr og Sjálfstæðlsflo&karinn. Þýðing bændastéttarinnar í þjóð- félaginu. Það hefir verið sagt um íslend- inga, að þeir væru hrekklaus þjóð, og þótt ýmsir atburðir síðustu ára j opinberu lífi þjóðarinnar kunni að benda á hið gagnstæða, þá mun "áiit þetta þó mega skoðast sern vottur göfugs og drengilegs hug- arfars þjóðar vorrar. Auðvitað hafa allar stéttir þjóð- arinnar átt sinn þátt í því að skapa þetta álit og þann heiður, sem það er, jafnt þjóð sem einstaklingum, að vera álitinn drengur góður. En ef nefna ætti nokkra stétt, er ann- ari fremur hefði að því unnið, þá er það bændastétt landsins. Þetta cr eðlilegt. Hún er elsta stéttin í lándinu og hefir lengst af lif- að af erfiði handa sinna, laus við prjál og tildur, en einmitt slík lífs- kjör virðast, á öllum tímum og hjá öllum þjóðum, hafa verið öðrum fremur vel til þess fallin að skapa göfuga og hreinlynda menn og hafa þeir þó að sjálfsögðu einn- ig fæðst með oðrum stéttum þjóð- arinnar. Bændastéttin hefir líka, að langmestu leyti, lagt þjóð vorri þá hina miklu gáfumenn, er á liðn- um tíma hafa viðhaldið og' varð- veitt tungu vora og andlega menn-

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.