Vísir - 20.06.1934, Page 3
VlSIR
KAUPH0LL1W
Hafnárstræti 10—12 (Edinborg). Sími: 3780. JL. ■
Opið kl. 4—6 (á laugardögum kl. 1—3).
Kreppulánasjóðsbréf.
Önnumst kaup og sölu á Kreppulánasjóðsbréfum.
Heiðroða viðskiftamean!
Um leið og eg leyfi mér að vekja athygli yðar á þvi, að
. cg hefi einkaumboð á íslandi fyrir stærstu og elstu
st.imlpaverksmiðjurnar á Norðurlöndum
get eg útvegað yður allar þær vörutegundir, sem verksmiðjur
þessar framleiða. Vöruvöndun og öllum frágangi á þvi sem verk-
smiðjurnar búa til þarf ekki að lýsa, þar eð þær liafa í mörg und-
anfarin ár selt vörur sinar hingað til lands og hlotið einróma við-
urkenningu sinna viðskiftamanna fyrir vandaðar, lialdgóðar og
smekklegar vörur í sinni grein, en þó ódýrar.
(Það eru fleiri dæmi til að stimplar er pantaðir voru til landsins fyr-
ir 20 árum frá þessum verksmiðjum, eru enn i notkun og eru mjög
greinilegir).
Fer hér á eftir upptalning á nokkru af því er verksmiðjurnar hafa
á boðstólum:
Gúmmí-handstimpla, allsk. gerðir og letur. Eiginhandar-Nafn-
stimpla. Tölusetningarvélar (Numeratorer). Mánaðardagastimpla,
einnig með firmanafni. Sjálffarfandi-Handstimpla. Vasastimpla.
Númerastimpla. Stóra firmastimpla til að stimpla með pappirspoka og aðrar um-
búðir. Stimpla er nota má sem bréfhausa og á umslög af livaða gerð sem er.
Endurskoðunar-stimpla, Bókhalds- og skrifstofustimpla. Málmstimpla. Auglýs-
ingaletur í kössum, stórir og smáir bókstafir (alt ísl. stafrófið) meðmerkjumog
tölustöfum, hentugt til gluggaauglýsinga og fyrir skóla. Slagpressur er þrykkja
nafninu inn í pappírinn. Signet. Brennimerki. Stálstimpla til að merkja með járn
og ýms verkfæri. Merkiplötur til að setja saman i orð,einnig i einni heild. Hefti-
vélar. Gatavélar (Perforér-Maskiner). Tangir fyrir blýinnsigli. Stimplahaldara til
að festa á vegg og hafa á borði. „Garderobe“-Hengimerki, úr látúni, mism.
stærðir. Stimpla búna til eftir hvaða teikningu sem er. Merkiblek á glösum og
brúsum, til-að merkja með lín og allskonar umbúðir.— Kjötstimpla. Stimpilblek
og Púða af mismunandi stærðum og litum.
Fyrirliggjandi frá vepksmiðjunum:
Tölusetningarvélar (Numeratorer). Mánaðardaga-
stimplar. Filt fyrir tölusetningarvélar og sjálffarfandi
stimpla. Stimpíahaldara á vegg og borð. Stimplapúða
og Stimpilblek. Merkiblek fyrir lín og allsk. umbúðir.
Blek í tölusetningarvélar og fleira.
Annast viðgerðir á tölusetningarvélum og mánaðar-
dagastimplum.
Dyranafnspjöld
mismunandi stærðir og
gerðir, úr látúni, postulíni
og emalje, til utan- og inn-
anhússnotkunar. — Einnig
Númera- og Götunafna-
skilti.
Sýnishorn af stimplum, leturtegundum og öðru því er verksmiðjurnar framleiða lvefi
eg til sýnis liér á staðnum. — Allar pantanir afgreiða verksmiðjurnar á mjög stuttum tíma
(3—4 vikum) og nákvæmlega eftir beiðni og fyrirmælum pantenda. Komi misfellur fyrir frá
verksmiðjanna liendi, verður það leiðrétt kaupanda að kostnaðarlausu.
Ef að þér þarfnist einlivers af þvi sem verksmiðjur þessar búa til, þá komið pöntun-
um yðar til mín og mun eg sjá um, að senda þær með fyrstu ferð héðan. Öllum fvrirspurn-
um svarað greiðlega. — Pantanir utan af landi sendar gegn póstkröfu.
HJÖRTUH HANSSON
SÍMNEFNI: „ORDER“.
LAUGAVEG 28.
PÓSTHÓLF 566.
Sím 4361.
REYKJAVÍK.
Hermann
kominn í leitírnar.
Svo sem líklegt má þykja
reyndist það ekki svo, að lög-
reglustjórinn hefði loks lært að
skammast sin og væri hættur
að skrifa um réttarfarsmálin.
í kosningableðli Hriflu-Jónas-
ar í morgun, reynir liann að
svara grein Bjarna Benedikts-
sonar, en tekst svo, að sjálfur
mun liann heitast mega óska,
að hann hefði heldur tekið
skömm sinni þegjandi. Svar
við þessum síðasta þvættingi
mannsins mun birtist hér í
Llaðinu á morgun.
Minning
Boalfls Amnndsen.
Minnismerki um Roald
Amundsen var afhjiipað í
Tromsö í gær og var athöfnin
hin hátíðlegasta. Á minnis-
merkinu er skjöldur úr málmi,
gefinn af frakkneska blaðinu
Le Temps. Aðalritstjóri hlaðs-
ins var viðstaddur og afhenli
gjöfina. Frakkneskt herskip
kom til Tromsö í tilefni af af-
hjúpun minnismerkisins og
stóðu franskir sjóliðsmenn á
verði í heiðurs skyni i kringum
minnismerkið meðan athöfnin
lór fram. (FB).
Ankin hernaðarntgjölfl
i Tékkoslovakfn.
Prag 20. júní. FB.
Rikisstjórnin hefir farið
fram ó það við þjóðþing'ið, að
fá heimild til þcss að auka
hernaðarútgjöld um 4 miljarða
króna. Frumvarp til laga um
þetta verður nú rætt i þinginu.
Vekur þetta að vonum mikla
eftirtekt, því að alkunna er, að
Tékkóslóvakar vilja lifa í sátt
og samlyndi við aðrar þjóðir.
Skilja menn þetta því svo, sem
ríkisstjórnin álíti friðinum
hættu búna, og telji sér skylt
að aulca landvarnirnar sem
mest þess vegna. (United Pr.).
Snarpir
landskj álftakippir
I Hrísey.
Akureyri 19. júní. FÚ.
í morgun kl. 8/ hafði fund-
ist hai'ður landslcjálftakippur í
Hrisey. Annar enn meiri kipp-
ur kom síðastliðið sunnudags-
kvöld, og þótti liann ganga
næsl landskjálftanum 2. þ. m.
Flúði alt fólk á eynni út úr
húsum.’ Sprungur i steinveggj-
um hafa énn gliðnað. Annars
liafa smákippir fundist þar
öðru hverju síðustu daga.
Ilríseyingum hefir altaf virst
stefna landskjálftanna vera fró
suðaustri, og skemdir hafa orð-
ið mestar suðauslan megin á
húsum þar.
Síðustu kippi telja þeir liafa
verið meiri þar en á Dalvik.
Mentaskölinn.
Skólauppsögn fór fram kl. i í
dag. Þessir luku stúdentsprófi:
Máladeild.
Skólanemendur: i. Dagný Elling-
sen 7,33, 2. Elín Davíðsdóttir 5,84,
3. Katrín Ólafsdóttir 7,32, 4. Kjart-
an Guðmundsson 6,11, 5. Kristján
Jóhannesson 6,13, 6. Lárus Pálsson
6,26, 7. Magnús Geirsson 6,33, 8.
Páll Levi 6,17, 9. Páll Þorgeirs-
son 5,74, 10. Thor Guðmundsson
6,19, 11. Unnur Jónsdóttir 7,09, 12.
Vagn Jónsson 6,57, 13. Þórarinn
Guðnason 6,56, 14. Þorst. Sveinsson
4^4-
Utanskólanemcndur: 1. Bjarn-
þór Þórðarson 4,56, 2. Helgi
Bergsson 5,53, 3. Nanna Ólafsd.
6.87, 4. Othar Proppé 5,89, 5. Sig-
rún Briem 6,63.
Stærðfræðideild.
Skólanemendur: 1. Eiríkur Briem
6.40, 2. Friðjón Sigurðsson
7,09, 3. Friðrik Hjálmarsson 4,26,
4. Gunnar Böðvarsson 6,21, 5- Her-
mann Einarsson 6,63, 6. Hermann
Þórarinsson 5,77, 7. Hörður Jóns-
son 6,25, 8. lngi H. Bjarnason
6,21. 9. Jón Björnsson 6,18, 10.
Matthías Hreiðarsson 5.48. 11.
Oddur Ólafsson 5,18, 12. Ólafur
Siggeirsson 5,12, 13. Ólafur Sig-
urðsson 6,91, 14. Pétur Kristins-
son 5,76, 15. Sig. Guðmundsson
5,90, 16. Sig. Ingimundarson 5,56,
17. Zophonias Pálsson 5,60.
Utanskólancmandi: Kaj Jessen
5.01.
Gagnfræðaprófi
luku 32 nemendur, þar af 7 utan-
skóla. H'lutu 17 I. einkunn og 15 II.
7 nemendur náðu hærri einkunn en
7,00. 25 náðu hærra prófinu (5,67),
sem þarf til þess að geta sest t 4.
bekk. 10 nemendur luku ekki prófi
að fullu, en munu gera það í haust.
Allsherjirmðt Í.S.Í.
Allsherjarmótið hélt áfram í
gærkvöldi.
Á undan kapþleikunum sýndu
nokkrir drengir frá Vestmanna-
eyjum leikfimi, undir stjórn Lofts
Guðmundssonar. Tókst drengj-
unum vel sýningin og var ánægju-
legt að horfa á fimi þeirra í stökk-
um á dýnu.
Úrslit í þeim greinum, sem kept
var í i gærkveldi, urðu þessi:
110 m. grindahlaup:
Undanrás var hlaupin i tveimur
riðlum og tveir þáttt. í hverjum —
brautir eru ekki fleiri. — Fyrra
riðil vann Karl Vilmundsson, Á.,
á 20.6 sek., en hínn síðari Ingvar
Ólafsson, K. R., á 19,9 sek.
Ú r s 1 i t: 1. Karl Vilmundsson,
Á., 19.Ö sek.; 2. Ingvar Ólafsson,
K. R., 20.5 sek.; 3. Ólafur Guð-
mundsson, Iv. R., 21.4 sek. — I
úrslitahlaupinu feldur þeir Karl og
Ingvar báðir síðustu grind á braut-
unum. Ingvar var þá aðeins á und-.
an, en féll og taíðist þá svo, að
hann varð á eftir. -— ísl. met er
18 sek.
400 m. hlaup:
1. Gísli Kjærnested, Á., 56.1 sek.:
2. Ólafur Guðmundsson, K. R., 36.8
sek.: 3. Stefán Guðmundsson, K.
R., 57.0- sek. — ísl. met er 54,6 sek.
10.000 m. hlaup:
i. Gísli Albertsson, í. B., 34 min.
46.6 sek.; 2. Bjarni Bjarnason, í.
B., 35 mín. 48.0 sek.; 3. Magnús
Guðbjörnsson, K. R., 38 mín. 2,6
sek. — ísl. met er 34 mín. 6.1 sek.
Langstökk:
1. Karl Vilmundsson, Á., 6.10 m.;
2. Georg L. Sveinsson, K. R., 6.05
m.: 3. Ingvar Ólafsson, K. R., 6.O1
m. — íslenskt inet er 6.53 m.
1000 m. hoðhlaup
(400—300—200—100 m.) :
1. Glímufél. Ármann 2 mín. 16
sek.; 2. Knattspyrnufél. Rvíkur 2
mín. 17 sek.; 3. K. R. (önnur sveit)
2 mín. 22.8 sek.
Einni iþróttagrein (stángar- |
stökki) var frestað.
Stigin um Allsherjarmótsbikar-
inn standa nú svo: K. R. 119 st.
Glímufél. Árm. 107, í. B. 24 og
Víkingur 2 st.
í kvöld fara fram síðustu kapp-
leikar mótsins, þ. e.: Stangarstökk,
fimtarþraut og 10.000 m, kappganga,
Kappgangan fer fram á vegi, en
endar á íþróttavellinum.
N o r s k a r
loftskeytafregnir.
—o—
Veikindi Mowinckels.
Osló, 10. júní. — FB.
Mowinckel forsætisráðherra
er nú hitalaus, en litlar líkur til,
að hann geti komið á þingfund
í yfirstandandi viku.
Vinnudeilulögin norsku.
Óðalsþingið hafði í gær til
meðferðar breytingarnar á lög-
um um vinnudeilur. Samþykt
var að hreyta reglunum um at-
kvæðagreiðslur í verkalýðsfé-
lögunum og málamiðlunartil-
raunir með 57 atkvæðum gegn
53. Jafnaðarmenn og Dybwad
Broclimann greiddu atkvæði á
móti þeim. Því næst voru lögin
með áorðnum breytingum sam-
þykt og afgreidd til lögþingsins.
Greiddu jafnaðarmenn atkvæði
á móti. Búist er við, að þing-
fundum verði lokið 25. eða 26.
júní, ef ekki verða stjórnar-
skifti.
Bann við notkun einkennisbún-
inga í pólitískum tilgangi,
Óðalsþingið hefir fallist á
breytingartillögur rikisstjórnar-
innar á lögunum um einkennis-
búninga. Tillögurnar ganga út
á það, að bann er einnig lagt á
notkun einkennisbúninga i
pólitískum tilgangi á innífund-
um.
Hallgrímshátíðin í Saurbæ
er áformað að verði að þessu
sinni haldin sunnudaginn 15. júlí.
Biskup prédikar, en aðalræðumenn
| úti er talið að verði dr. Sigurður
j Nordal og Guðbrandur Jónsson rit-
| höfundur. Viðbúnaður er nú mik-
ill i Saurbæ og hefir t. d. verið
gerð þar bryggja, sem er í alla
staði hið prý'ðilegasta mannvirki.
Hafa sóknarmenn sýnt mikla rausn
með dagsverkagjöfum í bryggjuna,
svo að þar hafa engir skorist úr
leik, þrátt fyrir mannfæð á flest-
um heimilum. Nú er verið að reisa
eldaskála á samkomustaðnum og
verður í sambandi við hann annað-
hvort skáli eða tjald til veitinga.
Konur úr Saurbæjar-, Leirár- og
Melasóknum ætla að annast allar
veitingar á hátíðinni til ágóða fyrir
kirkjuna. Akurnesingar eru eigi
heldur aðgerðalausir, og svo er sagt
af kunnugum mönnum, að svo megi
heita, að allar hendur séu á lofti
til liðsinnis, í suðurhluta Borgar-
fjarðarsýslu. (Landsnefnd Hall-
grímskirkju. — LB.).