Vísir - 30.06.1934, Síða 3
VlSIR
Selfellsskáll
verður opnaður á morgun, sunnud. Þar er skemtilegasti stað-
urinn hér nærlendis til þess að njóta náttúrunnar. Templarar,
rnunið að f jölmenna að Selfellsskála á sunnudögum og í frí-
stundum ykkar. Einnig allir velkomnir, sem ekki hafa vín um
hönd.
Dans á palli
frá kl. 4 á liverjum sunnudegi, með aðstoð liljómsveitar O. Jj\
Bernburgs.
St. Einingin fer skemtiferð þangað á morgun kl. 1. Allir
templarar velkomnir.
+
Frn Helga Torfason
kona Siggeirs kaupm. Torfa-
sonar, andaðist i morgun að
heimili sinu hér í bænum.
Frú Ilefga var hin mesta
mætiskona, vinföst og trvgg,
ágæt eiginlcona og móðir.
Jönas
og foringjaleysið.
Mér var bent á það í dag, að
í annari dagblaðsnefnu Jónasar
frá Hriflu, sem út kom kosn-
ingadaginn, væri verið að
harma það fyrir landsins liönd
og bæjarins, að K. Zimsen,
fyrv. borgarstjóri væri liættur
að taka þátt i stjórnmálum og
sinna opinberum störfum. Kall-
ar nefnt blað Iv. Zimsen fofingja
Sjálfstæðisflokksins og talar
um hann mcð mikilli virðingu.
Eg licfi nú ekki heyrt þess
getið, að K. Zimsen, hinn mæti
maður, hafi nokkuru sinni ver-
ið í foringjasæti innan Sjálf-
stæðisflokksins. Eg liefi yfir-
leitt ekki orðið þess var, að
liann hafi gefið sig við lands-
málum siðustu áratugina. Hann
hefir haft nóg að gera, að sinna
málefnum Reykjavíkur. Borg-
arstjörinn í Reykjavík er svo
störfum hlaðinn, að hann getur
illa sint því, að vera foringi
eða mjög starfandi maður í
Jandsmálaflokki. Það hefir K.
Zimsen vafalaust verið ljóst, og
því hefir hann ekki látið liin
eiginlegu þjóðmál til sín taka
mörg síðustu árin.
En það er dálítið spaugilegt,
að hlöð Jónasar frá Hriflu
skuli liarma það, að K. Z. er
ekki foringi í stjórnmálaflokki.
Það er alkunnugt, að J. J. hefir
látið hlöð sin hera það upp á
Zimsen, að hann haí'i stolið eitt-
hvað einni miljón króna af fé’
hæjarins. Hafa blöð Jónasar
verið að japla á þessum lygum
til skamms tíma, og Jónas var
svo eða þóttist vera svo sann-
færður um „þjófnað“ hins fyr-
verandi borgarstjóra, að hann
lét Iiefja sakamálsrannsókn á
hendur honum, með fyrirskip-
un um sakamálshöfðun, en það
var siður Jónasar, að fyrirskipa
sakamálshöfðun, hvað sem
rannsókn kynni að leiða í ljós.
Það er nú vitanlegt, að engin
króna af fé bæjarins hafði
misfarist af völdum K. Zimsen,
fyrv. horgarstjóra. Sagan um
miljónarþjófnaðinn var auðvit-
að sótsvört lygi frá rótum, þó
að Jónas hafi ekki viljað láta
sér sldljast það enn þá.
Verður því að gera ráð fyrir,
að Jónas sé enn þeirrar skoðun-
ar, að K. Zimsen hafi tekið
miljónina og þess vegna þyki
lionum hann sérstaklega vel til
þess fallinn, að hafa á hendi
forystu í stjórnmálaflokki. Má
mikið vera, ef liann fer nú ekki
að biðla til Zimsens um að taka
að sér einliverskonar foringja-
tign í Framsóknarflokkinúm.
En hælt er við, að Zimsen tæki
því fjarri og vilji þar livergi
nærri koma.
Það er sárt, ef Jónas hefir
miklar áhyggjur af því, að
Sjálfstæðisflokkinn skorti for-
ingja. Hann hefir nóg að hera
samt, maðurinn sá, þó að það
bætist ekki ofan á. En hann
ætti að láta af öllum áhyggjum
í þeim efnum, og bíða rólegur,
þar til er kvartað verður fyrir
honum.
Kjósandi.
Hljöðritoa
Hljöðfærahússins.
Athyglisverð nýjung.
Tíðindamanni Vísis var i gær
L'oðiö að skoða og reyna ný tæki
til hljóðritunar, sem Hljóðfæra-
hús Reykjavíkur hefir aflað sér,
— tæki sem gera almenningi
mögulegt, að fá tekiS á grammó-
fónplötu tal, söng og hverskonar
hljóSfæraslátt, með ótrúlega litlum
tilkostnaði. Til skamms tíma var
]jað svo, að ef menn þurftu af ein-
hverjum ástæðum að fá tekna
grammófónplötu, þá skifti kostn-
aöurinn við það hundruðum króna.
En með Jiessum nýju tækjum
Hljóðfærahússins er unt að fram-
leiða góða grammófónplötu fyrir
fáeinar krónur. Stafar ]iað af því
að fyrir skömmu hefir verið 'fund-
iö upp áhald og efni til plötufram-
leiðslu senr er mörgum sinnurn ó-
dýrara en áður hefir ])ekst.
Það skal játað, að það var með
allmiklum efasemdum aö tíðinda-
maður hlaðsins fór til þess að
reyna ])essi tæki og bjóst hann
helst við að .hér væri um hálfgert
„humbug" að ræða. En tilraunirn-
ar færðu heim sanninn um það
gagnstæða. Var tíðindamanninum
gefinn kostur á að reyna upptöku
á tali, söng og ýmiskonar hljóð-
færaslætti, og var árangurinn
furðanlega góður. Mannsröddinni
skila plöturnar með hreinum og
eðlilegum raddblæ, söngnum
hljómmiklum og skýrum, og meira
segja pianóleikur, sem annars er
eitt af því vandasamasta senr tek-
ið er á grammófónplötur, naut sin
furðanlega vel.
Vegna þess hve plötur þessar
eru ódýrar má búast viö að þær
verði nokkuð alment notaðar. Til
dærnis mun sjálfsagt marg-a fýsa
'])ess, að senda fjarstöddum vinum
sínum og kunningjum orðsendingu
eða kveðjur með sinni eigin rödd
í staðinn fyrir að skrifa hugsanir
sinar niður á pappirinn upp á
garnla mátann. — ElIjóðfærahúsiS
hefir hitt á heppilegan tíma til
þess aS koma fram með þessa nýj-
ung sína, því að einmitt um þess-
ar mundir er mesti fjöldi söng-
manna utan af landi staddur hér
i bænum, og er ekki ólíklegt.að
ýmsum. þeirra muni þykja gaman
að taka meS sér heim rödd sína
á grammófónplötu. D.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. ii, síra Bjarni
Jónsson.
Dánarfregn.
Frú Þóra Magnúsdóttir, kona
Stefáns cand. jur. Stefánssonar,
bónda og hreppstjóra í Fagraskógi
viö Eyjafj., hefir nýlega orðið fyr-
ir þeirri þungbáeru sorg og reynslu,
að rnissa son sinn af fyrra hjóna-
bandi, Vilhelm Magnús Behrens,
efnilegan og góöan dreng, 14 ára
gamlan. IJann andaðist úr skaflats-
sótt. Höfðu fleiri á heimilinu tekið
sóttina og komist tiltölulega létt
út af, en Jífi drengsins varö ekki
bjargaS.
Veðrið í morgun:
Hiti í Reykjavík 14 stig., ísa-
firði 14, Akureyri 16, Skálanesi 10,
Vestm.eyjum 11, Sandi 10, Ivvíg-
indisdal 10, Hesteyri 12, Gjögri 10,
Blönduósi 12, Siglunesi 12, Gríms-
ey 10, Raufarhöfn 12, Skálmn II,
Fagradal 12, Hólum í Hornafiröi
14, Fagurhólsmýri 13. Reykjanes-
yita 10, Færeyjum 13 st. Mestur
liiti hér í gær 14 st., minstur 7 st.
Sólskin hér í gær 1,6 st. Yfirlit:
IláþrýstisvæSi frá Bretlandseyjum
og norSvestur um ísland. Grunn
lægð yfir Grænlandi. Horfur: Suð-
vesturland, Faxaflói, Breiðafjörð-
ur, Vestfirðir: Hæg sunnjm 'og
suðvestan átt. Skýjað og sumstað-
ar rigning i nótt. Noröurland,
norðausturland, AustfirSir: Hæg-
viðri. Skýjað en úrkomulaust að
mestu. Suðausturland: Hæg vest-
anátt. Urkomulaust og léttskýjað.
Austurvöllur
hefir nú verið sleginn fyrir
nokkuru, en síðan hefir verið
vætusamt, svo að hcyið hefir
ekki þornað. Það er nú farið að
hrekjast nokkuð og gulna og er
lítil prýði að því á vellinum. —
Væri ekki réttara,,að flytja liey-
ið burtu, áður en það skemmist
meira ? Bæjarmaður.
Sigurjón Sigurðsson
trésmíðameistari, Vonarstræti 8,
er sextiu og fimm ára í dag.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss var á ísafirði í morg-
un á leið liingað. Goðafoss er á
leið til Hull frá Vestmannaeyj-
um. Brúarfoss fer frá Kaup-
mannahöfn í dag. Lagar-
foss kom til Kaupmannahafnar
í gær. Selfoss fór frá Færeyj-
um í gær áleiðis til Kaupmanna-
hafnar.
Hekla
fór til Suðurlanda i gær.
Dettifoss
kom hingaÖ i morgun frá útlönd-
um (Hull og Hamborg). MeÖal
farþega voru: Níels Dungal, pró-
fessor, Höskuldur Dungal, Nanna
Zoéga, Gunna Bernhöft, Klara
Friðfinnsdóttir, frú K. Sandholt,
Kristján Gislason. Ingólfur Esþhó-
lín, Steinarr Guðmundsson, Hanna
FriSfinnsdóttir, Gróa GuSjónsdótt-
ir og fjöldi útlendinga.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Helene I.
Schmidt, Ránargötu 10 og Sól-
berg Þorsteinsson, Korpúlfs-
stöðum.
Sjúkrasamlag' Rvíkur
biður nienn að áthuga augl.
hér í blaðinu um skoðunar-
lækna fyrir innsækjendur í
samlagið.
Næturlæknir
er í nótt Kristinn Björnsson,
Stýrimannastíg 7. Simi 4601. —
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki og Ingólfs Apóteki.
Gengið í dag.
Sterlingspund..... kr. 22.15
Dollar ................— 4.39
100 ríkismörk.......— 170.38
— frakkn. frankar — 29.07
— belgur ...........— 102.39
— svissn. frankar . — 142.69
— lírur..........— 38.10
— mörk finsk .... — 9.93
— pesetar ..........— 60.82
— gyllini ....... — 297.84
— tékkósl. kr.....— 18.58
— sænskar kr.....— 114.31
— norskar kr.....— 111.44
— danskar kr. ... — 100.00
Plógur.
Mjólkurfélag Reykjavíkur hefir
í nokkur ár gefið út sérstakt rit,
sem nefnist Plógur, og er fyrsta
hefti 4, árgangs nýkomið út. Flyt-
ur meðal annars ritgerS um mjólk-
urmáliS, eftir Eyjólf Jóhannsson,
framkvæmdarstjóra.
Grétar Fells
flytur erindi á Voraldar-sam-
komu í kvöld (laugard.) kl. 9, sem
hann kallar: Kirkja og kristindóm-
ur. Allir eru velkomnir. Forma'Sur
félagsins, Pétur SigurSsson, sem nú
er á förum úr bænum verÖur einn-
ig á samkomunni.
i Súlur!
MuniS að FerSafélag íslands
efnir til göngufarar á Súlur á
morgun. TakiS ])átt í förinni! —
Óvíða mun útsýni fegurra en af
Súlum.
Útvarpið í kveld.
Kl. 18.45: Barnatími (Frið-
rik Hjartar). — 19.10: Veð-
urfregnir. Tilkynningar. —
19.25: Erindi Kennarasam-
bandsins: Stefnubreyting í
skólamálum. (Aaðalsteinn Sig-
mundsson). — 19.50: Tónleik-
ar. — 20.00: Klukkusláttur.
Fréttir. — 20.30: Kórsöngur.
(Karlakórinn Vísir, Siglufirði.
Söngstj. Þ. Eyj. Karlakórinn
Geysir, Akureyri. Söngstj. I.
Árnas). — 21.00: Tónleikar:
a( Útvarpsti'íóið. b) Grammó-
fónn: Haydn: Sonata nr. 1 í
Es-dúr (Horowitz). — Danslög
til kl. 24.
Hreinlætið ( bænnm.
—o—
Eftir nbkkra daga fara stóru
feröamannaskipin aS koma til
landsins. HundruS og jafnvel þús-
undir erlendra manna koma þá til
höfuSborgarinnar, til þess að sjá
land vort og kynnast þjóSinni. Sú
viðkynning er ekki mikil, þar sem
skipin — og ferSafólkiö — standa
ekki við nema einn til tvo daga —
en samt sem áöur sannast það, að
glögt er gestsaugaS. Erlendu
gestimir verða ekki lengi að koma |
auga á þann sóðaskap og hirSu- |
leysi, sem er um alla umgengni
rnanna hér í bænum, og þeir undr-
ast þetta flestir hverjir.
Það væri nú ekki úr vegi aS
hreinsa dálítið til rétt áSur en all-
ur ferðamannafjöldinn fer að
koma til höfuSborgarinnar — enda
þótt seint sé. ÞaS kostar ekki
mikið að koma á ögn rneira hrein-
læti og betri umgegni um göturn-
ar — þaS vantar aðeins fram-
kvæmdirnar. HeilbrigSisfulltrúi
ætti aS geta látiS setja upp nokkr-
ar körfur undiiJ bréfdrasl o. fl. viS
helstu götur borgarinnar, svo aö
menn þurfi ekki aS fleygja öllu
slíku á göturnar. Hefir þetta ekki
ennþá verið gert og gegnir mestu
furðu —• þar sem slíkar körfur
myndu verSa til þess, aS menn
fleygöu bréfa og blaSadrasli,
ávaxtahýSi o. fl. í þessar körfur,
en ekki á götuna eins og nú er
iKíSöíiíiíííXíossöoöOGííooooíioao;
VÍSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
iööööt Söt Sööt Sötiöööí SÖÖÖÖtStStSÖÍ
gert. — VerSur gaman að sjá
hversu lengi þessar sjálfsögSu
körfur veröa á leiSinni.
Símaskýlið á Lækjartorgi er
mesta bæjarsmán — og ætti aS
íífa það hiS bráðasta, ef ekki er
hægt aS láta ganga þar sómasam-
lega Um, og ef ekki er hægt aS
hafa hurSl fyrir því. Er þetta
slcýli mjög ósmekklegt og í 'alla-
staöi ósamboSið höfuöborg lands-
ins, enda er nú ekki veriö að hafa
fvrir aS laga það til. — í fyrra
sumar var skýli þetta einnig hurð-
arlaust, en svo var hurS sett á
það, en einhver hefir tekiö hana
heim meS sér, og mun nú víst ætl-
unin aö spara útgjöldin með hurð-
ina. Er það náttúrlega sparnaður
að sínu leyti, en sparar víst ekki
„fallegar“ lýsingar erlendra
manna, sem liingað koma, um um-
gengni og hirSusemi á aðaltorginu
í Reykjavík. — VerSur gaman að
vita hvort þeir, sem á þessum mál-
um bera ábyrgö, gera nokkuS í
þessu, eSa hvort þeir gera það
sama og áSur, en þaS er ekki
neitt.
G. S.
Útvappsfréttip.
Berlín 30. júní. FÚ.
Nazistar og kaþólska kirkjan.
Samningatilraunum milli fulltrúa
þýsku stjórnarinnar og Nazista-
flokksins annars vegar og katólskú
kirkjunnar hinsvegar, er hætt í bilí,
og hefir enginn árangur orðið áf
umleitunum þessum, enn sem kom-
ið er.
Icröfur uppgjafahermanna.
Örkumla uppgjafahermenn í Par-
ís fóru enn i gær kröfugöngu til
fjármálaráðuneytisins og var nefnd
manna sendá fund f jármálaráSherra
til þess að bera fram enn á ný
mótmæli gegn styrklækkun. Síðar
um daginn átti forsætisráðherra tal
við fulltrúa hinna örkumla her-
manna.
Roosevelt ver stefnu sína.
London, kl. 16, 29. júní. — FÚ.
Roosevelt forseti varði „hina
nýju stefnu“ sína síðustu 15
mánuðina i útvarpsræðu, sem
hann hélt í gærkveldi. Meðal
annars sagði hann, að kaupi
hefði hækkað, vinna, aukist,
landbúnaðarafurðir hækkað í
verði, og hefði alt þetta fengist
án nokkurrar rýrnunar á frelsi
fólksins. Endurreisn trausts og
velmegunar hefir orðið undir
stjórn fólksins sjálfs. Hann lýsti
tímunum á undan kreppunni
svo, að þá hefði farið fram æð-
isgengið kapp til þess að eignast
auðæfi, án þess að vinna fyrir
þeim.