Vísir - 23.07.1934, Qupperneq 4
VISIR
Næturgauf.
Stöðu minni eða atvinnu er
svo háttað, að eg verð að
vinna fram yfir miðnætti
þrisvar í viku livérri. Eg geri
það ekki að gamni mínu, að
vinna svo lengi fram eftir, en
hjá því verður ekki komist,
eins og stendur.
Eg fer heim til mín nokk-
uru eftir miðnætti þau kveld-
in, sem eg þarf að vinna svona
lengi. Og leið mín liggur úr
miðbænum, þ. e. hinum gamla
miðbæ, kvosinni, austur og
upp í bæ.
Eg er oftast nær á ferðinni
þessa leið um eða laust eftir
kl. 1 eftir miðnætti. Og aldrei
bregst það, að þá sé allmikill
fjöldi fólks á götunum.
Eg hefi oft furðað mig á
þessu næturgöltri fólksins. —
Væri allir eins kveldsvæfir og'
eg', þá sæist ekki manneskja á
götum borgarinnar um þetta
leyti sólarhringsins — nema
lögregluþjónarnir.
Mér þykir ekki liklegt, að alt
þetta fólk sé að koma frá
vinnu sinni, enda veit eg ekki
hvaða vinna það ætti að vera.
Þetta eru aðallega unglingar,
og flestir prúðbúnir, bæði pilt-
ar og stúlkur. — Stundum eru
tveir og tveir og tvær og tvær
saman, eða þá tvent, piltur og
stúlka. Stundum eru allmarg-
ir í hóp, en stundum ranglar
einn og eiim eða pin og ein
útaf fyrir sig.
Hvaðan kemur alt jietla fólk
og livernig stendur á þessu
ferðalagi þess að næturlagi?
Eg veit það ekki. Ef til vill
er sumt af þvi að koma af ein-
hverjum skemtunum eða sam-
sætum og er þá að vísu furðu-
mikið um skemtanir og sam-
kvæmi i þessum bæ, og miklu
meira en mig liafði grunað.
Því er ekki að leyna, að iðu-
lega ber nokkuð mikið á því,
að sumt af þessu fólki sé und-
ir álirifum vins, og séð hefi eg
dauðadrukna unglinga reika
um göturnár á þessum tíma
sólarhringsins. Það er óskemti-
leg sjón. Stundum eru barn-
ungar stúlkur, nýlega komnar
af fermingaraldri, svo drukn-
ar, að þær „slaga“. — Það er
átakanleg hörmungarsjón og
grunur minn er sá, að sú lilið
næturlífsins í Reykjavík, sem
veit að drykkjuskapar-óreglu
ungra kvenna, þurfi að athug-
ast mjög gaumgæfilega. Hefir
mig oft furðað á þvi að ekk-
ert skuli vera gert, svo að vit-
Bestu
rakblöðin
Lagersími 2628.
þunn — flug-
bíta. — Raka
hina skegg-
sáru tilfinn-
ingarlaast. —
Kosta að eins
25 aura. Fást
í nær öllum
verslunum
bæjarins.
Póstliólf 373.
að sé, til þess að koma í veg
fyrir, að ungar stúlkur lendi
í þeirri hörmulegu ágæfu og
niðurlægingu, að vera á ölæð-
isslarki fram á nætur. Má öll-
um þó ljóst vera, hvað af slíku
hátterni getur leitt og' hver
háski er hér á ferðum.
Það segir sig' sjálft, að fóta-
ferðin muni ekki vera beisin
hjá þessu unga fólki, sem úti
flækist fram á miðjar nætur.
— Það er sjdjað og þreytt að
morgninum og á bágt með að
drífa sig á fætur. — Það slór-
spillir heilsu sinni á nætur-
slangrinu. Sumt af þessu fólki
verður að drífa sig upp að
morgninum, þó að það hafi
ekki fengið líkt því nægan
svefn. Það verður að fara til
vinnu sinnar, slæpt og mátt-
laust og syfjað. Smám saman
fara svo taugarnar að bila —
af ónógum svefni, tóbaks-
nautn og áfengisþambi hjá
sumum. —
Þetta er ekki efnilegt. Og
það er alveg' áreiðanlegt, að
svona hátterni kemur fólkinu
í koll síðar. Það grefur stofn-
inn undan heilbrigði þess eða
nagar liann smám saman. —
Unglingarnir trúa þessu frá-
leitt, því að þeir finna kann-
ske ekki svo mjög til þess fyrst
í stað, en einhvern tíma kem-
ur að skuldadögunum, í þess-
um efnum sem öðrum.
Eg hefi veitt því athygli, að
iðulega er það sama fólkið,
sem á vegi minum verður að
næturlagi. Og mér hefir í raun-
inni þótt það hetra, heldur en
hitt t. d., að rekast altaf á ný
og ný andlit. Það hefir orðið
til þess, að eg hefi farið að
vona, að næturvöku-liópurinn
sé ekki fjarskalega stór. Auð-
vitað fer eg eklci víða um bæ-
inn — fer oftast sömu leiðina
heim til min, svo að sægur af
samskonar fólki getur að sjálf-
sögðu verið á flækingi um aðr-
ar götur bæjarins, án þess að
eg hafi hugmynd um.
KJÍÍÍSOÍ 5Í5Í Síiííí ittíiíiíiíi; iíiíiílíiíiíiíiíií
Munið
að lála það verða yðar fyrsta
verk, þegar þér komið úr sum-
arleyfinu, að koma filmum yðar
til framköllunar og kopieringar
i amatördeild
Til ferðalaga ogheimanotkunar:
Loftpumpaðar sængur á kr. 24.00
Ábreiður með kodda . — 12.00
Beddar ............. — 17.50
Garð og tjaldstólar.
SporíYörubös Reykjayíkur.
VÍSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
rAPAÐ-FUNDIÐ
Kvenveski íapaðist á Þing-
völlum í gær. Skilvís finnandi er
beðinn að skiia þvi í verslun
Marteins Einarssonar. (625
20 stk -1-25
ELDURINN
t! í
TEOFANI
Cicjðtretlum
er altaf lifa^rxdi
Margar rakblaðategundir
eru meðþví markibrendar,
að eitt blað reynist gott,
annað lélegt, svo útkoman
verður í lakara lagi þegar
til lengdar lætur.
ROTBART-LUXUOSA eru
öll jafn góð og ekki dæmi
til þess að nokkur maður
liafi nokkru sinni orðið
fyrir vonbrigðum með þau
ROTBART-LUXUOSA
passa í allar gerðir Gillette
rakvéla.
«Ít5íiíÍÍ5«ÍXi;i!í00!Xi;iíSG(50CÍ«ÍXíí«
Eg vildi óska, að eitthvað
væri hægt að gera til að kippa
þessu i lag, því að hér er á-
reiðanlega hætta á ferðum —
alvarleg hætta, sem ekki er rélt
að leiða hjá sér.
Þ.
Grábröndóttur ketlingur lief-
ir tapast frá Bragagötu 29 A.
Þeir, sem kynnu að verða lians
varir, eru beðnir að koma hon-
um þangað. (624
3 smekkláslyklar saman-
bundnir hafa tapast. Skilist á
Bóklilöðustíg 11. (618
HÚSNÆÐI
Til leigu fyrir mann í fastri
stöðu, stofa með aðgangi að
baði og' síma. Uppl. í síma 2182.
(619
2—3 herbergi og’ eldhús ósk-
ast 1. okt. Tilboð merkt: „Fyr-
irframgreiðsla“, sendist afgr.
Vísis. (617,
1— 2 herbergi og eldliús ósk-
ast 1. okt. Uppl. í síma 4489.
(613
Til leigu 2 fallegar, samliggj-
andi stofur, stórt svefnherbergi
og stúlknaherbergi. Öll þægindi.
Leiga 175 krónur mánaðarlega.
Tilboð, auðkent: „Fjölnisveg-
ur“, sendist Vísi. (632
2— 3 herbergi og eldliús ósk-
ast 1. okt. eða fyr. Uppl. í síma
4493. ' (628
Barnlaus hjón óska eftir íbúð
1. okt., 4 herb. og eldhús, með
nýtísku þægindum. — Skilvís
greiðsla. Uppl. í síma 2737. (626
Góð forstofustofa með hús-
gögnum til leigu nú þegar yfir
lengri eða skemri tíma. Öldu-
götu 27. (633
KAUPSKAPUF
Píanó og Orgel til sölu með
tækifærisverði. Pálmar ísólfs-
son. Sími 4926. (616
Notuð eldavél, mjög ódýr, til
sölu. Sími 3680. (615
Brauð frá Alþýðubrauðgerð-
inni eru seld i búðinni Lauga-
veg' 51. Ýmsar aðrar vörur. —
Verðið lágt. (614
Nýlegt eikarbuffet til sölu
með tækifærisverði i Miðstræti
3, III. hæð. (627
VINNA
Stúlka óskar eftir ráðskonu-
stöðu i haust. Tilboð merkt:
„Ráðskona“, sendist afgr. Vísis,
fyrir 25. þ. m. (623
Velvirkur kvenmaður óskast
1—2 tíma til gólfþvotta á
morgnana. Uppl. á Laugaveg
76. ^ (622
Kaupakona og tveir drengir
(11—12 ára og 14—15 ára),
óskast strax á góð sveitaheim-
ili. Uppl. á Smiðjustíg 4 eftii”
kl. 8 í kveld. (621
Ráðskona óskast sti'ax á
Laugaveg 126, uppi. (620
Kaupakona, sem kann að slá,.
óskast slrax á golt heimili. —-
Uppl. sírna 3500. (598
Unglíngsstúlka, 15—17 ára,
óskast strax á g'ott sveitaheimili
í Mýrdal. Uppl. á Hverfisgötu
71. ' (630
gjgf3 Kaupamann vanlar að
Skeggjastöðum í Mosfellssveit
strax. Uppl. Garðastræli 39,
niði'i, eftir kl. 8. (631
Dugleg kaupakona óskast. —
Hátt kaup. Uppl. Hverfisgötu
114, eftir kl. 6 i dag. (629
Ung' stúlka getur fengið at-
vinnu á efnaverksmiðju nú
þegar. Umsóknir, merktar: „At-
vinna“, sendist Vísi stx-ax. (634
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
I
HUNAÐARLEYSINGI.
því að mér, að það væri betra en ekki, að fá að sjá
Iierra Rochester einu sinni enn og heyra hann tala.
Og röddin bætti við: „Hraðaðu þér, slúlka mín! Not-
aðu tínxann, njóttu hans meðan þess er kostur. Að
fáeinum vikxxm liðnum er öllu lokið. Og þá áttu þess
kannske ekki nokkunx kost, að sjá hann frarnar.
Áður en varði voru tárin farin að streyma niður
vanga mína. Eg reyndi að harka af ixiér og liraðaði
för rninni.
Vinnumennirnir á Thornfield stóðu að slætti á
ökrunum þegar eg nálgaðist. Eða réttara sagt: Þeir
vorxx að hætta og löbbuðu bráðlega heim nxeð orfin
uixx öxl. Nú var eg senn korniix á leiðarenda. En hvað
kjarrgirðingarnar voru fallegar, svona um hásumar-
ið! Og nú geng eg gegnunx fögur trjágöng og lauf-
krónurnar vagga í blænum.---Hvað er nú? Situr
ekki einhver þarna? -r- Eg fæ óðara hjartslátt, því
að eg gat ekki betur séð, en að þetta sé sjálfur lxús-
bóndinn — herra Rocliester. — Eg þoka mér ofurlítið
nær. Jú, vissulega situr hann þarna — með bók i
höndiim og ritblý — situr og skrifar og tekur ekki
eftir neinu, sem fraxn fer í kring um hann.
Þetta er áreiðanlega engin missýning. Hann situr
þarna og skrifax'. — Eg verð alt í einu undarlega
óstyrk. Það er eins og hver einasta taug í líkamanum
skjálfi og lxjartað verður svo ókyrt í bi'jósti mér, að
eg hefi aldrei fundið neitt þvilikt áður. Eg er í þann
veginn að missa alla stjórn á sjálfri mér. — „Hvern-
ig vikur þessu við,“ segi eg í huganum. — Og eg
þykist skilja hvernig á þessu slandi. Eg' liafði ekki
gert mér neina ljósa grein fyrir því, hvernig mér
mundi verða við, er eg sæi hann aftur. — Eg liáfði
kannske alls ekki búist við að sjá liann — síst núna
og á þessum stað. Bara vonað óljóst, að eg' þyrfti
ekki að bíða fjarska lengi.------Mér dettur í hug
að snúa við — fara einhverja aðra leið lieim að liiis-
inu. En þá minnist eg þess, að eg þekki enga aðra
leið. Og auk þess var nú alt um seinan, þvi að hann
hafði komið auga á mig.
„Hæ-lió!“ hrópaði Rochester og stakk bók og rit-
blýi í vasann. „Loksins — loksins eru þér komnar!
-----Gerið svo vel, ungfrxi! — Konxið dálítið næf!“
Eg' mun hafa hlýtt fyrirmælum hans og gengið
til hans. En eg man ekki hvernig það atvikaðist
— veit bara það, að bráðlega var eg stödd við hlið
hans. — Eg hugsaði ekki xinx annað þessi augna-
blikin, en að ná valdi yfir sjálfri mér, svo að eg
gæti virst alveg róleg. Eg var svo lieppin, að ganga
með slæðu vfir hatlinum mínum að þessu sinni,
og hafði vit á því, að draga hana niður fjrrir and-
litið. —
„Loksins — loksins eru þér komnar, Jane Eyre!
— En eru það nú áreiðanlega þér og ekki einhver
töfrasýn, sem hverfur á samri stundu!---------Þér
kornið okkur að óvörum — —- enginn fær neitt
að vita fyrr en þér standið þarna — eins og' álfa-
nxær — eins og vitrun — eins og fallegur draum-
ur! — Hvar hafið þér alið manninn allan þennan
eilífðartima?"
„Eg hefi verið hjá frændkonu minni — og nú
er hún dáin.“
„En livað svai'ið er líkt yður, Jane Eyre! Þér
komið frá öðrum lieinxi — Iandi hinna framliðnu!
Og svo segið þér þetta svona blátt áfram! — Ef
eg væri ekki slikur hugleysingi, sem eg er, þá
mundi eg þreifa á yður — strjúka yður unx vang-
ann, til þess að ganga úr skugga um, livort þessi
vera, sem hjá mér stendui', sé annað en einhvers-
konar draumsýn! Mann getur dreynxt í vöku, eins
og allir vita, og þá birtast stundum fxxrðulegustu
sýnir.“--------„„Flökku-kindin litla,“ bætti lxann
við eftir andartak. „Hleypur frá mér og lætur ekk-
ert um sig vita í lieilan mánuð! — Ekki einu sinni
sxx myndin á, að þér liafið liugsað um mig eitt ein-
asta augnablik!“
Mér hafði alla stund verið ljóst, að eg. mundi
njóta íxiikillar ánægju af því einxx, að fá að sjá