Vísir - 31.08.1934, Síða 2
VISIR
ÍD) INIm mn 1 Olmm 11
1 SÍMI 1-2-3-4
1 | ank nr
Alt stefnir þetta því í sömu
átt, að auknu atvinnuleysi.
En þetta er aðeins litil mynd
af því, sem ver'ða mundi, ef
þjóðnýtingaróramir væru fram-
kvæmdir í fullri alvöru. Þá
mundi fyrst keyra um þverbak.
Þegar hin smáu opinberu fyrir-
tæki eru svo þunglamaleg og
seinvirk, að engu tali tekur, er
augljóst hvernig fara mundi, ef
alt athafnalífið væri lagt í
hlekki þjóðnýtingar. Það er
óþarfi að lýsa nánari þeirri
mvnd fyrir mönnum. Hún
hlýtur að standa svo skýr fvrir
hugskotssjónum þeirra.
Atvinnuleysio
og socialisminn.
Atvinnuleysið er mesta böl
vorra tíma. Það mergsýgur
þjóðfélögin og lamar líkamlega,
andlega og siðferðilega krafta
margra þeirra manna, sem við
það eiga að búa.
Þetta er öllum ljóst. Og allir
eru sannnála um það, að úr
þessu böli verði að bæta.
Socialistar hafa um öll lönd
reynt. að nota atvinnuleysið
sjálfum sér og stefnum sínum
til framdráttar. Þeir kenna
þjóðskipulaginu um þessi vand-
ræði sem önnur og staðhæfa að
þjóðnýting og ekkert annað geti
bætt úr þeim.
Þessar fullyrðingar eru svo
fjarri réltu lagi, að vart verður
íengra komist í vitleysunni.
Socialisminn er aðalorsök at-
vinnuleysisins. Og framkvæmd
þjóðnýtingarhöfuðóranna væri
beinn vegur til efnahagslegrar
glötunar. — Reynslan, sem
menn hafa fengið af þjóðnýt-
ingardlraunum, sýnir það, og
íhugun þessara mála sannar
það
Aðferðir socialista eru alslað-
ar svipaðar. — Þeir berjast
hvarvetna fyrir kaupliækkun,
en liirða lítið eða jafnvel ekkert
um það, að menn liafi sæmileg-
ar heildartekjur. — Þó að þeim
hljóti að vera það vitanlegt, eins
og öllum öðrum, að hækkun
dagkaups hlýtur i mörgum til-
fellum að hafa í för með sér
stórfelda fækkun vinnudaga,
Iáta þeir það engan veginn hefta
sig á kauphækkunarbrautinni.
— Ef þeir hefðu tekið upp þá
virðingarverðu stefnu, að berj-
ast fyrir því, að menn gætu
fengið trygga vinnu og sæmi-
legt árskaup henni samfara, þá
mundi betra ásland ríkja í lönd-
unum en nú er. — En það liafa
þeir ekki gert. Þeir hafa star-.
blínt á dagkaupið og ekk-
ert anuað séð. Á þann bátt eru
þeir valdir að atvinnuleysinu.
Hvar sem þeir ná áhrifum á
löggjöf landanna, beita þeir sér
fyrir háum sköttum og aukn-
um opinberum fyrirtækjum. En
það lier bvorttveggja að hinum
sama brunni: auknu atvinnu-
leysi. , ' Ajjf
Framleiðsla á hráefnum og\
vörum verður að siðustu að
greiða alla skatta eins og öll
önnur útgjöld þjóðarbúskapar-
ins. — Þegar skattarnir eru
orðnir tilfinnanlega háir, neyð-
ast atvinnurekendur til þess að
draga saman seglin. — Fyrst
verka of háu skattarnir á þann
hátt, að atvinnurekendur skort-
ir fé til þess að fjölga fram-
leiðslutækjunum og skapa
þannig skilyrði fyrir aukinni
framleiðslu og aukinni vinnu.
Það veldur atvinnuleysi, því að
fólkinu fjölgar viðast livar, en
það skapar þörf fyrir ný og auk-
in verkefni.
Þegar meira berðir að, verka
hinir of þungu skattar þannig,
að atvinnurekendur hætla að
geta Iialdið framleiðslutækjun-
um við. Þau ganga úr sér, án
þess, að ný komi í skarðið. Af
því leiðir minna öryggi, minni
framleiðsla og aukið atvinnu-
leysi.
Þriðjá stig skattkúgunar
verkar á þá leið, að atvinnurek-
endur neyðast lil þess að draga
úr starfsmannahaldi. En það.er
sama og gera menn atvinnu-
lausa, hópum saman.
Álirifin af.opinberum rekstri
eru mjög svipuð. Þegar bið op-
inbera einokar einhver þau svið
atliafnalífsins, sem einstakling-
ar hafa ráðið yfir, athafnalega
séð, þá fækkar skattgreiðend-
um. Það lxefir í för með sér
skatthækkun á þeim, sem greiða
skatta. Og það ber upp á sama
skerið, slcer atvinnuleysisins.
Socialistar halda því fram, að
opinberu fyrirtækin komi í stað
þeirra, sem kyrkt eru á þennan
liátt, og að þau geri meira en
að bæta það upp, sem tapast við.
niðurlagning einstaklingsfyrir-
tækja. En þáð eru aðeins socia-
listiskar firrur.
Opinber fyrirtæki greiða
sjaldnast skatta. Þau fáu, sem
gera það, eru undantekningar-
laust miklu minna skatllögð en
einstaklingsfyrirtæki. Og þó að
reksturinn hvcrfi úr höndum
einstaklinga, minkar ekki
teknaþörf hins opinbera. Hún
vex. Það opinbera þarf fé til að
koma fyrirtækjum sínum á
Iaggirnar og verður þar að
auki oftast að gefa með þeim.
En við það vex skattþunginn á
framleiðslu einstaklinganna. —
Um leið og socialisminn fækkar
atvinnurekendum, leggur hann
svo auknar byrðar á herðar
þeim, sem eftir eru, að þeir
hljóta að sligast undan þungan-
um. Hinn hægfara socialismi er
því seigdrepandi eiturlyfjan á
athafnalífið, og ekkert annað.
Þegar þessi opinberu fyrir-
læki starfa að framleiðslu, fer
flest i súginn, sem í súginn get-
ur farið. Þau geta ekki kept við
einstaklingsfyrirtækin ef skil-
yrðin eru liin sömu, og þess-
vegna verða þau ómagar. Þau
geta þvi ekki veitt jafmnikla
vinnu og einstaklingsfyrirtæki.
Þau eru þunglamaleg, laga sig
ekki eftir breyttum viðhorfum
fyr en seint eða um seinan og
geta því að sjúlfsögðu ekki tek-
ið við því fólki, sem þarfnast
vinnu vegna fólksfjölgunar.
Röskur
drengur.
Tíu ára drenghnokki vill-
ist, liggur úti, og kemst
hjálparlaust til bæja.
30. ágúst. — Ftl.
Tíu ára drengur, Hannes Hall-
dórsson úr Reykjavík, sem í sum-
ar hefir veriö vikadrengur á Fossá
í Kjós, var á íöstudaginn var send-
ur meti þrjá hesta til móts við
húsbóndann á Fossá, a'S svonefnd-
um vegamótum, en er hann kom
þangað ekki, og eigi heldur heini
um kvöldi'S, var fariö aS leita hans.
Flúsbóndinn leitaöi alla nóttina á-
samt kaupamanni sínum, og mönn-
um frá Valdastöðum, en arangurs-
laust, og voru þvi fleiri kvaddir
til leitarinnar um morguninn. Fóru
um 20—30 nianns af stað til þess
aö leita piltsins, og var haldið
austur í Þingvallasveit, því líkleg-
ast var talið að hann hef'öi komist
þangað.
Drengurinn kom fram aÖ
Svartagili um morgunin. HafÖi
hann legið í túninu í Stíflisdal um
nóttina, milli, þúfna, og tjóðra'S
hestana, en ekki gert vart við sig
á bænum, og haldi'S þa'ðan snemma
um morguninn. Hann hafði dag-
inn áður tekið skakkar götur of-
an af hálsinum, en hann var ó-
kunnugur að heita mátti á þessum
slóðum, og hafði a'ðeins einu sinni
áður farið leiðina sem honum var
ætlað að fara, en hugði að hann
myndi rata. Ekki var vitað til þess,
að drengnum hefði or'ðið rneint af
því, að liggja úti um nóttina.
AtTmnnmálin í
Þýskalandi.
Berlín 30. ágúst. — FB.
Dr. Syrup, forseti endur-ráðn-
ingarskrifstofu ríkisins, hefir gef-
ið út tilskipun, sem gengur í gildi
1. okt., og er þess efnís, að starfs-
fólk undir 25 ára aldri skuli vílcja
frá störfum fyrir eldri verka-
mönnum og starfsmönnum. Eink-
anlega verða þeir, sem kvæntir eru
og eiga fyrir mörgum að sjá, látn-
ir sitja fyrir atvinnu. (United
Press).
Nasistar og Gyðingar.
Berlín 30. ágúst. — FB.
Samkvæmt áréiðanlegum heim-
ildum hefir Hess verið látinn 'und-
irbúa tilskipun, sem bannar með-
limum nasistaflokksins að hafa
nokkuð saman við Gyðinga að
sælda. Mun þetta vera ein ráð-
stöfun Jieirra, sem gerðar verða
vegna aukinnar starfsemi Gyð-
inga erlendis í þá átt.'að fá menu
til þess að kaupa ekki þýskar
vörur. (United PresS).
ÚTSALA
í nokkra daga á kápum, kjólum
og fl. Einnig ódýrir íaubútar.
Signrðnr Gnðmnndsson,
Laugaveg 35. Sími -4278.
FramtUaratvinna.
Ungur maður sem vill læra nýjustu og fullkomnustu aðferð í
fatasaumi getur fengið atvinnu á saumastofu liér í bænurn.
— Umsóknir með afriti af meðmælum og kaupkröfu sendist
til afgr. þessa blaðs, merkt: „Framtíðaratvinna“.
V erðlækkun.
í nokkra daga verða gefinn 20% af öllum vörum versl-
unarinnár, nema leikföngum.
Notið tækifærið og' g'jörið góð kaup á postulíns og gler-
vörum, borðbúnaði o. fl.
¥eM. Jóns B. Helgasonai*
Laugaveg 12.
Berlín 31. ágúst. FB.
Frést hefir, að tilskipun Hess
u.m nasista og Gyðinga, sú sem um
var símað í gær, hafi verið prent-
uð og send til úthlutunar i öllum
félögum nasista. Tilskipunin mun
verða prentuð í öllum blöðum
flokksins. (United Press).
Þjððverjar gramir
Itölnm.
Berlín, 31. ágúst. — FB.
Mikil og vaxandi óánægja er
i Þýskalandi yfir árásum þeim
á Þýskaland, sem nú eru dag-
lega gerðar í ítölskum blöðum.
Ráðgert er aö gefa ítölslcu blöð-
unum 3—4 daga frest a'ð liætta
árásunum og verði þeim ekki
hætt er í ráði, að vísa öllum ít-
ölskum blaðamönnum úr
Þýskalandi. Ennfremur er mælt,
að stjórnin liafi skipað þýsku
blöðunum a'ð svara ítölum
fullum hálsi. (United Press).
Maxim Qoi?k:ie
Þýska stjórnin bannar að
selja þýðingar á ritum
Maxim Gorkis.
Berlín, 31. ágúst. FB.
Bannað hefir verið að selja
rií Maxim Gorkis í Prússlandi.
Bannið nær til allra þýðinga
sem gerðar liafa verið á þýsku
af ritum Gorkis. (United Press).
Uppþot í fangeisi.
Varsjá 31. ágúst.
Fangar í' Petrokow-fangelsi í
Mið-Póllandi gerðu tilraun til þess
að brjótast út úr fangelsinu í nótt.
Tilraunin hepnaðist ekki, en fanga-
vörðunum tókst ekki að koma á
ró í fangelsinu. Var þá herlið og
slökkvilið kvatt á vettvang og
tókst að lokum að koma föng-
unum í klefana á ný, en ólætin
hófust í mótmælaskyni gegn slæm-
um mat. Kyrð komst eigi á í
íangelsinu fyr en í dögun í morg-
un. Yfirvöldin kenna kommúnist-
um meðal fanganna um uppþotið.
(United Press).
Grierson
lenti í OtLawa, höfuðborg Can-
ada', í gærkvöldi, að því er út-
varpsfregn frá Kalundborg
liermir.
Veðrið í morgun.
ITiti í Reykjavík 14 st., ísafirði
n, Akureyri 12, Skálanesi 9, Vest-
mannaeyjum 11, Sandi 11, Kvíg-
indisdal 11, Hesteyri 8, Gjög'ri 8,
Blönduósi 12, Siglunesi 7, Gríms-
eý 9, Raufarhöfn 9, Skálum 9,
Fagradal 9, Papey 8, Hólum í
Hornafirði 12, Fagurhólsmýri 10,
Reykjanesi 13, Færeyjum 9. Mest-
ur hiti hér í gær 16, minstur 9
st. —• Úrkoma 2,0 mm. — Yfirlit:
Lægð fyrir suðaustan ísland, en
háþrýstisvæði yfir . norðaustur-
Grænlandi. — Horfur: Suðvestur-
land, Faxaflói: Norðaustan-átt,
sumstaðar allhvast. Víðast bjart-
viðri. Breiðafjörður: Stinnings-
kaldi á norðaustan, úrkomulaust
að mestu. Vestfirðir: Norðaustan-
átt, allhvast og rigning norðan til,
en lygnir í kvöld. Norðurland:
Austan og norðaustan kaldi, suin-
staðar dálítil rigning. Norðaustur-
land, Austfirðir: Austan kaldi,
þokusúld. Suðausturland: Stinn-
ingskaldi á austan, rigning austan
til.
50 ára
verður 3. september frú Ágústa
Jónsdóttir kona Þorbjörns Kle-
menssonar, húsasmíðameistara,
Lækjargötu 10, Hafnarfirði.
50 ára
er í dag Kristján Sveinsson
múrari, Laugavegi 128.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er á útleið. Goðafoss
er í Hamborg'. Brúarfoss kom til
Vestmannaeyja um hádegi í dag.
Væntanlegur hingað í nótt. Detti-
foss kom til ísafjarðar í dag á
norðurleið. Lagarfoss var í Stykk-
ishólmi í morgun. Væntanlegur
hingað í nótt eða snemma í fyrra-
málið. Selfoss var á Vopnafirði í
morgun.
B.v. Baldur
kom hingað í gær með Kára
Sölmundarson í eftirdragi. Var
Kári tekinn upp í Slippinn og sett
á hann ný skrúfa. Var því verki
lokið í morgun og leggur botn-
vörpungurinn af stað áleiðis til út-
landa í dag.
G.s. Botnía
kom til Leith kl. 11 í gæt’-
kvekli.