Vísir - 15.09.1934, Blaðsíða 3
V ISIR
Best að auglýsa í Vísi.
messa. Kl. 6, kveldguösþjónusta
meö prédikun.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík u stig', ísafiröi
io, Akureyri 12, Skálanesi 10,
Vestmannaeyjum 10, Sandi 9,
Kvígindisdal 9, Hesteyri 10, Gjögri
■9. Blönduósi 11, Siglunesi 10,
Grimsey 9, Raufarhöfn 9, Skálum
9, Fagradal 5, Hólum í Hornafiröi
10, Fagurhólsmýri 9, Reykjanesi
10, Færeyjum 11. Mestur hiti hér
i gær 12 stig, minstur 9. Úrkoma
10,6 mm. Sólskin 0,1 st. Yfirli't:
Læg'ö suður af Reykjanesi á hreyf-
ingu austur eöa noröaustur eftir.
Horfur; Suðvesturland, Faxaflói:
Allhvass og sumstaðar hvass suð-
austan og austan. Rigning öðm
liverju. Breiöafjöröur, Vestfirðir:
Vaxandi suðaustan kaldi. Sumstað-
ar rigning. Norðurland, norðaust-
urland: Vaxandi suðaustan kaldi.
ÚJrkomulaust. Austfirðir, suöaust-
uirlaud : Vaxandi suðáustan og síö-
:ar austanátt. Rigning öðru hverju.
IMiðbæjarskólinn.
Athygli skal vakin á augiýsingu
skólastjóra Miðbæjarskólans, sem
’.birt er í blaðinu í dag. Eru að-
standendur þeirra barna, sem ætl-
ast er til að verði í 8. bekk Mið-
bæjarskólans næsta vetur, beðnir
að koma til viðtals við skólástjór •
ann í næstu viku (17.—22. sept.)
Verður skólastjóri til viðtals i
kennarastofu skólans kl. 5—7 e. h.
(Inngangur um norðurdyr skóla-
hússins).
Arnold Földesy
celloleikari efnir til hljómleika
1 Gamla Bíó n. k. þriðjudagskveld.
Sjá augl.
Dönsku skipin.
G.s. ísland kom að vestan og
norðan í gær og fer héðan áleiðis
tií útlanda annað kveld. M.s.
Dronning Alexandrine fer frá
Kaupmannahöfn í fyrramálið á-
leiðis hingað til lands. G.s. Botnía
fór frá Leith i dag áleiðis til
Reykjavíkuú.
Hlutaveltu,
þá fyrstu á haustinu, heldur K.
R. á morgun og hefst hún kl. 4 e.
11. í húsi félagsins. Þarna verður
margt nytsamlegra muna og þarna
geta menn, ef hepnin er með, feng-
58 mikið af matvælum og ýmsum
nauösynjum til vetrarins, svo sem
kjöt, saltað og nýtt, sykur, nýjan
fisk, saltfisk, kartöflur, vefnaðar-
vörur o. 111. fl. Þá fær einhver far
til Stóra-Bretlands á 1. farrými á
ágætu skipi, annar 100 kr. í pen-
íngum, sá þriðji sláttuvél o. s. frv.
Hjómsveit Bernburgs skemtir. Ef
að vanda lætur verður aðsókn hin
besta og allir hlutaveltugestir fara
heim ánægðir. K.
Bruggunarmál.
Jens Þ. Haraldsson, Barónsstíg
20, hefir verið dæmdur fyrir ólög-
lega sölu heimabruggaðs áfengis
í 10 daga fangelsi og 1000 kr. sekt.
Á Landsnefnd Hallgrímskirkju
hefir orðið sú breyting að Knút-
ur Arngrímsson, sem nú dvelur er-
lendis, hefir vikið þar sæti, en í
lians stað er kominn í nefndina
Guðni. Gunnlaugsson kaupmaður,
til heimilis á Leifsgötu 16 í
Reykjavík. Má snúa sér jafnt til
lians sem annara nefndarmanna um
alt þaö, er snertír málefni Hall-
grímskirkju í Saurbæ.
Hjálprasðisherinn.
Samkomur á morgun: Helgun-
arsamkoma kl. 11 árd. Sunnudaga-
Iskóli kl. 2. Útisamkoma kl. 4.
Hermannavígsla kl. 8)4, 8 nýliðar
verða vígðir undir fána „Hersins.‘‘
Verið velkomin!
Innanfélagsmót Ármannns
bæði fyrir drengi og fullorðna
hefst kl. 2 á morgun á íþróttavell-
inum. Mætið vel og réttstundis.
4. flokkur Vals.
Æfing á Valsvellinum við Eski-
hlíð á morgun kl. io)4. Mætið rétt-
stundis.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 26. ágúst
til 1. sept. (i svigum tölur næstu
viku á undan) : Hálsbólga 7 (14).
Kvefsótt 13 (9). Kveflungnabólga
o (1). Gigtsótt 2 (o). Iðrakvet 2
(7). Taksótt o (1). Skarlatssótt 5
(4). Munnangur 2 (3). Sting'sött
4 (o). Heimakoma 1 (o). Manns-
lát 4 (4). Þar af einn utanbæjar.
Landlæknisskrifstofan. (FB.).
ísland í erlendum blöðum.
í ágústhefti mánáðarritsins
„Niedersachsen“, sem'gefið er út í
Hannover, er grein sem nefnist
„Vikingerfahrt nach Island“. —
„Freiheitskampf“, Dresden, 23. á-
gúst, birtir grein, sem nefnist „Is-
land und die nordisch-germanische.
Welt“. — í „Völkischer Beobacht-
er“ 23. s. m. birtist grein, sem
nefnist „In der Urheimat nord-
ischer Bauernkultur“. — í, „Ber-
liner Tageblatt" 26. ágúst: „Is-
lándische Pergament handschrift-
en“. í „Berliner Tageblatt“ 29. s.
m.: „Auf der Insel im Nordmeer".
í Berliner Börsen-Zeitung 31. s.
m.: „Die erste Besiedelung Is-
lands“. — (FB).
Ný bók.
Básúna, Ritgerðir og ljóö,
eftir Eb. Ebenezerson, með
myndum eftir Viggó R. Jes-
sen. 143 bls. — Rvik 1933.
Gott og göfugt málefni, klætt
lireytilegum búningi: í bókinni eru
fimm ágætar ritgerðir, með þess-
uin fyrirsögnum: „Trú þú á
Drottin Jesúm,“ — „Ótti og djörf-
ung,“ — „Er til sönnun fyrir
framhaidslífi eftir þetta líf?“ —
„Frá dauðanum til líísins (dæmi-
saga)“ — og „Dagurinn mikli.“
-— Um 80 trúarljóð. Tvö fjórrödd-
uð sönglög, 5 myndir, og loks eft-
irmáli og efnisyfirlit.
Breytileikinn í búningi efnisins
gerir bókina fýsilega og aðlaðandi.
En svo er hún líka spjaldanna
á milli fagur vitnisburður um hik-
lausan trúar-öruggleik og lijálp-
ræðisfögnuð höfundarins, og hlýt-
ur hún því að verða trúuðum
mönnum kærkomin. J afnframt er
hún líka „varðmanns-lúðurþytur“
(sbr. Esek. 33), þ. e. ákveðin að-
vörun höfundarins til samlanda
hans, gegn yfirvofandi hættu
vegna lausungar í trúmálum og sí-
vaxandi fráhvarfs frá Guði, sem
bendir til öngþveitis síðustu tíma.
Þá er einn þáttur bókariunar, bæði
í bundnu 0g óbundnu máli, um
endurkomu Krists, — eitt hið fagn-
aðarríkasta atriði kristinnar trúar,
sem hér á landi er alt of lítill
gaumur gefinn.
Eg kann lítt að dæma um skáld-
skap, en ljúflega finst mér þau láta
í eyrum, mörg ljóð höfundarins.
Set eg hér nokkur sýnishorn, val-
iu af handahófi:
„Varaðu þig á heiminum“ —
bls. 84:
Holdi skal ei velja völdin.
Valdasýkin heimtar gjaldið,
gjald, sem hrekur oft í eldinn,
eld, sem brennur dóms að kveldi.
Kvelds og rökkurs er nú öldin;
öldur mannhafs hreyta köldu;
Þriðjudaginn 18. sept.
kl. 7i/2
í Gamla Bíó
Arnold
Fðldesy
heimsfrægur celloleikari.
Eaiil Thoroddsen
aðstoðar.
Aðgöngumiðar á 3.00
(stúka), 2,50 og 2.00 kr.
hjá Katrínu Yiðar og Bóka-
verslun Eymundsen.
iHiiiiiimiiiBmmBiiiiiiiiiiiiiiiiiii
við íslenskan búning. — Keypt
langt afklipt hár.
Hárgreiðslustofan PERLA,
Bergstaðastræti 1. Simi.: 3895.
kuldi haturs ffer um foldu. —
Foldarbarn, ó, ris frá moldu!
Heilræði, bls. 27:
Alla sem að elska Krist
áttu’ að virða mest og fyrst;
þeirn, sem ekki þekkja hann
þorðu’ að boða sannleikann;
en þá, sem hreyknir hafna’ ’onum
heiðra litt með viðræðum.
Afvegaleiðandinn, bls. 103.
Fríður sýnurti, röskur ræðumaður;
réðst hann' til að kenna
Drottins orð. —
— En því miður, Niflheims
vondi maður
náði tökum gegnum hann á storð.
Fastheldnin við Orðið lenti’ í losi,
en lýgin, fegruð mælgi,
komst á rás.
I mannlífs varð hann spilum
spaðagosí;
í spariskrúða lék þó tígulás.
Myndirnar í bókinni eru prýði-
legar. 1. Á forsíðu: Skáti stendur
á fagurri sjávarströnd, þeytir varð-
lúður og horfir hugfanginn gegn
upprennnandi sól. 2. Lítil stúlka
krýþur við rúmið sitt og bið'st
fyrir. 3. Klettur í hafinu — „Bjarg-
iö aldanna" — ljómandi fögur lit-
mynd. 4. Iðrandi syndari krýpur
við kross Frelsarans (gömul
klassisk mynd. — C. Block?). 5-
„Glæsta mynd af fögru fljóði“ —
einkennilega fallegt kvenmanns-
andlit. En
Myndin þessi misti ljóma
mórauit ryð á vangann féll,
líkt og eftir seldan sóma
syndin veitir dauðans spell.
(
Kaupið bókina og lesið hana.
Hún er áreiðanlega til orðin í fullu
samræmi við ritningarorðið sem
segir: „Eg trúði, þess vegna tal-
aði eg.“ (II. Kor. 4: 13). — „Því
með hjartanu er trúað til réttlætis,
en með niunninum játað til hjálp-
ræðis.“ (Róm. 10:10).
Á. Jóh.
Osló, 10. sept. — FB.
. Lindsay-leiðangurinn
kominn fram.
Lindsay-leiðangurinn breski
kom til Angmagsalik laugardag
s. 1.
Til sölu
fyrir hálfvirði, vegna burtflutnings, svefnherbergissett, borð-
stofusett, dagstofusett, stoppaðir stólar, 2 körfustólar, báðir fyr-
ir 30 kr., klæðaskápur, kommóður, niaghogni-spilaborð, rúm-
stæði, eins og tveggja manna, barnarúm, barnavagn, barna-
kerra, barnavagga, barnastía, rafmagnsofnar, og ótal margt
fleira með góðu verði. — Fata- og lausaf jármunasalan, Lauga-
veg 64 (Vöggur). — Elsta, einasta, vinsælasta fornsala borgar-
innar. — Virðingarfylst Sig. J. Jörunds.
Hveiti
í heilum sekkjum mjög ódýrt.
Smjörhúsið IRMA.
MiObæj ar sk ólinn.
Aðstandendur barna, sem ætlast er til að verði í 8. bekk
Miðbæjarskólans næsta vetur, eru beðnir að koma til viðtals
við mig i kennarastofu skólans einhvern daginn í næstu viku
(17.—22. sept.) kl. 5—7 síðd. — (Inngangur um norðurdyr
liússins).
Skólastj órinn.
Fataefni - Frakkaefni
Nýtt úrval komið
ÁHNI & BJARNI
niiinmimimiiiiimiiiiiiminmiiiniiimminiiimimniimiiiiiniijig
| Hessian. |
Ávalt fyrirliggjandi birgðir af veggfóðrunarstriga 52
(olíulausum) við lægsta heildsöluverði.
Ennfremur þéttur strigi til húsgagnafóðrunar. —
| MÁLARINN. |
HHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍÍÍ
Linoleum
nýkomið, í mjög fjölbreyttu úrvali.
J. Þorláksson & Norðmaai
Bankastræti 11. — Sími 1280.
Terslun Ben. S. Þðrarínssonar bíSr hezt kanp.
íslensk
frfmerki
og tollmerkl
Kaupir hæsta verði
Gísli Sigurbj örnsson,
Lækjartorgi 1.
Eggert Glaessen
hæstaréttarmálaflutningsmaður
Skrifstofa: Oddfellowhúsinu,
Yonarstræti 10, austurdyr.
Simi: 1171.
Viðtalstími: 10—12 árd.
Skiftafnndnr
í þrotabúi Gústafs A.
Sveinssonar liæstaréttar-
málafl.m. verður haldinn í
Bæjarþingsstofunni, mánu-
daginn 17. þ. m. kl. 10 árd.,
til þess að taka ákvörðun
um meðferð eigna búsins.
Lögmaðurinn í Reykjavík
14. sept. 1934.
Bjöpn Þórðarson.