Vísir - 17.10.1934, Qupperneq 3
VISIR
Barnaheimiliö
Vorblómið
brann í morgun. Eldurinn breiddist óðfluga
út og var börnunum nauðulega bjargað. —
Forstöðukonan komst ekki niður af efri
hæð hússins, vegna eldsins og var bjargað
út um glugga.
Kl. um tíu i morgun kom
xipp eldur í Barnaheimilinu
Yorblómið við Kaplaskjólsveg.
Var slökkviliðið þegar kvatt á
vettvang og fór það vestur eft-
ir með mikið af tækjum og
slöngum, þvi að vatn næst eigi
þar í nánd og þurfti að skeyta
saman slöngur, til þess að ná
vatni úr brunahönum á Iíapla-
skjólsvegi.
Barnaheimilið (gamla elli-
heimilið Grund) stendur þarna
á allstóru túni, góðan kipp frá
veginum.
Þegar tíðindamaður hlaðsins
kom á vettvang kl. laust fyrir
hálfellefu, var fóllc að streyma
þangað lir öllum áttum. Öll
slökkvitæki voru í gangi og
léku eldtungur um alla hakliæð
hússins, og að því er virtist
mikinn hluta þess niðri, eink-
um í austurendanum.
Starfsfólkið í húsinu legg-
ur sig í mikla hættu til að
bjarga börnunum.
Með hverjum hætti eldurinn
kom upp vissu menn ekki í
inorgun, enda málið órannsak-
að með öllu. En víst er, að eld-
urinn breiddist mjög óðfluga út
•og liefði vafalaust orðið hér
manntjón af, ef allir hefði eigi
verið komnir á fætur og nokk-
ur barnanna, sem þarna eru
til húsa, verið komin af stað í
skóla. Gas er ekki í liúsinu. —
Þegar eldsins varð vart, brá
starfsfólkið og forstöðukonan
við til þess að koma börnunum,
sem sum eru mjög ung, út úr
húsinu, og hepnaðist það fram-
ar öllum vonum, eins og ástatt
var. Eitt barnanna mun hafa
meiðst, er það reyndi að komast
út af eigin rammleik, en um það
vantar nákvæmar upplýsingar
eins og stendur.
Eigi mátti tæpara standa, að
öllum börnunum yrði bjargað,
og varð að koma sumum
þeirra út um glugga, og engu
varð komið út af fatnaði eða
öðru, svo teljandi sé, nema
rúmfatnaði, sem vafið var nl-
an um börnin.
Á hælinu munu liafa verið
yfir 20 börn, flest mjög ung,
sum innan tveggja ára aldurs.
(Þ. 21. ágúst voru þar 21 barn,
þar af 8 á l. ári, 5 1—4 ára,
4 5—6 ára og 4 eldri).
Forstöðukonan í hættu
stödd.
Til marks um það hve eldur-
ínn breiddist ört út um húsið er
það, að forstöðukonan, Þuriður
Sigurðardóltir, fór upp á efri
liæð liússins, til þess að ná í eitt-
livað, er sýnt var, að börnin
væri úr hættu, en er liún kom
út úr herbergi þar uppi, og þar
var hún aðeins örstutta stund,
logaði stíginn allur, og hörf-
aði hún inn í herbergi í
suðurenda hússins og braut
gluggann, þar sat hún, er
slökkviliðið kom. Reisti það upp
stiga og kom henni niður.
Börnunum komið fyrir til
bráðabirgða á heimili Árna
Pétui-ssonar læknis og á
Elliheimilinu.
Næsta hús fyrir sunnan Vor-
blómið er liús Árna Pétursson-
ar læknis. Þangað voru hörnin
flutt jafnóðum og þeim var
bjargað og var þeim og starfs-
fólkinu tekið opnum örmum,
og alt gert, sem unt var, til
þess að hlynna að þeim. Fáein
barnanna voru flutt á Elli-
heimilið.
Viðtal við forstöðukonuna.
Tíðindamaður blaðsins átti
örslutt viðtal við Þuríði Sig-
urðardóttur, hina kunnu for-
stöðukonu hælisins, og bar liún
sig furðanlega, þrátt fyrir þetta
mikla mótlæti og andstreymi,
enda er hún orðlögð þrek- og
dugnaðarkona. Var auðheyrt,
að liún.taldi mestu máli skifta,
að börnunum liafði verið
bjargað, án þess að slys yrði
af. Kvað hún eldinn liafa
breiðst afar ört úr. — Miðstöð
var í kjallara hússins, og er
tilgáta sumra, að eldurinn liafi
kviknað út frá henni, að af-
staðinni ketilsprengingu, cn í
forstofu að norðanverðu mun
fólkið fyrst hafa orðið elds-
ins vart. —
Kl. um IIV2 var búið að
slökkva eldinn að mestu leyti
og 'fyrsti slökkviliðsbíllinn
lagður af slað frá eldstöðvun-
um. —
Ráðstafanir vegna barn-
anna.
Bráðabirgðaráðstafanir verða
teknar þegar i dag um það,
hvar koma skuli fyrir börnum
heimilisins, og verður að svo
stöddu eigi sagt, hva'r hentugt
húsnæði fæst. Verður það at-
hugað af fátækrafulltrúum
bæjarins og yfirvöldum þegar
í dag, en þangað til frá þvi er
gengið, verða börnin kyr á
heimili Árna Péturssonar og
Elliheimilinu.
Húsið var eign bæjarins.
Elliheimilið var þarna til
húsa frá þvi árið 1922 og þar til
það tók til starfa haustið 1930
í hinu nýja húsi sínu. íibýrjun
árs 1931 keypti bærinn Grund,
og leigði Þuríður þar liúsnæði
fyrir barnalieimili sitt, en fær
til þess nokkurn styrk frá bæn-
um. Húsið var úr steini, einlyft,
með kjallara og rishæð, og
vátrygt fyrir 36.000 kr. Keypti
bærinn eignina með Grundar-
bletti fyrir kr. 45.000.
Síðustu fregnir:
Laust eftir liádegi átti Visir
tal við varaslökkviliðsstjórann.
Kvað hann eldsins liafa orðið
vart í forstofuganginum, í
norðausturenda hússins, en
eigi yrði sagt að svo stöddu,
livernig eldurinn hefði komið
upp. Steingólf var yfir kjall-
arahæðinni, 'en timbur í gólfi
á rishæð. — Miðstöðin var í
kjallara hússins. — Ráðstafan-
ir liafa verið gerðar til þess að
koma börnunum fvrir í franska
spítalanum fvrst um sinn. —
Barnaheimilið var stofnað 1.
júní 1928 og hafði alls tekið á
móti 207 börnum þ. 1. ágúst
siðastl.
Langor rekstnr.
Síðumenn reka fé til
Reykjavíkur.
í vikunni sem leið komu
hingað Skaftfellingar með fé til
skurðar, allt austan af Síðu og
úr Landbroli. Höfðu þeir relcið
féð alla leið, hálft sjötta liundr-
að, og komu þvi heilu og
höldnu. Voru þeir fimm saman
félagar. Þrettán daga voru þeir
á leiðinni.
Þeir fóru þjóðveg um sveitir
alla leið. Eru Fjallabaks-ferðir
niður lagðar siðan vegir hötn-
uðu í sveitum og flestar ár hrú-
aðar.
Héðan fóru þeir Skaftfell-
ingar heimleiðis á mánudaginn
á hifreiðum. Höfðu þeir skilið
eftir hesta sína á leiðinni, sum-
ir í Vík, sumir í Holtum.
Skaftfellingar eiga nú sjálfir
10 eða 12 bifreiðar. Má nú vel
komast austur í Landbrot á ein-
um degi þegar ár eru litlar. -
Þykja það, sem von er, mikil
viðbrigði frá því, sem áður var.
lieldur fund í Oddfellowliúsinu
á morgun, fimludaginn 18. þ.
m., ld. 81/0.
Ferðasaga frá Sviþjóð, og mik-
ilsvarðandi félagsmál í dagskrá.
Bókaútlán.
Félagsmenn eru ámintir um að
skila þeim bókum er þeir liafa
frá síðasta vetri.
Stjórnin.
XSOíÍÍÍÍS»;SOOÍÍÍ5eOÍÍO!Í4SÍÍO!Í<SOO<ÍÍ
I e.s. ,Jarlinn‘
er til sfila
nð þegar.
H.f. Kol & Salt.
6
S
í;
«
ö
«
«
«
a
8
;;
«
«
ö
;;
»
«
«
Bæjarfréttir
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 9 st., Bolungar-
vík 9, Akureyri 14, Skálanesi 13,
Vestmannaeyjum 10, Sandi 8,
Kvígindisdal 7, Hesteyri 8, Gjögri
8, Blönduósi 8, Siglunesi 10,
Gfímsy 8, Skálum 7, Fagradal 9,
Papey 12, Hólum í Hornafirði 10,
Fagurhólsmýri 10, Reykjancsvita
10 st. — Mestur hiti hér í gær 10
st., minstur 4 st. Úrkoma 4,1 mm.
— Djúp lægð fyrir norðan ísland.
Hreyfist austur eftir og fer mink-
andi. — Horfur: SuSvesturland,
Faxaflói, Breiðafjöröur, Vestfirö-
ir: Hvass vestan og rigning í dag,
en sennilega útnoröan og eljagang-
ur í nótt. Noröurland, noröaustur-
land: Vestan hvassviöri í dag, en
sennilega útnoröan og hríöarveöur
í nótt. Austfirðir, suöausturland:
Hvass vestan og útnoröan. Úr-
komulaust.
Bæ jar s't j ó marf undur
verður haldinn á morgun kl. 5.
Fjöldi mála á dagskrá, þ. á. m.
„frumvarp um breyt.ingu á reglu-
gerð unl eftirlaunasjóð Reykjavík-
urborgar“ (2. umr.), „tillaga frá
mjólkursölunefnd bæjarstjórnar",
„vetrarhjálp bæjarstjórnarinnar",
„kosning þiggja kvenna í nefnd til
þess aö athuga möguleika fyrir og
gera tillögur um atvinnubótavinnu
fyrir konur“ o. m. fl.
Arndís Ármann
hefir verið ráðin til þess, að
hafa á hendi íorstöðu matgjafa í
Austurbæjarskólanum í vetur.
Skip Eimskipafélagsins.
Goðafoss er væntanlegur
hingað í kveld að vestan og
norðan. — Gullfoss fer vestur
og norður í kveld. — Dettifoss
er í Hull. — Brúarfoss er á leið
frá Reyðarfirði til London.
Lagarfoss fer væntanlega frá
Djúpavogi i kveld á leið til út-
landa. — Selfoss fór frá Leitli í
gærlcveldi áleiðis til Antwerpen.
Nýjar bækur:
Anna
í GrænnMíd.
II. bindi.
Davíð kemur til sögunnar.
Þetta bindi af hinni heimsfrægu
sögu um Önnu í Grænuhlíð, er
ekki síður skemtilegt en hið
fjmra. Anna er liin sama, káta
og fjöruga stúlka, og nú er
Davið kominn til sögunnar og
gerir liana ógleymanlega. Hon-
um þurfa allir Önnuvinir að
kynnast.
Ólafur Jóh. Sigurðsson:
vmasmmaaBS&amuaKmm
Vid Alftavatn.
Sögur lianda börnum með
fjölda mynda.
Þorsteinn Jósefsson:
Tinclai*.
Smásögur. Þetta er fvrsta bók
höfundarins, en áður liefir hann
birt sögur og ritgerðir í inn-
lendum og erlendum timaritum.
Bækurnar fást hjá bóksölum.
vr*»rtrt.rvr vr«.r wrvrvr vrvr«>rvrvrvr vrvrvrvrvr vrvrvrvr
Mjólkurmálið.
Tillaga frá mjólkurnefnd bæjar-
stjórnarinnar: Bæjarstjórn ákveð-
ur aö láta fram fara almenna
berklarannsókn og heilbrigöis-
rannsókn á öllum kúm innan lög-
sagnarumdæmisins fyrir næstu
áramót, og í sambandi við hana
skoðun á hreinlæti í fjósum og
þeim herbergjum, þar sem
geymsla og afhending' mjólkurinn-
ar fer fram.
Ellistyrktarsjóður.
Samþykt hefir verið aö úthluta
úr Ellistyrktarsjóði 56285 kr. til
890 umsækjenda.
Jeppi á Fjalli.
I tilefni 250 ára afmælis leik-
ritaskáldsins Ludvigs Holbergs,
sem er 4. des. næstkomandi, hefur
Leikfélag Reykjavíkur starfsemi
sína á leikárinu 1934—35 meö
sýningu á einhverjum vinsælasta
og skemtilegasta gamanleik
skáldsins, „Jeppa á Fjálli“. Leik-
félagið hefir áður sýnt þenna leik
síöast 1906—07, og lék þá Árni
Eiríksson kaupm. aðalhlutverkiö.
Nú leikur þaö Þorsteinn Ö. Step
hensen, en önnur hlutverk leika:
Gunnþórunn Halldórsdóttir, Nillu,
Brynjólfur Jóhannesson, Jakob
skómakara, Indriði Waage, Nilus
barón, Alfred Andrésson, Eirík,
Gunnar Bjarnason, Magnús, og
þjóna leika þeir Valur Gíslason,
Gestur Pálsson, Lárus Ingólfsson
og Sigurður Jónsson. Leikstjóri er
Gunnar Hansen, hinn nýi leikstjóri
félagsins og er leikurinn fyrsta
viöfangsefni hans hér. Lárus Ing-
ólfsson og Bjarni Björnsson mál-
uðu leiktjöldin, en búningarnir,
sem Konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn á, koniu hingaö frá
Helsingfors í Finnlandi eftir sýn-
ingar leiksins í „Helsingfors
svenska teater".
Á undan leiknum og inn í hann
á víð og dreif er fléttað gömlum
dönsum og dansa þau Helena
Jónsson og Egild Carlson. Hljóm-
sveit aöstoöar undir stjórn Karls
Runólfssonar.
Þess skal getið, að í tilefni af
Holbergs-afmælinu sýna leikhús
víða um heim leikrit Holbergs á
þessu hausti, m. a. sýnir ríkisleik-
húsiö í Moskwa „Jeppa á Fjalli'
og eins veröur hann sýndur í leik-
húsum í Noregi, leikhúsin í Þýska-
landi sýna aftur á móti velílest
„Pólitíska leirkerasmiðinn". 4. des.
mun Leikfélagið efna til sérstaks
Holbergs-kvelds með sýningu á
„Jeppa“ o. fl. Lv.
Barnahælisbruninn.
Barnið, sem meiddisl og frá
er sagt á öðrum stað í blaðinu,
er 9 ára telpa. Meiddist hún á
liöfði, er hún kastaði sér út um
glugga. — Einnig meiddist
norsk starfsstúlka í hælinu.
Líður þeim báðum eftir vonum.
Telpan var flutt í sjúkrahús.
Fiskiþingið.
Á fundi þess á þriðjudaginn
voru til umræðu tillögur allsherj-
arnefndar er hún haföi gert út af
kvörtunum um undirvigt á fiski
héöan. Tillagan er í 5 liðum og er
þar meðal annars skorað á ríkis-
stjórnina að framfylgja út í æsar
lögunum um mælitæki og vogar-
áhöld og láta menn sæta ábyrgð
fyrir hverskonar vanrækslu og
brot í þeim efnum. Ennfremur er
yfirmatsmönnum heimilað aö taka
2—4% yfirvigt á hvern pakka af
léttverkuðum fiski og fleiri ákvæöi
eru þar til tryggingar því að
kvartanir út af vigt komi ekki.
Þessar tillögur nefndarmanna voru
samþyktar í einu hljóði. — Út af
umkvörtunum sem komið hafa um
fiskimatiö hefir allsherjarnefnd
komið frarn með tillögu um aö
skipaöur veröi fiskimatsstjóri, sem
hafi einn umsjón með öllu fiski-
mati á landinu. Veröa tillögur
nefndarmanna í fiskimatinu rædd-
ar i dag (miðvikudag) og gengið
til atkvæða um þær.
Glímufél Ármann.
Æfingar í kveld eru þannig:
II. fl. karla kl. 8—9 í Nýja barna-
skólanum. Glíma, fullorðnir, kl.
8—9 í Mentaskólanum og glíma,
drengir, 9—xo á sama stað. Byrjiö
strax að æfa!
Útvarpið í kveld.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veður-
fregnir. 19,25 Þingfréttir. 2O,o0t
Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Er-
iiida: Hvar var Ingólfur hinn
þriðja vetur? (Ólafur Friðriks-
son). 21,00 Tónleikar: a) Útvarps-
tríóiö; b) Grammófónn: Schu-
mann: Symphonia í D-moll.