Vísir - 16.11.1934, Blaðsíða 3
VlSIR
NýiF vélbátai?.
Seyöisfiröi. 15. nóv. FÚ.
í dag- komu hingaö til Seyöis-
fjaröar fjórir nýir vélbátar, sern
Seyöisfjaröarkauþstaöur hefir
keypt aí June Munktell í Jönköp-
ing í Sviþjóö. — Bátarnir eru all-
ir eins, 17,6 smálestir aö stærö,
smiöaöir i Nyköbing á Jótlandi.
Sigldu þeir þaöan beina leiö um
Shetlandsevjar og Færeyjar á 158
stundum, auk 10 stunda dvalar í
Færeyjum. Leiöi var gott..
Bátarnir veröa leigöir Sam-
vinnufélagi sjómanna hér á Seyö-
isfiröi.
Veðrið í morgun.
Hiti i Reykjavík 4 stig, Bolung-
arvík 5, Akureyri 5, Skálanesi 7,
Vestmannaeyjum 6, Sandi 5, Kvíg-
indisdal 4. Hesteyri 6, Gjögri 4,
Bliinduósi 5, Siglunesi 6. Raufar-
böfn 3. Skálum 6, Fagradal 8.
Papey 6. Hólum i Hornafirði 6,
Fagurhólsmýri 4. Reykjanesi 6,
Færeyjum 6. — Mestur hiti bér i
gær 7 stig. minstur 4 stig. Urkoma
2,7 mm. Yfirlit: Alldjúp lægö
noröur af Vestfjöröum á lireyf-
ingu austur eftir. Horfur: Suö-
\esturland, Faxaflói, Breiöafjörð-
ur: Vestan kaldi. Skúraveöur og
éljagangur. Vestfirðir. Norður1
land: Allhvass suðvestan og vest-
an. Skúrir eöa éljagangur. Norö-
austurland, Austfiröir, suöaustur-
land : X'estan kaldi, milt og víðast
úrkomulaust.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss cr væntanlegur frá út-
löndum kl. 7 í kveld. Goöafoss
var á Siglufirði i ntorgun. Detti-
íoss kom til Hull i dag. Selfoss
kom til Antwerpen i gær. Fer þaö-
an í kveld áleiöis til Leith. Lagar-
foss var á Hiisavík i morgun. Brú-
arfoss er á útleiö.
Neðanmálssagan.
Hinni ágætu og viasælu neð-
anmálssögu, „Munaðarleysingj-
anum“, sem birst hefir í Visi
að undanförnu, er nú lokið.
Næst verður birt prýðileg smá-
saga, „Dóttir eðjukóngsins“,
eftir hið lieimsfræga skáld H.
C. Andersen. — Stgr. skáld
Thorsteinsson beí'ir snúið sög-
unni á íslensku og' eru nöfn
höfundar og þýðanda næg
trygging fyrir þvi, að sagan sé
merkileg og færð í góðan ís-
lenskan búning. — H. C. Ander-
sen er heimsfrægt skáld og
langfrægastur allra danskra
rithöfunda. Sagan’er stutt og
bcr öll einkenni höfundar sins
— hins yndislega æfintýra-
skálds. — Næsta saga þar á eft-
ir verður all-iöng' og hið prýði-
legasta verk. Fjallar liún mjög
um ástir og mun verða vinsæi,
ekki siður en ^Munaðarleysing-
inn“.
E.s. Nova
kom hingað i dag vestan og
norðan um land frá útlöndum.
Myndum stolið.
í gær setti Loftur ljósmyndari
nvjar myndir í sýningarkassá sinn
í Bióganginum, voru þetta hinár
nýju 15-foto myndir og ein mynd
stækkuö. Voru allar myndirnar at
ungri stúlku hér í bænum. 1 nótt
hefir einhver látiö sér sæma aö
opna kassann og stela öllum mvnd-
tinum. t— Loftur hefir kærí yfir
þessu til lögreglunnar.
Aflasölur.
Belgaum seldi ísfiskafla í
iretlandi i gær fyrir 1213 stpd.,
Otur íyrir 545 og Skallagrímur
fyrir 670 stpd. »
Reglugerð
hefir atviimumáiaráðlierra
sett um tilbúniug og verslun
með smjörlíki og skipað Jón E.
Vestdal eftirlitsmann með
smjörlíkisgerðum.
Jón Þorláksson
borgarstjóri var meðal far-
]>ega til útiánda á Lyru í gær.
Fer liann utan vegna Sogsvirkj-
unarinnar, en Steingrímur
Jónsson, rafmagnsstjóri, fór ut-
an sömu erinda i liaust. Munu
góðar liorfur, að hægt verði að
ganga frá þessu stórmáli til
fullnustu innan skamms.
E.s. Súðin
var á leið til Stykkishólms í
morgun.
Ný bók.
Ung stúlka hér í bænum,
Þóruim Magnúsdóttir, gaf úf
fyrir skömmu safn af smásög-
um eftir sig, er hún nefndi
„Dætur Revkjavikur“. — Sög-
ur þessar voru að vísu nokkuð
viðvaningslegar, snmar að
minsta kosti, en báru því þó
vitni, að höf. mundi hafa hæfi-
leika til þess áð skrifa stuttar
sögur. Ýmsir kaflar í sögunum
voru hið besta sagðir og fjör-
lega ritaðir. Ungfrú Þ. M. lél
þess einhversstaðar getið, að
liún mundi bráðlega gefa út
framhald af „Dætrum Reykja-
víkur“, ef fyrstu tilraun hennar
í skáldsagnagérðinni yrði vel
tekið. Og nú er ný bók komin á
markaðinn (Dætur Reykjavík-
ur II. Vorið hlær. Fvrri hluti).
Vísir hefir ekki kvnt sér
þessa nýju bók að svo komnu,
en nnm geta liennar við tæki-
færi.
Gengið í dag:
Sterlingspund ......... kr. 22.15
Dollar................ — 4.45
too ríkismörk ........ — 177.99
— franskir frankar . — 29.37
— belgur ........... —103.53
— svissn. írankar . . — 144.37
— lírur ............ — 38.55
— finsk mörk ..... — 9.93
— pesetar ........... — 61.37
— gyllini ........... — 30046
— tékkósl. krónur .. — 18.93
— sænskar krónur .. — 114.36
— norskar krónur . . — 111.44
— danskar krónur . — ico.oo
Gullverð
ísl. krónu er nú 49.50, miðað
við frakkneskan franka.
Næturlæknir
er í nótt Valtýr Albertsson,
Túngötu 3. Sími 3251. — Næt-
urvörður í Laugavegs apóteki
og Ingólfs apóteki.
Bethania.
Samkoma í kvöld kl. 8 ’/G. —
Jóbannes Sigurðsson talar. Allir
velkomnir.
Útvarpið í kvöld:
18.45 Erindi Búnaðarfélags-
ins: Ormaveiki í sauðfé (Niels
Dungal próf.). 19.10 Veður-
fregnir. 20,00 Klukkusláttur. —
Fréttir. 20.30 Útvarpað frá Al-
þingi.
Norðmenn reisa nýjar korn-
skemmur.
Oslo 14. nóv. — FB.
Nýja kornskemmu (silo) á aö
gera á Odderö viö Kristianssand.
Aætlaöur kostnaöur 500,000 kr.
Leiðangnr tii
Himaiayafjalla.
Paris í okt. FB.
Hér er nú veriö aö undirbúa
lciöangur til Himalayaf jalla og'
ætla þeir, sem þátt taka i leiðangr-
inum, aö gera tilraun til þess aö
klífa Kinchijinga-tind. Leiöangurs-
menn njóta sttrönings frakkneska
íjallgöngumannafélagsins. — 1
leiöangrinum taka þátt latnuir vís-
indamenn. jarðfræðingar, eðlis-
fræöingar og veöurfræöingar, út-
búnir fjölda tækja i rannsóknar-
skyni. m. a. til jarðgeislarann-
sókna, en auk þess hafa þeir kvik-
myndatökutæki meöferðis. Ráðgert
er, aö leiöangurinn fári af staö
héðan í byrjun marsmánaðar næst-
komandi, áleiöis til Indlands. —
Kinchinjingatindur er annar hæsti
tindur Himalayaf jalla og 28.156 fet
ensk. —- Leiöangursmenn njóta
fjárhagslegrar aöstoðar og marg-
báttaðs stuðnings’ an-nars ýmissa
frakkneskra vísindastofnana og fé-
laga. (United Press).
Utan af laridi
Sjómannastoían á Akureyri.
Akureyri, 15. nóv. FLI.
Fyrstu þrjá mánuöina, sem
Kristilega sjómannastofan Nútíö-
in héi" á Akureyri hefir starfaö,
hafa komið á skrifstofuna 4333
gestir og 392 sendibréf veriö skrif-
uð. — Þegar Earl Kitchener, enski
togarinn, sem varö fyrir áföllum
i veturnáttabriðinni, kom hingað
til Akureyrar. bauð formaöur fé-
lagsins skipshöfninni í tvö kaffi-
gildi, bæði rétt eftir aö hann kom
og áöúr en hann fór.
Hjúkrunarnámskeið Rauða-kross
íslands.
• 15. nóv. FÚ.
Uni' þessar mundir stendur yfir
á Stórólfshvoli lijúkrunarnám-
skeið Rauöa-krossins, haldiö aö til-
hlutun Kvenfélagsins Einingar. —
Kennari er Siguröur Bachmann. —
Kend er hjálp í viðlögum og nieg-
inatriði hjúkrunar- og heilsufræöi.
Neméndur eru 10.
Hallgrímsminning.
Hallgrímsminning var nvlega
haldin í sanikomuhúsinu Dags-
hrún undir Eyjafjöllum. Erindi um
Hallgrím Pétursson flutti síra Jón
Guöjónsson í Holti og Olafur Ei-
riksson kennari. Hallgrimssálmar
voru sungnir af æföum söngflokki.
Ú tva ppsfpétti s*.
——O—
Spánverjar gera breska
„rannsóknarnefnd“ landræka.
Berlín, 16. nóv. — FÚ.
Mikið unital vekur það nú, að
tveir enskir jafnaðarmenn,
ananr þeirra Listowel lávarður,
liafa farið á fund Gil Robles í
Madrid til þess að revna að
k'oma á friði milli stjórnarinn-
ar og verkamanna. Robles lét
vísa þeim á dvr iir þinghöllinni,
með þeim orðum, að hér væri
engin flökkumannanýlenda.
London, 15. nóv. — FÚ.
Óháð rannsóknarnefnd, uildir
forustu Listowel lávarðar, hefir
fengið kuldalegar viðtökur á
Spáni. Var tilgangurinn sá, að
rannsaka ástandið fyrir bylting-
una, og leituðu nefndarmenn í
því skyni fyrst til stjórnarinnar
og þingsins, en þeim var neitað
um nokkrar upplýsingar.
os b on
Nýkomið:
Hnoðaður Mör,
Tólg,
Rúllupylsur,
Kæfa.
Pá.11 Hallbjöpns.
Laugavég 55. Simi 3448.
15ÁFoto
er fíilleg. mynda-
stærð og alveg
hæfilega márgar
(15 stellingar).
15-Foto
vinnur stórsigur í
smámynda san>-
kepninni — en
]>ær eru um fjór-
um sinnum stærri
en hinar sináu 48,
sem eg tók áður.
Fregnir i blöðunm, um rann-
sóknarför þessa, vöktu mikla
gremju meðal almennings, og
eitt blaðið í Madrid sagði til
dæmis: „Mvndu Brelar hafa
leyft spánskri rannsóknarnefnd
að kynna sér ástandið i Bret-
landi. Það hefðu þeir án efa
ekki gert“.
Frá Madrid fóru siðan List-
owel lávarður og félagar lians
lil Oviedo og á fund lögreglu-
stjórans þar. Hann sagði þeim,
að þeim yrðu alls engar upplýs-
ngar gefnar? en að þeim væri
velkomið að ganga um borgina
sem aðrir ferðamenn og sjá sig
um. En er þeir komu út á göt-
una, hafði mannfjöldi safnast
saman úti fyrir lögreglustöð-
inni, og.æpti að þeim og hvæsli,
en lögregluþjónar komu og
tóku þá fasta og fylgdu þeiiri
síðan til landamæranna og vís-
uðu þeim úr landi.
15'Foto
N o r s k a r
loftskeytafregnir.
Quisling liefir í hótunum.
Oslo 14. nóv. — FB.
Nasjonal samling" hélt fund í
i'gen 1' gær og var niikill liiti
1 fundarnrönnum. Samkvæmt
Bergens Tidende komst Quisling
svo að oröi, aö Nasjoiial samling
myndi, ef nauðsyn kreföi, grípa til
vopna, ]>eg'ar Verkalýösflokkurinn
hefði íengið meiri hluta. og færi
aö framkvæma áætlanir sinar.
Surni'r áheyrenda mótmæltu ]>ess-
um oröum kröftuglega.
Kosningasvikin í Vardö.
Oslo 14. nóv. — FB.
Frá Vardö er símáö, aö réttar-
rannsókn sé nú lokiö út af kosn-
ingasvikunum þar. Maöur aö nafni
Grönhaug, sem ákæröur var, og sat
í gæsluvarðhaldi, hefir veriö látinn
laus.
„Oxfordhreyfingin“ fær hyr
í Noregi.
Oslo 15. nóv. — FB.
70 af íeiðtogum Oxfordhreyf-
ingar’innar eru nú i Noregi ög eru
fundir haldnir daglega í Calmeyer-
götunni. Hambro forseti skýröi
.ræöur hinna erlendu ræöumanna.
1 gær var svo mikil aösókn aö
fundinum, aö nýr fundur var sett-
ur, ]>egar er hinum fyrri lauk.
Rustad-morðið.
Oslo 16. nóv. — FB.
Rannsóknum heldur stöðugt á-
fram út af hinu svokallaða Rustad-
moröi. :— Bandaríkjamaður af
norskum ættum, ’ Roar Amundsen,
var handtekinu vegna gruns um,
að hann væri viö moröiö riðinn, en
han hefir veriö Iátinn laus, þar eö
lijálpar þeirn, sem
ekki myndast vel
upp á venjnlegan
máta.
15-Foto
myndirnar og
þessi myndatöku-
aðferö fæst aö
eins h.já mér.
lS^Foto
kostar 4.50, og
einstakar stækk-
anir (kahinett)
3.50.
Lðltor
Kgl.
Nýja Bíó.
i ljós kom, að hann hefir engan
]>átt getað átt í því.
Furðuflugvélin.
Oslo, 15. nóv. FB.
Samkvæmt blaðinu Aftenposten
liefir dularfulla flugvélin sést aft-
ur hæði í gærkveldi og í nótt sem
leið, í nánd viö Berlevaag. Olufseu
ríkislögreglumaður hefir haft at-
huganir á hendi í sambandi viö
íeröir flugvélar þessarar. Hefir
margt áreiðanlegra og sannsög-
ulla manna séð flugvélina. Er því
m. a. haldiö fram, að hún hafi flog-
iö yfir Skaansviker-fjall í hundrað
metra hæö og stefndi þá til hafs.
Flugvélin er stór og á skrokknum
voru fjórir gluggar og flaug hún
með öllum ljósum, aö því er virt-
ist. I nótt heyrðist og enn á ný,
aö veriö var aö senda loftskeyti,
sem menn vita ekki deili á.
Fótgangandi yfir Ermarsund.
Windsor, Canada, í okt. FB.
Emil Walther, frá Windsor,-
Canada, ætlar hráölega að gera til-
raun til þess aö komast fótgang-
andi yfir Ermarsund. Hann hefir
fundiö upp „stígvél“ þannig gerö.
að hægt er að nota þau til þess
að ganga á vatni. Eru stígvél
Walthers lík hátmn í lögun, en
hvernig þau eru úthúin hefir hann
ekki látið í té itarlegar upplýsingar
um. Hann notar tvær stengur, sem
hann heldur á sinni í hvorri hendi.
til ]>ess aö halda jafnvægi. Á enda
hvorrar stangarinnar eru loftþétt
hylki. (United Press).