Vísir - 12.12.1934, Qupperneq 4
VÍSIR
Tilboð
óskast um sölu á eftirfarandi vörum til skipa og sjúkra-
liúsa ríkisins í Reyk javík og grend:
1. Fiskur. Ýmsar tegundir af nýjum fiski. Tilboðin
miðist við ákveðínn afslátt frá venjulegu útsölu-
verði á hverjum tíma.
2. Brauðavörur. Verð á rúg-.og hveitibrauðum óskast
tilgreint fyrir hvert stykki, á tvíbökum og kringl-
um fyrir hvert kg. og af öðrum brauðavörum með
ákveðnum afslætti frá venjulegu útsöluverði í búð-
um.
3. Kaffi. Kaffibætir og brent og malað kaffi.
4. Smjörlíki, blandað smjöri og óblandað.
o.
6.
Einkennisbúningar. Jakkaföt (úr klæði og/eða
cheviot). Frakkar (ur klæði) og húfur fyrir yfir-
menn á ríkisskipunum. Ennfremur stórjakkar
(með ullarfóðri) fyrir háseta á varðskipunum. Til-
boð miðist við búningana fullbúna til notkunar
með ásettum einkennum sem útgerðin leggur til.
Sýnishorn af efninu fylgi með tilboðunum.
Rafmagns-ljósaperur fyrir skip og hús. Tilboðin
miðist við ákveðinn afslátt frá venjulegu útsölu-
verði. Tegundir tilgreinist.
7. Hreinlætisvörur. Þvottasápa, sódi, ræstiduft, bón
og fægilögur.
8. Ýmsar dekk- og vélavörur til ríkisskipanna. Eldrist-
ar og brúristar, zinkblokkir, tvistur (hvítur nr. 1),
ketilsódi (calcium innihald tilgreinist), vírar,
kaðlar, steinolía, bensín og smurningsolíur.
9. Kol til ríkisskipanna frá 1. jan. til 30. júní 1935.
Tilboð miðist við Best South Yorkshire Associa-
tion Hards, eða önnur álíka góð kol, komin um
borð í skipin á Reykjavíkurhöfn og löguð í kola-
rúm þeirra.
Þar sem ekki er öðruvísi fram tekið, er gert ráð fyr-
ir, að samið verði um viðskiftin fyrir alt árið 1935.
ÖIl ofangreind viðskifti eru bundin skilyrði um
vöruvöndun og góðan frágang.
Heimflutningur til kaupenda innanbæjar sé innifal-
inn í tilboðunum, en Vífilsstaðahælið, Kleppsspítalarn-
ir og Laugarnesspítali láta taka vörurnar hjá seljend-
um.
Tilboð óskast komin á skrifstofu vora fyrir kl. 12 á
hádegi föstudaginn 28. þ. m.
Réttur er áskilinn til að hafna öllum tilboðunum.
Skipaútgerð Rfldsins.
heldur fund á morgun (fimtudag) kl. 8^4 síðd. í Varð-
arhúsinu.
Umræðuefni meðal annars: Um ættaróðal og óðals-
rétt.
Framsögumaður: Jón Sigurðsson, alþingismaður.
Allir sjálfstæðismenrí velkomnir.
STJÓRNIN.
^ Ef þér bakið heima þá notið eingöngu Í
X C
Millennium
| h v e i t i
^ Bestu meðmælin eru kökurnar. j|
JÍÍCCtÍCOOOOOOOOOíÍOtÍOOOOÖOttOOOOíSOtKÍOOOOOÍíOÍXSOOOOOOOOOÍJtt;
Enn nm
vígbúnaðarmálin.
Fulltrúar þjóöanna koma á
ráðstefnur fullvissir um, aÖ til
ófriðar muni koma.
Höf. telur, að á öllum alþjóða-
fundum síðan 1924, hafi sá andi
veriö ríkjandi, aö ný styrjöld
mundi brjótast út fyrr eöa síöar.
Þess vegna hafi engin þjóöanna
þorað að gera neitt, sem veikt gæti
aðstöðu hennar, ef til styrjaldar
kæmi. Styrjaldaróttinn er allstað-
ar og alt af vakandi og hann hef-
ir aldrei verið rneiri en síðan er
nasistar komust til valda í Þýska-
landi. Hinar sífeldu kröfur þjóð-
verja um endurvígbúnað auka ótt-
ann og hið ótrygga ástand í Aust-
urriki. — Morðin i Marseille hafa
og enn aukið styrjaldaróttann gíf-
urlega. — Marcosson ræðir margt
fleira um þetta og hann kemst að
þeirri niðurstöðu, að ekkert hafi
dregið úr tortryggni og ótta þjóð-
anna, þær gangi út frá því sem
gefnu, að ný styrjöld brjótist út
og þori ekki að hætta á neitt og
vígbúist því, hver eftir sinni getu.
— Meðan svo er ástatt geti ekki
miöað í átt til afvopnunar og var-
anlegs friðar.
Afstaða Frakka til kröfunnar
um jafnrétti Þjóðverja í víg-
búnaðarmálum.
Höf. minnist á þær kröfur, sem
Frakkar geröu, ef til þess kæmi,
að Þjóðverjum yrði leyfður tak-
markaður endurvigbúnaöur. Þær
voru á þá leið, að Bretar heiti
Frökkum algerðum stuðningi, ef
til ófriðar við Þjóðverja kæmi.
Þetta hafi Bretar ekki viljað fall-
ast á, þ. e. a. s. þeir hafi ekki vilj-
að undirskrifa samninga um hern-
aðarbandalag. Hann telur endur-
vígbúnað Þjóðverja leiða í ljós
hvernig Frakkar hiigsi þessi mál.
Hann fer síður en svo lofsorðum
um nasistastjórnina þýsku og
íramkomu hennar, en telur kröfur
Þjóðverja um epdurvígbúnað rök-
réttar, með tilliti til þess hvert
stefni í álfunni. Hitlerstjórnin
hafi ekki átt upptökin að því að
þessar endurvígbúnaðarkröfur
kæmi fram, heldur Brúning, sem
1931 sagði við höf.: „Ef aðrar
Evrópuþjóðir halda áfram að vig-
búast verða Þjóðverjar að gera
slíkt hið sama“. — En Brúning,
var sem kunnugt er, enginn hern-
aðarsinni, og í flestu ef ekki öllu
ólíkur Hitler og hafði andstygð á
styrjöldum, en hami taldi það
höfuðatriöi, að Þjóðverjar fengi
leyfi til takmarkaðs endurvígbún-
aðar, sjálfsvirðingar þeirra vegna.
En honum varð ekki ágengt í þess-
um málum í Genf. Vindurinn blés
þar ekki af þeim áttum.
Brúning sá, segir Marcosson,
það sem Bretar nú sjá óljóst, en
Frakkar geta ekki séð, að hófleg-
ur, takmarkaður endurvígbúnaður
Þjóðverja er það, sem vantar, til
þess að hægt sé að skilja þessi mál
til hlítar og ná samkomulagi um
þau. í þéssu kunni að virðast mót-
sagnir, en jVetta sé rétt samt. —
Þýskaland — ef endurvígbúnaðar-
kröfurnar yrði viðurkendar, myndi
ekki fara í kapphlaup við stórveld-
in, miklu síður en er Þjóðverjar
vígbúast á laun. Þetta var það,
sem fyrir Hitler vakti, er Þjóð-
verjar gengu úr bandalaginu, en
Frakkar urðu æfir. Bretar gerðu
sér hinsvegar ljóst, að heppilegra
væri að veita Þjóðverjum tak-
markaðan rétt til endurvígbúnað-
ar en að þjóðirnar færi í ógurlegra
vígbúnaðarkapphlaup en nokkuru
sinni fyrr.
(Niðurl.)
I. F. U. Mc
A-D fundur annað kvöld kl.
8 Vq. Verslunarstjóri Frímann
Ólafsson segir ferðasögu.
Allir utanfélagsmenn . vel-
komnir.
Pressuger.
Nokkur kíló af pressugeri til
sölu.
Sími 4823.
Verndið sjönina
og látið ekki ljósið hafa skaðleg
álirif á augu yðar, þegar hægt
er að forðast það, með því að
nota
THIELE
GLERAUGU.
Austurstræti 20
Vetrar-
lijálpin 1
Reykj avík.
,Er ekki full ástæða fyrir hvern
hugsandi bæjarbúa, að íhuga
hversu brýn þörfin er, aö hjálpa
hinu bágstadda fólki, sem er að
berjast áfram víð fátækt og at-
vinnuleysi, en reynir í lengstu lög
að leita ekki fátækrastyrks. Þetta
fólk, sem oft neyðist til að búa í
dimmum og rakasömum kjöllur-
um eða naustköldum skúrum og
timþurhjöllum, þaö hefir ekki efni
á að hita upp hjá sér, þvi að allir
þeirra peningar hrökkva varla fyr-
ir matvæla kaupum í daglega
neyslu. Þetta fólk hefir því minni
getu til að klæðast skjólgóðum
fötum. Sem dæmi má nefna heilsu-
litla konu, sem sjá verður fyrir
2 ungbörnum, 5 ogóára. Húnverð-
ur ein að vinna fyrir þeirn, því að
af einhverjum ástæöum fær bún
ekkert greitt frá föðurnum. Hún
býr í kaldri stofu á móti norðri.
Eftir því sem heilsa hennar leyfir,
er hún að reyna að þvo þvotta,
en fær ekki nærri altaf vinnu. Þeg-
ar þröngt er í búi, þá lætur hún
sig ávalt sitja á hakanum, svo að
börnin hennar fái sem mest að
borða; hún reynir að klæða þau
sem hlýjast, en sjálf á hún ekki
-nema einn klæðnað og hann tötur-
legan. Annað heimili þar sem
heimilisfaðirinn er um 70 ára að
aldri; hann á 5 börn, flest mjög
ung. Húsið er kalt, sem þau búa í.
Gamli maðurinn fær mjög litla
vinnu, enda getur hann ekki sök-
um elli unnið neina erfiðisvinnu.
Bæði börnin og þau hjónin eru
tilfinnanlega fatalítil og búa við
skort. Þessi hjón vilja ekki með
nokkuru móti þiggja af sveit, en
eru þó bláskínandi fátæk. Svo man
eg eftir fátækum, gömlum einstæð-
ingi 75 ára, sem lítið sem ekkert
getur unnið, en lifir á því, sem
guð og góðir menn gefa henni, en
þegar matarskortur er hjá henni
þá sveltir hún heldur en að - leita
á náðir annara.
Mörg svipuð dæmi mætti nefna.
Þetta fólk getur ekki lamað sína
miklu sjálfsbjargarviðleitni með
því að leita til hins opinbera, því
sporin þangað finst þeim vera bæði
sár og þung. Það vill heldur svelta
hálfu eða heilu hungri. Það getur
engum mamii dulist, að hjálpin til
þessa fólks er nauðsynleg, enda
hlýtur það að vera hverjum sæmi-
lega stæðum drenglyndum borgara
ljúft, að rétta hinum mörgu bág-
stöddu heimilum hjálparhönd, hver
eftir sinni getu, Fyrir jólin þrá
allir einvern glaðning.
Vetrarhjálpin á að vera mið-
stöð slíkrar hjálpar og ættu bæjar-
búar að styrkja þá starfsemi, með
ráðum og dáð, svo hún gæti sem
flestum hjálpað.
Þórsteinn Bjarnason.
Lampaskermar.
Mjög niargar gerðir af perga-
mentskermum og silkiskerm-
um bæði fyrir stand- og borð-
lantpa, loft og vegglampa, einn-
ig lestrarlampa.
Skermabúðin,
Laugaveg 15.
Fundur á morgun kl. 8V2
í húsi Oddfélaga.
Á dagskrá:
Inntaka nýrra félaga.
Húsbygging félagsins.
Ráðningarskrifstofa , fyrir
verslunarfólk (nefndarálit).
Fjölmennið.
STJÓRNIN.
■ ViNNAM
Unglingsstúlka óskast til að
gæta barna. — Uppl. í Vonar-
stræti 12, niðri. (221
iTAPÁD'FUNDIf)]
Barnagleraugu liafa tapast í
gær. Skilist Bergstaðaslr. (5 C.
(22<3
Karlmannsúr tapaðist í gær
á leiðinni frá Ránargötu að
Laufásvegi. Skilist gegn góðum
fundarlaunum i Blikksmiðju
Guðin. .T. Breiðfjörð Laiifásveg
4. — , . (225
Kventaska með 25 kr. í, tap-
aðist á Kaplaskjólsvegi, inn
fyTrir Verkamannabústaðina. —
Skilist að Sveinsstöðum. Simi
4449. (223
Gullkeðja tapaðist. Finnandi
vinsamlega beðinn að skila
lienni gegn fundarlaunum á
Freyjugötu 44, miðbæð. (218
ETAIBKAPIJPI
Hæsti vinningurinn i Hajjp-
drætti Háskóla Islands, 50 þús.
krónur, vanst á 2 kvartmiða,
sem seldir voru af Helga Sí-
vertsen, Austurstræti 12. (230
Alveg ný lnisgögn í herbergi
til sölu. Getur komið til greina
berbergi og eldunarpláss. —
Uppl. á Laufásveg 12, eftir kl.
8 i kveld. Sími 4247 eftir sama
tíma. (279
Reyk'javíkur elsta kemiska
fatabreinsunar- og viðgerðar-
verkstæði breytir öllum fötum.
Gúinmikápur límdar. Buxur
pressaðar fyrir eina krónu. Föt
pressuð fyrir 3 kr. Föt kemiskt
hreinsuð og pressuð á 7 kr.
Pressunarvélar eru ekki notað-
ar. Komið til fagmannsins Ry-
delsborg klæðskera. Laufásvegi
25. Simi 3510. (444
Saumastofan Harpa, Vallar-
stræti 4 (Björnsbakarí), setur
upp púða. Húlsaumar. Blúndu-
kastar, selur og saumar undir-
föt o. fl. (450
HREIN GERNIN GAR! Karl-
maður tekur að sér loftaþvott.
-— Uppl. í síma 2406. (140
Þvottahúsið Svanbvít, Hafn-
arstræti 18. Sími 3927. Vönduð
vinna (bandþvegið). Fljót af-
greiðsla. (384
Geng í hús og krulla. Guð-
finna Guðjónsdóttir. Sími 2048.
(66
Saumastofan á Laugavegi 68
tekur allskonar saum, sama
livar efnið er keypt. Simi 2539.
(77
ITILK/NNINCAP]
Leikfangasalan á Lindargötu
38 byrjar um næstu helgi. Þar
verður á boðstólum fjölbreytt
úrval. Verð frá 10 aurum. (228
Leikföng Dívanar. Skraut-
letrun, vandað —- ódijrt. Rauð-
arárstíg 5 (timburhúsið). —
Eggert og Jón. (227
Notuð gaseldavéí óskast til
kaups. Uppl. í síma 2175. (224
Silkipeysupils og svunta til
sölu á Hverfisgötu 55 niðri. —
(222
Nýr Smokingjakki og vesti
til sölu mjög ódýrt. Sími 3223.
(220
Columbia grammófónn sem
nýr, til sölu með plötum. —
Bergþórugötu 11. (219
Agætt notað píanó til sölu
með tækifærisverði. Einnig lit-
ið gott orgel. Uppl. Hljóðfæra-
búsinu, Bankastræti 7. (217
Nýkomið fjölbreytt úrval af
kven- og karlmannasokkum.
Nýjustu litir. Skórinn, Lauga-
vegi 6., (203
1 bakaríinu, Vesturgötu 14,
fáið þið heimabakaðar tertur,
kleinur, og pönnukökur með
rjóma, á 15 aura. (33
ST. DRÖFN, nr. 55.
Afmæli stúkunnar er á
morgun, fimludag.
Byrjað verður með stuttum
fundi kl. 8V2 síðd. ,
Síðan verður sameiginleg
kaffidrykkja.
Skemtiatriði:
Einsöngur, upplestur, ræður o.
fl., siðan stíginn dans.
Embættismenn og félagar
fjölmennið og mætið stund-
víslega.
Æ. t.
EliDSNÆtll
Vantar 2—3 berbergi og eld-
bús. Tilboð leggist inn á afgr.
blaðsins, merkt: „Túngata“. —
(216
Barnlaus lijón óska eftir 1—2
herbergjum og eldhúsi, eða
aðgangi að eldbúsi. Uppl. í síma
3092, frá kl. 6—8. (198
Kjötfars, fiskfars heimatil-
búið, fæst daglega á Fríkirkju-
vegi 3. Sími 3227. — Sent heim.
(849
35 krónur.
Dívanar, allar tegundir.
Fjaðradýnur, allar teg,
Dýnur í barnarúm.
Og allar tegundir af
stoppuðum húsgögnum.
Að eins fallegar og góð-
ar vörur með sann-
gjörnu verði. — Altaf
er gott að eiga viðskifti
við
Húsgagnaver8lunlna
við Dómklrkjnna
í Reykjavík.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN