Vísir - 13.12.1934, Blaðsíða 3
y ísir
0
Hin heimsfræga barnabók
eftir Jóhönnu Spyri er nú komin út á íslensku.
Frú Laufey Yilhjálmsdóttir hefir þýtt bókina.
Sagan um Heiðu gerist í hinu fagra fjallalandi
Sviss, og er alveg sérstaklega falleg bók, og auk þess
skemtileg aflestrar fyrir unga og gamla. Bókin kom
fyrst út árið 1881, og siðan liafa komið ótal útgáfur
af henni í mörgum löndum. í Þýskalandi einu hafa
selst yfir 400 þúsund eintök, og i Noregi er „Ileiða"
sífelt einhver mest eftirspurða barnabókin á öllum
bókasöfnum þar i landi. j
Þetta er fyrri hluti bókarinnar og er 227 bls. að
stærð, prentaðar með góðu letri og 13 ljómandi fall-
egum myndum.
Bókin er bundin í tvennskonar band, og kostar
5 kr. og 6.25. Fæst hjá bóksölum.
Aðalútsala hjá
Ig'HlltlEM
IIóIm8v«i*s8ihi - Sítni 272(1
§ JÖLABÆKUR
| JÓLAYÖRUR
Jólapokaarkir —
5 Glanspappír — Crep-
s pappír — Jólaborð-
dreglar — Jólaservi-
5 ettur — Jólapakka-
E pappír og garn —
s Jólakort — Ludo —
E Domino — Prent-
s verk — Yatnsliti —
s Litblýanta — Spil
s o. m. fL
s selur
BÓKAVERSLUN
| SIGURJÓNS JÓNSSONAR
ÞÓRSGÖTU 4.
l*J:
Nýir kaupendur Vísis
fá Waðið ókeypis til áramóta.
— Þeir nýir kaupendur, sem
þess kynni að óska, geta og
fengið ókeypis það, sem út er
komið af blaðinu í þessum
mánuði, meðan upplagið hrekk-
ur. Athygli skal vakin á því, að
yísir kostar kr. 1.25 á mánuði,
en önnur dagblöð hér 2 krónur.
VeíSrið í morgun.
Hiti í Reykjavik 5 stig, ísafirði
1, Akureyri 2, Skálanesi 5, Vest-
mannaeyjum 6, Kvígindisdal 3,
Hesteyri 1, Blönduósi 2, Siglunesi
%, Grímsey 4, Raufarhöfn 3,
Fagradal 4, Hólum í Hornafirði
6, Fagurhólsmýri 5, Reykjanesi 3
stig. Mestur hiti hér í gær 6 stig,
minstur 4. Úrkoma 0,9 mm. —■
Yfiíflt: Alldjúp lægð og víðáttu-
mfkil suður af íslandi. •— Horfur:
Suðvesturland: Austan og síðar
suðaustan kaldi. Rigning öðru
faverju. Kaxaflói, Breiðafjörður:
Norðaustan og austan kaldi. Þíð-
viðri og dálítil rigning. VestfírS-
Ir: Allhvass norðaustan. Rigning
eða slydda. Norðurland: Austan
kaldi. Rigning öðru hverju. NorS-
austurland, Austfirðir, suðaustur-
land: Suðaustan kaldi. Rigning.
Bifreiðarslys
varð á Vesturgötu í gær, við
hornið á húsinu nr. 7, en þt^ta er
mjög hættulegur umferðarstaður,
því að homið á húsinu skagar út
í götuna, sem er of mjó þarna.
Gekk kona niður götuna að sunn-
anverðu. Var hún með telpu með
sér, 4. ára. Kom þá vörubifreið á
móti henni og var hún með vagn
í eftirdragi og lenti hann á kon-
unni, sem féll við, og datt telpan
með henni. Meiddist konan lítils-
háttar.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er á leið til Vestmanna-
eyja frá Leith. Goðafoss er vænt-
anlegur til ísafjarðar í kveld.
Dettifoss er í Hamborg. Brúarfoss
kom til ísafjarðar í rnorgun. Lag-
arfoss er á leið til útlanda. Selfoss
er í Oslo.
E.s. Suðurland
fer aukaferð til Borgarness
mánudag 17. þ. m. kl. 9 árdegis og
frá Borgarnesi samdægurs.
Goðafoss
fór héðan í gærkveldi vestur og
norður. Meðal farþega voru: Egg-
ert Claessen, Pétur Eggerz, Ingólf-
ur Bjarnason, Steingrímur Jóns-
son, Matthías Eggertsson, Sig.
Bjarklind, Sig. Dalmann, Einar
Jóhannsson, H. Ryel, Bogi ísaks-
son, Guðm. Guðbrandsson, Svein-
björn Jónsson, Mildríður Falsdótt-
ir, S. Arnlaugsson, Ásta Helga-
dóttir, Unnur Kemp, Unnur Jóns-
dóttir, P. Hafstein, Jón Arngríms-
son, Ólafur Jónsson, Þorgeir
Jakobsson, Erlingur Jóhannesson,
Jón Kristjánsson o. m. fl.
Sindri
seldi bátafisk frá Akranesi
(1040 vættir) í Grimsby í gær
fyrir 1803 stpd. Markham Cook
annaðist söluna.
Lassarónar.
Svo nefnist bók ein, sem Sig-
urður Haralz, sonur Haralds heit-
ins Níelssonar prófessors, hefir
tekið saman og gefið út. — Henni
er skift í tvo kafla og er hinn
fyrri miklu lengri: Nokkrir dagar
og nætur á Norður-Spáni og Af-
skráning í Bordeaux. Sigurður
Haralz „hóf ungur siglingaflakk",
eins og Þorgeir í Vík, og hefir
víða farið og mörgu kynst. Vísir
hefir ekki haft tíma til að kynna
sér frásagnir háns að svo komnu,
en búast má við að bókin sé vel
rituð og skemtileg, ef höf. svipar
eitthvað til föður síns um ritleikni.
— H. N. var, sem kunnugt er, af-
burðasnjall rithöfundur. — Bókar
þessarar verður nánara getið síðar.
A. S. B.
Félag afgreiðslustúlkna í
bráuða- og mjólkurbúðum held-
ur fund ld. 9 í kveld í kaup-
þingssalnum. Á dagskrá: Sam-
tal við mjólkursölunefndina. —
Áríðandi að allar stúlkur mæti.
Strokufanginn.
Um kl. 10 í gærkveldi símaði
Helgi læknir Guðmundsson í
Keflavík til lögreglunnar hér í
bænum, að strokufanginn Magnús
Gislasoii væri í haldi þar syðra.
Ilafði Magnús særst í handlegg
af skoti og leitað aðstoðar Helga
læknis. Var gert aö meiðslunum
og er uppvíst varð, að um stroku-
manninn var að ræða, var lögregl-
unni gert aðvart. Fór Björn Bl.
Jónssön og 2 lögregluþjónar suður
eftir í gærkveldi til þess að sækja
Magnús og komu þeir meö hann
kl. um 3J4 í nótt og var honum
komið fyrir á sjúkrahúsi Hvíta-
bandsins og hafður lögregluvörð-
ur yfir honum. Samkvæmt upp-
lýsingum, sem blaðið hefir ferigið
frá lögreglunni, lagði Magnús af
stað suður á bóginn þegar sama
kveldið og hann strauk úr fang-
elsinu. Þegar hann fór úr húsinu
á Bergstaðastræti, þar sem honum
var gefinn fatnaður og matur,
gekk hann suður Bergstaðastræti
og Laufásveg og niður á Vatns-
mýri og varð þess þá var, að lög-
regluþjónar voru á vakki á vegum
og stöðvuðu bila til þess að leita
í þeim. Tók hann þá ákvörðun
um að hverfa heirn til foreldra
sinna suður með sjó og fór hann
nú til Hafnarfjarðar, en ávalt í
nokkurri fjarlægð frá veginum.
Fór hann um Hafnarfjarðarbæ síð-
ari hluta nætur og fór því næst
með ströndum fram suður að
Kirkjubóli, þar sem foreldrar hans
búa, og var hann þá slæptur mjög
og þreyttur. Kom hann þar árla
dags á þriðjudag. — Síðdegis í
gær tók hann haglabyssu og
kvaðst ætla á fuglaveiðar, en í
þeirri för varð' hann fyrir því
slysi, að hnjóta um stein, þar
sem grýtt var og sleipt en við
það hafði skotið hlaupið úr
byssunni. Fór það í gegnum fram-
handleggsvöðvann. Er þetta all-
mikið sár. Magnús gekk heim að
Kirkjubóli, en þaðan var sent til
Sandgerðis og fengin vörubifreið
til þess að flytja hann til lækn-
isins í Keflavík.
Þjófnaður.
Fjórutn vínflöskum var stolið
úr bifreið í gærkveldi meðan eig-
andinn, sem var með bifreiðina,
hafði brugðið sér frá sem snöggv-
ast. Unglingspiltar tveir, höfðu
tekið flöskurnar og náði lögreglan
í þá skömmu síðar.
Móakotsmálið.
Dómur var upp kveðinn af Jóna-
tan Hallvarðssyni fulltrúa í gær í
Móakotsmálinu svo nefnda. Áður
liöfðu haft rnálið til meðferðar
bæjarfógetinn í Hafnarfirði, Þórð-
ur Eyjólfsson og Gústav A.
Sveinsson. Mál þetta er búið að
standa yfir hátt á fjórða ár, en
Jónatan Hallvarðsson var skipaður
setudómari í það fyrir 3—4 mán-
uðum. Tildrög málsins eru í höfuð-
atriðum þessi: Jón Hansson, Móa-
koti á Vatnsleysuströnd, réðivetur-
inn 1929 til sin heimiliskennara,
mann nokkuð við aldur, Árna
Theodór Pétursson að nafni, og
átti hann að kenna börnum Jóns,
sem var fjarverandi frá heimili
sinu lengl þá um veturinn. Vetur-
inn 1931 fór hann norður og er
hann kom heim aftur frétti hann,
að Árni Theodór Pétur6son hefði
í febrúar það ár farið til Reykja-
víkur og gist þrjár nætur á gisti-
húsi Hjálpræðishersins, ásamt
dóttur Jóns, þá 14 ára gamalli.
Með því að Jón taldi sterkar likur
til, að Árni hefði þessar nætur
samrekt telpunni kærði hann þetta
fyrir bæjarfógetanum í Hafnar-
firði. Bar telpan það fyrir rétti,
að faðir hennar hefði samrekt sér
og var hann nú settur í gæslu-
varðhald um tíma. Telpan tók
þennan framburð aftur síðar og
játaði að hún hefði samrekt með
Árna Theodóri, sem neitaði að svo
væri. Rannsókn málsins leiddi í
ljós margt, sem benti til, að fram-
burður stúlkunnar hinn siðari væri
réttur og var Árni Theodór dæmd-
ur eftir 175. grein hegningarlag-
anna, sem inniheldur ákvæði um
hegningu við að tæla stúlkubörn
á aldrinum 12—16 ára til saurlífis.
Árni Theodór er kominn yfir sex-
tugt og var hann dæmdur í tveggja
mánaða einfalt fangelsi.
Heimatrúboð leikmanna
Vatnsstíg 3. Samkoma í kveld
kl. 8. Allir velkomnir.
V oraldarsamkoma
í Varðarhhúsinu annað kveld
(föstud.) kl. 8j4. Mjög mikilvæg
umtalsefni.
Athygli húsmæðra
skal vakin á augl. um nýja mat-
reiðslubók, sem birt er í blaðinu
í dag, eftir Helgu Sigurðardótt-
ur. Bókin heitir „Lærið að mat-
búa“ og verður nánar getið síðar.
Til fátæka mannsins
(sem vantar útvarp) afhent
Vísi: 2 kr. frá ónefndri konu, 5
kr. frá ónefndum.
Áheit á Hallgrímskirkju
í Saurbæ (vegna happdrættis-
ins), afhent Vísi: 5 kr. frá P. G.
Næturlæknir
er í nótt G. Fr. Petersen. Sími
2675. — Næturvörður í Laugavegs
apóteki og Ingólfs apóteki.
Farsóttatilfelli
í nóvembermánuði voru á öllu
landinu samtals 1180, þar af í
Reykjavík 411, á Suðurlandi 292,
á Vesturlandi 129, Norðurlandi 226
og Austurlandi 122. Flest voru
kvefsóttartilfellin eða 549 (189 í
Rvík), þá kverkabólgu 349 (154
í Rvík), þá iörakvefstilfelli 135
(59 í Rvík) o. s. frv. — Skarlats-
sóttartilfellin voru 38, þar af 9 í
Rvík, 1 í Grímsneshéraði, 2 í
Hafnarfjarðarhéraði, 1 í Ólafsvík-
urhéraði, 19 í Dalahéraði, 4 í
Þingeyrarhéraði, 1 í ísafjarðarhér-
aði og 1 á Akureyri. — Tauga-
veikissóttartilfellin voru 10, þar af
9 á Akureyri og 1 í Mýrdalshér-
aði. Inflúensutilfellin voru 2, bæði
í Reykjavík. — Landlæknisskrif-
stofan. — (FB).
Gengið í dag.
Dollar................. — 4.48JÍ
100 ríkismörk ........... — 178.73
— franskir frankar . — 29.67
— belgur ............... — 104.62
— svissn. frankar . . — 145.26
— lírur ............... — 38.80
— finsk mörk .......... — 9.93
— pesetar .............. — 62.02
— gy'Hni ............... — 303.23
— tékkósl. krónur .. — 19.09
— sænskar krónur .. — 114.36
— norskar krónur .. — 111.44
— danskar krónur . — ioó.oo
Gullverð
ísl. krónu er nú 49,28 miðað við
frakkneskan franka.
Áheit á Strandarkirkju
afhent Vísi: 5 kr. frá Imbu, 5
kr. frá ónefndum, 2,50 frá Stefa-
níu, 10 kr. gamalt áheit frá N.
N., 7 kr. gamalt áheit frá H. S.,
4 kr. frá L. G., 5 kr. frá E. G., 2
kr., gamalt áheit frá S. P„ 1« kr.
frá Á. G., 2 kr. frá S. A., 5 kr.
frá J. L., 5 kr. frá Mariu, 2 kr,,
gamalt áheit frá ónefndtuu, 20 ftr.
frá Clog, 10 kr. frá sjómanni
(gamalt áheit).
Útvarpið í kveld:
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfr.
19,20 Þingfréttir. 20,00 Klukkri-
sláttur. Fréttir. 20,30 Erindi: Frá
útlöndum (Vilhjálmur Þ. Gk^a-
son). 21,00 Lesin dagskrá sæstu
viku. 21,10 Tónleikar: a) Útvakps-
hljómsveitin; b) Grammófónn: ís-
lensk lög; c) Danslög.
Handskomir munir
ýmiskonar og stfmir fágætir
eru til sýnis á Skólavörðustíg 12.
Sjá augl.
Jólatré þurkuð
og jólatrésskraut verður tekið upp fyrir helgina, en
leikföngin eru komin frá: Þýskalandi, Spáni, ftalíu,
Danmörku og íslandi.
Mikið úrval. — Lægsta verð.
K. Einarsson & Björnsson.
Bankastræti 11. N
Hin nýja bók Gunnars M. Magnúss:
Vifl skalam halda áskaga
er komin í bókaverslanir. Aðalsöguhetjurnar
í þessari bók eru hinar sömu og í
Bðrnia frá Viðigerði
sem kom út í nýrri útgáfu fyrir nokkru.
Gleðjið börnin og gefið þeim þessar góðu og
skemtilegu bækur í jólagjöf. — Aðalútsala
Tilkynniiig.
Heiðruðu viðskiftavinir og aðrir.
Eins og fyrir undanfarin jól, hefi eg lækkað
margar vörutegundir í verði.
Lægsta verð og bestu vörurnar fáið þér vafalaust í
Nýjtt Sólvallabúðnnttm.
Gjörið svo vel og sendið jólapantanirnar sem
fyrst.
Sími 1969.
Virðingarfylst.
Sveinn Þorkelsson.
Sögur
handa hömum og unglingum.
Fjórða hefti af sögtim þeim
handa börnum og unglingum, sem
síra Friðrik Hallgrímsson býr
undir prentun árlega fyrir Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar,
er nú komið út. — Sögur þessar
hafa orðið vinsælar meðal þeirra
lesanda, sem þær eru ætlaðar sér-
staklega, og hafa þó guðníðingar
hér í bænum reynt að spilla fyrir
þeim eftir föngum. — En árásir
þeirra hafa ekki borið neinn á-
rangur. •— Sögurnar pru 15 í þessu
hefti og margar laglegar og lær-
dómsrikar. Heiti þeirra eru þessi:
„Konungborni smalinn“ — „Af-
mælisgjöfin“ — „Grafa eftir epl-
um“ — „Loforðið" — „Munaðar-
lausa stúlkan" — „Garðurinn" —
„Leið oss ekki í freistni" — „Nú
gjaldi Guði þökk“ — „Töfragrip-
irnir“ — „Tvö mj$kUrglös“ —
„Sonur Faraós“ — „Brotna skraut-
kerið“ — „Máttur kærleBcans“ —
„Baldur" — „Jólagjöf konungs-
ins". — K.
---------mSSffifflBra"*------
Símakappskái*.
Síðastliðna sunnudagsnwtt þreyttu
Norðfirðingar símakappskák við
Hafnfirðinga. Teflt var á 10 borð-
um. Skákum á 8 borðum var ólok-
ið og hafa Norðfirðingar boðið
eitt af tvennu: Samkomulag um
Sl/2 vinninga Norðfirðingum til
handa gegn 4)4 vinningi, eða að
teflt verði tií úrslita næstu sunnu-
dagsnótt ,að forfallalausu.
gjjSfT- Bestu bamabækurnar,
Ævintýrabókin, nýjustu litmynda-
bækurnar o. m. fl. bækur hentug-
ar til jólagjafa fást í Bólcaversl.
Kirkjustræti 4 (litlu búðinni).
Opin kl. 1—7 daglega til jóla.