Vísir - 22.12.1934, Qupperneq 2
VÍSIR
12 gódar appelsínur fyrir 1 krónu. DRÍFANDI, Laugaveg 63* Sími 2393»
Aldrei mistekst
jólabaksturinn ef notað er í hann
B A C KIN - gerduft.
Gerduft | FiSt lljl fcðUDfliaiÍ DÍðf. förtft
Ljósadýrd
4 '
vilja allir hafa á jólunum, en til þess að það verði ekki
dýrara en þörf er á, er rétt að birgja sig upp af hinum
straumspöru „VIR’4 ljósaperum.
Ef þér gerið það, þá hafið þér tryggingu fyrir að
fá rétt Ijósmagn í hlutfalli við straumnotkunina..—
Allar venjulegar stærðir upp í 4 \v. kosta að eins kr.
0.90 pr. stk.
Helgi Magnússon & Co.
Hafnarstræti 19.
Wl'Sj
Sjð gófiar bækur:
Æfisaga
iðnaöarmanns.
Þessi sjálfsæfisaga Horn-
ungs, danska hattarans, sem
varS heimsfrægur fyrir a;ð
búa til einhverjar bestu slag-
hörpur, senr til eru, er ó-
venju vel sögð, og á erindi
til allra ungra manna á öll-
um tímum.
Framhaldslíf
og nútímaþekking.
Hafið þér lesið formála Ein-
ars H. Kvaran fyrir bókinni,
er birtist í Mbl. í fyrradag?
E8a ritdóm sr. Árna Sigurðs-
sonar í Vísi sama dag? Báðir
telja þeir bókina gefa gott
yfirlit yfir sálarrannsóknir
nútimans, og að höf. beiti
fullri gagnrýni í meðferð
málsins.
Sjálfstætt fólk
eftir H. K. Laxness, mun
geta talist „best seller“ árs-
ins. Ritdómarar hafa ekki
getað nógsamlega lofað bók-
ina, að einum undanskildum,
sem þó segir aS H. K. L.
sé „kunnáttumestur allra rit-
höfunda, sem nú rita íslenska
tungu“.
Úrvalsljóð
eftir Bjama Thorarensen.
Úrvalsljóð
eftir Jónas Hallgrímsson.
VandaSar og sérstaklega
fallegar útgáfur af úrvals-
ljóSum þessara ágætu skálda
vorra. Fást aðeins innb. í al-
skinn.
Heiða
Sagan um svissnesku telp-
una, sem bæSi börn og full-
orönir lesa sér til óblaridinn-
ar ánægju. ÞaS eru yffr 50
ár síðan „Heiöa“ kom fyrst
út, og hún selst enn í dag
eins og hún væri alveg ný.
Fagra veröld.
LjóS eftir Tómas Guðmunds-
son. 3. útgáfa. I fyrra seld-
ust tvær útgáfur af bókinni
upp fyrir jólin. Ritdómarnir
voru hver öðrum glæsilegri,
enda eiga líklega flest þess-
ara ljóða fyrir sér að lifa
lengi.
BiÖjið bóksala yðar um þessar bækur, er þér veljið
jólagjafir.
Aðalútsala hjá:
S-NUtlliH
llttkimírsliiRi - SíhibI Z72ii
og- 1336 (ný lína).
Sovét-stj épnin rússneska
lætup 2iand.taka
k©lstn andstædinga sína,
Þeir verða dæmdir af herrétti fyrir Kirov-
morðið og samsæri gegn ríkisstjórninni.
t
Brynjólfur H. Bjarnason
kaupmaður.
—o—
í dag em jarðneskar leifar þessa
mæta borgara Reykjavíkurbæjar
til moldar bornar, með einlægri
virðingu og þakklátlegri viður-
kenningu fjölda manna, fyrir dáð-
ríkt æfistarf. Hann var fæddur að
Flatey á Breiðafirði 14. febr. 1865,
og skorti því aðeins tæpa tvo mán-
uði til að ná 70 ára aldri, er hann
lést 17. Jx m.
Hann' var sonur Hákonar
Bjarnasöriár kauþmanris, síðast á
Bíldudal, og konu hans, Jóhönnu
Þorleifsdóttur próf. Jónssonar í
Hvammi í Dalasýslu, og í beinan
karllegg kominn af Gísla Magnús-
syni biskupi á Hólum; hann var
bróðir þeirra Lárusar hæstaréttar-
dómara, Þorleifs yfirkennara.Ingi-
bjargar forstöðukonu Kvennaskól-
ans í Reykjavík og Ágústs há-
skólakennara.
Brynjólfur Hermann hét hann
fullu nafni og voru það nöfn
þeirra Brynjólfs Bogasonar stúd-
ents og kaupm. í Stykkishólmi,
síðast í Flatey, og konu hans, Her-
dísar Benediktsen, alkunnra merk-
ishjóna í sinni tíð.
Brynjólfur H. Bjarnason mun
hafa verið innan við tvítugsaldur
er hann sigldi til Svendborgay í
Danmörku, til að læra þar stór-
skipasmíSi, en er hann kom aftur
hingað til lands, mun hann hafa
séð, að þessi iðn hans, sem hann
þó hafði lært til fullnustu, mundi
ekki verða honum eða öðrum til
þeirra nytja, er hann hafði til ætl-
ast; hann hvarf því brátt að versl-
unarmálunum og setti á stofn hina
góðkunnu verslun sína hér í bæn-
um, árið 1886, og rak hana síöan
með framúrskarandi dugnaði og
hagsýni fram til endadægurs,
Var það jafnan áreiðanleiki,
fastheldni og staðfesta í smáu sem
stóru, er einkendi þennari mæta
mann- í /'illum hans orðum og
athöfnum og náði það einnig þl
verslunar hans og viðskifta utan
lands sem innan, enda fylgdi því
mikil blessun og gæfa, fyrir
sjálfan hann og aðra. Brynjólfur.
mátti teljast meðal efnuöustu og
nýtustu borgara þessa bæjarfélags
og bar að sinum hluta oftast
þyngstu byrðar þess. Hánn var að
eðlisfari og upplagi raungóður
maður og rausnarlegur í gjöf-
um, eti hann forðaðist að
láta mikið á því bera og krafðist
þess jafnan, að málum þeim er
hann gaf sig að og styrkti, væri
vel og viturlega stjórnaS, en engu
á glæ kastað, enda sá hann manna
best, hvort þau miðuðu fremur til
framdráttar einstökum ónytjung-
um og ráðleysingjum eöa til
sannra heilla fyrir almenning,
landi og lýS til varanlegs gagns.
Fyrir þessa sök var það, að hann
var ávalt á verði fyrir hagsmunum
ýmsra nytsemdarfélaga og stofnana
í landinu, m. a. Kaupmannafélags
Reykjavíkur og Eimskipafélagsís-
lands o. fl„ er hann ýmist var
stjórnandi eða meðlimur í. Með
þvi m. a. aS styrkja Sjúkrasamlag
Reykjavíkur tvívegis með stór-
gjöfum, sýndi B. H. B. i raun og
veru hvern rnann hann hafSi að
geyma, góSviljaöan og hygginn
mann, enda taldi hann samlagið
meðal þörfustu stofnana bæjarins,
meira að segja eina hina mestu
stórgróðastofnun hans, sem aldrei
rnætti undir lok líöa.
Eg átti því láni aö fagna, að
kynnast Brynjólfi H. Bjarnason,
þegar eftir komu mina hingaö til
bæjarins, nú fyrir 33 árum, jafn-
vel betur og nánar en ýmsir aðrir,
og ávalt að góðu; að minni raun
var hann þannig: FlollráSur, úr-
ræðagóSur og áreiðanlegur maður,
aSgætinn og nákvæmur í viöskift-
um, en umfram alt ráðvandur og
samviskusamur, raungóöur og
tryggur vinur, enda er eg viss um
að þessa hina sömu sögu hafi þeir
af honum að segja, sem þektu
hann best. En hann var oft mis-
skilinn, enda batt hann ekki ávalt
l>agga sina sömu hnútum sem aðr-
ir semferöamenn hans, en tor-
trygöur var hann aldrei.
Með fráfalli Brynjólfs er bæjar-
félag Reykjavíkur einum hinum
nýtasta borgara fátækara, sem
margir munu minnast með þakk-
læti og söknuði og jafnframt óska
þess, aS þaS ætti og mætti eignast
marga slíka menn sem hann var.
Brynjólfur kvongaöist tvisvar.
í fyrra skiftiS RagnheiSi, dóttur
Einars Zoéga gestgjafa, af fyrra
hjónabandi, og eignuSust þau son
einn, Hákon að nafni, sem búsett-
ur er í Ameríku, en nú dvelur hér
og var viöstaddur ,er faðir hans féll
frá, í síðara skiftið kvæntist
Brynjólfur eftirlifandi konu sinni,
Steinunni Hjartardóttur frá Aust-
urhlíS í Biskupstunguin. Þau eign-
uðust eitt barn, sem andaöist á
unga aldri, og ólu upp tvö börn,
er þau hafa gengið í foreldrastaö.
Brynjólfur H. Bjarnason var
sæmdur riddarakrossi FálkaorS-
unnar. Hann var meðlimur Frí-
múrarareglunnár hér í Reykjavik,
og heiöursfélagi sjúkrasamlagsins.
BlessuS sé minning hans!
Reykjavík 22. des. 1934.
Jón Pálsson.
Atíínnnbæturnar
og flokkar hinna vinnandi
stétta.
Socialistar og framsóknarmenn
fella tillögu um hækkun at-
vinnubótafjárins.
—í h
Atkvæðagreiðsla um fjárlög-
in fór fram i sameinuðu þingi í
gær. Hún stóð yfir á sjöttu
klukkustund og verður síðar
sagl itarlegar frá henni. I þetta
siim verður að eins gerð að um-
talsefni atkvæðagreiðsla um til-
lögur um fjárframlög til at-
vinnubóta.
Áður hefir verið sagt frá því
hér i blaðinu, livcrja breytingu
ríkisstjórnin Iiafði gert á fyrir-
mælum fjárlaganna um fjár-
framlög ríkissjóð til atvinnu-
bóta. í stað þess að áður liafði
verið mælt svo fyrir, að ríkis-
sjóður skyldi annast útvegun a
tveim þriðju hlutum atvinnu-
Ijótafjárins, þ. e. leggja fram
þriðjung og „gefa kost á láni“ á
öðrum þriðjungi, gegn þvi að
bæjar- og sveitarsjóðir legði
fram af árlegum tekjum sínum
þriðja þriðjunginn, þá ákvað
„stjórn hinna vinnandi stétta“
nú í fjárlagafrumvarpi sínu, að
bæjar- og sveitarsjóðir skyldi
algerlega af eigin rannnleik sjá
fyrir öflun tveggja þriðju hluta
þess fjár, er varið yrði í þessu
skyni. — Og auk þess eru sett
önnur skilyrði fyrir fjárfram-
lagi af hálfu ríkissjóðs, er miða
að því, að þröngva kosti bæjar-
og sveitarfélaga.
Það er nú alveg sýnt, að með
þessum liætli verður fjárveit-
ingin úr ríkissjóði til atvinnu-
bóla að mestu leyti að eins orð-
in tóm. Eftir að tekju- og eign-
arskattur til ríkissjóðs hefir
verið tvöfaldaður og bæjar- og
sveitarfélögum algerlega synjað
um aðrar fjáraflaleiðir en nið-
urjöfnun eflir efnum og ástæð-
um, þá er bersýnilegt, að þeim
er gert ókleift að afla fjár til at-
vinnubóta að sínum hluta sam-
kvæmt ákvæðum fjárlaganna.
Og um lántökur í þessu slcyni
verður varla að ræða, eftir að
þeirri kvöð hefir verið létt af
ríkissjóði, „að gefa kost á“
slíkum lánum. Er það kunnara
en svo, að nánar þurfi að gera
grein fyrir þvi, hve erfiðlega
hefir gengið að fá slík lán með
aðstoð rikisstjórnarinnar, og
hvað mun þá verða án slíkrar
aðstoðar. ,
Til þess að reyna að bæta úr
þessu, bar Jakob Möller fram
þær breytingartillögur við þessi
ákvæði fjárlagafrumvarpsins,
að framlag rikissjóðs skyldi tvö-
faldað og feld niður skilyrðin
fyrir því, eða að látið yrði
nægja, að gera það að skilyrði,
að bæjar- og sveitarfélög legði
fram helming á móli ríkissjóði.
En hvernig tóku svo flokkar
og stjórn hinna vinnandi stétla
undir þessar lillögur?
Tillögurnar voru bornar und-
ir alkvæði í þrennu lagi. Fyrst
var borin upp tillagan um að
tvöfalda framlag ríkissjóðs til
atvinnubóta og greiddu social-
istar og framsóknarmenn allir
sem einn atkvæði á móti henni.
—- Á sömu leið fór um liinar
tillögurnar, sem miðuðu að því
einu að tryggja það, að bæjar-
og sveitarfélag gæti notfært sér
þá fjárveitingu, sem fjárlögin
i orði kveðnu ætla til atvinnu-
bóta. Allir sem einn greiddu
fulltrúar hinna vinnandi stétta
á Alþingi atkvæði gegn þessuin
tillögum.
Slík er þá, þegar á reynir,
umliyggja þessara fulltrúa fyr-
ir hag liinna atvinnulausu.
Kjötkvarnir.
Vöfflujárn,
Pönnur,
Gasvélar,
Steikarpottar,
Kökuform, allsk.
Búðingsmót,
Hnetubrjótar,
Ostaheflar,
Eggjaskerar,
Kökubox.
JÁRN V ÖRUDEILD
xes ZIMSEN.
Silfurrefaskinn
Tvö gullfalleg silfurrefasldnn
til sölu. Yandfundin kærkomn-
ari eða dýrmætari jólagjöf. —
Til sýnis á Skóvinnustofunni
Aðalstræti 12.
Frá Alþíngi
--o--
Þingið er nú að ljúka slörf-
um og verður þvi væntanlega
slitið í dag. — í gær var enginn
fundur í efri deild og i neðri
deild var ekki hægt að koma á
fundi fyrr en að loknum fund-
inum í sameinuðu þingi, þar
sem atkvæðagreiðslan um fjár-
lögin fór fram, en sú atkvæða-
greiðsla slóð yfir í ldst., eða
frá kl. 1—4 og 5y2—8. — Fund-
ur var settur í neðri deild kl. 5,
en svo að segja að eins til að
fresta honum til kl. 9y% um
kvöldið.
Á dagskrá neðri deildar á
þessum fundi voru þrjú þing-
mál; frv. uin síldarútvegsnefnd,
frv. um fólksflutninga með
bifreiðum (alkvæðagreiðsla) og
frv. um samkomudag Alþingis
árið 1935. — Lokið var um-
ræðum um fyrsta málið, en
atkvgr. frestað. Hin málin voru
tekin út af dagskrá. — Loka-
fundir i deildunum voru boðað-
ir í dag fyrir hádegi, en loka-
fundurinn í sameinðu þingi ld.
1 eftir hádegi.
—o—
Á fundi efri deildar í dag var
endanlega samþykt frumvarp
mn aldurshámark embættis-
manna og afgreitt sem lög, eins
og neðri deild liafði gengið frá
því.
Á fundi neðri deildar var
endanlega samþykt frumvarp
um skipulag á fólksflutningum
og afgreitt sem lög. Bæði þessi
frumvörp voru samþykt með
atkvæðum s tj ó r n a rf 1 o kk a n 11 a
gegn atkvæðum sjálfstæðis-
manna.
Oslo 21, des. — FB.
Samkvæmt símskeyti frá
Moskwa til Sjöfartstidende hermir,
að stjórnmálaleiðtogarnir og nú-
verandi stjórnarandstæðingar,
Sinovjev og Kamenev hafi verið
handteknir í Moskwa.
Moskwa 22. des. FB.
Opinberlega tilkynt, að Nikol-
ayev og þrettán áðrir, sem sakað-
ir eru um ‘samsæri gegn rikis-
stjórninni, hafi veriö aflientir her-
málastjórninni til þess að hafa í
haldi. Þeir eru og ákærðir fyrir
að hafa undirbúið Kirovmorðið.
Mál þeirra verður rannsakað og
dæmt af ríkisherréttinum. (IJnited
Press).
Mjög óljósar fregnir berast frá
Rússlandi um atburði þá, sem
spunnist hafa út af Kirov-morð-
inu. Það eitt virðist vera árei.Öan-
legt, að mjög margir hafa verið
tekiiir af lífi fyrir þátttöku í sam-
særinu gegn Kirov, en ýmsum sög-
um fér urri, hve margir það séu.
Flokksblaðið Pravda birtir árás á
Zinovieff og segir, að í flokki hans
sé upphafsmanna tilræðisins að
leita. (FtJ.).