Vísir - 06.02.1935, Qupperneq 4
VÍSIR
Kvennadeild
Slysavarnatélagsins
hefur bögglauppboð (til ágóða fyrir björguuarskútu) á Hótel
Borg, fimtudaginn 7. febr. 1935 kl. 8^2-
Meðlimir úr báðum deildum velkomnir með gesti, og gilda
skírteini félaganna sem aðgm. Sitt af liverju til skemtunar.
• BÖGGLANEFNDIN.
en þær eru atkvæðamiklar og vilja-
sterkar, jafningjar manna sinna,
eöa unnusta, kröfuharfiar en fórn-
fúsar. Trúfestin sjálf, en éinfærar
um að lifa lífi sínu, ef í harðbakka
slær. Voru s'itkar konur, sem'áttu
hverutveg'g'ja í senn þrótt og' þýð-
leik, nýjung' í norskuni bókment-
um. Ekki er fýrirmynd þeirra held-
ur langt undan landi; hun var eng-
in önnur eri Tómasína kória skálds-
ins, sern var rtkulega gædd vilja-
Jtreki og hjartahlýj'u, sjálfstæð en
samvinnufús, stoð og styrkur
manui sínum.
Framiv.
Lðgrefllninnrás
á leynifond
kommfinlsta
Berlín 6. febr. FÚ.
í fyrrakvetd gerði lögreglan í
Amsterdam innrás á leynilegan
fund kommúnista, og tók þar fasta
io þýska kofnmúnista, setn höfðu
ekki dvalarleyfi í Hollandi. Með-
al þeirra var einn fyrverandi
ríkisþingntaður. Af skjölum, sem
fundust hjá fundarmönnum, komst
lögreglan að því að nokkur hundr-
uð þýskra kommúnista muni nú
dvelja hjá flokksbræðrum sínum
í Hollandi, í leyfisleysi yfirvald-
anna. Var hafiti leit að þessutn
mönnum í gær, með þeim árangri,
að tólf í viðbót voru handsamað-
ir. Hollenska stjórnin hefir ekki
tekið ákvörðun um örlög flótta-
manna þessara. í gær fór þing-
maður úr hollenska kcfmmúnista-
flokknum á fund dótnsmálaráð-
herra og fór þess á leit, að þeir
yrðu ekki framseldir til Þýska-
lands.
Utr i af landi
4. ferúar. FÚ.
Frá Hornafirði.
í Hornafirði er nú verið að und-
irbúa vertíðina. — Vélbáturinn
Birkir sem annast flutninga austan
að kom j gær með 50 smálestir
af salti. Flaut hann alla leið að
bryggju útgerðarhússins á Höfn.
Þykir það benda ótvírætt á að til-
raunir þær, sem gerðar hafa ver-
ið í vetur til dýpkunar bátalegunni
inn á Irlöfn, hafi borið nokkurn
árangur.
Akureyri 5. febr. FÚ.
Starfsafmæli.
Söngsveitin Karlakór Akureyrar
.-átti nýlega 5 ára starfsafmæli og
BEATRICE PRINSESSA,
dóttir Alfons fyrrverandi Spánar-
konungs, og Alessandro Torlonia,
ítalskur prins. Þau voru gefin
satnan í Rómaborg fyrir skömmu.
mintist þess nteð samsæti. Stofn-
andi söngsveitarinnar og söng-
stjóri frá byrjun hefir verið As-
kell Snorrason. Félagar eru nú unt
40.
Siglufirði, 5. febr. — FB.
Sprengingin á Siglufirði.
Tjónið metið.
Skemdir á búsinu Aðalgötu
29 liér á Siglufirði, af völdum
sprengingar þeirrar er getið var
um í gær, bafa nú verið metnar
á 1850 kr. — Mati á vöru-
skemdum var ekki lokið er
þetta var símað.
Menn eru engu nær um hvað
valdið hafi sprengingunni. —
Sprengingin varð 10 mínútum
eftir að kveikt var upp i ofnin-
um og var maðurinn nýgenginn
út. Enginn grunur er um það að
sprengingin hafi orðið af
mannavöldum. ,
Út vappsf r*étti i*.
Þýski fyrv. krónprinsinn á við-
ræðufundi með Hitler.
London 5. febr. FÚ.
í dag fór Friedrich Wilhelm,
fyrrum krónprins Þýskalands, á
fund Hitlers, í fyrsta skifti síðan
Hitler tók við völdum, og áttu
þeir langar viðræður. Síðar var
tilkynt, að ekkert gæti orðið af
fundi sem Hitler var búinn að á-
kveða með Múller ríkisbiskupi.
Aftur á móti kallaði Hitler von
Neurath utanríkisráðherra á fund
sinn, og töluðust þeir lengi við.
Þeir kornu sér saman um spurn-
ingar, setn leggja skyldi fyrir
Breta og Frakka út af Lundúna-
samþyktunum.
London 5. febr. FÚ.
Slys.
Þriðja slysið á þrent vikutn varð
í mynni Humberárinnar í dag.
Bátur rakst á bauju, og brotnaði
syo að hann sökk eftir nokkrar
mínútur. Bátverjar, þrír að tölu,
köstuðu sér í sjóinn, og hengu í
bjarghringum, uns annar bátur
kotn þar að og bjargaði þeim.
Slys þetta vildi til örskamt þaðatt,
sem togarinn Edgar Wallace sökk
og dráttarbátur fórst skömrriu síð-
ar.
Inflúensufaraldur.
Influerisufaraldur, mjög skæður,
hefir stungið sér niður í Frakk-
landi, og er skólum víða lokað.
Mest hefir borið á inflúensunni í
setuliðinu, og hafa 32 hermenn
þegar dáið úr henni. Strangar sótt-
varnarreglur hafa verið settar til
þess að koma í veg fyrir útbreiðslu
veikinnar.
Útifundir bannaðir í París.
Berlín 6. febr. FÚ.
Ráðherrafundur í París í gær
staðfesti bann það, sem áður hafði
verið ákveðið, gegn því, að háldn-
ir yrðu útifundir í dag, en nokkrir
pólitískir flokkar höfðu boðað til
slíkra funda til minningar um ó-
eirðirnar í París 6. febrúar í fyrra.
í Notre Dame kirkjunni í París
verður haldin hátíðarguðsþjónusta
í dag til minningar um þá, sem
féllu í óeirðunum, og mun Fland-
in forsætisráðherrá verða þar við-
staddur.
Líflátsdómar.
Berlín 6. febr. FÚ.
í Leningrad féll í gær dómur
yfir 19 járnbrautarræningjum,
sem höfðu alls 13 morð á samvisk-
unni. Þrír þeirra voru dærndir til
lífláts, og var líflátsdómnum þá
þegar fullnægt. Hinir voru dæmd-
ir í hegningarhússvistir frá tveim-
ur til tíu ára.
Frv. um ríkisrekstur banka felt.
Berlin 6. febr. FÚ.
Neðri málstofa þingsins í Cana-
da hefir felt frumvarpið um ríkis-
rekstur banka.
Gjaldeyrismálin í Saar.
Saarbrucken, 5. febr. FB.
Tilskipun liefir verið birt
við vík j andi gj aldmiðilsmálun-
um í Saar, aðallega um það
bvaða tilhögun verði viðhöfð,
er skift verður um gjaldmiðil í
héraðinu, þ. e. ríkismörk tekin i
notkun sem gjaldmiðill í stað
frakkneskra franka. Tiskipun
þessi gengur í gildi þ. 18. febrú-
ar. Samkvæmt henni verður
bannað um stundarsakir að
senda peninga út úr héraðinu,
nema með nokkurum undan-
tekningum. Einnig verður bann-
að, um stundarsakir, að senda
fé til greiðslu á skuldum, nema
lil Þýskalands. Þessar ráðstaf-
anir verða að eins í gildi meðan
verið er að koma breytingunní
á. — Samkvæmt samkomulag-
inu í Róm hefir verið ákveðíð,
segir í tilskipuninni, að innkalla
írakkneska gjaldmíðilinn í
Saar og fá menn þýskan gjald-
miðil i staðinn, með gengi, sem
Ríkisbankinn ákveður. (United
Press).
K.F.U. M.
A—D. fundur kl. Sþt annað
kveld. F’ramkvæmdarstjórinn
talar. Allir karlmenn velkomn-
ir.
&ilCJSNÆf)li
Herbergi og rúm, best og
ódýrust á Hverfisgötu 32. (100
Herbergi til leigu, Baldurs-
gölu 15, uppi. Uppl. ef tir kl. 7.
(104
Vantar . nýtísku ibúð 3—4
stórar stofur og stúlknaberbergi
14. maí næstkomandi. Fátt í
lieimili. Fyrirfram greiðsla. —
Tilboð merkt: „Sólríkt“ sendisr
afgr. Vísis fyrir næstkomandi
sunnudag. (99
2 herbergi og eldhús óskast.
Tilboö merkt: „5“ sendist Vísi.
(79'
Maður i gððri stöðu vill fá
þriggja herbergja nýtísku íbúð
14. mai. Þrent fullorðið í heim-
ili. Tilboð, merkt: „57“, með
rissi af herbergjum, dyrum.
Sendist afgr. Vísis fyrir fimtu-
dagskveld. , (98
2 herbergi og eldhús, aðgang-
ur að baði. A. v. á. (98
2—3 samliggjandi herbergi
óskast til leigu sem fyrst, í eða
sem næst miðbænum. Tilboð,
merkt: „2—3 herbergi", leggist
inn á afgreiðslu Vísis fyrir
laugardagskveld (9. þ. m.). (93
Herbergi með ljósi og hita til
leigu nú þegar á Laugavegi 15.
Sími 2833. Leiga kr. 30.00.
(113
Lítíð herbergi óskast. Uppk i
síma 2103. (114
lumruNDif)!
Skíðasleðí, marg-brenni-
merktur: „H. Th., tapaðist i
gær frá Barónsstíg 49. Sá, sem
gefur upplýsíngar um, eða
finnur sleðann tilkynni það í
síma 4665, gegn ómakslaunum
, (109
Skíðasleði hefir tapast, merkt-
ur: „E“. Vinsamlega skilisl á
Túngötu 2. (108
Á laugardaginn var, datt bíl-
yfirbreiðsla af bíl á móts við
Lögreglustöðina. Fínnandi beð-
inn að skila henni á Vörubíla-
stöðina, gegn fundarlaunum.
(107
Tapast liefir veskí með Iykl-
um. Skilist Brávallagötu 26. —
Fundarlaun. , (104
(TILK/NNINCAKl
St. DRÖFN nr. 55 heldur fund á
—morgun, fimtudag, kl. 8x/>. —
Innsetnfng embættismanna.
Fjölmennið. — Æ. t.
Bílskúr óskast á Ieigu. —
Sfmi 2496. (110
3 lcjallaraherbergi á suður-
hlið, til leigu, fyrir léttan iðn-
rekstur eða geymslu. Herbergin
eru blý og rakalaus. Magnús
Matthíasson, Túngötu 5. Simar
1228 og 3532. (94
KKAiPSKAPiRl
Reykjavíkur elsta kemiska
fatahreinsunar- og viðgerðar-
verkstæði breytir öllum fötum
Gúmmíkápur límdar. Buxur
pressaðar fyrir eina krónu. Föt
pressuð fyrir 3 kr. Föt kemiskt
hreinsuð og pressuð á 7 kr.
Pressunarvélar eru ekki notað-
ar. Komið til fagmaimsins Ry-
delsborg klæðskera. Laufásvegi
25. Simi 3510. (111
Vörubíll óskast til kaups, tek-
ið sé fram kaupverð, aldur og
gcrð. Tilboð auðkent: „Vöru-
bill“ leggist inn á afgr. Vísis,
fyrir 12 á hádegi á fimtudag.
(106
Nokkur ný og vönduð eíkar-
skrifborð til sölu á 125 kr. með
góðum greiðsuskilmálum. —
Uppl. Njálsgötu 78. (105
2 stór alifugla hús, sambygð,
en má aðskilja hvort frá öðru,
til sölu. Húsin eru stoppuð og
vel frá gengin, geta selst hvort í
sínu lagi. Sími 4592. (103
Notuð, stigin saumavél til
sölu. Einnig peysufatasial og
stokkabelti. Uppl. Hverfisg. 41,
niðri. (97
Ný og notuð húsgögn til sölu,
gömul keypt upp í viðskifti. —
Sími 2896. (46
Kjötfars, fiskfars lieimatilbú-
ið, fæst daglega á Fríkirkjuvegi
3. Sími 3227. — Sent heim. (506
HvinnaH
Nolckura sjómenn og land-
menn vantar suður með sjó.. —
Upplýsingar á Kaffihúsinu
Aldan, Traðarkotssundi 2,. frá
ld. 6—8 í kvöld. (112
Stúlka óskast i vist til Siglu-
fjarðar. Uppl. hjá Guðbjörgi:
Þorvalds, Bræðraborgarstig: 16
(102
Karlmaður óskast á heimili
í grend við bæinn um vikutíma.
Uppl. i sima 3572. (95
Tek að mér aS sauma í húsum.
Uppl. í síma 4846. (78
Stúlka óskast á gott heimili.
Hált kaup. Uppl. Veltusundi 1,
III. hæð. (82
FÉLAGSPRENTSMIÐJ AN
ÁSTIR OG lausung. 42
yfirlæti. — — „Þau vekja á sér athygli og
gleymast ekki — það er mér óhætt að segja.1
Carjd féllust hendur augnablik. Hann sat
grafkyr með annan slcóinn sinn í höndunum.
Hann starði fram undan sér, eins og hann væri
i hálfgerðri leiðslu — eins og liann horfði á alt
og ekkert. — Hann sá alt meginland álfunnar
fyrir sér — sléttur og bændabýli, skógi vaxin
hæðadrög og brosandi fjallaþorp. Hann sá blá-
fjallaraðir lengst í norðri og snævi þakta tinda
Alpafjallanna. Og liann sá enn lengra — alt
norður í Svíþjóð liina köldu. Þangað hafði hann
langað öllum sumrum — alla leið norður að
hafi, þar sern næturgalinn syngur. Hann sá
þetta alt, þar sem hann sat þarna með skóinn í
höndunum, og hann heyrði nýja söngva. —
Það var ef til vill söngur farfuglanna, er þeir
flugu til fjarlægra landa. — — Hann heyrði
lögin, sem lýðurinn i Feneyjum skemti sér við
og raulaði árla dags og síðla. — Og þessi fögru
lög bárust mann frá manni og land úr landi.
-—• Þau voru sungin á sléttum Ítalíu — i Alpa-
bygðunum — í Skógum Þýskalands — á slétt-
um og heiðum Rússlands — við mánabjart haf
Svíþjóðar hinnar köldu. — Allir sungu lögin,
fátækir jafnt sem ríkir — stássmeyjar og ferða-
menn, hjarðsveinar, miljónamæringar, náma-
menn, smiðir, iðjuleysingjar og flækingar. —
Allir sungu hin fögru, heillandi lög. — En mitt
i allri söngvadýrðinni sá hann fjóra pílagríma
með asna í taumi — Sebastian, Gemmu, barnið
og sjálfan sig. •— — Pilagrímarnir fóru liægl
og gætilega og stefndu í norðurátt.-------En
nýir söngvar fæddust, einn af öðrum. Þeir
flugu leið sína og yljuðu öllum Iieimi.
10. kapítuli.
Fenella lokaði augunum þegar hún sá Benito-
veitingahúsið lijá Adlersee, og varð enn þá
liryggari en liún hafði áður verið. -— Henni leist.
svo á þetta veitingahús, að það mundi vera
enn þá verra og leiðinlegra en nokkur vatns-
lækningastofnun á Skotlandi. — Hún hafði ekki
búist við þvi svona auvirðilegu og væri þó synd
að segja, að hún hefði gert sér glæsilegar hug-
myndir um það. — Hún hafði rótgróna and-
stygð á öllum veitingahúsum og því var það,
að liún hafði fengið foreldra sína til þess að
taka Palazzo Neroni á leigu. — Blómin i borð-
salnum voru henni til mikils ama. Þarna voru
kynstur af vanbirtum blómum á hverju borði.
Það var nálega óþolandi. — Og svo þurfti mað-
ur að ganga gegn um skrifstofu umsjónar-
mannsins, til þess að komast út úr þessu greni!
Hvílíkur viðbjóður! — Smáknæpurnar voru
miklu betri. Þar var engin smekklaus viðhöfn.
Þar gat maður fengið brauð og smjör og ost
og annað sem mann langaði í. Og þar voru
engir óhreinir dúkar á borðunum. Þar voru alls
engir dúkar og það var miklu betra. — Það gat
viljað til, að á slíkum stöðum væri hjólhestur
húsráðandans látinn standa í baðkorinu, en
hvað gerði það til, — Þá var ekki annað en að
fara alls ekkí í bað. Og eins og það væri ekki
hægðarleikur, að fá sér vatn í skál og þvo sér
um andlit og hendur! — En þessliáttar smá-
staðir voru náttúrlega allsendis óboðlegir há-
æruverðugum föður með magnaða liðagigt!
„Mig minnir ekki betur en að þið segðuð
mér, að þetta væri bara sumarbústaður — eða
„sumarslot“, eins og mamma nefndi það.“
Hún var óánægð og hrygg og langaði til þess
að hafa alt á hornum sér.
Frú McClean tólc til máls þegar í stað og
benti dóttur sinni á alla hina miklu fegurð, sem
þarna blasti við. Hvort hún sæi ekki þetta
guðdómlega vatn þarna rétt hjá. Og þarna væri
eins og himnesk smáeyja skamt frá landi. Það
mundi verða yndislegt að fá sér bað hérna. Alt
svo einstaklega fullkomið og þægilegt. — Já,
það mætti nú segja, að þetta væri elskulegur
staður.
„Eg sé ekkert fallegt eða merkilegt hér,“
svaraði Fenella og var hin önugasta.
Og það var svo sem ekkert þarna að sjá.
Benito-veitingahúsið speglaði sig að vísu í vatn-
inu eða tjörninni öllu lieldur. Og fjall-lendið
að baki húsunum var einna líkast því, að stjórn
veitingahússins hefði ráðið gerð þeirra og þá
vitanlega látið eigin smekk sitja í fyrirrúmi.
Stjórn veitingahússins hafði séð fyrir öllum
þægindum — því var ekki að leyna. — Og hún
liafði gert það með lieiðri og sóma að því leyti,
að hún hafði engu gleymt, þvi er venjulegir
gestir óska eftir. — Þarna voru „goIf“-brautir
og „tennis“-vellir. -— Og að baki veitingahús-
inu sjálfu voru súlnagöng, sem mörgum þótti
mikið til koma. Þarna voru verslunarbúðir:
súkkulaðibúð, töskuverslun, blómabúð. Þar var
og dálítil lyfjabúð, ljósmyndastofa, snjTtistofa,
pósthús, bókabúð. Og enn var þar verslunar-
útibú, sem hafði á boðstólum flest eða alt, sem
fjallgöngumenn þurfa á að Iialda. — Var hið
besla íyrir þvi séo, að gestir þyrfti elcki að
ómaka sig iil Cortina, til þess að eyða pening-
um sinuin, nema þvi að eins, að þá langaði til
að kaupa hljómleika-flygil eða annað þess hátt-
ar. — Blómin á matborðunum voru af dýrustu
tegund en illa hirt. Lyftudrengirnir vom for-
vitnir, frekir og leiðinlegir, siþefandi og snuðr-
andi, þó að bundnir væri á sínum bás að vísu.
Fenellu leið illa. Og hún var beinlínis hingað
komin til þess að vera sorgbitin! — En svo
þurfti andrúmsloftið og alt annað i þessu and-
styggilega veitingahúsi að vera með þeim hætti,
að ómögulegt var að rækjá sorg sína, svo að
noklcur mynd væri á! — Benito-veitingaliúsið
kæfði liana til liálfs í öllu tildrinu, liégóma-
skapnum og draslinu! — Fenella var alt af að
reka sig á leiðindin, sem stöfuðu frá þessari
vistarveru. Og þau ergðu hana svo, að hún
hafði ekki tóm til þess, að liugsa um hina fögru
og djúpu sorg hjartans. Og smám saman sner-
ist sorgin i ergelsi. —
Hún hafði verið föl yfirlitum og tekin lil
augnanna, er hún kom til Adlersee. Að þrem