Vísir - 13.03.1935, Blaðsíða 3

Vísir - 13.03.1935, Blaðsíða 3
VlSIR Stðrt frakkneskt seglskip ^~325ss£sas3iBr«»»ír '^í!S3fS«íJs;;?'^3s^?srr'^.' '^3£S^nm».. •■aryr' v.'iV.. - -á»i. r«rrTi-w——» strandar á MeðallandsfjOrn. Flestir skipsmanna bjargast á land mjög hraktir. Af 29 manna áhöfn fórust 5. Flestat þjóöir heims ætla a'ð taka þátt í heimssýningunni, feem haldin verður i Brussel, höfuðborg Belgiu, i sumar. Danir taka þátt í þessari sýningu og ætla sér að leggja mikla áherslu á, að sýning- HEIMSSÝNINGIN í BRUSSEI argestir fái sem glegsta hugmynd um viöskifta-, fjárhags- og félags- Hf í Danmörku. Töflur þær og tölur, sem sjást hér á myndinni, eru m. a. notaðar í þessu skyni, og sýna hve rnikill hluti dönsku þjóðarinnar vinnur í hinum ýmsu atvinnugreinum, frávinstri: Ymsar atvinnugr. 5,8%, við flutninga o. íi. 7,i%, landbúnað 30%, í iðnað- inum 29%, við verslun 7,8%, heimaiðnað 7,8%, atvinnulausir 9.5 %>• 12. mars. FÚ. Frá Vík í Mýrdal símar fréttaritari útvarpsins i dag : Talið er að skip muni hafa strandað á Meðallandi en fregnir eru mjög óljósar. — Fjórir útlend- ingar komu i dag heim að Fljót- um, sem er bær austarlega í Me'ð- allandi. Ekki hefir mál þeirra skilist, og hefir þvi engin vitneskja fengist hjá þeim. Leit var hafin og fanst fljótlega einn maður á melunum sunnan bygðarinnar. Talið er að mönnum þessum líði sæmilega. Ekki er frétt nánar um árangur leitarinnar en margir menn leita. Skygni var vont og mikil rigning og foráttubrim me'ð allri ströndinni. Vík i Mýrdal, klukkan 20. Leitarmennirnir eru nú komnir til bæja og fundu 19 skipsbrots- menn lifandi frarn við fjöru og tvö lílc sjórekin. Surnir skipsbrotmenn eru mjög klæðlitlir og þrekaðir, og hafa þeir nú allir verið fluttir heirn að Fljótum og dvelja þar í nótt. Strandaða skipið er einnig fundið á Slýjafjörum og er þrí- mastrað seglskip. Engar upplýs- ingar eru fengnar um það enn, hverrar þjóðar skipið er, en hrepp- Föstuguðsþjónusta í frikirkjunni í kveld kl. 8%, síra Árni Sigurðsson. Veðrið í morgun: Hiti um land alt. í Reykjavík 3 stig, Bolungarvík 1, Akureyri 2, Skálanesi 6, Vestmannaeyjiun 2, Sandi 1, Kvígindisdal o, Hesteyri o, Gjögri 2, Blönduósi 2, Siglunesi 2, Grílnsey 2, Raufarhöfn 2, Skál- um 5, Fagradal 8, Papey 4, Hólum í Hornafirði 6, Fagurhólsmýri 6, J’teykjanesi 3, Færeyjum 5. Mestur liiti hér í gær 10 stig, minstur 3. Úrkoma 8,3 mm. Yfirlit: Grunn lægð við suðurströnd íslands og önnur yfir Norður-Grænlandi. Há- þrýstisvæði um Bretland og Nor- eg. — Horfur: Suðvesturland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirð- ir, Norðurland: Breytileg átt og hægviðri. Dálítil úrkoma. Norð- austurland: Hæg suðvestan átt. Víöast úrkomulaust. Austfirðir, suðausturland : Hæg sunnan átt og rigning i dag, en breytileg átt og úrkomulítið í nótt. Landsmálafélagið Vörður heldur fund í Varðarhúsinu annað kveld kl. «8j%. Allir sjálf- stæðismenn velkomnir. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína Guðrún Þorkelsdóttir frá Valdastöðum i Ivjós og Jón Þór- arinsson, bátsmaður. Frakkneskur ræðismaður, Auvynet að nafni, lrom hingað á Dettifossi síðast, og gegnir ræð- ismannsstörfum hér um stundar- sakir. Hann hefir gegnt vararæð- ismannstörfum í Liverpool að undanförnu. því var þa'ð ekki lagt út „Rauna- saga Nönnu“ frekar cn „Nanna“, sem ekkert segir nianni. G. J. stjóra hefir skilist svo að áhöfn skipsins hafi verið 30 manns. —o— Vísir átti i morgun tal við Vik í Mýrdal um strand þetta. Kvað heimildarmaður bla'ðsins talið víst, að skipið væri frakkneskt og frá Gravelines. Eftir því sem menn hafa komist næst voru 29 menn á skipinu, en þar af munu 5 hafa farist. Tvö lík liafa fulidist. Skip- brotsmennirnir eru nú á Sy'ðri- Fljótum. Þanga komust 4 skips- manna í gærmorgun og gátu með bendingum komið fólkinu í skiln- ing um, að skipi þeirra lief'ði strandað. Var þá safnað liöi og fundu leitarmenn brátt einn skip- verja, sem mun hafa farið á eftir hinum fjórum. Á strandsta'ðnum fundust 19 menn. Allur þessi hóp- ur er nú á Sy'öri-Fljótum og þeim hjúkrað þar og að þeim hlynt eft- ir föngum. Voru skipbrotsmenn kaldir og hraktir og lítt búnir a'ð klæðum. Voru sumir þeirra alveg að fram komnir. Um heiti skipsins er mönnum enn ókunnugt, því að enginn hefir enn haft tal af þeim, sem skilur mál þeirra. Veður var hið versta við sandana í gær og brimrót mikið. Nánari fregna af strandinu er ef til vill að vænta í lcveld. Leilrkvöld Mentaskólans. í kveld kl. 8% stundvíslega hefja Mentskólanemendur sýningu á gamanleiknum Henrik og Pern- illu. Aðgöngumiðar verða seldir í Iðnó til kl. 8 í kveld eða jafnvel þar til er leikurinn héfst. Skóla- kórinn syngur nokkur lög á undan leiksýningunni. Síldarútgerðarmenn víðsvegar að af landinu, Iiafa haldið fundi hér í bænum að und- anförnu, til þess að ræða stofnun matjessíldarsamlags, er starfaði í sambandi við nýju síldarútflutn- ingsnefndina. Tveir fundir voru haldnir og á fyrri fundinum voru þessir mcnn kosnir í nefnd til þess að reyna að jafna ágreining þann, sem orðið hefir út af stofnun mat- jessíldarsamlags: Hafsteinn Berg- þórsson, Jón Arnesen, Óskar Jóns- son, Ásgeir Bjarnason, Finnur Jónsson. — Meiri hluti nefndar- innar vildi stofna nýtt matjessild- arsamlag, en minni hlutinn (Ás- geir Bjarnason), að síldarútgerð- armenn héldi sig að samlaginu, sem stofnað var á Akureyri. Til- lögur meiri hluta nefndarinnár voru feldar með 70:62 atkvæðum á fundi,.sem haldinn var í gær. Fiskmarkaðurinn í Póllandi. Innflutningsleyfi hefir nú feng- ist í, Póllandi fyrir 200 smálestum af hraðfrystunm fislci. Verður fiskurinn frystur í Sænsk-íslenska frystihúsinu og mun m.s. Steadv eiga að flytja hann til Gdynia. Jó- hanri Jósefsson alþm. hafði með höndum athugun markaðsmögu- leika í Mið-Evrópu í vetur, að beiðni ríkisstjórnarinnar. Það er íyrst og fremst árangur af starfi Jóhanns Jósefssonar, að framan- nefnt innflutningsleyfi hefir feng- ist. Skip Eimskipafélagsins. Gullfoss er i káupmannahöfn. Goðafoss fór liéðan i gærkveldi á- Ieiðis til útlanda með viðkomu í Keflavík og Vestmannaeyjum. — Dqttifoss fer héðan annað kveld áleiðis vestur og norður. Brúarfoss ér í London. Selfoss er hér. Lag- arfoss var á Siglufirði í gærkveldi. Leikhúsið. —o— John Masefield: Nanna. Þýð- andi: Bogi Ólafsson. Leik- stjóri Gunnar Hansen. Eg býst við því, að það þyki ekki efnilegt til afspurnar, að ma'ð- ur, sem ætlar að dæma um leik, byrj^ á því að lýsa því yfir,, að liann viti ekki hvað höf. sé að fara með leikritinu. Það verður þó ?.ð segja sannleikann um það eins og hann er, að sá, sem þetta rit- ar hefir ekki geta'ð áttað sig á því. Það kann að þykja vera held- ur kotroskið, að sá hinn sami láti sér detta í hug, a'ð þetta geti staf- að af öðru en skilningsleysi lians sjálfs, úr því höf. er sjálft lárvið- arskáld Breta. Það kynni enn að þykja, að ekki sæmi, að smásíli hér norður á hala veraldar fari að gretta sig yfir verkum stórlax- anna hjá stóru þjóðunum. En eg ætla þó að gera grein fyrir því, hvað veklur, að eg get ekki fund- ið, hvað þa'ð er, sem fyrir höf. vakir. Uppistaðan í leikritinu, sem gerist á Englandi í byrjun aldar- innar, sem leið, er sú, að stúlka missir forejdra sína, og andast faðir hennar á þann hátt, að hann er hengdur fyrir að hafa stolið kind. Hún lendir síðan á heimili móðurbróður síns, og er þar, enda þótt móðurbróðir, hennar, að því er virðist, reyni að halda verndar- hendi yfir henni, farið afskaplega illa með hana af konu hans, sem er ein hin viðbjóðslegasta norn, er reynir að vera þver og öfug við alla á alla lund, og er hún altaf að brýna stúlkuna á því, að faðir hennar hafi verið hengdur þjófur. Allir, sem frétta þetta, snúa við henni bakinu, þar með unnusti hennar — innantómur gaur, sem talar eins og léleg ásta-neðanmáls- saga. Sí'ðar kemst upp að faðir herinar hefir verið ranglega dæmd- ur, og ætlar þá unnustinn að taka hana aftur vegna peninganna, sem hún fær í skaðabætur fyrir líílát föður sins. Nú er þó alt um sein- an, því að skap og skilningur stúlkunnar hefir mótast af því, sem á undan geldc, og sam- ræmið milli liins almenna hugs- unarháttar og hinnar grimmu har'ðýðgi laganna gerir henni líf- i'ð svo óbærilcgt að hún fyrirfer sjálfri sér, en gerir áður dóttur móðurbróður síns ge'ðveika, með ógnunum, vegna þess að hún hirti unnustann hennar, og fyrirfer unn- usta sínum fyrverandi til þess að bjarga ö'ðrum konum undan hon- um. Svo langt virðist manni leik- ritið og tilgangur þess vera skilj- anlegur, — að það sé ádeila á harðýðgi laga og réttarmeðvitund- ar manna á Englandi í byrjun ald- arinnar, sem leið, enda þótt manni j>yki sú ádeila full seint á ferðinni. Inn í þessa umgerð fellur alt fólk- iö í leiknum, sem eru harðú'ðugar smásálir og innantómir ræflar, en þar eru aðalpersónurnar tvær, Nanna og Gaffer Pearce, háífrugl- aður fiðluleikari, fullkomnar und- antekningar. Alt fólkið talar hinu slétta máli eðlilegs stíls, en þess- ar tvær persónur eru í hálfgerð- um opinberunarbókarstíl og tala í háfleygum og dularfullum spá- manna- og heimspekingatón, eitt- hvað í áttina við Nietzsche eða aðra meira og minna dulmála spekinga. Þessi mótsetning er svo greinileg, að hið háfleyga tal dreg- ur að sér alla athyglina, og manni verður á að hugsa, að þar sé fal- inn aðalkjarninn i leiknum, og það því frekar sem ádeilan kemur eftir dúk og disk og að ef hún væri aðalatriðið mundu þessar persón- úr og þeirra tal flækjast fyrir henni og þyrla upp um hana moð- revk. Það bætir og ekki úr skák fyrir skilningi þess, sem þetta rit- ar, að hann skilur ekki baun í því rósa- og gullkorna máli, sem þess- ar persónur tala, þegar þær eru fjærstar mannabygðum. Sé leikrit- ið ádeila, virðast þessar persónur rangbygðar, en sé fólgin æðri til- gangur í hinu háfleyga tali þessa fólks, þá virðist það hafa orðið of háfleygt, að minsta kosti fyrir þann, sem þetta ritar. Leikurinn er þrátt fyrir þetta „spennandi“ sem kallað er, og er í honum eðlilegur stígandi þar til útaf flóir í 3. þætti, því að þar eru, ef svo mætti segja, sprengdar svo margar púðurkerl- ingar í einu, að Edgar Wallace og aðrir hans líkar gera ekki betur; þar er einn geðveikur maður, ein stúlka bilar á sönsum, einn maður er stunginn til bana og stúlka fyr- irfer sér. Að endingu skal þess getið, að sá er þetta ritar þekkir ekkert eftir Masefield nema þetta leikrit, en honum er kunnugt um, að það eru almennt fjarska skiftar skoðanir um ágæti hans. Sumir hefja hann til skýjanna, en aðrir virði. Um framistöðu leikendanna er í heild sinni ekki nema alt; hið besta að segja, enda þótt ekki sé alt jafngott. Ungfrú Arndís Björnsdóttir leikur Nönnu með þeim hætti, að eg held að sjaldan hafi sést jafnágætur tragiskur leikui’i hér á sviöi. Leikur ungfrú- arinnar er ekki viltur, heldur menningarfágaður, og af því að hann er menningarfágaður er hann sterkur og trúlegur. Þá er svipur ungfrúarinnar, fas og útlit yndis- íagurt — ytri fegurð mörkuð af íegurð sálarinnar — limaburðir og hreyfingar er liþurt og tígulega eðlilegt, en framsögninni skeikar hvergi og er tilgerðarlaus og frjáls. Ungfrú Arndís er óefaö frá- bærum gáfum gædd, Brynjólfur Jóhannesson leikur Gafíer Pearce, íiðluleikarann sturlaða með marg- vísri leikni, en hann talar full- mikið út um nefið, og lýtir það nokkuð annars ágæta meðferð. Frú Martha Indriðadóttir er ágæt í hlútverki ílskunornarinnar frú Pargetter; það er altaf sami blóð- ríki styrkurinn vfir leik hennar, og hún gerir alt vel á síriu sviði, en það er auðvitað einhæft. Indriði Waage leikur Dick Gurvil, unn- usta þeirra Jenny og Nönnu, ein- staklega leiðinlegt hlutverk og vanþakklátt af áhorfendum, og gerir það mjög vel, en maður finn- ur samt, að hann vantar sjálfan samúð með hlutverkinu. Lárus Ingólfsson leikur líti'ð kímnihlut- verk^ prestinn síra Drew, af á- gætri en græskulausri gainansemi; Ingólfur virðist vera ágætum gáf- um gæddur til slíks. Valur Gísla- son, sem annars ekki missir marks, nær ekki því út úr hlutverki sínu, Pargetter bónda, sem þar er. Par- getter er að vísu sami naglinn eins og fólkið, sem er í kringum hann, en það eru í honum taug- ar, hann vill til dæmis ekki lofa kerlingunni sinni að hrekja Nönnu af heimilinu og þar fram eftir göt- unum. En ílt og gott er í sífeldri baráttu innan í honum og þvælist stöðugt hvað íyrir öðru, en þessi barátta sést ekki í meðferð Vals, heldur skiftist þar gott og ilt á með harðdregnum mörkum milli. Valúr virðist ekki hafa tekið eftir því, að Pargetter er, ef svo mætti segja, brú milli Pearce og Nönnu annars vegar og hins fólksinS hins vegar. Frú Magnea Sigurðsson fer þokkalega með hlutverk Jennyar, en önnur hlutverk og meðferö þeirra skiftir svo til engu máli. Leikstjórnin virðist hafa verið ágæt, en um lögin, sem leikstjór- inn hefir samið skal cg ekki dæma, vegna þess, að þau voru leikin að tjaldabaki. Þýðing Boga Ólafssonar viröist ágæt, ef rá'ða má af því hve setn- ingarnar eru munnfeldar og lipr- ar, og stendur hún að þvi leyti framar flestum leikþýðingum vor- um. Það eina, sem mér þykir áð, er heiti leiksins. Hann heitir á cnsku „The tragedy of Nan“, en I telja ritverk hans ekki túskildings- | því eg er ekki söngvinn, en liitt er víst, að þau heyrðust herfilega illa Farþegar á Goðafossi til útlanda: Sveinn Sigurðsson, Jóhann Skaftason, Gunnar Ólafs- son, Einar Storr, Kristján Alberts- son, Fríða Jónsson, Gy'ða Sveins- dóttir, Ebenezer Guðm. Ólafsson og nokkrir þýskir sjpmenn. Gengið í dag. Sterlingspund ...... Dollar.............. 100 ríkismörk ...... — franskir frankar — belgur.......... — svissn. frankar . — lírur .......... — finsk rnörk .... — pesetar ........ — gyllini......... — tékkósl. krónur . — sænskar krónur . — norskar krónur . — danskar krónur . kr. 22.15 — 4.66)4 — 184.91 — 31-05 — iiog.fSi — 15243 — 39-<5o — 9-93 — 64.92 — 318.01 — 19.98 — 11436 — 111.44 — 100.00 Gullverð ísl. krónu er nú 47,to, miðað við frakkneskan franka. Bakarasveinafélag íslands helclur aðalfund sinn n. k. sunnudag kl. 4 e. h. i Baðstofu iðnaðarmanna. Sýningu á. framleiðslu sinni hefir Prent- smiðja Ágústs Sigurðssonar, Aust- urstræti, þessa dagana í sýningar- glugganum í Hressingarskálanum við Austurstræti. Er smekklega frá sýningunni gengið og geta menn séð þar sýnishorn af allskon- ar prentun, sem unnin er í þess- ari prentsmiðju, en hún leggur eingöngu stund á allskonar smá- prentun, svo sem bréfhausaprent- un, bréfspjalda, auglýsinga o. fl. þess konar. — Prentsmiðja þessi hefir verið starírækt hér í bæ um langt skeið og er bæði hún og eig- andi hennar að góðu kunn. Gamla Bíó sýndi i fyrsta skifti í gærkveldi kvikmyndina „Kristín - Svíadrotn- ing“. Styðst kvikmynd þessi við sannsögulega viðburði. Sagan hefst 1632. Svíar höfðu unni'ð glæsilega sigra í þrjátíu ára stríð- inu, en konungur þeirra, Gustav Adolf, féll í orustunni við Lútzen. Varð þá dóttir hans, Kristín (Christina) drotning, og var hún þá aðeins sex ára, en Oxenstiema tók við stjómartaumunum. Fjallar kvikmyndin því næst um sögu hennar, ástir og raunir. — Kvik- myndin er gerð af Metro-Goldwyn- Mayer kvikmyndafélaginu og hefir þótt mikið til hennar koma, eink- anlega vegna frábærs leiks Gretu Garbo, sem leikur drotninguna. —• Ýmsir aðrir ágætir leikarar hafa hlutverk með höndum í myndinni, svo sem John Gilbert, Lewis Stone,. Jan Keith, David Torrence o. fl. 4- Farsóttatilfelli á öllu landinu í febrúarmánuði síðastliðnum voru 2616 talsins, þar af í Reykjavík 1537, Suðurlandi 444,‘ Vesturlandi 116, Nórðurlandi 373 og Austurlandi 146. Kvefsótt- artilfellin voru langsamlega flest cða 1254 (764 í Rvik), þar næst kverkabólgutilfellin eða 971 (í Rvik 597) Q- s. frv. Inflúensutil- felli vora 27 í mánuðinum, þar af 21 í Reykjavík og 6 á Austurlandi. Skarlatssóttartilfelli voru 12, þar af 10 í Reykjavík, 1 á Suðurlandi og 1 á Vesturlandi. Engin misl- inga-, kikhósta- eða hettusóttar- tilfelli. Barnaveikistilfelli voru 2, bæði i Reykjavík. (Landlæknis- skrifstofan). — FB. Útvarpjð í kvöld: 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfr. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Erindi: Spartakus og þrælaupp- reistin rómverska, II (Einar 01- gcirsson). 21,00 Tónleikar: a) Fiðlusóló (Þórarinn Guðmunds- son); b) Hugo Wolf-tónleikar (75 ara afmæli): 1. Einsöngur (Sigurður Markan) ; 2. Hljómplöt- ur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.