Vísir - 23.06.1935, Blaðsíða 4

Vísir - 23.06.1935, Blaðsíða 4
VlSIR Flotamála- umræður. Ganga Þjóðverjar á ný í Þjóða- bandalagið ? London í gær. F(J. Ensk-þýskn flotamálaumræðun- um í Londott er nú loki'ð. Von Ribbentrop fer heimleiðis til Ber- lín á morguti. Hann gekk á fund Sir Samuel Hoare utanríkismála- ráðherra í dag og ræddu þeir fram og aftur um málin. Talið er, að rætt hafi verið með- al annars um mögmleika þess, að Þjóðverjar gatigi aftur i Þjóða- bandalagið og munu þeir nú ekki vera því fráhverfir. Viðræðum Lavals og Anthony Eden lokið í bili. Fór vel á með jþeim. Urgur í frönskum blöðum. Rússar æfir. Viðræðum þcirra Lavals og Anthony Eden er nú lokið i bili, ■og Eden farinn áleiðis til Róm og 'kemur þangað á morgun til fundar við Mussolini, Laval sagði blaðamönnum í dag áð ’þeir Eden hefðu talað mjög vingjarnlega saman um fiotamálin og stjómmálahorfurnar í Evrópu. Hann sagðist vera ánægður með ■viðræðurnar, enda mundu Bretar ■og Frakkar halda áfram að vinna saman að endurreisn friðarins í álfunni. Frönsku blöðin eru hinsvegar ennþá fremur önug og tala heldur óvingjarnlega um Breta. Þegar Eden ketnur aftur frá Róm, mun hann hitta Laval 'á ný. í Moskwa blöðunum eru í dag harðorðar árásir á ensk-þýsku samningana. Seg-ja þau, að örygg- ið í álfunni sé nú minna en áður, vegna þessara samninga og séu þeir líklegir til þess að ýta undir vígbúnaðinn, fremur en að minka '■hann. * - •" Norska þingið lýkur störfum á þriðjudag. Osio, 11. júní. FB. Á þingfundi í gær lýsti Ham- bro forseti yfir því, að yfir- standandi þingsetu mundi verða lokið næstkomandi þriðjudag. „ÓÐINSTURNINN“, sem nýlega var reistur skamt frá þessi næst hæsti turn í álfunni. Óðinsvéum í Danmörku. Er turn unni. Útvappsfréttii*. London, í gær. FÚ. Flotamál Japana. Tokio blöðin skýra frá því í dag, að fundi japanskra flota- málasérfræðinga, sem átti að halda í London, sé nú frestað. Það var ætlunin að flotamála- ráðunautar Japana, sem eru í Evrópu við sendisveitirnar skyldu koma saman í London til undirbúnings undir flotamála- ráðstefnuna. , London, i gær. FÚ. Irskar aukakosningar. t aukakosningum, sem fóru fram í dag i irska fríríkinu, sigraði stjórn de Valera, en þó ineð nokkuru niinni meirihluta, en við síðustu kosningar. London, í gær. FÚ. Bolivía og Paraguay. Friðarsamningar milli Boli- víu og Paraguay eru undirskrif- aðir í dag. London, í gær. FÚ. Abessiníudeilurnar. Utanríkisráðherra Abessiníu hefir enn sent Þjóðabandalag- inu kæru yfir framferði ttala. London, í gær. FÚ. Refsing fyrir barnsrán. 45 ára fangelsi ákvað ame- rískur dómstóll í dag, að skyldi vera hæfileg refsing fyrir til- raun til barnsráns, sem þar var gerð nýlega. Útgjaldalækkun í Frakklandi. London 21. júní (F. Ú.) Franska stjómin hefir ákveðið stórkostlega lækkun á fjárlögun- um en ekki er búist við að þessar lækkanir komi til framkvæmda fyrr en þingið kemur saman. Þýskir prestar látnir lausir. London 21. júní (F. Ú.) 12 þýskir prestar mótmælenda- trúar hafa verið látnir lausir úr fangelsum nasista. Ennþá sitja 25 prestar í fangaherbúðum í Þýska- landi. Utan af landi Sjúkrahúsbygging. 22. júní. iFÚ. Fréttaritari útvarsins á Húsavík skrifar 12. þ. m.: Búið er að grafa fyrir kjallara-grunni spítalans á Húsavík, og er áformað að byrja á byggingunni um næstu helgi. Sparisjóður Húsavíkur hefir gefið til spítalans 2000 kr., Kaupfélag Þingeyinga 1000 kr., ónefndur maður 1000 kr. og Kaupfélag Húsavíkur 670 kr., auk þess eru allmargar minni gjafir. Síldarvart. 22. júní. FÚ. Litilsháttar síklarvart hefir orð- ið í Skagafirði um þessar mundir. Vélskipið (Grótta kom í morgun til Siglufjarðar með 6 tunnur herpi- nótasíldar frá Skagafiiðí. Harðfisknr nýkominn. Hvergi betri. Vísíp. HJA YDUR -mildar ocj ilmandi Ciqarettur TEOFANI - LONDON 1 Henning B. er horfinn frá, haldinn nokkru sunnar. Karlinn hefir kunnað á kornpás Sogsvirkjunnar. nrnmm Ferðaskrifstofa íslands Austur- stræti 20, sími 2939, hefir af- greiðslu fyrir flest sumargistihús- in og veitir ókeypis upplýsingar um ferðalög um alt land. (538 iTAPAt rUNDIf)] Bláköflótt tau tapaðist laugar- daginn 22. Skilist á Hverfisgötu 32 B- (536 Stórt vatnskassalok af bifreið tapaðist í miðbænum á hvíta- sunnudag. Skilist'gegn fundar- launum í bifreiðaverslun Egils Vilhjálmssonar. (542 sem vilja ráða sig í vinnu við hússtörf innanbæjar eða vor- og kaupavinnu utanbæjar, geta valið úr stöðum ef þær leita til RáSningarstofu Hovkiavíkurbæjar. LæRiartorgí 1, I. lofti. Sími 4966. Reglusamur ungur maður óskar eftir orgeli eða píanói til leigu um ca. 3ja mánaða tíma- bil.. Tilboð, merkt: „Hljóðfæri“ leggist inn á afgr. Vísis. (543 íTCsnæFH Sá sem vildi lána 5 þúsund kr. gegn góðri tryggingu, getur feng- ið leigða heila hæð, eða minni i- búð, með laugahita og öllum þæg- indum, i. okt. Uppl. í síma 2425. (540 Herbergi með húsgögnum til leigu ódýrt á Bergstaðastræti 83. Á sama stað lítið herbergi með húsgögnum, afar ódýrt. (539 Herbergi til leigu nú þegar. — Vonarstræti 12, 3. hæð. (537 Herbergi til leigu neðarlega á Laugavegi. Verð kr. 25 á mán- uði. Uppl. i sima 4334. , (535 Af sérstökum ástæðum er til leigu fremur lítil séríbúð, 2 her- bergi og eldhúsi. Uppl. í síma 3962. (527 htVINNAfl Duglegur trésmiður óskast. Sími Brúarland 9 A. (533 Unglingsstúlka 14 —15 ára óskast í sveit, strax. A. v. á. — (541 Úti eða innistúlkur og ungling (14—16 ára) vantar á gott sveitaheimili í Landeyjum. — Uppl. i sima 4667. (532 Permanent. Gefum 10% afslátt af Perma- nent til mánaðamóta. Öll vinna framkvæmd af fagmanni. Hár- greiðslustofan Venus, Kirkju- stræti 10. Sími 2637. (407 IKAUPSTARJM Vandað orgel óskast til kaups, má vera notað. Tilboð sendist Vísi, merkt: „Staðgreiðsla“. — v (544 Lítil, notuð eldavél óskast. — Uppl. i sima 3899. (534 Skinnkápa, lítið notuð, til sölu. Til sýnis i Edina, Pósthús- stræti 13. (519 Ódýr húsgögn til sölu. Gömul tekin í skiftum. — Hverfisgötu 50. Húsgagnaviðgerðarstofan. (362 FELAGSPRENTSMIÐJA.N 'i ÁSTIR OG LAUSUNG. 1 *9 neitað. — Eg gæti þá alveg eins staðhæft, að eg sé ekki Gyðingur.------ Þú ert listamaður að eðlisfari, Caryl, eins og eg sagði áðan. —“ Caryl svaraði: „Eg hefi unnið eið að því með sjálfum mér. að tala ekki framar við Sebastian. — Eg mundi ekki geta horið virðingu fyrir sjálf- um mér, ef eg ryfi þann eið eða heitstrengingu. Eg mundi lita á mig sem aumingja frá þeirri stundu, er eg sviki sjálfan mig á þann hátt — “ „En sú vitleysa! — Þetta nær ekki nokkurri átt. — Eg fer að liallast að því, að þú sért lirein- asta flón, ef þú heldur þessu áfram.“ „Eg er flón, Jacob. — Og verð vist aldrei neitt annað ....“ „Við erum allir flón að einhverju leyti. — Eg meinti ekkert. með þessu, sem eg sagði áð- an. Mér þætti gaman að sjá þann mann, sem ■ekki væri einhversstaðar svo veikur fyrir, að réttmætt gæti verið að kalla flón eða kjána — svona í góðu.“ Caryl svaraði engu. Hann var orðinn svo þreyttur á þessu einskisverða masi, að hann ætlaði að láta það ráðast, hvort samtalið félli niður eða ekki. Langhelst hefði hann kosið að Birnbaum „hringdi af“. Sjálfur kunni hann ekki við að gera það, því að Birnbaum var vinur hans og hafði margt stórvel til hans gert. — i Eftir stundarkorn sagði Birnbaum og kendi mikíllar óþolinmæði í röddinni: „Ertu þarna, Caryl?“ „Já.“ — , „Jæja — hverju svararðu, góði minn?“ „Helst engu .... “ „Þú reynir að finna Sehastian?“ „Jæja. — Eg skal reyna .... “ „Þalcka þér fyrir kærlega, vinur minn!“ Caryl lagði frá sér heyrnartólið. Hann vildi ekki bíða eftir frekara þakklæti. — Hann var uppgefinn á sál og líkama. Og honum fanst það einhvern veginn svo undarlegt, að liann skyldi nú endilega þurfa að fara að leita að Sebaslian. — Hann skyldi ekkert í því, að það gæti verið rétl gert af forsjóninni, að demha nú þessu á liann Iíka. Hann hefði þó vissulegá nóg að bera fyrir. — Hann sat kyr nokkur augnablik og krotaði allskonar strik og jafnvel nótur á þerriblaðið, sem lá fyrir framan liann á horðinu. Svo fór hann að reyna að gera sér í hugarlund, hvar líklegast væri að Sebastian mundi niðurkominn. — Hugsanlegt fanst honum, að Trigorin vissi það. En ef liann vissi það ekki, mundi einung- is um eina manneskju að ræða í allri veröld- inni, sem gæti vísað á hann. — Og til hennar gat hann með engu móti snúið sér, að þvi er honum fanst — að minsta kosti ekki þenna daginn. Samt var hann neyddur til þess, að draga það ekki mjög lengi, að tala við hana. Honum fanst það bein skylda, að láta þana vita. Iivernig ástatt væri um Gemmu. Og hann liafði aldrei svikist undan neinu skyldustarfi. En i dag treysti liann sér þó ekki til þess að reka það erindi eða önnur. , I þessum svifum gekk ungfrú Price í skrifstofuna og hnerraði mjög. Hún var rauð- eyg og bersýnilega illa haldin. — Hún spurði livort þau ætti ekki að halda áfram með bréfið. Caryl leit við henni. „Þér hnerrið stöðugt.“ „Já, eg get ekki ráðið við það. Eg er vist að hnerra i mig svæsnasta kvef.“ „Eg held við sleppum öllum bréfaskrifímn í dag. En hérna er dálitið, sem mig langar til að biðja yður að gera.“ „Sjálfsagt.“ Hann tók blað og skrifaði nafn Fenellu og símanúmer foreldra hennar. Þá hugsaði hann sig um lítið eitt og skrifaði þvi næst: 1 I „Herra Sebastian Sanger er farinn úr „Hotel Cecil“ og þar fást engar upplýsing- ar um, hvað af honum muni orðið. — Veit ungfrú McClean hvert hann muni liafa farið? — Og ef svo er, hefir þess ver- ið óskað, að hún næði tali af honum nú þegar og léti hann vita, að herra Jacob Bimbaum í Paris þarf að tala við hann í síma þegar í stað. Allur dráttur getur orð- ið ærið bagalegur. Erindið er mjög brýnt.“ I Ungfrú Price! Takið við þessari orðsendingu og hringið tafarlaust heim til ungfrúarinnar og tilkynnið henni það, sem á miðanum stendur. Ungfrú Price tók við miðanum og fór hnerr- andi út úr stofunni. — Caryl tók nólnaheftið eða handritið, sem liann hafði verið að reyna að lesa um morgun- inn og gerði enn eina tilraunina lil þess að komast í gegn um það. — En það vildi ekki blessast. Hann hafði magnaðan höfuðverk og hjartslátt — og svo mikla suðu fyrir eyrunum, að hann lieyrði varla hávaðann í borunarvél- inni fyrir utan gluggann.------Hann var ákaf- lega þreyttur — eins og liann hefði vérið í slrangasta erfiði dögum saman og ekki notið neinnar hvildar. — Honum fanst það eiginlega hafa verið þrekvirki, að geta talað við Birn- baum allan þennan tíma, án jiess að gefast upp með öllu eða „falla saman“, sem kallað er. — Já — þessi þreyta — þreyta, bæði á sál og lik- ama. Bara að hann gæti sofnað frá öllum þján- ingum — sofið draumlaust og vært um alla ei- lifð! — M,eð þessu laginu mundi hver dagur, er úr djúpi risi, færa honum sorgir og söknuð. Og nóttin mundi níðast á honum. Hann kynni að visu að geta sofið, meðan likaminn væri svona þreyttur. En svo kæmi „andvakan arga“ og hún væri kannske verri en alt annað. Þá mundi hann byltast í rúmi sinu og þjást af örð- ugum hugsunum. Og svona mundi það ganga til, nótt eftir nótt — uns dauðinn miskunaði sig yfir hann. ■

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.