Vísir - 24.07.1935, Blaðsíða 2
VlSíR
TVINNI — TVINNI — TVINNI TVINNI — TVINNI — TVINNI
TVINNI — TVINNI — TVINNI TVINNI — TVINNI — TVINNI
TVINNI — TVINNI — TVINNI TVINNI — TVINNI — TVINNI
TTVINNI f JT TVINNI » TVINNI «f TVINNI «| TVINNIW
TVINNI 11 TVINNI I TVINNI 111 TVINNI III TVINNI I
TVINNI ■ TVINNI ■ TVINNI*" TVINNI ■■ TVINNI*
TVINNI — TVINNI — TVINNI TVINNI — TVINNI — TVINNI
TVINNI — TVINNI — TVINNI TVINNI — TVINNI — TVINNI
TVINNI — TVINNI — TVINNI TVINNI — TVINNI — TVINNI
Abessiniodeilan.
Stjðrnarskifti
í Holiandi?
Haag 23. júlí. FB.
UmræSur standa yfir í hollensku
þjóöþinginu um tillögur Colyn.s
forsætisráöherra i fjárhagsmálum.
Veröi tillögurnar feldar er búist
viö, aö til stjórnarskifta komi, en
þaö er hinsvegar undir afstööu
kaþólska flokksins komiö, hvernig
tillögunum reiöir af. Er því beöiö
með mikilli eftirvæntingu yfirlýs-
ingar Aalberse, formanns flokks-
ins, um afstööu hans. Búist er viö
aö atkvæöagreiðslur fari fram í
neöri málstofunni í kveld og er
þaö undir úrslitum þeirra komið,
h'vort stjórnin fer frá eða ekki. —
(United Press).
Ráð þjóÖabandalagsins kemur saman næst-
komandi mánudag til þess að ræða deilumál
Abessiníumanna og ítala. — Afstaða Japana
9g gremja ítala í þeirra garð. — Nánara um
vopnasöluna til Abessiníu.
Oslo 23. júlí. FB.
Fréttaritari Aftenposten í Lond-
on simar til blaðs sins, aö breska
rkisstjórnin hafi tekiö þá ákvörö-
un, aö hún sjái sér ekki fært að
svo stöddu aö gera neinar ráöstaf-
anir til þess aö koma i veg fyrir,
aö bresk firmu selji vopn og skot-
færi til Abessiniu. Ríkisstjórnin
heldur því fram, að bann gegn því
að veita útflutningsleyfi væri brot
á samningsskuldbindingum, auk
þess sem ekki væri rétt að leggja
á slíkt útflutningsbann áður en
þjóðabandalagsráöiö, sem kemur
saman eftir næstu helgi, heföi rætt
Abiessiniumáliö. Einnig heldur
breska stjórnin því fram að þar
er Abessiniumenn hafi engavopna-
og skotfæraframleiðslu væri það
sama sem að neita þvi, aö þeir
heföi löglegan rétt til þess gera
ráðstafanir til þess að verja land
sitt, ef bannaður væri útflutningur
vopna og skotfæra til lands þeirra.
Tilkynning frá japanska sendi-
herranum í Rómahorg.
Japanski sendiherrann í Róma-
borg hefir tilkynt blöðunum, aö
vegna þess að Japanar eigi mik-
illa viðskiftalegra hagsmuna aö
gæta í Abessiniu geti þeir ekki
sætt sig við ráðstafanir, sem spiltu
viöskiftaaðstöðu þeirra þar. Bend-
ir hann á, í þessu sambandi, aö
vegna hinna auknu viðskifta Jap-
ana i Abessiniu og vinsamlegrar
sambúðar við Abessiniumenn hafi
Japanar í desembermánuði síöast-
liðnum stofnað sehdiherraskrif-
stofu í Addis Ababa, höfuöborg
Abessiniu. ítölsku blöðin halda á-
fram svæsnum árásum gegn Jap-
önum vegna afstööu'þeirra.
London 23. júlí. FÚ.
Ráðsfundur bandalagsins 0. fl.
Eftir fund, sem þeir áttu saman
í morgun, forsætisráðherra Frakk-
lands, Laval og breski sendiherr-
ann í París, var þaö ákveðið aö
Þjóöabandalagsráösfundurinn
skyldi hefjast næstkomandi mánu-
dag 29. júlí.
„Hræsni Japana og tvöfeldni“.
ítölsk blöð halda enn áfram að
deila á Japan fyrir þá afstööu, sem
japanska stjórnin hefir tekiö. Eitt
italskt blað flytur í dag grein um
japan undir fyrirsögninni „óvin-
urinn", og segir þar meöal ann-
ars að allir þeir, sem þekkja jap-
anskt skapferli kannist viö tvö-
feldni þeirra og hræsni, og láti sér
því ekki á óvart koma afstööu
þeirra nú.
Abessiniumönnum vel við Japana
og allar þjóðir, að einni undan-
tekinni.
Sendiherra Abessiniu í París
hefir x blaðaviðtali látið þess getið
að Abessinia beri hinn mesta vel-
vildarhug til Japan, eins og raunar
allra framandi þjóða, að einni und-
antekinni. Japan, segir hann, hefir
aukið viöskiftastarfsemi sína i
Abessiniu á síðustu árum, og með-
al annars náð undir sig baðmull-
armarkaðinum. Hins vegar er ekk-
ert pólitískt samband milli þessara
tveggja rikja. Loks segir sendi-
herrann, að eina ráðið til þess að
koma í veg fyrir ófrið milli Abess-
iniu og Ítalíu, sé það að leyfa ó-
hindraðan innflutning vopna til
Abessiniu.
\
London 23. júlí. FÚ.
Haile Selassie
Abessiniukeisari, á afnxæli í dag
og er Japanskeisari einn þeirra,
sem sent hafa honum hamingju-
óskir í tilefni af deginum. Tók
keisari á móti gestum í dag og í
kveld verður stór hirðveisla. —
Sendiherra ítala í Addis Abeba
hefir færst undan að taka þátt í
þessum athöfnum.
Frakkar ætla að fylgja
Bretum að málum á
ráðsfundi bandalags-
ins, en reyna þó að
komast hjá að styggja
ítali.
París, 24. júli. — FB.
Laval forsætisráðlierra og
breski sendiherrann, Clerk,
áttu fund í utanrikismálaráðu-
neytinu í gærkveldi, til þess að
ræða afstöðu Breta og Frakka,
vegna Abessiniudeilunnar, sem
nú verður tekin til umræðu af
ráði þjóðabandalagsins. Að af-
loknum fundi Lavals og Clerks
var tilkynt, að Bretar og Frakk-
ar væri sammála, að hvika ekki
í neinu frá sáttmála þjóða-
bandalagsins. — Frakkar virð-
ast skilja til hlitar,-að eigi dugir
að hverfa frá þeim grundvallar-
atriðum, sem störf og stefna
þjóðabandalagsins hvílir á, en á
þessu hafa Frakkar einnig bygt
utanríkismálastefnu sína eftir
heimsstyrjöldina. Þessi grund-
völlur er of mikilvægur fyrir þá
til þess að yfirgefa vegna Abess-
iníudeilunnar, og ætla menn
því, með tilliti til samkomulags-
ins á fundinum í gærkveldi, að
Frakkar muni nákvæmlega
fylgja stefnu Breta á ráðsfund-
inum, enda þótt þeir muni reyna
eftir því sem þeir geta, að
styggja ekki ítali.
(United Press).
Flugferðir
yfir Norður-Atlantshaf.
London, 22. júli. — FÚ.
í neðri málstofu breska þings-
ins var í dag borin fram fyrir-
spurn um það, hvað liði undir-
búningi fyrirhugaðra póstflug-
ferða um norðanvert Atlants-
haf, og ennfremur hvort búið
væri að tryggja sér nothæfar
flughafnir á Islandi og í Græn-
landi, ef til framkvæmda kæmi.
Aðstoðarflugmálaráðherrann,
Pliilip Sassoon, varð fyrir svör-
um, og sagði að því miður gæti
hann ekki bætt neinu við upp-
lýsingar þær, sem hann hefði-
gefið 3. þ. m. En þá liefði liann
skýrt frá því að alt þetta mál,
stofnun fastra flugferða um
norðanvert Atlantshaf væri nú í
rannsókn og undirbúningi.
Þessu starfi væri haldið áfram
af kappi. Annað kvaðst hann
ekki geta sagt á þessu stigi máls-
ins.
Utan af landi.
Akranesi 23. júlí. FÚ.
Fylgispakur kópur.
Teitur Stefánsson trésmiður,
Suðurgötu 21 á Akranesi, bjargaði
selkóp 23. maí frá nokkrum
drengjum sem voru að kasta stein-
um í hann þar sem hann lá upp
á klettum. Sá Teitur stóran stein
lenda á kópnum, gekk að og náöi
dýrinu, bar það heim til sín, og
nærði á nxjólk. Teitur vigtaði kóp-
inn og vóg hann þá 10 kílógröm,
en 24 júní var hann orðinn 13J4
kílógram. Hann etur nú nýjan fisk
og síld.
Teitur fer öðru hverju með kóp-
inn í sjó, en hann fæst ekki til
að synda nema Teitur vaði, og
fylgir hann þá fótum Teits, en fer
i land um leið og hann. Virðist
hann una hag sínum vel hjá Teiti
og þekkja hann greinilega frá öðr-
um mönnum.
t
SíldveiSarnar.
Siglufirði 23. júlí. FÚ.
í gærkveldi símaði fréttaritari
útvarpsins á Siglufirði að 4 skip
hefðu komið með síld síðasta sól-
arhring, og höfðu þau veitt hana
út af Eyjafirði. Síld var sögð lítil.
Víðast er síldarlaust milli Langa-
ness.og Sigluness.
100 tunnur voru flakaðar í fyrri
nótt hjá Tynes.
Óvenju margt aðkomufólk hefir
safnast í bæinn, og eru allmargir
Siglfirðingar atvinnulausir.
Kolaskip var í gær að afferma
til Ragnarsbræðra.
Skýrsla
frá framkvæmdanefnd Yinnuveitandafélags
íslands um Andraverkfallið.
I byrjun þessa mánaðar var
botnvörpungurinn Andri settur
upp á dráttarbraut Slippfélagsins
í Reykjavík til athugunar vegna
skernda, sem á honurn hafa orðið,
og samkvæmt tilmælum umráða-
manna skipsins gjörði s. f. Stál-
smiðjan 6. þ. m. tilboð í aðgerð á
skipinu, að upphæð 15 þús. kr. og
var í tilboðinu innifalinn sá hluti
kostnaðar við aðgerðina, sem gert
var ráð fyrir að Slippfélagið fram-
kværndi. Sama dag báðu umráða-
menn skipsins s. f. Stálsmiðjuna að
endurnýja nokkra hnoðnagla í
byrðingi skipsins og hnoða upp
veltikjöl á stjórnborðshlið. Var
þegar í stað byrjað á því verki og
var ætlun s. f. Stálsmiðjunnar að
því yrði lokið næsta mánudag 8.
þ. m., en um kl. n e.,’h. á sunnu-
dap símaði formaður Félags járn-
iðnaðarmanna til annars af for-
stjórum s. f. Stálsmiðjunnar og til-
kynti honum að verkfall væri haf-
ið við téða aðgerð á b. v. Andra
og tilfærði þá ástæðu að heyrst
befði, að ekki mundi fara fram
fullnaðaraðgerð á skipinu hér og
að verkfalli þessu yrði ekki aflétt
fyr en ákveðið væri að fullnaðar-
aðgerð færi fram hér á landi, en
ekki erlendis. Á mánudagsmorgun
S. þ. m. átti svo téður forstjóri s. f.
stálsmiðjunnar tal við formann Fé-
lags járniðnaðarmanna og reyndi
að sýna honum fraxji á hvílik fjar-
siæða verkfall þetta væri og
hversu hættulegar afleiöingar það
gæti haft, þar sem búast mætti við
að skipaeigendur og vátrygginga-
iélög þyrðu ekki framvegis að láta
setja skip sín upp til eftirlits og
aðgerðar hér á landi, ef þeir ættu
á hættu að slíku ofbeldi yrði við
þá beitt, þannig að þeir stæðu eigi
frjálsir að samningum um aðgerð-
ir á skipunum, og mundu því leita
til útlanda með allar a'ögerðir.
Sama dag var haldinn fundur í
Félagi járniðnaðarmanna, en að
þeim fundi loknum barst s. f. Stál-
smiðjunni svohljóðandi bréf frá fé-
laginu dags. sama dag (8. þ. m.) :
„S. f. Stálsmiðjan,
Reykjavík.
I tilefni af því að félag okkar
hefir fengið vitneskju um, að á-
kveðið er að s. s. Andri, sem nú er
i Slippnum til bráðabirgðavið-
gerðar skuli sent til útlanda
til fullnaðarviðgerðar, krefst fé-
lagið þess að fullnaðarviðgerð
skipsins fari fram hér að öllu
leyti, og ákvað félagið á fundi í
kveld að halda fast við ákvörðun
félagsstjórnarinnar, að félags-
ínenn vinni ekki við skipið fyrr
en ákveðið verður að fullnaðarvið-
gerð fari fram hér.
Þess skal getið að leitað hefir
verið aðstoðar Alþýðusambands
íslands og ennfremur hefir for-
maður Vélstjórafélags íslands
(sem er sambandsfélag okkar)
heitið stuðningi.
Virðingarfylst
f. h. Félags járniðnaðarmanna
í fjarveru ritara
Loftur Þorsteinsson."
Þegar verkfallið byrj.aði höfðu
aðstandendur skipsins ekki tekið
ákvörðun um fyrgreint tilboð s. .f
Stálsmiðjunnar, en mánud. 8. þ. m.
var tilboðinu hafnað. Af þessu
þurfti þó ekki að leiða það að að-
gerð skipsins yrði ekki fram-
kvæmd hér, heldur munu umráð-
endur skipsins og umboðsmenn
hins enska félags, sem endurtrygg-
ir skipið og mun eiga að greiða
lrostnað að miklu leyti við aðgerð-
ina á því hafa viljað útvega sam-
anburð frá Englandi, en jafnframt
var látið í ljós af þeirra hálfu að
þó slík tilboð yrðu nokkru lægri en
tilboð hér, þá mundi aðgjörðin
samt sem áður veröa framkvæmd
hér.
Næsta dag , þriðjudag 9. þ. m.
boðaði téður forstjóri s. f. Stál-
smiðjunnar alla stjórnendur Félags
járniðnaðarmanna á fund og
reyndi á ný að fá félagið til þess
að hætta verkfalinu. Var þá hald-
inn fundur í félaginu sama dag og
samþykt þar að félagið skyldi af-
létta verkfallinu gegn því að því
væri heimilað að tilnefna trúnaðar-
mann, sem færi með skipinu til út-
landa, ef ákveðið yrði að aðgerð-
in færi fram erlendis og skyldi
þessi umboðsmaður félagsins
fylgjast með í því sem þar færi
íram að því er viðgjörð skipsins
snerti. Þetta var skilyrði, sem s. f.
Stálsmiðjan eftir hlutarins eðli
hafði ekki neitt vald til að upp-
fylla, en forstjóri s. f. Stálsmiðj-
unnar fór þó það langt í því efni
að hann sneri sér til umboðsmanns
vátryggingarfélagsins, sem kvaðst
eigi geta gefið samþykki til slíkrar
ráðstöfunar, þar sem vátrygging-
arfélagið hefði sína trúnaðarmenn
erlendis og slík ráðstöfun hlyti að
teljast vantraust á þá. Það var því
ekki mögulegt að uppfylla nefnt
skilyrði Félags járniðnaðarmanna
fyrir því að hætta verkfallinu og
hélt það áfram. Fóru síðan daglega
fram samningsumleitanir milli fé-
lagsins og forstjóra s. f. Stálsmiðj-
unnar, en alt var það árangurs-
laust. Meðal annars skrifaði s. f.
Stálsmiðjan Félagi járniðnaðar-
manna 13. þ .m svohljóðandi bréf:
„Félag jámiðnaðarmanna,
Reykjavík.
Vér höfum í dag átt viðtal við
formann félags yðar hr. Loft Þor-
steinsson og gefið nokkra skýr-
ingu á afstöðu vorri gagnvart
vinnustöðvun- yðar við b. v.
„Andra“, sem nú liggur í slipp, og
viljum vér hérmeð í fáum dráttum
endurtaka þessa afstöðu vora í
þeirri von að það megi verða til
friðsamlegs samkomulags í þessu
máli, eftir að stjórn yðar hefir tek-
ið skýringuna til athugunar.
1. Þegar skipið var tekið í slipp
var það eftir beiðni umsjónar-
manns skipsins fyrir hönd eigenda
þess og á þeirra ábyrgð, en Sam-
tryggingu ísl. botnvörpunga að
öllu óviðkomandi, enda gert að
henni forspurðri.
2. Vinna sú, sem um var beðið
og byrjað var á, var algjörlega
eigenda sjálfra, og því einnig óvið-
komandi Samtryggingu ísl. l>otn-
vörpunga.
3. Vinnustöðvuninni virðist al-
gjörlega stefnt gegn framkvæmd-
um á tjónsviðgerð ytra, en í því
máli er enn engin afstaða tekin,
en ástandinu skal hér nánar lýst.
4. Vegna bréfs, sem kom hingað
til Samtryggingarinnar frá endur-
tryg’g'jendum í Englandi, þar sem
ráðist var sérstaklega á verðlag
tjónsviðgerða hér, miðað við verð-
lag erlendis, varð það að sam-
komulagi milli Samtryggingarinn-
ar og vor, að vér sættum oss við
að gera tilboð í viðgerð á b. v.
„Andra“, sem síðan yrði sent
til Englands í útboðslýsingar-
formi, þannig að heilbrigðuí sam-
anburður fengist á vei-ðlagi hér
og í Hull, og sem síðar mætti nota
sem gagn í svari voru til endur-
tryggjenda. í þessu tilfelli vorum
vér að vonast til að þessi saman-
burður yrði oss eigi til muna ó-
hagStæður.
Endurtryggjendur hafa þegar
sýnt oss besta skilning og jafnvel
talist mundu sætta sig við nokkuð
hærri boð héðan og láta þau við-
gangast óátalið. Ennfremur hafa
endurtryggjendur áformað að
senda hingað aöalforstjóra sínn t
sumar, til að ræöa tryggingárnar
alment og ennfremur framkvæmd-
ir tjónsviðgerða hér, og megum
vér vera ánægðir að ná beinu sam-
bandi, milliliðalaust, við þennan
mann, enda væntum vér góðs af
því.
Eins og að íraman getur teijuni
vér óheppilegt að halda vinnu-
stöðvuninni til streitu eins og sakir
standa, og oss til óhags, enda telj-
um vér sanngirni og lipurð einu
réttu leiðina til að ná varanlegu
samkomulagi um viðgerðimar i
framtíðinni.
Það, eru tilmæli vor til yðar, að
þér sjáið yður og oss öllum hag
i því að hætta vinnustöðvuninni nú
þegar, og biða átekta eftir komu
aðalforstjóra endurtryggjendanna.
Virðingarfylst
S. f. „Stálsmiðjan“.
En félagið svaraði með þvr
næsta dag, 14. þ. m. að senda s„
f. Stálsmiðjunni svohljóðandi til-
kynningu:
„S. f. Stálsmiðjan,
Reykjavík.
Á fjölmennum fundi félags okk-
ar, sem haldinn var í gærkveldi,.
var eftirfarandi tillaga samþykkt :
„Félagið heldur fast við.sínar
fyrri ákvarðanir um vinnustöðvun
við s. s. Andi-a fyrst um sinn þar
til öll tilboð í verkið erlend og inn-
lend, eru komin fram. Þegar fé-
laginu verða kunnar þær ráðstaf-
anir, sem gerðar verða viðvíkjandi
viðgerðinni á grundvelli þeirra til-
boða, sem fram hafa komið, mun
félagið taka málið til nýrrar yfir-
vegunar“.
Virðingarfylst
f. h. Félags járniðnaðarmanna.
í fjarveru ritara
Loftur Þorsteinsson“.
Næsta dag, 15. þ. m. svafaði s.
f. Stálsmiðjan Félagi járniðnaðar-
manna með svohljóðandi bréfi:
; J : .. ' .úuiáliii
„Félag járniðnaðarmanna,
Reykjayík.
Vér höfum móttekið bréf .yðar,
dags. 14. þ. m. þar sem þér til-
kynnið að félag yðar haldi fast við
fyrri áform um vinnustöðvun við
b. v. „Andri“, þrátt íyrir það aö
vér höfum gefið yður mikilsvai-ð-
andi upplýsingar í málinu og bent
vður á að vinnustöðvunin verkar
í öfuga átt við það, sem til var
ætlast og framkvæmd gegn aðilja,
sem er þetta atriði óviðkomandi.
Afleiðingar þessai-ar stöðvunar eru
því algerlega á yöar ábyrgð. Vér
viljum skýra málið nánar, þar sem
þér virðist ekki hafa athugað inni-
hald bréfs vors‘til hlítar.
1. Stöðvunin virðist gerð til þess-
að tryggja það, aö eigi verði farið
með vinnu út úr landinu, sem hægt
er að framkvæma hér. Aðferðin,
sem notuð er gerir það að verkum,
að vér fáum ekki tækifæri til að
skoða eða bjóða í stærri tjónsvið-
gerðii-, af ótta hlutaðeigandi við
svipað ofbeldi siðar, og þar sem
þessar tjónsviðgerðir eru og hafa
verið aðalatvinnugrein s. f, „Stál-
smiðjunnar“, er hér þegar skeður
sá skaði, sem erfitt er að meta í
svip.
Viðvíkjandi þessu atriði verðum
vér að krefjast þess, að þér undii'-
skrifið yfirlýsingu þess efnis, að
slíkt megi aldrei ske oftar.
2. Þér hafið ennfremur farið »
fram á, að þér verðið með í ráðum
og ákvörðunum uni það hvað gert
skuli við skip og hvar, en þetta er
auðvitað fjai-stæða, sem þér getið
ekki ætlast til að tekin sé alvai'-
lega, þar sem hér yrði um að ræða
algerða einokun eða hiæint ofbeldi
gagnvart viðskiftamönnum vorum.
3. Þér krefjist þess að fá allan
samanburð að tilboðum vorum og
tilboðum erlendis fi-á. Þetta atriði
er yður auðvitað algjörlega óvið-
komandi samkvæmt núverandi
verslunar- og atvinnulöggjöf og