Vísir - 10.08.1935, Blaðsíða 3

Vísir - 10.08.1935, Blaðsíða 3
V í S i R sísoííttíscísoaííöCOíiöíSöttGísssööttí Ifir kaipendur llísis. Þeir, sem gerast áskrif- endur þessa dagana, fá blaðið ókeypis til mánaða- móta. SttOttötStttSöötSöttÖöötSÖttöötSOÖtSt Af útfluttu kjöti bar aS endur- greiSa gjaldiö, og narn sú upphæö kr. 154666,14 og er það þegar greitt. EftirstöSvarnar kr. 138847, 00 auk framlags ríkissjó'Ss kr. 150 000,00 alls kr. 288847,00 veröur úthlutaö á útflutta dilkakjötið, sem verðuppbót, og hefir nefndin á- hveöiö aö hún veröi 9J4 eyrir á kgr. af freðkjöti en 14J4 aurar á kgr. af saltkjöti. Verö á freðkjöti, sem selt var erlendis, svarar til þess að vera 7114 aurar pr. kgr. til framleið- enda aö meðaltali, og er þá frá- dreginn allur kostnaður við söln, flutninga, geymslu, frystingu og slátrun. Erlenda verðið á saltkjötinu svarar til þess að vera 54 aurar pr. kgr. til framleiðenda, meðal- tal af báðum flokkum og er þá frádreginn samsvarandi kostnað- ur og á freðkjötinu. Meðalverð á samskonar kjöti árið áður var 78 aurar pr. kgr. af freðkjöti og 58 aurar kgr. af saltkjöti og nemur því verðlækk- unin á erlendum markaði 4—6J4 aurum á kgr. Þegar verðuppbót þeirri, sem ákveðin hefir verið er bætt við, verður verðið á útfluttu kjöti til framleiðenda 81 eyrir fyr- ir kgr. af freðkjöti og rúmir 68 aurar fyrir kgr. af saltkjöti. Samkvæmt upplýsingum frá Sláturfélagi Suðurlands, sem hefir mesta kjötsölu á Reykjavíkur- markaði, er meðal verð þess til framleiðendanna á dilkakjöti 86 aurar pr. kgr. 1934 en 68 aurar Í933, hvorutveggja miðað við 10 kgr. kroppþunga og þyngri og er frá dreginn samsvarandi kostnaður Ijæði árin. Verðhækkunin til fram- leiðenda á þessu kjöti er því 18 aurar á kgr. Heildsöluverð á t. fl. dilkakjöti á 1. verðlagssvæði var í aðalslátur- tíð haustið 1934 kr. 1,15 og á frystu kjöti út úr íshúsunum kr. 1,22 frá miðjum nóv. til 15. jan., en eftir það kr. 1,30 pr. kgr. Verðframfærsla i smásölu mátti vera alt að 15 af hundraði, en mun áður oftast hafa verið ca. 20 af hundraði í Reykjavik. Allskonar innanlandskostnaður á kjotinu er að sjálfsögðu breyti- legur og mismunandi á hinum ýmsu sláturstöðum, bæði við söl- una og annað og sláturleyfishafar seldu líka mismunandi mikið á innlendum markaði. Af þvi leiðir að verðið til framleiðendanna, hlýtur að verða nokkuð mismun- andi hátt, og viða annað en með- alverð það eftir sölunni erlendis, sem að framan er greint. Reykjavík, 7. ágúst, 1935. Jón ívarsson, Helgi Bergs, Jón Árnason, Ingimar Jónsson, Þorleifur Gunnarsson. Otan af landi. Leiðangur Pálma Hannessonar og félaga hans. 9. ágúst (FU) í gær komu þeir Pálmi Hannes- son rektor og íélagar hans, Stein- dór Steindórsson, Magnús Björns- son, Sigurður Þórarinsson, Finnur Jónsson og Sigurður Jónsson til bygða að Staíafelli í Lóni, eftir 18 daga útilegu á fiöllum. Láta þeir vel af veru sinni í óbygðum; höfðu gott skygni og blíðviðri síð- ustu viku. Þeir segja mælinga- fiokk Steindórs Sigurössonar í Viðidal, og að þaðan fari hann að Þrándarjökli, en síðan niður Flamarsdal til bygða. Tilraunir með síldarvörpu. Siglufiröi 9. ágúst (FÚ) Þeir Árni Friðriksson fiskifræð- ingur og Geir Sigurðsson skip- stjóri fóru í gærkveldi út á Sindra með síldarvörpu. LTrðu þeir að reyna fyrir sér í Eyjafirði, því ó- hagstætt veður var úti fyrir, og fengu þeir þrjár sildar. Arni fer aftur með vörpuna, með eimskipinu Þór. Lítill síldarafli. Sama sem engin sild hefir bor- ist til Siglufjarðar til söltunar ])enna sólarhring, og þá helzt dá- lítið af reknetasíld. Saltaðar hafa verið 129 tunnur. Frá Djúpvík. 9. ágúst. (FÚ). Fréttaritari útvarpsins við Fiski- flotann simar, að i nótt hafi lagt á land í bræðslu í Djúpvík togar- arnir Suqrrise 359 mál og Kári 458 mál. í gær og í dag segir hann hafa verið hvassviðri og hvorug- zn daginn síldarvart fyrir öllu Norðurlandi. Frá Austfjörðum. 9. ágúst. (FÚ). Frá Seyöisfirði simar fréttarit- ari útvarpsins, að síöasta hálfan n ánuð hafi verið þar ágæt hey- skapartið, og mörg tún séu alhirt, og hafi taðan fengið ágætisverkun. Aflabrögð segir hann fara batn- andi, og hafa veiðst 3 til 8 skip- pund á stærri báta af góðfiski. Gæftir eru þó nokkuð óstöðugar. Sjómenn telja mjög mikla síld af öllum stærðum austan Langaness til Glettinganess, og ])ó lengra. Síldarlöndun á Raufarhöfn. 9. ágúst. (FÚ). Síðan á mándag hefir verið lögð á land síld sem hér segir í Rauf- arhöfn: Pétursey 607 mál, Stella 504 mál, Þorgeir goði 448 mál, og 53 mál, ísbjörn 499 mál, Jón Þorláks- son 317 mál, Fáfnir 39 mál, Nanna 74 mál, — Öll skipin hafa veitt viö Langanes. Verksmiðjan í Raufarhöfn hefir r,ú tekið á móti 22.559 tnálum sild- ar alls. Stormur og rigning var á norðanverðri Melrakkasléttu í dag. Frá Keflavík. 9. ágúst. (FÚ). I dag var góð síldveiði í reknet á báta úr Keflavík. Sildin er fryst til beitu því allir eru tunnulausir. Félagsíshús útgerðarmanna í Keflavík hefir nú fylt íshús sitt með beitusíld. í surnar hefir íshús- ið fryst 2385 tunnur, sem er veiði tveggja báta, en í fyrra frysti ís- liúsið alls 1540 tunnur, sem var þá öll sumarveiði tveggja báta til septembermánaðarloka. Útvegsbanki íslands hefir í sumar látið endurbæta íshús sitt í Keflavík mjög mikið. Guömundur Kristjánsson kaupmaður, sem hef- ir eignir Útvegsbankans í Kefla- vík á leigu, er nýfarinn að láta frysta síld í íshúsi þessu. Frá Norðfirði. 9. ágúst. (FÚ). L. v. Garðar frá Bergen kom í dag til Neskaupstaðar til’ þess að taka kol og hafði fengið í nótt 300 tunnur síldar djúpt út af Glctt- ingi. — Kvað hann annað norskt veiðiskip hafa fengið um 700 tunn- ur á sömu stöðvum. Nokkuð af sildinni var millisild. Skipstjótinn telur talsverða síld þar um slóðir en veður var óhag- stætt. — Engin islensk skip voru þar að veiðum. Bæjaríréttir Messur á morgun: í dómkirkjunni: Kl. n, sira Bjarni Jónsson. í íríkirkjunni í Hafnarfirði: Kl. 2, síra Jón Auðuns. Veðrið í morgun: í Reykjavík 7 stig, Bolungarvík 7. Akureyri 6, Skálanesi 9, Vest- mannaeyjum 8, Sandi 9, Kvígind- isdal 8, Hesteyri 5, Gjögri 5, Blönduósi 6, Siglunesi 4, Grimsey 4, Raufarhöfn 5, Fagradal 7, Hól- urn i Hornafirði 10, Fagurhóls- mýri 13, Reykjanesi 9, Færeyjum 13. Mestur hiti hér í gær 10 stig, minstur hiti 7 stig. Sólskin 4.7 st. — Yfirlit: Lægð fyrir austan land á hreyfingu austur eftir. Horfur: Suðvesturland, Faxaflói: Allhvass norðan í dag, en lygnir í nótt. Þurt og víöa bjart veður. Breiðafjörður: Norðankaldi. Víð- ast úrkomulaust. Vestfirðir, Norð- urland, uorðausturland, Austfirð- ir:. Nórðankaldi. Skýjað1 og dálitil rigning. Suðausturland: Noröan- kaldi. Víðast bjartviðri. Dronning Alexandrine kom kl. 7 i morgun til Kaup- mannahafnar. E. s. Primula fer kl. 8 í kveld til útlanda, Skip Eimskipafélagsins. Gullfoss fór frá Kaupmanna- höfn í morgun, áleiðis til Leith. Goðafoss er á útleið. Dettifoss er væntanlegur hingað kl. 5 e. h. í dag frá útlöndum. Selfoss er í Reykjavik. Lagarfoss er í Kaup- mannahöfn. iBrúarfoss kom að vestan í nótt. Myndasýningin í Miðbæjarskólanum vekur mikla athygli allra þeirra, sem þar koma, en aðsóknin er stöðugt góð og fer- vaxandi, enda er það reglu- lega íróðlegt og skemtilegt að sjá af myndunúm hvernig umhorfs hefir verið hér í bæ alt frá því hér voru 5^—6 hús og þar til nú, að liér er upp komin nýtísku borg. Sýningin er opin kl. 2—10 daglega (einnig á morgun, sunnudag). Að- sókn er mikil á kveldin, þegar fólk er Iaust úr vinnu. — Njóta myndirnar sin vel við Ijós. Við gamalmennaskemtunina á morgun flytur dr. Guðm. Finn- bogason landsbókavörður erindi, Sigurður Skúlason magister les upp, dómkirkjukórið syngur, hornaflokkur spilar, Jósep Hún- :fjörð kveður og fleira í undirbún- ingi sem getið verður um í fyiva- málið. Veöurútlitið er ágætt, svo aö vænta má fjölmennis að svo marg- þættri og góðri skemtun. Strætisvagnarnir, sem íara um Sólvelli, fara alveg fram hjá Elli- heimilinu og Skerjafjarðarvagnar skamt frá því, — og því verða engir sóttir frá Élliheimilinu sjálfu. Væntanlega hlynna marg- ir að ]>ví, að þeir sem fóthrúmir eru, komist samt. Gjörið svo vel að láta það ber- ast til allra, en þó sérstaklega til roskinna einstæðinga, sem ekki lesa blaðið, að skemtunin sjálf hefjist kl. 2 siðd. á morgun við Elliheimilið, og alt ókeypis fyrir ,.gamla fólkið“, en hinir borga of- urlítið til styrktar heimilinu, sem „kreppan" ])rýstir að á ýmsa lund. S. á Gíslason. Danskennararnir Helene Jónsson og F.igild Carl- sen skemta með danssýningum i yfirstandandi mánuði á „St. Thom- as“ í Kaupmannahöfn við mikið lof og fögnuð áhorfenda. Gengið í dag: Sterlingspund .......... — 22.15 Dollar.................. — 4-47ý2 100 ríkismörk .......... — 180.22 — franskir frankar . — 29.76 — belgur ...’......... — 75-5° —■ svissn. frankar .. — 146-35 — lírur .............. — 37-25 — finsk mörk______ » — 9.93 — pesetar ............ — 62.12 — gyllini.............. — 302.88 tékkósl. krónur .. — 18.93 — sænskar krónur .. — 114.36 — norskar krónur .. — 111.44 — danskar kiónur .. — 100.00 Gullverð ísl. krónu er nú 49.13. Hjálpræðisherinn. I kvöld kl. 8y2 verður útisam- koma á Lækjartorgi. Samkomur sunnudagsins: Kl. 11 f. h. helgun- arsamkoma, Kapt. R. Nærvik tal- ar, kl. 4 og- kl. 7 e. h. útisamkom- ur, kl. 8)4 hjálpræðissamkoma, all- ir foringjar og liðsmenn munu taka þátt í samkomunum. Allir vel- komnir. Næturlæknir er í nótt Gúðm. K. Pétursson. Sími 1774. — Næturvörður í Laugavegs apóteki og Lyfjabúð- inni Iðunni. Nýja Bíó sýnir mjög eftirtektarverða kvikmynd í fyrsta sinni í kveld. Er það sænsk tal- og tónmynd, sem nefnist „Endurfundin ást“.< .4 ðalhlutverkin hafa með hönd- um sex af ágætustu leikurum Svía. Útvarpið í kveld. ^9,10 Veðurfregnir. 19,20 Tón- leikar: Danslög (plötur). 20,00 Klukkusláttur. 20,00 Upplestur. 20,30 Fréttir. 21.00 Tónleikar: a) Út varpstrióið ; b) Siiðræn sönglög (plötur). 22,00 Danslög til kl. 24. Sykmútið í Varsjá. Seinni hluta þessa mánaðar fer fram landakeppni í skák í Varsjá. Þessar landakeppnix njóta sívax- andi vinsælda og 1930 i Hamborg og 1933 í Folkestone tók ísland þátt í keppninni v:ið góðan orð- stir. Að þessu sinni tekur ísland ekki þátt i keppninni, en hins- vegar mun mörgum forvitni á því hvernig hinar Norðurlandaþjóð- irnar „standa sig“, en þær taka allar ])átt í keppninni. Þrátt fyrir alla kreppu er fyrirsjáanlegt, að þátttaka verður meiri en nokkru sinni áður. Um miðjan júli höfðu 21 þjóð tilkynt þátttöku sína. Þær eru ])essar: (Getið verður um keppendur þar, sem kunnugt er um þá) 1. Argentina' (L: R. Piazz- ini, R. Grau, J. Pieci, J. Bolboc- han), 2. Austurríki (A. Becker, E. Eliskases, E. Grúnfeld, H. Múller, R. Spielmann), 3. Dan- mörk, 4. Spánn, 5. Eistland (P. Keres, G. Friedmann, Laurenti- us, J. Rauel, F. Kibbérman), 6. Finnland (E. Böök, I. Solin, B. Rasmusson, R. Ivrogius, C. Heili- mo), 7. Frakkland (Dr. A. Aljec- hin, Dr. O. S. Bernstein, V. Kohn, Muffang, (Betbeder), 8. Bretland (Sir. G. A. Thomas, E. Atkins, W. Winter, C. H. O’ D’ Alexander, H. Golombek), 9. Ungverjaland, io. írland (A. de Burca, G. Cran- ston, J. Creevey, J. J. Ó’ Hanlon, Brian Reillv), 11. ítalia, 12. Lett- land (F. Apsenek. V. Petrov, M. Feigin, W. R. Haséníuss), 13. Lit- hauen (Macht, Mikenas, Vaitonis, Vistaneckis), 14. Noregur (T. Hal- vorsen, E, Rojahn, A. Gullbrand- sen, E. Haabe, O. Óversand), i5. Palestína, 16. Póila d. 17. Rúm- enia (H. Silbermann, Dr. N. Brody, J. Halic. S. Erdelyi, T. lchim), 18. Sviþjót. 19. Tékkó- slovakia (S. Flohr, Dr. K. Trey- bal, K. Opocensky, j. Rejfir, Peli- kan), 20. Bandaríkin (U. S. A.), 21 Jugoslavia. D. „LITLI KARL — “ Hermenskulífið — að minsta lcosti i lierbúðunum þama við Niagaravatnið — varð framan af nokkurs konar skemtun í þeirra augum, skemtun, sem þeir voru þátttakendur í. Þeir voru ekki að hugsa fram i tímann enn sem komið var. Og þeir voru ekki komn- ir þarna af því, að þeir hefði fundið hjá sér nokkura hvöt lil þess að berjast „fyrir föðurlandið“. Þeir höfðu alið allan sinn aídur langt norður í bygðum og þeir höfðu verið sóltir þangað. Til þess tíma höfðu þeir lítið um styrjöldina vitað. Það hafði gengið í heilmiklu stímabralci að fá þá lil að skilja, að alt væri undir þeim komið, þeir yrði að gerast hermenn til þess að „bjarga menningunni“, og þcir skildu það vist aldrei, en þeir gerðust hermenn eigi að siðnr. Það var ekkert undanfæri. Þeir töluðu slundum um það, að Quebee-fylki væri ekki í neinni hætlu, en ef óvinalier hefði ráðist inn í Quebec, hefði þeir hotnað eitthvað í þessu og farið með af áhuga, en þeirra Iieimur var í rauninni skógarheimurinn þeirra norð- ur í landi og þar hefði þeir helst kosið að vera kvrrir, stunda veiðiskap, pranga-með loðskinn og daðra við eskimóa- og Indíánastelpur, þegar færi gæfist, en nú var elcki um þetta að tala, eins og annar þeirra, Al- bert að nafni, sagði, er þetta bar á góma. Báðir höfðu þeir mikla ánægju af því, þegar kveld var komið og allir komnir í háttinn í tjöldunum, og rætt var um alla hluti milli himins og jarðar, uns skipað var að slökkva á öllum kertum og hætta öllum liávaða. Heimilislífinu í tjöldunum, ef svo mætti kalla það, undu þeir vel. En svo kom það fyrir, að þeir — eins og svo marg- ir aðrir — fóru — í leyfisleysi eða að fengnu leyfi, til þorpsins við valnið, „Niagara on the Lake“. Þar voru sýndar kvikmyndir, þar fekst hjór og koníak, og þar var hægt að fá sér snúning. Og þar var kven- fólk, sem fyrirhafnarlítið var að koma sér i kynni við. , Svona leið líminn fyrir þeim, við æfingarnar. Skyldustörfunum gegndu jieir samviskusamlega og kvörtuðu ekki. Það leyndi sér ekki, að þeir undu hermenskulífinu sæmilega, kannske vegna þess, að það var tilbreyting. Þeir voru að kanna nýja stigu og af því að þeir liugsuðu sjaldan lengur en til næsta dags — eða kannske næstu helgar — voruþeiránægð- ir, nokkurn veginn ánægðir, með alt eins og það var i herbúðunum. Þeir voru ekkert að hugsa út í það, hvað myndi gerast, er til Frakklands kæmi — ekki enn ]iá — en um það hugsuðu þeir og ræddu hvað þeir ætti að gera „í kveld“ eða „næsta laugardags- kveld“. Smáalvik livers dags og næstu daga veru þeirra aðalumliugsunarefni. Verutíminn þarna var stuttur. Fáar vikur. Hann var svo stuttur, að menn, sem eins var ástatt fyrir og þeim bræðrum, áttuðu sig ekki fyllilega á þvi, er kallið skyndilega kom um að fara til Englands. Og þó voru þeir í hópi þeirra fáu, sem höfðú engan að kveðja, að því er virtist. Eg man allaf eftir því, að daginn, sem okkur var tilkynt, að lagt yrði af stað að kveldi, voru þeir bræð- ur staddir fyrir ulan tjald sitt og eldri bróðirinn, Hubert, var óvenjulega alvarlegur á svipinn. Þeir voru að tala saman bræðurnir og þeir voru rólegir að sjá. Þeim var sýnilega meiri alvara i hug, en eg áður liafði orðið var við hjá þeim. Þetta sama kveld, er liði var fylkt til brottfarar, og búið var að kynda bálin á völlunum og við vorum að húast í fylkingu, var víða sungið við raust, mest ættjarðarsöngvar, á ensku og frakknesku, frakkneski þjóðsöngurinn og „God save the King“ og lika „The Star Spangled Banner“. Menn höfðu fengið sér liress- ingu og þegar eg hitti Hubert þarna úti á völlunum sagði hann við mig: „Það er alvara!“ Setningar hans voru að jafnaði stuttar og þegar honum var mikið í hug var eins og hann lirækti út úr sér orðunum, eins og úttugðum tóbakstölum, en hann japlaðj sýknt og heilagt á tóbaki eða tottaði pipuna sína, þegar yfirforingjarnir voru hvergi nærri. „Vitanlega er það alvara,“ sagði eg. „Við förum til Frakldands, lia?“ „k.g liefði nu Iialdið það, en við verðum sendir til Lnglands fyrst, til æfinga. Þu ert hissa á þessu Hu- bert ?“ „Eg hefi fjandans lítið hugsað út í það!“ „Ert kannske leiður yfir, að hafa lent i þessu ?“ „O—svei!“ Eftir nokkura þögn bætti liann við: „Sjáðu, eg hafði Iofað pabba því, að lita eftir Al- beit, þegar hans — skilurðu — nyti ekki við lengur. Eg hefi alt af liaft Albert með mér síðan pabbi dó. Kannske sjáum við aldrei Quebec aftur. Undarlegt Hnefaleikskepnf. Osló, 9. ágiist. — FB. Hnefaleikskepni f<ir fram í Montreal í gær og keptu þeir Pete Sanstöl og Sixto Escobar um heimsmeistaraíign (í „bant- am-þyngd). Eseobar var dæmd- ur sigurinn. Leikurinn var jafn og voru áhorfendur hlyntir Sanstöl. Hann meiddist á auga í kepninni. Áhorfendur voru um 10.000. Norsk skip, sem stunda veiðar við Island, ekki undanþegin greiðslu söluskatts. Fjármálaráðunej'tið heíir ákveö- ið, að skip, sem búin eru til veiða við ísland skuli ekki undanþegin því að greiða viðskiftaskatt (om- sætningsskat). Útgerðarmannafé- Lgið í Alasundi vinnur að því, að Jæssari ákvörðun verði breytt. Kyndarinn: Þú kystir unnust- una mína i gærkveldi, þegar dimt var orðið. Hvað hefiröu þér til afsökunar? Hásetinn: Eg kyntist henni í dimmu. Nú, þegar eg hefi séð hana við dagsljós get ég íullvissað þig um, að i framtíðinni þarftu engar áhyggjur að hafa.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.