Vísir - 24.08.1935, Blaðsíða 4
VlSíR
höll og veröur dansaö fram eftir
kveldi. Þeir, sem ætla aö taka þátt
í för þessari, en hafa ekki ennþá
tilkynt þátttöku sína. ættu nú þeg-
ar aö tala viö Hjört Hansson,
Veltusundi i, sími 4361, eða Guð-
jón Jónsson, Hverfisgötu 50, sími
3414, og láta'þá vita.
Skip Eimskipafélagsins.
iGullfoss er á Siglufirði. Goða-
foss koin hingað frá utlöndum i
morgun um kl. 10. Dettifoss er á
leiö til Hull frá Vestm.eyjum. Brú-
arfoss fór frá Kaupmannahöfn í
morgun áleiöis til Leith- Lagarfoss
er á Raufarhöfn. Selfoss er í Ant-
werpen.
Næturlæknir
er í nótt Jón Norland, Skóla-
vörðustíg 6. Simi 434S. —• Næt-
urvöröur í Laugavegs og Ingólfs
■apóteki.
Útvarpið í kveld.
19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tóu-
leikar (plötur) : Danslög. 20,00
Klukkusláttur. 20,00 Upplestur:
Skopsaga eftir Mark Twain
(Brynjólfur Jóhannesson leikari).
20,30 Fréttir. 21,00 Tónleikar: a)
Útvarpstríóiö; b) Ferðasöngvar
og lög (plötur), 22,00 Danslög til
kl- 24.
ötan af landí.
Siglufirði 23. ágúst. FU.
Brautin um Siglufjaröarskarð.
Tveggja kílómetra leiö af Siglu-
fjarðarskarðsbraut, eða einn sjötti
hluti, er nú fuílhlaöinn, og er verið
að áka slitlagí á þann kafla vegar-
■ins. Sá ofaníburður er tekinn niður
við Fjarðará. — Þessi kafli og
næstu 500 metrar eru einna sein-
unnastir og dýrastir, að undan-
skildu sjálfu skarðinu sem er ör-
mjótt.
Til þessa hafa verið unnin 856
gjafadagsverk, auk 136 dagsverka
sem gefin voru af Ríkisverk-
smiðjumönnum og 80 dagsverka er
verksmiðjumenn Snorra og' Hjalta-
líns gáfu. — Végurinn er 4.50 mtr.
breiður, fullsíginn.
Frú Jensen:
— Mikil ósköp og skelfing er ég
hrædd um, að hún Jónfríður hérna
,í næsta húsi sé orðin ekkja. Mér
rfínst ég sjá manninn hennar svo
•sjaldan nú orðið.
tJtvarpsfréttir.
Mæling ráðgerð á jökulbákni
Grænlands.
London, 23- ágúst (FU)
Frá Victoria í British Columbia
kemur sú fregn,að kaþólskur prest-
ur að nafni Bernard Hubbard, sem
kunnur er fyrir jöklarannsóknir
sinar i norðurheimskautslöndum,
sé nú að ttndirbúa leiðangur til
að mæla dýpt Grænlandsjökuls, er
hann álíttir að ekki fari fram úr
2000 fetum. Til að reyna mæl-
ingatæki sin, ætlar hann fyrst að
fara rannsóknarför til Alaska og
gera mælingar á Takujöklinum.
Hann heldur því fram, aö sá þrýst-
ingur, sem orsakast af þunga fann-
ar og íss, framleiði hita, sem bræði
stöðugt nokkurn hluta af jöklin-
um. Á ferðalaginu í Alaska mun
presturinn hafa með sér sérstakan
bát, 18 feta langan, smíðaðan úr
ryðfríu stáli, og ætlar hann að
ferðast á honum yfir hinar hættu-
legu flúðir í ánum í Alaska.
Síldarverð fer hækkandi.
í Noregi vænta ntenn að verð-
ið’á íslenskri síld verði 50 krónur
fyrir tunnuna. Síldarsöluhorfur í
Póllandi og Þýskalandi fara batn-
andi.
Frá Dansk-íslenskri ráðgjafar-
nefnd.
Fréttaritari útvarpsins í Kaup-
mannahöfn hefir haft tal af pró-
fessor dr. phil- Erik Arup um fund
dansk-íslensku nefndarinnar, 24.
ágúst, —- en próf. Arup á sæti í
nefndinni. Prófessor Arup segir,
að nefndin muni meðal annars at-
huga möguleika á því, að auka út-
flutning til Danmerkur á íslenskri
síldarolíu og síldarmjöli. Þrátt fyr-
ir það, að fjárhagsástæður í Dan-
mörku eru ekki sem bestar og ekki
er heldur gott útlit meö að fá inn-
flutning til Danmerkur aukinn,
vegna þess, hve reglur um gjald-
tyrisleyfi eru strangar, álítur próf.
Arup, að möguleiki sé til þess að
fá atikinn innflutning á þessum
vörutegundum frá íslandi. Danski
hluti nefndarinnar er fús til þess
að reyna að fá aðalinnflytjendur
síldarolíu og síldarmjöls til ])ess aö
vinna að þvi, að koma þessu til
leiðar.
Þá skýrði próf. Arup frá því, aö
það væri ætlun nefndarinnar að
ferðast um Jótland, og sýna ís-
lensku nefndarmönnunum ýms
mannvirki, og starfrækslu þar,
sem þeir álíta að hafi sérstaka þýð-
ingu fyrir ísland, til dæmis fiski-
skipahöfnina í Esbjerg, olíuverk-
smiðjurnar í Árósum, og niður-
suðuverksmiðju á Skagen- Síöast
en ekki síst muni Danirnir sýna
þeim hina nýsmíðuðu Litla-beltis-
brú, sem þeim finst rnjög mikið
til um.
Verkfalli lokið.
London í gærkveldi (FU)
Skyndiverkfalli því, er hafnar-
verkamenn í Plymouth i Englandi
gerðu í gær lauk í dag. Eftir að
fulltrúar verkamanna höfðu átt
viðræður við fulltrúa vinnuveit-
enda, varö aö samkomulagi, að
vinna skyldi hafin aftur, þar til
saníningaumleitanir hafa farið
fram, í næstu viku, og séð verður,
hvort samkomulag ekki næst.
Hafskipið Champlain, sem varð
fyrir tveggja daga töf um daginn,
er verkfalliö skall á í Le Havre,
kom til Plymouth í dag, og stóð
aðeins hálftíma við. Það hafði
staðið við mjög skamma stund í
New York, :Og var gært ráð fyrir
aö þáð gæti siglt frá Le Havre á
morgun, á upphaflegum áætlunar-
tíma.
Slys.
Berlín 22. ágúst (FÚ)
í rúmenskri flugvélaverksmiðju
varö í dag mjög alvarlegt slys.
Nýreist flugvélabyrgi hrundi og
biðu margir menn bana, en íjöldi
særðist. Húsagerðameistari sá, sem
reisti skýliö, hefir verið handtek-
inn.
Bretar og Abessiníudeilan.
Berlín, gærkveldi. — FÚ.
Eftir ráðlierrafundinn í. Lon-
don í gær er það álit áhuga-
manna um stjórnmál í Eng-
landi, að breska stjórnin muni
ekki gera frekari tilraunir til að
hafa áhrif á.ítali út af misklíð
þeirra og Abessiníumanna, en
láta frönsku stjórnina cina um
þær tilraunir.
Óveður.
London, i gærkveldi. — FÚ.
I dag og s. 1. nótt gerði óveður
með þrumum og eldingum í
suður- og suðausturhluta Eng-
lands, eftir liitann í gær, og
urðu sumstaðar rniklar skemdir
af völdum veðursins, ýmist
vegna hvassviðris eða eldinga.
Eldur í Yorkshire.
London, í gærkveldi. — FÚ.
Á annað þúsund manns vann
i alla nótt við að reyna að
slökkva sinu-eldinn, sem nú
brennur á rúmlegja 2000 ekra
svæði i Yorksliire, og í dag liafa
hermenn verið sendir til að að-
stoða við slökkvistarfið. Álitið
er að eldurinn hafi kviknað út
frá vindlingi, er einhver flevgði
frá sér í ógáti.
Norskar
loftskeytafregnir.
Oslo 23. ágúst- FB.
Landbúnaðarráðuneytið
hefir skipað nefnd til þess að
ganga frá áætlun um það, hvernig
best megi nýta feitmeti, sem tinnið
er í landinu sjálfu. Hundseid fyrr-
um forsætisráöherra, stórþings-
maöur og formaður liændaflokks-
ins er formaöur nefndarinnar.
J
Hlutabréf hækka í verði.
Ófriðarorðrómurinn olli því í
gær, aö hlutabréf í útgerðarfélög-
um hækkuðu mjög í veröi á kaup-
inni í Oslo. Onnur verðbréf hækk-
uðu urn alt aö 6%. Sala var mikil.
Síðan í ágústbyrjun hafa hluta-
bréf eimskipafélagsins Bruus-
gaard og Klædsterud hækkað úr
32 upp í 45, Ameríkulínan úr 70
i 82J/2, Ocean úr 55 í 67JÖ, Waage
úr 50 í 60. Hækkunin á hlutabréf-
um útgeröarfélaganna olli og
nokkurri hækkun á iðnaðarhluta-
bréfum, og hækkuöu meðal ann-
ars hlutabréf í Hvdro, Borregaard,
Kosntos, Rosshavet, Skytteren,
Vestfold og sjóvátryggingarfélög-
unum.
i
Stríðsvátryggingar-
Centralforeningen heíir skipað
nefnd til þess aö gera uppástungur
um stríðsvátryggingarkjör fyrir
vörur í skipum.
I
Í
Reynsluför.
Hvalveiöaskipið ,,Pol 4“, sem
bygt Var á Nyland skipasmíöastöö-
inni til hafíssiglinga fó'r í reynslu-
ferö i gær og náði 13,5 hnúta
hraða.
*
Hitt og þetta.
—o---
Hann varð af lestinni.
Auðugur Lundúnabúi býður ár-
lega blaðsöludrengjunum í hverfi
einu í London í skemtiferð aö bað-
stað nokkrum við.Thames og er að
jafnaði farið í járnbrautarlest. Eft-
irfarandi samræða á að hafa heyrst
í skemtiferð blaðadrengjanna í
sumar, er þeir voru að „fara út í“.
•—- Þú þarna, Billy, þú ert kol-
biksvartur á skrokkinn.
— Já, eg misti af Iestinni í
íyrra!
KlitSNÆtll
2—3 áreiðanlegir menn, sem
vildu búa saman, geta fengið
herbergi og fæði fyrir sann-
gjarnl verð í góðu liúsi i mið-
bænum. Tilboð, merkt: „1-2-3“
leggist inn á afgr. Vísis fyrir 28.
þ. m. (507
1—2 herbergi og eldliús ósk-
ast 1. okt. 2 i heimili. Tilboð,
merkt: „H.“, sendist Vísi strax.
(508
Sólrík stofa með sérinngangi
óskast nú þegar. Uppl. í síma
1513. , (513
2 herbergi og eldhús óskast
1. okt. Uppl. í sima 2818. (514
Tvö til þrjú herbergi óskast 1.
sept. Uppl. í síma 2656. (516
Lítil ihúð i nýju húsi óskast
1. okt. Tilboð merkt: „27“ send-
ist Visi fyrir miðvikudag. (517
Góð íbúð óskast í austur-
bænum. Skilvís búsaleiga. Að-
eins tvent i heimili. Uppl. i síma
4378. (495
Stór ibúð, 3 stórar stofur og
2 minni lierbergi rétt við mið-
bæinn. Heppilegt fyrir matsölu.
Til leigu frá 1. okt. Uppl. í síma
3294, en á kvöldin: 1839. (473
Stúlka óskar eftir litlu her-
hcrgi með sérinngangi, helsl
með miðstöðvarhita. — Tilboð
merkt: „Fljótt“ sendist Visi. —
(519
Óska eftir 1 herbergi með
eldunarplássi 1. okt., helst í
austurbænum. — Uppl. í síma
2394, kl. 5—7 e. m. (520
Góð slofa lil leigu, með ljósi
og liila. Getur komið til greina
lítill eldhúsaðgangur. Uppl. í
síma 4410. (523
Reglusamur maður getur
fengið slrax eilt lítið herbergi
með eða án húsgagna, með að-
gangi að baði og shna. Fæði á
sama stað. — Tilboð, merkt:
„Bárugata“ sendist afgr. Vísis
fyrir iniðvikudagskvöld. (525
Frúin (viö þernu sína, sem
gIo])rað Iiefir niöur miklu af „leir-
taui og brotiö í mjöl) : — Veriö
ekki aö tefja yðitr á því núna, ung-
frú jensen. aö sópa brotunum sam-
an. — Þaö er bara tvíverknaður.
Bíöiö heldur þangaö til þér eruð
búnar aö bera út af boröinu og
brjóta það sem þér ætliö yður aö
sinni.
Til leigu sólrik slofa og eld-
unarpláss og 1 stofa og eldhús.
Reylcjavíkurevgi 7, Skerjafirði.
(510
KiíAlPSKAFlKl
2 hámjólka kýr til sölu. Eru
báðar undan sömu kú, sem
hefir fengið 1. verðlaun. — Jón
Magnússon, Njálsgötu 13 B. —
(521
Gott útvarpstæki fyrir Reykja-
víkurstraum fæst á Kárastíg 10.
Ödýrt. Uppl. eftir kl. 6. (511
Vil kaupa lítinn peningaskáp.
Sími 2332, frá kl. 6 e. h. (512
HÚSGAGNAVERSL.
VIÐ DÓMKIRKJUNA
selur ydup
húsgögnin.
Notaður barnavagn öskast
keyptur. Sími 3253. (524
1/2 lons vörubifreið i góðu
standi til sölu. — Uppl. í sima
1439. (530
ttÁPÁf) fUNDIf)J
Tapast hefir silfurbúinn
bvalbeinsbaukur, sömuleiðis
silfurbúin svipa. Uppl. á Grett-
isgötu 59. (509
Kvenarmbandsúr fundið. —
Uppl. Vesturvallagötu 7. (527
Peningabudda liefir tapast
frá Skóbúð Revkjavíkur vestur
að Ránargötu. Skilist á Ránarg.
20. Sími 1811. (529
MVINNAW
Ung stúlka óskar eftir for-
miðdagsvist lil 1. okt. Ulppl. í
síma 1699. (515
Stúlka óskast. Laufásveg 57.
(522
Stúlka óskast um mánaðar-
tima eða lengur ef um semur.
Ilátl kaup. Laugavegi 49. (528
IKENSUI
Kenni píanó og orgelspil. —
Hljóðfæri til æfinga gæti komið
til greina. Lorange, Freyjugötu
10,— ,‘ (526
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
VANDRÆÐ AMENN. 30
:hún. — Vinir mínir eru efnaðir, og munu sjá
mér farborða.....Má eg fá eitt glas aí víni til,
áður en eg legg af stað? Þakka yður fyrir. Og
fáeina vindiinga? — Þakka yður fyrir.
— En áður en þér farið, verðið þér að segja
mér alt, sein þér vitið um þetta leyndardóms-
fulla gistihús, mælti liann.
Hún hristi Iiöfuðið. ,
— Yður er óhætt að trúa mér, kæri —- Roger?
Eg veit ekki meira, en eg hefi þegar sagt yður.
Við komum eklci auga á fleira fólk, en þennan
þjón, sem visaði okkur til herbergisins og bar
kampavínið á borð fyrir okkur. — Og svo þenn-
an ógeðslega mann, sem reifst við Henri, þeg-
ar eg liljóp leiðar minnar. Annað veit eg ekki.
Og yður er alveg óhætt að trúa því, sem eg
segi.
— Er þetta þá áreiðanlega alt, sem ]>ér vitið ?
—. Já. — Alt, það fullvissa eg yður um.
— Þér vitið ]>á nokkuð lítið, finsl mér, taut-
aði Roger, gramur í geði.
— Það er kannske of lítið fj-rir yður. En það
var mikils virði fyrir mig að rekast á yður,
hvislaði hún og tók hönd hans.
Rúmri klúkkustund síðar hjálpaði Roger
Marie Lauise inn í hina fögru tveggja manna
bifreið sína, vafði teppi um hana, og gaf bif-
reiðarstjóranum skipanir sínar.
Hún hallaði sér skyndilega út úr bifrciðinni,
’tók andlit hans á milli handa sér, og kysti hann
alúðlega. Það var góður koss. Ilún mælti: —
Viljið þér ekki sjálfur aka mér til Marseillc,
Roger? Svo kysti hún liann öðru sinni. Hún
kvaðst miklu heldur vilja, að hann æki sér
sjálfur. — Bifreiðarstjórinn gæti vel orðið eftir.
— Góða ferð, kæra ung'frú, sagði liann liátt,
og bætti svo við í liálfum hljóðum. — Gætið
þess að láta ekki lögregluna klófesla yður.
Þvi næst rélti hann úr sér og sá á sama
augnabliki lögregluþjón, — allskörulegan mann
og risa á vöxt, ganga hratt yfir götuna að bif-
reiðinni. Honum féll allur ketill í eld. Vesalings
litla Marie Louise.
— Bifreið yðar, Iierra minn, má ckki standa
þarna. Bifreiðastæðin eru lúnum megin göt-
unnar. — Hann sagði þetla sæmilega kurteis-
um en allströngum rómi. ,
Roger kom þetta illa og lionum spratt sveiti
á enni, og þó var alls ekki lilýtt í veðri þessa
nótt.
—■ Þakka vöur fyrir leiðbeininguna, lög-
regluþjónn, tautaði hann og afhenti hina til-
skildu tíu franka. — Best að komast hjá öllu
þrefi, hugsaði hann með sjálfum sér.
Næsta kvöld þegar Roger gekk inn í vínveit-
ingastofu íþróttaklúbbsins, heyrði hann strax á
liinum æstu röddum gestanna, að eittlivað
óvenjulegt liafði komið fyrir. Frænka lians,
Erskine, Savonarilla, Thornton, Terence Brown
og kona lians og Maggie Saunders — í stuttu
máli allir „samsærismennirnir", sátu í kringum
kringlótta borðið, og horfðu á hann, eins og
týndan sauð, sem nú sneri aftur til hjarðar
sinnar. ,
— Hvar í ósköpunum hefir þú alið manninn,
Roger? spurði frú Julia og horfði á hann frá
hvirfli til ilja gegnum stangargleraugu sin.
Hann settist á auðan stól andspænis Tornton
og kveikti sér í vindlingi.
— Eg þurfti að lireyfa mig ofurlítið, og fór
þessvegna i langa gönguför, alla leið til La Tur-
hie, og þaðan fór eg með áætlunarbifreiðinni lil
Nizza, borðaði þar hádegisverð — i ró og næði
— í Pergola veitingaliúsinu, ef ])ig fýsir að vita
])að — og kom svo heim fremur seint. í morgun
lieji eg verið í Cannes við tenniskepnina. Nú er
eg búinn að skrifta, og nú er komið að ykkur.
— Hefir nokkuð komið fyrir? — Nokkuð sögu-
legt?
— Ætlarðu okkur að trúa þvi, að þú liafir
ekki frétt það? mælti frænka hans.
-—■ Eg hefi hvorki frétt eitt né annað, svaraði
liann mjög rólegur í bragði. — Það bafa von-
andi ekki orðið fleiri slys?
-— Það getur það nú eiginlega ekki kallast,
svaraði Thornton. — Og enda þótt það kunni
að hljóma undarlega í eyrum þínum, þá erum
við ekkert við það riðin. Einn gjaldkeranna við
spilavitið er horfinn. Hann hvarf í gær og hafðí
á braut með sér hálfa aðra miljón franka.
— Hvað er þetta! hrópaði Roger. — Þctla
lítst mér á! Hefír liann náðst! — Hefir maður-
inn náðst? Hversvegna svarið þið ekki?
Thornton horfði rannsakandi í augu Roger.
— Það er mjög undarlegt, að þér skulið ekki
vita annað eins og þetta. ,
— Hversvegna ? spurði Roger. — Eg las isiorg-
unblaðið mitt alt, frá upphafi til enda. Og það
stóð ekki eilt einasta orð um peningahvarfið.
— Þér eruð samt nauðkunnugur öllu, sem
fram fer að tjaldabaki, svaraði majórinn. Það
er nú að minsta kosti mín skoðun. — Svo lítur
út, sem tveir gjaldkerar séu við þjófnaðinn
riðnir — eða öllu heldur einn gjaldkeri, aðal-
gjaldkerinn, og ung stúlka — litla laglega
ungfrúin, sem vann i kvenfalageymslunni. Þau
komust undan i hifreið, en siðar hafa þau, eftir
öllum sólarmerkjum að dæma, orðið ósált við
aðra samseka um skiftingu þýfisins. Því að hinn
roskni aðalgjaldkeri fanst í morgun, að bana
kominn, i gljúfri einu rétt hjá Eze, og gal að
eins stunið upp nokkurum óljósuin orðum, áður
en hann skildi við. Iiann var hroðalega leilcinn,
manngarmurinn.
— Hafa menn fundið nokkur vegsummerki,
er gætu leill til þess *að morðinginn eða morð-
ingjarnir fvndust? sjiurði Roger ákafur. Mér
þætli ekki ósennilegt, að eitthvað gæti fundist,
ef vel væri leitað.
Thornton liristi höfuðið.
— Og hvað hefir orðið af peningunum?
— Ef treysta má hinni samhengislausu skýr-
ingu hins deyjandi aðalgjaldkera, er svo að sjá,
sem stúlkan hafi orðið hrædd við rifrildið i
karlmönnunum, og liafi laumast á brott í